Morgunblaðið - 29.04.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 114. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Saknar
Guðna
Atli gagnrýnir Allardyce, en velur
Guðna gegn Færeyjum Íþróttir 47
Hátíðisdagur í samgöngusögu
bæjarins Akureyri 20
Sameinast
gegn ruslpósti
Stærstu netfyrirtækin vinna
saman gegn ruslpósti Erlent 18
ÚTLIT er fyrir lægð í loðnu-
veiðum hér við land á næstu
árum, að mati Hjálmars Vil-
hjálmssonar, fiskifræðings á
Hafrannsóknastofnuninni.
Hann segir þó ýmislegt
benda til þess að lægðin verði
ekki djúp og að veiði ætti að
verða viðunandi.
Hjálmar segir að í loðnu-
rannsóknum síðustu mánaða
hafi lítið sést til loðnu. Í rann-
sóknarleiðangri í aprílbyrjun
hafi þó orðið vart við talsvert
af tveggja ára loðnu út af
Vestfjörðum, við miðlínu Íslands og Grænlands.
Hjálmar segir ekki tímabært að gefa upp að svo
stöddu hversu mikið mældist af loðnu í leiðangr-
inum og þar af leiðandi ekki hver líklegur upphafs-
kvóti næstu vertíðar verði, en hún hefst 20. júní.
Breytt háttalag loðnunnar
Hjálmar segir hitafar sjávar og hafstrauma hafa
mikil áhrif á göngumynstur og útbreiðslu loðnunn-
ar. Hitastig sjávar við Ísland hafi hækkað á und-
anförnum árum og það skýri væntanlega hversu
erfiðlega hefur gengið að mæla stofnstærð loðnu að
undanförnu. Háttalag loðnunnar á síðustu vertíð
hafi enda verið með öðrum hætti en áður.
Hjálmar segir sveiflur í loðnuveiðum þekktar.
Upp úr 1980 og 1990 hafi verið lítið af loðnu og
sennilega einnig upp úr 1970. „Samkvæmt þeim
gögnum sem við höfum nú undir höndum sýnist
mér að við stefnum í einhverja lægð í loðnuveiðum.
Ég er hins vegar tiltölulega bjartsýnn á að hún
verði ekki djúp. Við erum enn að leita að eftirstöðv-
um seiðaárgangs frá árinu 2001 en hann var einn af
fjórum stærstu árgöngum sem mælst hafa frá árinu
1970. Umhverfisaðstæður ættu að vera hagstæðar
loðnunni en það er greinilegt að dreifing hennar er
með öðrum hætti en mörg undanfarin ár. Það
myndi því ekki koma mér á óvart ef hún héldi sig ut-
an þess svæðis sem okkur hefur tekist að kanna.“
Útlit fyrir
samdrátt í
loðnuveiðum
Bjartsýnn á að lægðin verði ekki
djúp, segir Hjálmar Vilhjálmsson
TVÆR rússneskar herflugvélar
flugu síðastliðinn föstudag upp
að Íslandi og voru innan íslenska
loftvarnarsvæðisins í um 25 mín-
útur.
Þrjár af fjórum F-15 orrustu-
þotum varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli flugu til móts við
rússnesku vélarnar og fylgdu
þeim eftir meðan þær voru inni á
loftvarnarsvæðinu, sem nær 150
sjómílur út frá ströndinni.
Rússnesku vélarnar voru svo-
kallaðir „Birnir“ af gerðinni
Tupolev TU-142 Bear F og
Tupolev TU-142 Bear J. F-vél-
arnar eru kafbátaleitarvélar en
J-gerð „Bjarnarins“ er búin fjar-
skiptabúnaði og starfa þær vélar
í tengslum við kjarnorkukafbáta-
flota Rússa.
Komu frá
Norður-Rússlandi
Vélarnar hófu flug sitt í Norð-
ur-Rússlandi, flugu niður með
Noregsströnd og þaðan inn á ís-
lenska loftvarnarsvæðið. Þangað
komu þær um ellefuleytið að
morgni föstudagsins. Þær sneru
síðan við norðaustur af landinu.
Vélarnar komu ótilkynntar inn á
svæðið og án þess að nokkur
fjarskipti ættu sér stað.
Tvær F-15 þotur Varnarliðs-
ins fóru í loftið kl. 10.25. Þriðja
orrustuþotan ásamt KC-135
eldsneytisvél var send í loftið
fimm mínútum síðar. Þær komu
til móts við „Birnina“ kl. 11.10 og
fylgdu þeim eftir þar til þeir fóru
af íslenska loftvarnarsvæðinu kl.
