Morgunblaðið - 20.08.2003, Blaðsíða 1
Bræður gera upp Volvo
Dýrlingsins | Bílar B2
STOFNAÐ 1913 223. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Veröld
Warhols
Heimurinn með augum popp-
listamanns | Listir 20
Todmobile
og Sinfónían
Hljómsveitin vinsæla end-
urvakin í nóvember | Fólk 47
MJÖG mikil útbreiðsla var í gær á
tölvuorminum W32/Sobig.F@mm sem
sendir sjálfan sig úr sýktum tölvum.
„Höfundur þessarar „fjölskyldu“ hefur
verið að gera tilraunir í ár. Hann gaf út
fyrsta orminn í janúar og svo höfum við
verið að fylgjast með honum. Hann hef-
ur reynt hitt og þetta til að komast
framhjá vörnunum. Það hafa verið
vangaveltur um að það hafi verið beitt
svipuðum aðferðum og notaðar eru við
dreifingu ruslpósts,“ segir Erlendur
Þorsteinsson hjá Einari Skúlasyni ehf.
„Þetta virðist vera góður forritari,
sem er mjög óvanalegt með veiruhöf-
unda, því hann hefur skrifað þennan
orm þannig að hann fullnýtir sér alla þá
bandvídd sem hann fær og kemur þar af
leiðandi miklu meira af skeytum út til að
smita aðra heldur en fyrri afbrigði,“
segir hann.
Truflanir hjá íslenskum
fyrirtækjum
Erlendur segir að ormurinn hafi
greinilega sýkt milljónir tölva í heim-
inum en um kvöldmatarleytið í gær
höfðu íslensk fyrirtæki stöðvað um 114
þúsund skeyti með veirunni. Netumferð
í Bandaríkjunum hægðist töluvert
vegna álags vegna ormsins og víða
þurftu fyrirtæki að loka vefsíðum sínum
og póstþjónum til að draga úr skaða.
Vitað er til þess að nokkur íslensk fyr-
irtæki hafi lokað póstþjónum sínum í
gær og var vefkerfi Flugleiða tekið úr
sambandi í um þrjár klukkustundir á
meðan unnið var að uppfærslu veiru-
varna í tölvukerfi félagsins.
Ekki er vitað um uppruna ormsins
skæða en líklegast er talið að þar sé
Bandaríkjamaður á ferð. Veiran hættir
að dreifa sér 10. september næstkom-
andi en búist er við að veirusmiðurinn
sendi fleiri útgáfur frá sér í tímans rás.
Tölvuormur veldur
skaða víða um heim
Milljónir
tölva
sýktar
BRASILÍUMAÐURINN Sergio Vieira de
Mello, aðalfulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Írak,
var meðal þeirra sem fórust í höfuðstöðvum SÞ í
Canal-hótelinu í Bagdad þegar sementsflutn-
ingabíl, hlöðnum sprengiefnum, var ekið að hót-
elinu um klukkan 4.30 síðdegis í gær að þarlend-
um tíma. Að minnsta kosti sautján manns létu
lífið og um hundrað særðust í árásinni, sem talið
er að hafi verið verk sjálfsmorðingja.
Bíllinn sprakk rétt við skrifstofu de Mellos og
er því talið sennilegt að markmiðið hafi ekki síst
verið að myrða hann. De Mello lést ekki strax
Qaeda-samtökin hefðu staðið fyrir tilræðinu.
Fáni SÞ var í hálfa stöng í New York. Örygg-
isráð SÞ sagði í yfirlýsingu að atburðurinn
myndi ekki breyta þeirri ákvörðun að samtökin
tækju þátt í uppbyggingarstarfinu í Írak. En
Shashir Tahroor, aðstoðarframkvæmdastjóri
SÞ, sagði að atburðurinn myndi valda því að
samtökin yrðu að „endurskoða“ alla starfsemi
sína í Írak. Félag starfsmanna SÞ krafðist þess
í gær að allt lið samtakanna yrði kallað frá Írak.
og gat í fyrstu svarað köllum aðstoðarmanna
sem leituðu í brakinu. Fætur hans munu hafa
lent undir stálbjálka og lést hann að lokum úr
blóðmissi. „Vatn, vatn,“ voru síðustu orð hans.
