Morgunblaðið - 20.08.2003, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 20.08.2003, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 49 SÍÐAST fréttist af JoJo, götulistamann- inum eina og sanna, í vor en þá var frum- sýnd í Ríkissjónvarp- inu heimildarmynd um kappann. Nú er JoJo, sem spilað hef- ur á götunni í áratugi, í fyrsta sinn kominn með útgáfu á eigin efni og er hún í formi geisladisksins Óður til norðursins. Einvörð- ungu er hægt að kaupa gripinn af sjálf- um listamanninum. „Þetta er bara götu- memó,“ segir JoJo og er hæverskur. „Ég er bara með þetta í töskunni minni. Þetta er selt á sanngjörnu götuverði.“ JoJo segir að diskurinn sé tek- inn upp í Austurstræti, á hljóm- leikum og í hljóðveri. „Mér fannst myndin sem þú nefnir vera gott súrrealískt summ- ardjók,“ segir hann, spurður um téða heimildarmynd. „Hún á örugglega eftir að virka best í skammdeginu.“ JoJo, sem er orðið nokkuð þekkt andlit á götum Reykjavíkur, neitar því að það sé erfitt að spila á göt- unni. „Það er alltaf jafn gaman að spila en það er stundum erfitt að fást við fólk sem heldur að það hafi rétt fyrir sér eftir 25 bjóra.“ Með JoJo er danskur vinur hans, Martin, sem er kominn í heimsókn hingað til að spila. Þeir félagar þekkjast frá Danmörku, þar sem JoJo hefur oft spilað. Martin er þó ekki bösk- ari og spilar einvörðungu inni á stöðum. „Ég spilaði svolítið á Dubliner í sumar,“ segir Martin sem leggur fyrir sig þjóðlagatónlist frá Eng- landi, Írlandi og Bandaríkjunum. „Það er mjög góður andi þar.“ JoJo segist svo að lokum reikna fastlega með því að spila eitthvað um landið í haust því að „með lög- um skal land byggja“, eins og hann segir glottandi. Götulistamaðurinn JoJo gefur út disk Óður til norðursins Morgunblaðið/Kristinn Martin og JoJo skýla sér fyrir sumarregninu. Sofandi orðabók (The Sleeping Dictionary) DRAMA England 2002. Myndform. VHS (91 mín.) Bönnuð innan 12 ára. Leikstjóri: Guy Jenkin. Aðalleikendur: Hugh Dancey, Jessica Alba, Brenda Blethyn, Bob Hosk- ins. ÓVÆNTIR hlutir gerast af og til í myndbandageiranum, öfugt við kvik- myndahúsin þar sem áhorfandinn er oftast nær með það á hreinu að hverju hann gengur. Sofandi orðabók er eitt þessara furðuverka, óvenjuleg og framandi uppákoma í flesta staði. John Truscott (Dancey), er ungur Breti sem er send- ur til Sarawak í Malasíu árið 1937. Hlutverk hans að koma innfæddum íbúum nýlendunnar til einhverra mennta. Breska heimsveldið er enn við lýði og er John komið fyrir hjá landstjórahjónunum (Hoskins og Blethyn). Eitt það fyrsta sem kenn- arinn þarf að gera er að læra málið og þá kennslu fær hann, samkvæmt sið- venju, hjá „sofandi orðabók“; inn- fæddri stúlku sem veitir honum jafn- framt verklega tilsögn í unaðssemdum ástalífsins. Ekki veitir af því piltur er jafn illa upplýstur á báðum sviðum. Þau fella hugi saman, Sofandi orðabókin – sem nefnist Selima (Alba) og Truscott. Þá kemur nýr vinkill á framvinduna því landsstjóra- hjónin eiga Cecil, gjafvaxta mey og eru þau pússuð saman, Truscott og dóttirin. Nú hefst einstaklega dramatískur kafli þar sem kemur í ljós að Trusc- ott, þó pasturslegur sé til orðs og æð- is, hefur gert þeim báðum barn, hjá- svæfum sínum. Hann elskar báðar, þó aðra meira og sjálfsagt að fara ekki frekar út í þá sálma en hvetja rómantískar sálir til að berja herleg- heitin augum. Sofandi orðabók hefur eitt og annað til síns ágætis. Tekin á firna fögrum slóðum í Malasíu, efnið glettilega gamaldags og hádrama- tískt með dularfulla leyndardóma frumskógarins, glæpamenn, hausa- veiðara, frumbyggja og hábreska embættismenn hans hátignar í einni beðju. Alba er virkilega snotur stúlka og leikurinn almennt í þolanlegu standi og myndin líður bærilega hjá eftir að hún er komin í gang.  Sæbjörn Valdimarsson Myndbönd Ástfangin í Malasíu ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 10 ára. KVIKMYNDIR.IS  KVIKMYNDIR.COM  ÓHT RÁS 2  SG DV  MBL KVIKMYNDIR.IS  KVIKMYNDIR.COM  ÓHT RÁS 2  SG DV  MBL KVIKMYNDIR.IS  KVIKMYNDIR.COM  ÓHT RÁS 2  SG DV  MBL KVIKMYNDIR.IS  KVIKMYNDIR.COM  ÓHT RÁS 2  SG DV  MBL KRINGLAN Sýnd kl. 5, 8.15 og 10. B.i. 10 ára. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i.10 ára. AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 10 ára. ÁLFABAKKI Kl. 3.45 og 5.50 KRINGLAN kl. 5.50 AKUREYRI Sýnd kl. 6. H U L K BASIC WRONG TURN EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6 OG 10. ÁSTRÍKUR OG KLEOPATRA KEFLAVÍK Sýnd kl. 10. ÁLFABAKKI Kl. 8 og 10. B.i. 16. KRINGLAN kl. 8 og 10.10. AKUREYRI Sýnd kl. 10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.30, 6 og 8.30. B.i.12 ára. Stranglega bönnuð innan 16 ára!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.