Morgunblaðið - 01.04.2003, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 01.04.2003, Qupperneq 41
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 41 Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali sölustjóri – sverrir@eignamidlun.is Óskar Rúnar Harðarson lögfræðingur sölumaður – oskar@eignamidlun.is EIGENDUR ATVINNUHÚSNÆÐIS – ATHUGIÐ – Við höfum verið beðnir um að útvega til kaups fasteignir í útleigu með traustum leigutökum á höfuðborgarsvæðinu. Eignir án leigu- taka koma til greina ef seljandi er tilbúinn til að taka sjálfur eignina á leigu til langs tíma. Um er að ræða trausta aðila með öruggar greiðslur og koma eignir á verðbilinu frá 50.000.000 til 3.000.000.000 til greina. Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við Óskar Rúnar Harðarson lögfræðing eða Sverri Kristinsson löggiltan fast- eignasala hjá Eignamiðlun. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs-hópa kl. 10-14 í neðri safnaðarsal kirkjunnar. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12. Að lokinni bænastund gefst þátttakendum kostur á léttum hádegisverði. Samvera foreldra ungra barna er kl. 14 í neðri safnaðarsaln- um. Tólf spora fundur kl. 19 og opinn bænafundur á sama tíma fyrsta þriðjudag hvers mánaðar. Bústaðakirkja. TTT-æskulýðsstarf fyrir 10- 12 ára kl. 17. Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris- ganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður að samverustund lokinni. 10-12 ára starf KFUM-K kl. 17. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Passíusál- malestur kl. 12.15. Eldri borgarastarf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Háteigskirkja, eldri borgarar. Á morgun er stutt messa, fyrirbænastund, kl. 11. Súpa og brauð kl. 12. Brids kl. 13. Langholtskirkja. Kl. 12.10 lestur Passíu- sálma og bænagjörð í Guðbrandsstofu í anddyri Langholtskirkju. Allir velkomnir. Laugarneskirkja. Fullorðinsfræðsla kl. 20. Kynning á stefnulýsingu safnaðarstarfsins sem unnið var á bæna- og samtalshelgi safnaðarins í Vatnaskógi um helgina. Gengið inn um dyr á austurgafli kirkjunnar. Öllum opið og gaman að taka þátt. Þriðju- dagur með Þorvaldi kl. 21. Lofgjörðarstund þar sem Þorvaldur Halldórsson leiðir söng við undirleik Gunnars Gunnarsson, en sóknarprestur flytur Guðs orð og bæn. Fyr- irbænastund kl. 21.30 í umsjá Margrétar Scheving, sálgæsluþjóns og hennar sam- starfsfólks. (Sjá síðu 650 í Textavarpi). Neskirkja. Fermingarfræðsla kl. 15. Litli kórinn – kór eldri borgara kl. 16.30. Stjórn- andi Inga J. Backman. Allir velkomnir. For- eldramorgunn miðvikudag kl. 10-12. Boð- skapur páskanna: Sr. Frank M. Halldórsson. Umsjón Elínborg Lárusdóttir. Seltjarnarneskirkja. Friðarstund kl. 12- 12.30. Hljóð bænastund. Kirkjustarf aldraðra. Föstuguðsþjónusta í Laugarneskirkju fimmtudaginn 3. apríl kl. 14. Prestar sr. Bjarni Karlsson, sóknar- prestur, og sr. Miyako Þórðarson, prestur heyrnarlausra. Ritningarlestrar: Guðný Björnsdóttir og Brynhildur Jónsdóttir. Kór félaga úr kór Laugarneskirkju. Stjórnandi og organisti Gunnar Gunnarsson. Guðs- þjónustan er á vegum ellimálaráðs Reykja- víkurprófastsdæma og Laugarneskirkju. Kaffiveitingar í boði Laugarnessóknar. Allir velkomnir. Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn í safnað- arheimilinu kl. 10-12. Hittumst, kynnumst, fræðumst. Kl. 16.15-17.15. STN - Starf fyrir 7-9 ára börn. