Morgunblaðið - 01.04.2003, Síða 28

Morgunblaðið - 01.04.2003, Síða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÞAÐ er dæmalaust að heyra lof- orðaflauminn fyrir landsfund Sjálf- stæðisflokksins. Allt á að gera fyrir alla, rétt eins og 1999. Varla hafa menn gleymt að flokkurinn efndi fæst af loforðunum á kjörtímabilinu. Til dæmis átti að rétta hlut aldraðra um 7 milljarða. Það var svikið. Í staðinn eru bótaþegar skattlagðir um milljarð á ári! Öryrkjar, aldraðir og láglaunafólk sem hefur undir 90 þúsundum á mán- uði greiðir í dag sem svarar mán- aðarlegum bótum í tekjuskatt. Ríkið skattleggur þá verst settu um milljarð á ári. Þetta fólk greiddi engan tekju- skatt þegar núverandi ríkisstjórn tók við völdum árið 1995. Þjóðsagan um skattalækkanir Loforðaveislan heldur áfram hjá Sjálfstæðisflokknum en veruleikinn er annar. Tekjuskatturinn hefur nefni- lega hækkað, en ekki lækkað. Nú er það einfaldlega staðfest. Rannveig Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylk- ingarinnar, beindi snjallri fyrirspurn til Geirs H. Haarde fjármálaráðherra um skattbyrði. Í svarinu til Rann- veigar kemur fram, svart á hvítu, að það er þjóðsaga að ríkisstjórn Davíð Oddssonar hafi lækkað tekjuskatta. Staðreyndin er sú og kemur fram í áð- urnefndu svari að 95% hjóna og 75% einstaklinga greiða í dag hærra hlut- fall af launum sínum í tekjuskatt en 1995. Þetta staðfestir sjálfur fjár- málaráðherra í svarinu til Rannveigar. Hlálegt er að þegar hann er kominn á flótta undan eigin svari, kallar hann spurningar lymskulegar. Barnakortin svikin Fyrir síðustu kosningar lofaði Framsóknarflokkurinn því að taka ætti upp ótekjutengdar barnabætur fyrir öll börn upp að 18 ára aldri. Það voru hin margfrægu barnakort. Þjóðin var svikin um með öllum b þúsund krón er nú einung ára aldri. Þe barnakort F Nú siglir S kjölfarið. Ha orðasúpuna. tala hinsvega hafa verið sk tíð núverand láta viðmiðu launaþróun. Stöðvar 2, og Þá gengur te Barnabætur 58 þúsund kr 116 þúsund h arnir hafa se í hálfgerðar skerðast áðu armörkum! E 11,3% einstæ barnabætur bóta vegna t fyrr á árum, ardóttir var vel þó ríkissj minna að spi hlutinn var v Ábyrgðarlaus loforðav Eftir Björgvin G. Sigurðsson „Það er þjóðsaga að ríkisstjórn Davíðs Odds- sonar hafi lækk- að tekjuskatta.“ SAMFYLKINGIN hefur þá skoðun að landbúnaðarstefna Framsóknar og Sjálf- stæðisflokks hafi fyrir löngu gengið sér til húðar. Það getur ekki gengið inn í framtíðina að stuðningur frá ríkinu taki til eilífðar mið af búskap í fortíðinni og mismuni þannig ný- liðum og þeim sem vilja stækka sín bú og taki ekki til annarrar starfsemi sem íbúar í strjálbýli vilja stunda sér og sínum til framfæris. Koma verður á jafnræði þeirra sem vilja stunda búskap eða annan atvinnurekstur í strjálbýli til stuðnings frá hinu opinbera. Stuðningur við atvinnulíf í sveitum Flokkurinn telur að það eigi að þróa á nokkrum árum stuðning ríkisins við land- búnað yfir í stuðning við atvinnulíf í sveit- um. Þetta þýðir ekki að dregið verði úr stuðningi heldur þvert á móti að stuðn- ingur verði fyrir hendi við fjölbreytt at- vinnulíf í strjálbýli. Að bændur geti valið