„Allt hrundi ofan á okkur, ég finn ekki félaga
mína og ég er hrædd um þá,“ sagði Alice Yac-
oub, starfsmaður SÞ. Einn hinna særðu var með
nær metralangan og þumlungsþykkan álrörs-
bút sem hafði stungist í andlit hans, rétt neðan
við hægra augað. Hann sagðist vera öryggisráð-
gjafi hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Heimildarmenn sögðu að líkur bentu til að al-
Reuters
Bandarískur hermaður leiðbeinir vegfarendum í grennd við aðalbækistöð SÞ á Canal-hótelinu í Bagdad, skömmu eftir tilræðið í gær.
Aðalfulltrúi SÞ í Írak
myrtur í sprengjutilræði
Vitað að 17 manns fórust í tilræðinu sem sagt er minna á aðgerðir al-Qaeda
Bagdad. AP, AFP.
Einn/14
Tryllitæki
Templars
Reuters
Björgunarmaður í Jerúsalem heldur á lít-
illi stúlku sem flutt var á sjúkrahús eftir
sjálfsmorðsárásina mannskæðu í gær.
ÁTJÁN manns fórust og 105 slös-
uðust þegar sprengja sprakk í
tveggja hæða strætisvagni í vest-
urhluta Jerúsalemborgar síðdegis í
gær. Talið er víst að um sjálfs-
morðsárás hafi verið að ræða og
sögðu tvenn samtök, Hamas og Ísl-
amska Jihad, að tilræðismaðurinn
hefði komið úr röðum þeirra.
Stjórnvöld í Ísrael ákváðu þegar að
fresta viðræðum við stjórn Palest-
ínumanna og brottflutningi herja
frá borgunum Jeríkó og Qalquilya
á Vesturbakkanum. Öll umferð til
og frá Vesturbakkanum og Gaza
var bönnuð í gærkvöldi.
Mahmud Abbas, forsætisráð-
eru að minnsta kosti fimm börn.
Pólitískur leiðtogi Hamas,
Abdelaziz Rantissi, sagði í samtali
við AFP-fréttastofuna að með
tilræðinu hefðu menn verið að
hefna fyrir „hernámsglæpi“ Ísraela
gegn palestínsku þjóðinni.
„Öll samtök Palestínumanna,
íslömsk og þjóðernissinnuð, hafa
sagt skýrt að þau muni svara öllum
glæpum og sérhverju hryðjuverki
sem hafa verið drýgð,“ sagði
Rantissi. Hann sagði á hinn bóginn
að Hamas vildi ekki binda enda á
vopnahlé sem Hamas, Íslamska
Jihad og fleiri samtök samþykktu
29. júní.
skorðum. Tilræðið er hið
mannskæðasta í Jerúsalem síðan
17 manns dóu um miðjan júní er
strætisvagn var sprengdur.
Sprengjan sem notuð var í gær er
talin hafa verið afar stór en vagninn
sprakk rétt við markalínuna milli
vesturhlutans, þar sem gyðingar
búa, og gömlu borgarinnar sem
einkum er byggð aröbum. Sjónar-
vottar töldu að tilræðismaðurinn
hefði dulbúið sig og þóst vera bók-
stafstrúarprestur. Meðal látinna
herra Palestínustjórnar, fordæmdi
þegar tilræðið. „Ég vil lýsa því yfir
að ég fordæmi algerlega þetta
hræðilega verk sem getur ekki ver-
ið hagsmunum palestínsku þjóðar-
innar til framdráttar,“ sagði hann
og vottaði aðstandendum fórnar-
lambanna samúð sína. Abbas var á
fundi með fulltrúum Íslamska Jih-
ad á Gaza er hann fékk tíðindin.
Talið er að árásin í gær geti sett
friðarumleitanirnar sem kenndar
eru við Vegvísi til friðar úr
Mannskætt tilræði í
strætisvagni í Jerúsalem
Talið að minnst 18 manns hafi
farist og á annað hundrað slasast
Jerúsalem. AP, AFP.