Morgunblaðið - 20.08.2003, Blaðsíða 42
ÍÞRÓTTIR
42 MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SVO virðist sem leikirnir í UEFA-bikarnum í knatt-
spyrnu síðasta fimmtudag hafi farið illa í íslensku
liðin sem þar léku, og ekki síður í hina erlendu mót-
herja þeirra.
Grindvíkingar léku við Kärnten í Austurríki á
fimmtudag og töpuðu naumlega, 2:1. Þeir komu heim
og lágu fyrir FH á heimavelli á sunnudaginn, 3:1.
Á sama tíma lék Kärnten við Grazer AK í aust-
urrísku úrvalsdeildinni og mátti þola sitt fyrsta tap á
tímabilinu, 5:1.
Fylkir steinlá gegn Þrótti, 1:5, á heimavelli í gær
og hefur ekki áður verið leikinn svo grátt í efstu
deild í Árbænum.
AIK, hinir sænsku mótherjar Fylkis, sem unnu 1:0
í leik liðanna á fimmtudag, voru ekki sannfærandi á
heimavelli gegn botnliðinu Öster og gerðu aðeins
jafntefli, 1:1.
Síðari leikir Grindavíkur og Fylkis gegn Kärnten
og AIK verða leiknir hér á landi fimmtudaginn 28.
ágúst.
Slæm úrslit eftir
UEFA-leikina
ÍSLANDSMEISTARAR KR í knattspyrnu kvenna eru
mættir til Danmerkur og spila í dag fyrsta leik sinn í
Evrópukeppni félagsliða. Andstæðingarnir eru ZKF
Masinac frá Nis, meistaralið Serbíu-Svartfjallalands,
og hefst leikurinn kl. 17 að íslenskum tíma.
Hin tvö liðin í riðlinum eru dönsku meistararnir
Bröndby og skosku meistararnir Kilmarnock. Riðill-
inn er leikinn hjá Bröndby í Kaupmannahöfn og KR-
konur leika gegn gestgjöfunum á föstudaginn og síð-
an gegn Kilmarnock á sunnudaginn. Sigurvegararnir
í riðlinum komast í átta liða úrslit keppninnar.
„Þetta verður mjög krefjandi og erfitt verkefni
enda vantar marga sterka leikmenn í liðið, til að
mynda Ásthildi, Þóru markvörð, Eddu, Guðrúnu
Jónu og Guðrúnu Sóleyju. Við ætlum hins vegar að
gera okkar besta og það er engin spurning að yngri
stelpurnar fá þarna gott tækifæri til að öðlast
reynslu,“ sagði Hrefna Jóhannesdóttir, markadrottn-
ingin í liði KR, við Morgunblaðið.
KR-konur
í Danmörku
Morgunblaðið/Arnaldur
Landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson
hafa sett stefnuna á sigur í Færeyjum, ekkert annað.
Hermann sagði að þótt íslenskaliðið væri talið sigurstrang-
legra væri ekkert gefið í alþjóðlegri
knattspyrnu. „Hins
vegar tel ég að verði
rétta hugarfarið
uppi á borðinu hjá
okkur í leiknum þá
eigum við góðan möguleika á að
vinna. Við ætlum að gera hvað við
getum til að fagna sigri og komast í
efsta sætið þannig að sigurleikirnir
tveir í undankeppninni í vor hafi ein-
hverja þýðingu, gildi þessara sigur-
leikja í vor minnkar verulega ef við
töpum að þessu sinni, á því er enginn
vafi. Sigur gegn Færeyingum er því
það eina sem skiptir máli nú.“
Er íslenska liðið ekki sterkara en
það færeyska?
„Ef við leikum toppleik tel ég eng-
an vafa leika á því að við erum með
betra lið, en til þess verðum við að
vera einbeittir og vel stemmdir í
leiknum. Við göngum til leiks með
því hugarfari að vinna. Færeyingar
gefa ekkert eftir eins og best kom í
ljós þegar við mættum þeim á Laug-
ardalsvelli í júní síðastliðnum. Sjálfs-
traustið er fyrir hendi í liðinu og það
fleytir okkur vonandi sem lengst.“
Þannig að þetta snýst fyrst og
fremst um hugarfar frekar en lík-
amlega getu?
