Morgunblaðið - 20.08.2003, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.08.2003, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 19 Öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð Er þetta ekki eitthvað fyrir þig? Í boði er fjölbreytt nám í raungreinum, tungumálum og samfélagsgreinum. Boðið er upp um sjötíu bóknámsáfanga þar af eru fimmtán áfangar í dreifnámi. Þeir sem hafa lokið skilgreindu starfsnámi athugið að hægt er að fá það nám metið sem heild inn í námsferil til stúdentsprófs. Innritun er að hefjast fyrir haustönn 2003! Innritun í Öldungadeild MH fyrir haustönn 2003 stendur yfir daganna 20. til 22. ágúst n.k. frá kl. 13 til kl. 18 og laugardaginn 23. ágúst n.k. frá kl. 10 til kl. 14. Hægt verður að hafa samband við námsráðgjafa daganna 20. til 22. ágúst n.k. frá kl. 15 til kl. 18. Þá verða deildarstjórar til viðtals fimmtudaginn 21. ágúst milli kl. 17 og 18. Mögulegt er að innrita sig í gegnum síma eða vefinn. Sjá nánar í Fréttapésa öldunga á heimasíðu okkar. Skólagjöld ber að greiða við innritun. Komdu í heimsókn á heimasíðu okkar! Þar má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar s.s. Fréttapésa öldunga (vefrit Öldungadeildar), stundatöflu haustannar, bókalista, kennsluáætlanir einstaka áfanga, innritunareyðublað fyrir símainnritun og fl. Slóðin er; www. mh.is Rektor LANDIÐ ÁÐUR en Svandís Bára Stein- grímsdóttir varð sextug ákvað hún að óska eftir því við vini og vanda- menn að þeir létu fremur fé af hendi rakna í læstan bauk heldur en að kaupa handa henni gjafir. Hún hélt upp á afmælið þann 16. ágúst sl. og það sem safnaðist í baukinn, alls 59.020 krónur, gaf hún félagi Einstakra barna. ,,Ég fékk svo mikið þegar ég varð fimmtug“ sagði Svandís ,,að mér fannst nær að aðrir fengju að njóta þess, og vildi gjarnan sjá að fleiri gerðu svona“. Hún vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem gerðu þessa gjöf mögulega. Sædís Þórðardóttir fé- lagsmaður veitti peningunum við- töku og þakkaði framlagið. Að sögn Sædísar er jákvætt hvað fólk hér man eftir Einstökum börnum, en í Borgarnesi eru þrjár fjöl- skyldur í félaginu. Hægt er að kaupa boli og derhúfur, auk minn- ingarkorta og jólakorta til styrkt- ar félaginu. Gaf einstökum börnum sextugs- gjafirnar sínar Morgunblaðið/Guðrún Vala Sædís Þórðardóttir, hjá Einstökum börnum, t.v., og Svandís Bára Stein- grímsdóttir með baukinn góða. Borgarnes FERÐAMÁLRÁÐ Íslands hefur lát- ið gera og setja upp upplýsingaskilti við bílastæðið ofan göngustígsins um Nautastíg sem gengið er um að Djúpalónssandi í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Af Djúpalónssandi er gönguleið yfir Suðurbarða í Dritvík og síðan áfram norður í Hólahóla eða upp í Sandhóla. Greinargóðar upplýsingar um ná- grennið eru á skiltinu á fimm tungu- málum: íslensku, ensku, dönsku, þýsku og frönsku. Mjög góðar myndir prýða skiltið þar á meðal mynd með örnefnamerkingum og önnur sérstök af teikningu af völ- undarhúsinu á Suðurbarða. Mynda- smiðir eru þeir Snævarr Guðmunds- son og Oddur Sigurðsson. Öllu er efninu komið vel fyrir og allur frá- gangur skiltisins þeim til sóma sem að hafa unnið. Upplýsingaskilti við Djúpalónssand Hellissandur HELGINA 15. – 17. ágúst voru hald- in hin árlegu Töðugjöld við Hellu en þau voru fyrst haldin þar 1994. Talið er að alls um 3 – 5.000 manns hafi mætt þrátt fyrir votviðri. Ókeypis var inn á svæðið og boðið upp á fjöldamörg skemmtiatriði frá föstu- dagskvöldi fram á seinnipart sunnu- dags. Töðugjöldin hófust á föstudags- kvöldinu með tónleikum í Hellahelli í Landsveit þar