11.35.
Fyrstu „Birnirnir“ frá 1999
Á tímum kalda stríðsins var al-
gengt að sovéskar herflugvélar
flygju inn á íslenska loftvarnar-
svæðið en slík flug hafa orðið
sjaldgæfari á síðustu árum. Síð-
ast flugu „Birnir“ inn á íslenska
loftvarnarsvæðið árið 1999.
Talið er að flug vélanna nú
tengist voræfingum rússneska
hersins.
Tvær rússneskar vélar
inn á loftvarnarsvæðið
Ljósmynd/Varnarliðið
Annar rússnesku „Bjarnanna“ er flugu inn á loftvarnarsvæðið.
Ein þriggja F-15 véla Varnarliðsins er flugu til móts við „Birnina“ ásamt annarri rússnesku vélanna.
ÍRASKIR leiðtogar samþykktu á fundi á vegum
Bandaríkjastjórnar í gær að reyna að mynda bráða-
birgðastjórn í Írak innan mánaðar.
Um 250 fulltrúar hinna ýmsu fylkinga í Írak sátu
fundinn í Bagdad og samþykktu að efna til ráð-
stefnu innan mánaðar og velja þá ráðherra bráða-
birgðastjórnar, að sögn sendimanns Bandaríkja-
stjórnar í Írak.
Fundinn sátu m.a. íraskir útlagar, trúarleiðtogar
sjíta og súnní-múslíma, forystumenn Kúrda, ætt-
flokkahöfðingjar, bændur og kaupsýslumenn.
Fundarmennina greindi á um hvort Bandaríkjaher
ætti að vera í landinu eftir að bráðabirgðastjórn
verður mynduð og þar til kosningar verða haldnar.
Ætla að fækka hermönnunum
Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, sagði í gær að Bandaríkjamenn myndu
fækka hermönnum sínum á Persaflóasvæðinu þar
sem því stafaði ekki lengur hætta af Írak. Banda-
ríkjamenn væru m.a. að íhuga að flytja stjórnstöð
bandaríska flughersins frá Sádi-Arabíu, hugsan-
lega til Katar.
Fyrr um daginn ávarpaði Rumsfeld bandaríska
hermenn í Katar og lýsti hernaðinum í Írak sem
sögulegum sigri sem myndi hafa mikil áhrif á varn-
arstefnu Bandaríkjanna næstu áratugina. Hafið
væri nýtt tímabil þar sem Bandaríkjaher gegndi
m.a. því hlutverki að fyrirbyggja árásir hryðju-
verkamanna.
„Herinn beitti fordæmislausri blöndu af hernað-
armætti, nákvæmni, hraða, sveigjanleika og ég vil
bæta við samúð með óbreyttum borgurum,“ sagði
Rumsfeld.
Hann gagnrýndi einnig þá sem lögðust gegn
stríðinu í Írak. „Aldrei hafa jafnmargir haft svo
rangt fyrir sér um svo margt,“ sagði hann.
Írösk stjórn innan mánaðar?
Reuters
Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, ávarpar bandaríska hermenn í Katar.
Bagdad, Doha. AFP, AP.
Engin hátíðahöld/16
STJÓRNVÖLD í Norður-
Kóreu hafa boðist til að
eyða kjarnavopnum sínum
gegn því að Bandaríkja-
stjórn fallist á verulegar
pólitískar og efnahagsleg-
ar tilslakanir, að sögn
Colins Powells, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, í
gær.
Powell sagði að Norður-
Kóreumenn hefðu lagt til-
boðið fram á fundi banda-
rískra, norður-kóreskra
og kínverskra stjórnarer-
indreka í Peking í vikunni
sem leið. Norður-Kóreu-
menn hefðu staðfest að
þeir ættu kjarnavopn og
hótað að sanna það með
„sýningu“.
Powell sagði ekkert um
hvort Bandaríkjastjórn
gæti fallist á tilboðið en
greindi frá því að hún
hygðist hafa samráð við
stjórnvöld í Suður-Kóreu,
Japan, Rússlandi, Ástralíu
og fleiri löndum.
Bandarískir embættis-
menn sögðu að Norður-
Kóreumenn hefðu lagt
fram fjölmargar kröfur,
meðal annars um örygg-
istryggingar, efnahagsað-
stoð og stjórnmálasam-
band milli Bandaríkjanna
og N-Kóreu.
Nýtt til-
boð frá
N-Kóreu
Washington. AFP.
Býðst til að
eyða kjarna-
vopnunum
Frá Akureyri til
Kaupmannahafnar