„Já, það er málið, hugfarið skiptir
miklu máli í leikjum sem þessum. Ef
menn væru alltaf vissir um að ná
fullkomnum leik í hvert skipti sem
þeir ganga til leiks þá væri ef til vill
lítið gaman að knattspyrnunni. Þetta
snýst um að ná því að laða það besta
fram hjá sérhverjum leikmanni.
Framundan er gífurlega spenn-
andi og skemmtilegur leikur fyrir
okkur og alla þá sem gaman hafa af
íslenskri knattspyrnu. Andinn í
hópnum er góður og menn staðráðn-
ir í að leggja sig fram um að vinna.
Það verður að gerast til þess að við
getum verið áfram í baráttunni í
þessum riðli og um leið hleypa
auknu lífi í síðustu tvo leikina í riðl-
inum. Það verður allt lagt í sölurnar
til að vinna, það verður ekkert auð-
velt og það er ekkert vanmat innan
hópsins, en við teljum okkur vera
betri og eiga góða möguleika á
sigri,“ segir Hermann Hreiðarsson.
Mikið er í húfi
„Leikurinn verður mjög erfiður
en vonandi tekst okkur að fara með
sigur af hólmi,“ segir Indriði Sig-
urðsson, sem hugsanlega verður í
eldlínunni í íslensku vörninni frá
upphafi. „Við eigum að geta unnið.
Færeyingar koma af fullum krafti til
leiks, eflaust af meiri krafti en oft áð-
ur þar sem við verðum í hlutverki
stóru þjóðarinnar í leiknum, venju-
lega hefur það ekki verið hlutskipti
okkar. En ég vona að það muni ríða
baggamuninn fyrir okkur að vera
með sterkari knattspyrnumenn en
Færeyingar,“ segir Indriði.
„Það er mikið í húfi hjá okkur að
ná sigri til að halda þeirri stöðu sem
við höfum náð í riðlinum með sig-
urleikjunum tveimur í vor. Ég hef
ekki verulegar áhyggjur af okkur,
formið á mönnum er þannig um
þessar mundir að við eigum að
vinna, erum með sterkara lið.“
Indriði segir mikla stemningu
vera í íslenska hópnum og menn viti
hvað þurfi til að vinna. „Þótt und-
irbúningurinn sé stuttur tel ég að
hann hafi ekki allt að segja, við vit-
um hvað þarf til þess að vinna,“ segir
Indriði.
Erfiður leikur
„LEIKURINN verður erfiður, það er ekkert gefið gegn Fær-
eyingum á heimavelli. Ég skynja það að menn hafa alveg áttað
sig á því, segir Hermann Hreiðarsson, leikmaður íslenska lands-
liðsins og enska úrvalsdeildarliðsins Charlton, sem væntanlega
mun leika lykilhlutverk í íslensku vörninni gegn Færeyingum á
Tórsvelli í kvöld.
Ívar
Benediktsson
skrifar
frá Þórshöfn
KNATTSPYRNA
Efsta deild kvenna, Landsbankadeild:
Hásteinsvöllur: ÍBV - Valur ......................19
Í KVÖLD
KNATTSPYRNA
1. deild kvenna A
Breiðablik 2 - HK/Víkingur..................... 2:2
Lokastaðan:
Breiðablik 2 12 10 1 1 63:14 31
Fjölnir 12 9 1 2 34:17 28
RKV 12 6 2 4 41:32 20
HK/Víkingur 12 5 2 5 24:15 17
ÍR 12 4 1 7 35:31 13
Þróttur/Haukar 2 12 2 2 8 16:49 8
HSH 12 1 1 10 14:69 4
Fjölnir og RKV eru komin í undanúrslit,
þar sem Breiðablik 2 getur ekki keppt um
sæti í efstu deild, þar sem þar er fyrir a-lið
Breiðabliks. Fjölnir mætir Tindastóli í und-
anúrslitum og RKV mætir Sindra.
