Morgunblaðið - 20.08.2003, Blaðsíða 41
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 41
FÓLK
ÓLAFUR Ingi Skúlason kveður
félaga sína í Fylki eftir Evrópu-
leikinn við AIK í næstu viku. Ólaf-
ur er sem kunnugt er á mála hjá
Arsenal en er í láni hjá Fylk-
ismönnum út mánuðinn og þarf að
hafa félagaskipti í Arsenal áður en
félagaskiptafresturinn rennur út
hinn 1. september. Árbæjarliðið
sem er í harðri baráttu við KR-
inga um Íslandsmeistaratitilinn
verður því án Ólafs Inga í þremur
síðustu umferðunum en þá leikur
Fylkir við ÍA, KA og Val.
BJARKI Sigurðsson, fyrrv.
landsliðsmaður í handknattleik,
þarf væntanlega að gangast undir
speglun á hné á næstunni. Hann á
þó að vera tilbúinn í slaginn þegar
Íslandsmótið hefst 16. september
en Bjarki gekk í sumar til liðs við
sitt gamla félag, Víking.
SIGURÐUR B. Sigurðsson,
handknattleiksmaður úr Þór, er
kominn yfir til KA, samkvæmt
frétt á heimasíðu KA-manna. Sig-
urður lék 25 leiki með Þór í 1.
deildinni síðasta vetur og skoraði
18 mörk.
HAFÞÓR Einarsson markvörður
sem KA fékk frá Þór í sumar,
meiddist á fyrstu æfingu sinni með
KA og fer ekki með félaginu til
Þýskalands um næstu helgi. Hann
þarf að fara í speglun á hné en
reiknað er með að hann geti spilað
á opna Reykjavíkurmótinu um
aðra helgi.
KA-MENN taka þátt í æfinga-
móti í Þýskalandi um helgina og
eru í riðli með Friesenheim, liðinu
sem Atli Hilmarsson þjálfaði síð-
asta vetur og Halldór Sigfússon,
fyrrum KA-maður, leikur með, og
Kadetten Schaffhausen frá Sviss.
Í hinum riðlinum eru Dynamo
Astrakhan frá Rússlandi og þýsku
liðin Essen, með Guðjón Val Sig-
urðsson, annan fyrrv. KA-mann
innanborðs, og Dessauer.
EGGERT Magnússon, formaður
KSÍ, verður á ferð og flugi næstu
daga en hann er í Færeyjum um
þessar mundir. Næsta þriðjudag
verður hann fulltrúi stjórnar
Knattspyrnusambands Evrópu á
einum af þremur úrslitaleikjum
Intertoto-keppninnar og afhendir
verðlaun í leikslok, en þetta er í
fyrsta sinn sem veitt verða gull- og
silfurverðlaun í Intertoto-keppn-
inni. Eggert verður á viðureign
Wolfsburg og Perugia sem fram
fer í Wolfsburg.
STRAX að leiknum loknum
heldur Eggert til Mónakó þar sem
hann tekur þátt í þriggja daga
knattspyrnuhátíð í smáríkinu. Þar
verða afhent verðlaun til þjálfara
og leikmanna sem þóttu skara
fram úr á síðasta ári að mati
UEFA, þá verður dregið í riðla
Meistaradeildarinnar auk þess sem
úrslitaleikur Super-Cup fer fram.
ÍSLENSKA landsliðið í golfi karla hefur leik á Evrópumeist-
aramóti einstaklinga í dag en keppt er á Nairn golfvellinum í
Skotalandi. Að sögn Ragnars Ólafssonar, liðsstjóra liðsins, er
ætlunin að koma í það minnsta tveimur áfram í gegnum fækk-
unina og á síðasta daginn.
Völlurinn alveg frábær
„Völlurinn er alveg frábær og flatirnar með því besta sem ég
hef séð,“ sagði Ragnar um völlinn, sem er dæmigerður strand-
völlur, níu holur út og níu heim aftir.
Strákarnir hefja leik um klukkan níu í dag, það er að segja
Sigurpáll Geir Sveinsson, Birgir Már Vigfússon og Guðmundur
Ingvi Einarsson en Heiðar Davíð Bragason hefur leik um klukk-
an 13.30.
Leikinn er höggleikur þar sem ríflega 150 keppendur reyna
með sér í þrjá hringi en þá verður keppendum fækkað þannig að
þeir 70 efstu komast áfram og leika síðasta daginn. Þangað er
Ragnar að vonast til að koma í það minnsta tveimur keppendum.