um að draga úr eða hætta framleiðslu sem gefur lítið í aðra hönd og tekið upp nýjar búgreinar eða annan atvinnurekstur án þess að tapa þeim stuðningi sem þeir hafa haft frá hinu op- inbera. Þetta er byggðastefna með það að mark- miði að fjölbreytt atvinnulíf geti lifað og dafnað um landið allt. Stuðningur við skógrækt passar vel inn í þessa hugsun en einnig öll ræktun og land- nytjar. En við tökum skýrt fram að við telj- um að aðrar atvinnugreinar í strjálbýli eigi líka að eiga möguleika á stuðningi. Það hlýtur einnig að koma til álita að leita leiða til að bændur fái viðurkennd tækifæri til að selja framleiðslu sína milli- liðalaust einir sér eða í litlum samlögum, slíkt er vel þekkt t.d. í Danmörku. Þessar leiðir teljum við að muni styrkja atvinnulíf í strjálbýli, bæði búskap og aðrar greinar, og auka tekjur þeirra sem þar starfa. Tvískinnungsháttur Forystumenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins dásama atvinnu- frelsi, jafnræði og framtak einstakling- anna. En þega nýliðinn engan nýtur ekki jaf Þegar kemur engan kvóta fr heldur jafnræ réttinn til að li fyrir eru í gre Í öllum öðru menn frjálsir hefja rekstur keppni við þá En sá sem v hann fengi hel þeir sem fyrir vill skoða mög gerð kemst flj seint vegna þe á síðustu öld e kvótann. Þega arútvegsmál k það hafi allt í e þeim stjórnmá ferðinni. Þá gi atvinnufrelsið eru og jafnræ valda. Mismu Í mjólkurfr menn stjórna því að stjórna bónda með mi Úrelt landbúnaðarste Eftir Jóhann Ársælsson „Atvinnulíf í íslenskum sveitum get- ur átt bjarta framtíð.“ VEL heppnuðum landsfundi Sjálfstæð- isflokksins er lokið. Þar mótuðum við stefnu okkar og stilltum saman strengina í fjölmörgum málum og málaflokkum. Með- al annars í sjávarútvegsmálum. Tvennt ber þar hæst í mínum huga. Tvö mikilvæg áhersluatriði, sem ástæða er til þess að vekja athygli á, enda skipta þau bæði mjög miklu máli. Ívilnun fyrir dagróðrabáta á línu Guðmundur Halldórsson, sjómaður og trilluútgerðarmaður í Bolungarvík og for- maður smábátafélagsins Eldingar á norð- anverðum Vestfjörðum, flutti tillögu á fundi sjávarútvegsnefndar landsfundarins um að „tekin verði upp sérstök ívilnun fyr- ir dagróðrabáta sem róa með línu“. Miklar umræður fóru fram um þetta mál í sjáv- arútvegsnefndinni á landsfundinum og var hún felld þar. Guðmundur tók tillög- una hins vegar upp á landsfundinum sjálf- um og eftir umræður var hún samþykkt. Málin liggja því skýrt fyrir. Það er stefna Sjálfstæðisflokksins að „tekin verði upp sérstök ívilnun fyrir dagróðrabáta sem róa með línu“. Hér eftir þarf enginn að velkjast í vafa um stefnu okkar í þessu máli. Þetta er auðvitað tímamótasamþykkt. Ljóst er að áhrifamiklir menn beittu sér gegn þessari tillögu. Það var hins vegar sjónarmið meirihluta landsfundarmanna að tillaga Guðmundar Halldórssonar væri skynsamleg og því var hún samþykkt. Það er rétt sem lögð var áhersla á af tals- mönnum þessarar tillögu. Verði þessi samþykkt leid Sjálfstæðisflo mun hún stuð arútvegsbygg inn betur við b því í sessi. Me þetta baráttu af samtökum huga fólks, víð gríðarlegt hag Það er því ást þetta mál var inum. V hæ Hitt málið l hlutdeild eins inu svonefnda lög sem hafa k gætu haft yfir tekinni aflahlu fisktegundum ýmsir stunið, hafa nú gilt um skipta máli og Tímamótasamþykkti í sjávarútvegsmálum Eftir Einar K. Guðfinnsson „Sjálfstæðis- flokkurinn hefur ályktað mjög af- dráttarlaust í þessum efnum.