FH-ingar Íslandsmeistarar
FH-ingar tryggðu sér í gærkvöldi Íslands-
meistaratitilinn í 2. aldursflokki karla þeg-
ar þeir burstuðu Keflvíkinga á heimavelli
sínum í Kaplakrika, 8:1. FH-ingar hafa haft
mikla yfirburði í sumar og eru með fullt hús
stiga eftir 11 leiki og hafa 14 stiga forskot á
KR-inga þegar þremur umferðum er ólokið
í A-deildinni.
England
Deildabikarkeppnin, 1. umferð:
Stoke - Rochdale ...................................... 2:1
Chris Iwelumo 13., Marc Goodfellow 90. -
Townson 76.
Vináttulandsleikir
Luxemborg - Malta...................................1:1
Írland - Ástralía ....................................... 2:1
John O’Shea 74., Clinton Morrison 81. -
Mark Viduka 49.
ÚRSLIT
Ég hef reynt að gera mönnumgrein fyrir því að þeir íþrótta-
menn sem skara fram úr eru þeir
sem tekst að grafa
dýpra eftir rétta
hugarfarinu þegar
komið er út í krefj-
andi aðstæður, sama
hver andstæðingurinn er.“
Logi segir að nú reyni á atvinnu-
menn Íslands þegar komið verður í
slaginn við Færeyinga. „Hér eru að-
stæður margar öðruvísi og sumpart
verri en margir þeirra eiga að venj-
ast, þá reynir á atvinnuhugsunar-
hátt leikmanna sem hver og einn
þarf að búa yfir. Að því leyti þykir
mér stemningin og hugarfarið
skipta verulega miklu máli í leiknum
við Færeyinga á morgun [í dag].“
Hvernig gengur að koma þessu að
hjá leikmönnum? „Það gengur
ágætlega og lýsir sér meðal annars
þannig að þeir einbeiti sér að því
verkefni sem fram undan er, að hug-
urinn sé ekki á flökti og láti ekki
áföll hafa áhrif á sig, eins og til
dæmis það að þurfa að fara langa
leið á æfingu eins og gerðist í fyrra-
dag, síðan koma ekki allir leikmenn
á sama tíma vegna þess að þeir
lenda í hrakningum og ýmsu þess
háttar. Svona tilfelli mega ekki slá
menn út af laginu við að einbeita sér
að því sem mestu máli skiptir, sem
er leikurinn sem fram undan er.
Menn hafa að þessu sinni ekki látið
ýmis atriði af þessum toga raska
jafnvægi sínu og að því leytinu til
finnst mér hugarfar leikmanna vera
rétt. Síðan við Ásgeir [Sigurvins-
son] tókum við þjálfun landsliðsins í
vor höfum við lagt mikla áherslu á
að byggja upp jákvætt hugarfar inn-
an hópsins, í garð hver annars og
þeirra verkefna sem við erum að
takast á við á hverjum tíma. Þetta
finnst okkur hafa tekist nokkuð vel.
Nú höfum við lagt áherslu á að nú
séum við að fara í afar mikilvægan
leik fyrir íslenska knattspyrnu án
þess að það eigi að vera aðalatriðið,
leikurinn sjálfur er aðalmálið, ekki
það sem tekur við. Þá verða menn
að hafa það hugfast að leikurinn
skiptir verulegu máli og til þess að
hann takist sem best af okkar hálfu
verða menn að grafa djúpt eftir
„rétta“ hugarfarinu og halda já-
kvæðu viðhorfi innan hópsins á
hverju sem kann að ganga utan vall-
ar sem innan.
Við viljum að íslenska landsliðið í
knattspyrnu sé jákvæð ímynd og að
almenningur viti að þeir sem skipi
landsliðið á hverjum tíma leggi sig
fram. Mér sýnist að menn séu smátt
og smátt að komast í þennan „gír“
fyrir viðureignina við Færeyinga.“
Að öðru, leikskipulagið gegn
Færeyingum, verður það ekki með
svipuðu sniði og í tveimur síðustu
landsleikjum, gegn Færeyingum og
Litháen í vor?