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknarprests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Kirkjustarf aldraðra hefst kl. 11.15 með leikfimi ÍAK. Léttur máls- verður, helgistund, sr. Magnús B. Björns- son. Samverustund. Kaffi. KFUM&K í Digraneskirkju fyrir 10-12 ára krakka kl. 17-18.15. Fræðslusalur opinn fyrir leiki kl. 16.30. Unglingakór Digraneskirkju kl. 17- 19. Alfa námskeið kl. 19. (Sjá nánar: www.digraneskirkja.is) Fella og Hólakirkja. Mömmu/foreldra- morgunn kl. 10-12 í umsjón Lilju G. Hall- grímsdóttur, djákna, fyrir aðstandendur barna undir grunnskólaaldri, mömmur, pabba, afar og ömmur, öll velkomin með eða án barna. Kaffi, djús, spjall og notaleg- heit í góðu umhverfi kirkjunnar. Starf fyrir 11-12 ára stúlkur kl. 16.30. Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri borg- ara kl. 13.30-16. Helgistund, handavinna, spil og spjall. Kaffiveitingar og alltaf eitt- hvað gott með kaffinu. Æskulýðsfélag í Rimaskóla kl. 20-22, fyrir unglinga í 8. bekk. Æskulýðsfélag í Grafarvogskirkju, kl. 20-22, fyrir unglinga í 9. og 10. bekk. Á leiðinni heim. Þekktir leikarar og skáld lesa Passíusálmana kl. 18.15-18.30. Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur presta kl. 9.15. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. Kór- æfing kl. 19.45. Biblíuleshópur kl. 20. Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag kl. 10-12 í safnaðarheimilinu Borgum. Lindakirkja í Kópavogi. Mömmumorgunn kl. 10 í safnaðarheimili Lindarsóknar, Upp- sölum 3. Seljakirkja. Mömmumorgunn. Opið hús milli kl. 10-12. Kaffi og spjall. Biblíulestur kl. 19.30. Æskulýðsfundur fyrir 13 ára unglinga (fermingarbörn) kl. 20. Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 13-16 á vegum kirkjunnar. Spilað og spjallað. Helgi- stund kl. 16. Fjölbreytt æskulýðsstarf fyrir 9-12 ára stúlkur í safnaðarheimilinu Kirkju- hvoli kl. 17.30-18.30 í umsjón KFUK. Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8-9 ára börn í dag kl. 17. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10-12 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17-18.30. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 7-9 ára börn kl. 16.30-18. Æskulýðsstarf 8. og 9. bekkur kl. 20-22. Lágafellskirkja, barnastarf. Kirkjukrakkar í Lágafellsskóla í dag fyrir 6-7 ára börn kl. 13.15 og 8-9 ára börn kl. 14.30. Umsjón Þórdís djákni. Kelfavíkurkirkja. „Úr heimi bænarinnar“ eftir Ole Hallesby kl. 20-22. Umsjón með bænahópnum hafa Laufey Gísladóttir og Sigfús Baldvin Ingvason. Einnig verður komið saman í heimahúsi. Heitt verður á könnunni. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 13.10 og 13.50 síðustu samverur í fermingar- fræðslunni fyrir unglingana í Barnaskólan- um. Kl. 15 kirkjuprakkarar 6-8 ára í kirkj- unni. Sr. Þorvaldur og Ingveldur. Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla þriðjudaga kl. 10-12. Hveragerðiskirkja. Kl. 10 foreldramorg- unn. Uppbyggjandi samvera fyrir heima- vinnandi foreldra. Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni kl. 18.30-19. Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl. 13.40. Krossinn. Almenn samkoma kl.20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Kefas. Bænastund og brauðsbrotning kl. 20.30. Allir velkomnir. KFUK, Holtavegi 28. Aðalfundur Hlíðar- meyja í kvöld kl. 20. Venjuleg aðalfundar- störf. Konur eru hvattar til að fjölmenna. Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9. Fermingarfræðsla kl. 15.30. Hópur 2 (8. B Brekkuskóla og 8. 303 Oddeyrarskóla). Glerárkirkja. Kyrrðar- og tilbeiðslustund í kirkjunni kl. 18.10. Safnaðarstarf Morgunblaðið/Sverrir Grafarvogskirkja. EFTIRTALDIR lesa Passíu- sálma í Grafarvogskirkju í þess- ari viku: Í dag, þriðjudag, les Að- alsteinn Ingólfsson, skáld. Á Á leiðinni heim morgun miðvikudag les Árni Pétur Guðjónsson, leikari; á fimmtudag les Sigmundur Ernir Rúnarsson, skáld, og á föstudag les Baldvin Halldórsson, leikari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.