“ SKATTATILLÖGUR VG Frétt Morgunblaðsins í dag, um aðVinstrihreyfingin – grænt fram-boð vilji lækka skatta, er ekki aprílgabb. Skattamál eru orðin mál málanna í kosningabaráttunni, sem var fyllilega tímabært. Sterk staða ríkis- sjóðs og þau miklu umsvif, sem fram- undan eru í þjóðfélaginu, gefa færi á að lækka skatta. Nú bregður svo við að jafnvel sá flokkur, sem lengst gengur í stuðningi við ríkisumsvif, lofar skatta- lækkunum og verður það að teljast nokkur nýlunda. Þá hafa allir hinir rót- grónu stjórnmálaflokkar nema Sam- fylkingin útfært stefnu sína í skatta- málum og bíða menn nú væntanlega með nokkurri óþreyju eftir skattatillög- um flokksins, þannig að heildarmyndin sé skýr. Á blaðamannafundi í gær kynntu for- ystumenn VG stefnu í skattamálum, sem m.a. gengur út á að létta sköttum af lægstu launum og lífeyri með hækkun skattleysismarka og tekjutengdum endurgreiðslum. Þá vill flokkurinn draga úr skattlagningu meðaltekna og lægri tekna með „stiglækkandi skatt- byrði“ um leið og jaðaráhrif verði tak- mörkuð. VG vill hækka skattleysismörk eignaskatta. Þá vill flokksforystan að fjármagnstekjur undir 100.000 krónum verði skattfrjálsar en vill reyndar hækka fjármagnstekjuskatta á tekjur umfram það. Það er full ástæða til að stefna að lækkun skatta lág- og millitekjufólks. Um þá stefnu virðast nú allir flokkar meira og minna sammála. Sú spurning vaknar hins vegar hvernig forysta VG skilgreinir hátekjufólk, sem hún vill að axli þyngri byrðar. Steingrímur J. Sig- fússon, formaður flokksins, gagnrýndi á blaðamannafundinum í gær þá „yfir- gengilegu“ stefnu Sjálfstæðisflokksins að ætla bæði að lækka almennan tekju- skatt um fjögur prósentustig og að af- nema svokallaðan hátekjuskatt. „Eru menn sammála því að þessir gæðingar, sem hafa verið að taka sér ofurlaun, fái 11 prósentustiga skattalækkun á örfá- um misserum?“ spurði hann. Staðreyndin er auðvitað sú að há- tekjuskatturinn er löngu hættur að standa undir nafni. Venjulegt fjöl- skyldufólk í venjulegri vinnu, sem legg- ur hart að sér t.d. til að koma þaki yfir höfuðið eða framfleyta fjölskyldu, lend- ir í „hátekjuskattinum“. Þessi málflutn- ingur VG er ekki sannfærandi nema það sé a.m.k. ljóst að flokkurinn vilji hækka verulega viðmiðunarmörk hátekju- skattsins. Svo er það staðreynd, að það er erfitt að samræma þau markmið, að draga úr jaðaráhrifum í skattkerfinu og að láta skattprósentuna fara hækkandi með vaxandi tekjum. Hættan er sú, að slíkt kerfi letji lágtekjufólk þess að reyna að verða millitekjufólk og millitekjufólk hafi lítinn hvata til að reyna að verða hátekjufólk. Þótt skattprósentan sé ein og sú sama leggur fólk sjálfkrafa meira af mörkum til samfélagsins með hækk- andi tekjum og það á að forðast kerfi, sem draga úr hvata fólks til að bjarga sér. Hvað sem því líður eru vinstri-grænir nú farnir að taka sér hugtakið skatta- lækkun