„Við Ásgeir tókum einnig þá
ákvörðun í vor þegar við komum að
landsliðinu að nýta vel þann tíma
sem gafst fyrir fyrsta leikinn, gegn
Færeyingum heima, að leggja lín-
urnar í varnar- og sóknarleiknum
auk þess andlega þátt sem ég kom
inn á að framan. Eftir þá vinnu sem
var innt af hendi teljum við gæfu-
legast fyrir okkur að þessu sinni að
halda okkar striki, ekki síst þar sem
vel gekk, auk þess sem það veitir
leikmönnum „taktískt“ öryggi að
vita hvað þeir eiga að gera og hvers
sé ætlast til af þeim, hvert hlutverk
þeirra er. Þessi atriði eru afar mik-
ilvæg að þessu sinni vegna þess
hversu stuttur undirbúningstíminn
er fyrir leikinn, stór hluti hópsins
mætir ekki hingað til Þórshafnar
fyrr en rétt um og innan við tveimur
sólarhringum áður en flautað verð-
ur til leiks. Þar af leiðandi þarf að
liggja ljóst fyrir hvert hlutverk
manna er til þess að halda sig við
þau „taktísku“ atriði sem mestu
máli skiptir svo leikskipulag okkar
gangi sem best upp.
Því má segja að leikskipulag okk-
ar að þessu sinni verði það sama og í
tveimur síðustu landsleikjum með
tiltölulega litlum útúrdúrum.“
Logi segir að styrkur Færeyinga
liggi fyrst og fremst í góðri vörn og
mikilli baráttu. „Þeir gefa mönnum
engan frið með boltann og hefja
leikinn af fítonskrafti. Því stendur
málið um það hjá okkur meðal ann-
ars að standast átökin og gefa þeim
ekki færi á að búa til marktækifæri,
en um leið verðum við að vera til-
búnir að svara fyrir okkur.
Bæði lið verða að inna jafn mikla
vinnu af hendi inni á leikvellinum og
þá treystum við á það að hæfni okk-
ar leikmanna sé meiri og getumun-
urinn skili sér og að lokum leiði það
til þess að betra liðið fari með sigur
af hólmi.
Við þekkjum hlutverk Færeyinga
vel, höfum oft verið í þeirri stöðu að
vera talið veikara liðið og vegna
þess að við höfum lagt meira á okk-
ur í leikjum þá höfum við oft náð
góðum úrslitum gegn sterkari þjóð-
um. Nú þegar hlutverkin snúast við
þá megum við ekki láta Færeyinga
fella okkur á okkar eigin bragði.
Tvö atriði eru mikilvæg hjá okk-
ur, það er þolinmæði og halda jafn-
vægi, láta ekki raska ró okkar. Eins
og kom í ljós í fyrri leik þjóðanna í
þessari keppni þá er það þolinmæð-
isverk að vinna Færeyinga og því
hafa fleiri fengið að finna fyrir hér í
Þórshöfn á síðustu misserum,“ segir
Logi Ólafsson landsliðsþjálfari.
Logi Ólafsson landsliðsþjálfari segir íslenska
liðið vera klárt í slaginn við Færeyinga
Megum ekki falla
á eigin bragði
„HUGARFARIÐ skiptir alltaf verulegu máli, og þá gildir einu í hvers
konar leik menn eru að fara, en menn verða að grafa dýpra eftir því
þegar mótherjinn er fyrirfram talinn vera veikari eins og er í þessu
tilfelli okkar nú,“ segir Logi Ólafsson, annar landsliðsþjálfara í
knattspyrnu, um undirbúning hins andlega þáttar landsliðsmann-
anna fyrir landsleikinn við Færeyinga í Þórshöfn í kvöld.
Ívar
Benediktsson
skrifar frá
Þórshöfn