Morgunblaðið - 29.04.2003, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 2003 53
Mögnuð hrollvekja frá
Stephen King sem
engin má missa af!
. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 6 og 8. / Sýnd kl. 8.kl. 6, 8 og 10. B.i. 14. / kl. 5.20, 8 og 10.30. B.i. 14. / kl. 10. B.i. 14. / kl. 10. B.i. 14.
ÁLFABAKKI / AKUREYRI / KEFLAVÍK
Sýnd kl. 4.
ÁLFABAKKI
KRINGLAN
Sýnd kl. 6 og 10.10. B.i. 16.
ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI / KRINGLAN
Sýnd kl. 4. Tilboð 500 kr.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8. B.i. 12.
Sýnd kl. 6 og 8. B.i. 16.
kl. 4. ísl. tal / kl. 6. ísl. tal
Tilboðkr. 500
X-97,7
Kvikmyndir.is
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK
26.04. 2003
5
7 8 8 6 5
0 3 1 9 3
7 14 23 27
15
23.04. 2003
9 14 17
30 44 48
23 25
Fimmfaldur 1. vinningur
í næstu viku
Tvöfaldur 1. vinningur
í næstu viku
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4741-5200-0002-4854
4548-9000-0059-0291
4539-8500-0008-6066
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.BANDARÍSKI spennutryllirinn
Kennimerki eða Identity náði topp-
sætinu af Skapstjórnun yfir helgina,
nokkuð sem spekingar í bíóaðsókn-
arfræðum höfðu margir hverjir ekki
átt von á myndi gerast.
Kennimerki er í anda Agöthu
Christie-sagnanna að því leytinu til
að um morðgátu er að ræða, þar sem
liggja undir grun tíu ólíkir einstak-
lingar sem lokaðir eru inni á móteli á
meðan óveður fer yfir. Og rétt eins
og í sögu Christie gömlu taka tí-
menningarnir að týna tölunni hver af
öðrum, líkt og gerðist í sögunni um
negrastrákana tíu. En þar með end-
ar samlíkingin við Christie því
Kennimerki ku mun myrkari en sög-
ur hennar, meira í ætt við hrollvekju.
John Cusack leikur þann sem helst
er grunaður um morðin, einkabíl-
stjóri kvikmyndastjörnu sem leikin
er af Rebeccu De Mornay. Ray
Liotta leikur löggu á staðnum sem
fer að rannsaka málið og Amanda
Peet vændiskonu, sem einnig er
sterklega grunuð.
Þessi nýjasta mynd James Man-
golds (Cop Lands, Girl, Iterrupted)
hefur fengið prýðilegustu dóma og
helstu gagnrýnendur vestra fagnað
því hversu ófyrirsjáanleg hún er,
nokkuð sem þeir segja orðið æ sjald-
gæfara í kvikmyndum síðari ára.
Myndin ætti líka að skila vænum
hagnaði því kostnaður við gerð henn-
ar hljóðaði upp á einungis 28 millj-
ónir dala, sem er helmingi minna en
kostar núorðið að framleiða stjörn-
umprýdda Hollywood-mynd.
Gott gengi Kennimerkja þýddi að
Skapstjórnun hopaði um eitt sæti en
gengur samt glimrandi vel ennþá og
varð um helgina þriðja gamanmynd-
in á árinu til að fara yfir 100 milljóna
dala markið.
Svikamyllan eða Confidence heitir
glæpamynd sem fór beint í fimmta
sætið. Myndina gerði James Foley
(Glengarry Glen Ross) og er með Ed
Burns, Andy Garcia, Dustin Hoff-
man og Rachel Weiz í aðalhlutverk-
um. Myndin, sem fjallar um svika-
hrapp sem reynir að snúa á mafíuna,
hefur almennt fengið mjög góða
dóma, en sumir af helstu gagnrýn-
endum, þ.á m. gagnrýnandi The
New York Times og Roger Ebert,
eru ekki eins sannfærðir um ágæti
hennar.
Annars var aðsóknin um helgina
með því daprasta sem gerst hefur í
lengri tíma. Menn eru þó ekkert að
örvænta yfir því, þetta sé eingungis
lognið á undan storminum, stormin-
um sem er X-mennin 2 en hún verð-
ur frumsýnd um heim allan í vikunni,
þ.á m. á Íslandi nú á morgun.
!
"
!
#$%&
#'%&
#(%&
$%$
)%*
)%$
(%)
(%#
(%&
+%(
#$%&
#&)%,
('%*
+)%+
)%*
#-%+
((%&
)&%(
(%&
+%(
Er John Cusack
morðinginn?
Kennimerki (Identity) er svona
hver-gerði-það-mynd og John
Cusack liggur þar sterklega undir
grun.
skarpi@mbl.is
MÖRGUM finnst skór dýrir, en
skórnir sem fyrirsætan Nichola
Churchwood sýnir á meðfylgjandi
mynd slá þó öll met. Þessir skór frá
Stuart Weitzman eru metnir á eina
milljón punda, eða rúmar 120 millj-
ónir króna, og eru til sölu í versl-
unarmiðstöðinni Harrods í Lund-
únum.
Skórnir eru hannaðir með hlið-
sjón af rauðu glimmerskónum, sem
sjást á fótum Judy Garland í kvik-
myndinni Galdrakarlinum frá Oz,
og eru m.a. búnir til úr hvítagulli
og settir 642 rúbínsteinum sem alls
vega um 120 karöt. Þá er bara að
vona að skórnir dýru búi yfir ein-
hverjum sérstökum töframætti!
AP
Skórnir eru alsettir rúbínsteinum og hvítagulli og eru dýrir eftir því.
Dýrir töfraskór
Skólavörðustíg 8
Sími/fax 511 3555
Myndlistarsýning
Bjarni Ragnar