í munn og það er út af fyrir sig fagnaðarefni. FJÖLBREYTILEIKINN VIRKJAÐUR Hingað til hafa sem betur fer ekkiorðið hatrömm átök hér á landi vegna innflytjenda eða málefna þeirra. Samskipti Íslendinga við útlendinga sem hér hafa tekið sér búsetu hafa verið farsæl þegar á heildina er litið og skipt- ir vitaskuld miklu að svo verði um ókomna framtíð. Af þeim sökum er ákaflega mikilvægt að halda áfram að þróa leiðir til þess að aðstoða fólk af er- lendum uppruna til að aðlagast íslensku samfélagi sem fyrst. Slíkt starf er bæði fyrirbyggjandi og stuðlar auk þess án efa að samheldnari og farsælli sam- félagsgerð í framtíðinni. Fjallað var um uppbyggingu nýbúa- fræðslu í grunnskólum Reykjavíkur hér í blaðinu sl. sunnudag og kom þar m.a. fram að fjölgun nemenda af erlendum uppruna á árunum 1999 til 2003 sam- svarar því að einn til tveir grunnskólar hafi bæst við grunnskólana í borginni. Þetta er vissulega mikil fjölgun sem kallar á breytt viðhorf í skólunum al- mennt. Fram kemur í greininni að skól- arnir vinna markvisst að sem mestri blöndun barnanna enda sýnir reynslan að jafningjastuðningur skiptir sköpum fyrir hin erlendu börn og er þar að auki ekki síður þroskandi fyrir íslenska nemendur. Austurbæjarskóli er nú móðurskóli í fjölmenningarlegri kennslu og hefur skólinn leitað til belg- ísks kennsluráðgjafa varðandi kynn- ingu á samvinnunámi í slíkri kennslu. Er þar að nokkru byggt á fjölgreind- arkenningum Howards Gardners sem hélt fyrirlestur um hugmyndir sínar hér á landi á síðasta ári, en samkvæmt þeim er reynt að nýta fjölbreytileika nemenda í hverjum bekk til hins ýtrasta og tryggja virkni allra, þeirra á meðal erlendra nemenda. Til stendur að að nýta hugmyndafræði samvinnunámsins í sjálfri kennslunni og kynna aðferðina í fleiri skólum í framhaldi af því. Að sögn Friðbjargar Ingimarsdótt- ur, kennsluráðgjafa í nýbúafræðslu í grunnskólum Reykjavíkur, hefur þró- unin orðið sú á þessu sviði að meiri áhersla er lögð á einstaklinginn en þjóð- ernið. Það samræmist vel þeim nýju straumum í kennsluháttum sem getið var um hér að ofan. Þau markmið sem fylgja nýbúakennslunni eru því vel til þess fallin að styrkja einstaklinginn – hvort sem hann er upprunninn hér eða annars staðar – og geta því hæglega komið öllum nemendum skólanna til góða þegar fram líða stundir. Þá er einnig vert að hafa í huga að til þess að fjölbreytileikinn verði virkjaður með sem áhrifaríkustum hætti geta fleiri lagt hönd á plóginn en starfsmenn skólanna. Draumur Friðbjargar er „að almenningur átti sig á því hversu mik- ilvægur hann er í tengslum við aðlögun barna og unglinga af erlendum upp- runa. Börnin séu boðin velkomin inn á íslensk heimili og fái heimsóknir“. Það er full ástæða til að taka undir þessi orð hennar. Foreldrar barna á skólaaldri geta vissulega lagt sitt af mörkum svo öllum börnum sem á Íslandi búa finnist þau tilheyra samfélaginu. Sú tilfinning er nauðsynleg forsenda þess að gagn- kvæmur skilningur aukist og bilið verði brúað á milli Íslands og menningar- heima þeirra fjölmörgu erlendu ein- staklinga sem hér búa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.