sem söngkonan Krist- jana Stefánsdóttir kom fram ásamt kvartett. Á Gaddstaðaflötum voru haldnir tveir dansleikir, annar í tjaldi en hinn í húsi. Dagskrá laugardagsins hófst um kl. 11:00 þegar markaðstjöld, leik- tæki og veitingasala opnaði. Síðar um daginn var boðið upp á fjölbreytta dagskrá sem hófst á barnaguðsþjón- ustu í umsjón sr. Halldóru J. Þor- varðardóttur prófasts. Þá komu m.a. fram hinir landsþekktu skemmti- kraftar Gunni og Felix sem gerðu stormandi lukku, ekki aðeins meðal ungu kynslóðarinnar heldur einnig þeirra sem eldri eru. Það sem jafnan hefur verið fjöl- sóttast á Töðugjöldum er kvöldvakan og svo var einnig nú enda veðrið farið að snúast gestum mjög í hag. Þar voru úrslit dægurlagakeppninnar kynnt en það var lag Viðars H. Stein- arssonar við ljóð dóttur hans Klöru, Rangárvallarokk, sem bar sigur úr býtum. Alls bárust sjö dægurlög í keppnina. Að venju endaði kvöldvak- an á fjöldasöng undir stjórn Ómars Diðrikssonar, brennu og flugeldasýn- ingu sem Flugbjörgunarsveitin á Hellu sá um. Aftur var haldinn dans- leikur í tjaldi og í Hvoli, Hvolsvelli léku Hljómar frá Keflavík fyrir dansi. Á Hvolsvelli var alla helgina bíla- og búvélasýning í tengslum við Töðu- gjöldin. Sunnudagurinn hófst með fjöl- sóttri guðsþjónustu sem sr. Sigurður Jónsson sóknarprestur í Odda sá um. Tónlistin var í höndum Þorvaldar Halldórssonar. Eftir hádegið tók við skemmtileg dagskrá þar sem yngri kynslóðin fékk heldur betur að njóta sín. Keppt var m.a. í kassabílaralli í þremur aldursflokkum og verðlaun veitt fyrir frumlegasta farkostinn en þau hlutu Ómar Páll Sigurbjörnsson, Jónína Björnsdóttir og Helgi Ár- mannsson fyrir ökutæki sem upp- haflega var framleitt sem garð- sláttuvél. Í hæfileikakeppni sem einnig var haldin á sunnudag sigraði Þuríður Marín Jónsdóttir sem söng Maístjörnuna. Ferðamálafélagið Hekla hafði með höndum skipulagningu Töðugjald- anna þetta árið en formaður stjórnar þess er Anton Viggósson. Vel heppnuð Töðugjöld á Gaddstaðaflötum við Hellu Margt um manninn þrátt fyrir rigningarsudda Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir Frumlegasta rallýfarartækið fékk verðlaun en það voru Jónína Björns- dóttir, Ómar Páll Sigurbjörnsson og Helgi Ármannsson sem komu með þessa fyrrverandi sláttuvél. Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir Gísli Stefánsson, Hafdís Dóra Sigurðardóttir, Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir og Sigurður Rúnar Sigurðarson ásamt börnum sínum skemmtu sér konunglega í brekkunni á laugardagskvöld. Hella KRISTINN Arnbjörnsson, vélamaður frá Kópaskeri, er einn þeirra vösku manna sem reyna eftir fremsta megni að halda malarvegakerfinu þokka- legu. Hann var nýlega að hefla veginn milli Grímsstaða á Fjöllum og Jökuls- árbrúar í 20° hita og sólskini. Hann er þar ásamt fleirum frá RSNÞ efh. að rykbinda þennan veg sem tengir Fjöllunga við hringveginn. Hann gaf sér þó tíma til að kveikja í pípu sinni og rabba dulítið við vegfaranda. Umræddur vegarspotti er einnig upphafið á vegi niður að Dettifossi sem mikið hefur verið í fréttum að undanförnu vegna tíðra tjóna á bílum sem lagðir hafa verið í þann háska sem ökuferð um Hólssand er. Sem betur fer hafa ekki orðið umtalsverð slys á fólki á veginum í sumar, en fast að 10 bílum munu hafa eyðilagst þar að undanförnu. Þó hafa þeir Kristján og félagar hans hjá RSNÞ ehf. gert miklar lagfæringar á leiðinni síðan í vor. Veghefilsstjórinn Morgunblaðið/Birkir Fanndal Kristinn Arnbjörnsson, vélamaður frá Kópaskeri. Mývatnssveit

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.