Ætla með tvo á
síðasta dag á EM
ÞRÁTT fyrir að stúlkurnar í íslenska lands-
liðinu í fimleikum næðu allar að bæta ár-
angur sinn á HM í fimleikum í Bandaríkj-
unum, dugði það ekki til að þær kæmust
áfram í fjölþrautinni.
Stúlkurnar hlutu 123,11 stig. Sif Páldóttir
fékk 31,974, gekk sérlega vel á slánni þar
sem hún fékk 8,225, Tanja B. Jónsdóttir
fékk 30,6 stig, gekk best í stökki þar sem
hún fékk 8,325 stig, Inga Rós Gunnarsdóttir
30,187 stig, stóð sig vel bæði á tvíslá og í
gólfæfingum og Kristín Gígja Gísladóttir
30,349 stig, átti sérlega vel útfært stökk
sem hún fékk 8,387 stig fyrir.
Kristín Gígja hefur búið í Kaliforníu
ásamt fjölskyldu sinni undanfarin ár og hef-
ur ekkert keppt á mótum hér á landi. Hún
þykir mikið efni og æfir við bestu aðstæður
ytra.
Stúlkurnar
stóðu fyrir sínu
SEPP Blatter, forseti Alþjóða
knattspyrnusambandsins,
FIFA, kemst ekki til Færeyja
til að vera viðstaddur vígslu
nýrrar skrifstofubyggingar
sem hýsir höfuðstöðvar Knatt-
spyrnusambands Færeyja, en
vígslan fer fram í hádeginu í
dag. Blatter var væntanlegur
til Færeyja í gærkvöldi en
byggingin verður opnuð form-
lega í hádeginu í dag. Átti
Blatter að vera heiðursgestur
enda byggingin reist með styrk
frá Alþjóða knattspyrnu-
sambandinu. Vegna óhapps þar
sem hann slasaðist á hendi
boðaði Blatter forföll seint á
mánudagskvöldið.
Eggert Magnússon, formaður
Knattspyrnusambands Íslands,
verður fulltrúi UEFA, Knatt-
spyrnusambands Evrópu, við
vígsluna, en hann er stjórn-
armaður í UEFA. Vegna for-
falla Blatters verður Eggert
jafnframt fulltrúi FIFA á
staðnum.
Eggert hleypur í
skarðið fyrir Blatter
Jóhannes telur að leikurinn núgeti orðið meiri baráttuleikur
en viðureign þjóðanna í vor á
Laugardalsvelli.
„Færeyingar ætla
sér örugglega að
leika fast og kom-
ast inn í leikinn á
baráttu. Þegar að þeim þætti kem-
ur erum við engir aukvisar heldur
og erum bæði líkamlega og and-
lega tilbúnir að takast á við fær-
eyska liðið á öllum vígstöðvum
Við erum í góðu formi og
spenntir að taka þátt í leiknum
þegar hann verður flautaður á,
segir Jóhannes Karl Guðjónsson
sem kominn aftur til Real Betis á
Spáni eftir stutta dvöl í Þýskalandi
þar sem hann æfði með Dortmund.
„Síðasti leikur var afar erfiður
og ég reikna með að það sama
verði upp á teningnum að þessu
sinni,“ segir Brynjar Björn Gunn-
arsson landsliðsmaður um viður-
eignina í Þórshöfn.
„Færeyingar gerðu Skotum og
Þjóðverjum lífið leitt hérna í Þórs-
höfn og ætla sér vafalaust að halda
sínu striki að þessu sinni.“
Brynjar segist vænta þess að
Færeyingar leiki aðeins framar á
vellinum, sæki meira en á Laug-
ardalsvelli í vor og þá skapist um
leið aukin tækifæri fyrir íslenska
liðið til sóknar. „Í fyrsta lagi verð-
um við að berjast eins vel og þeir
og síðan freista þess að taka bolt-
ann niður og leika honum á milli
okkar, gera það sem við getum
best.“
Það er krafa um sigur í þessum
leik?
„Við sjáum það fyrir okkur að
með sigri komumst við í efsta sæt-
ið og þá getur allt gerst þegar
tveir leikir verða eftir í riðlinum,
báðir við Þjóðverja, þannig að við
höldum okkur vel inni í keppninni
með því að vinna þrjú stig úr úr
leiknum á morgun. Eins og gefur
að skilja er það mikilvægt fyrir
landsliðið eftir að okkur tókst að
komast inn í riðlakeppnina á nýjan
leik með tveimur sigurleikjum í
vor.
Sú staða sem kemur upp í riðl-
inum með sigri á morgun er ólíkt
skemmtilegri þegar kemur að
leikjunum við Þjóðverja í haust,
það verður óneitanlega skemmti-
legra að glíma við þá ef leikirnir
skipta máli upp á sætin í riðl-
unum.“
Brynjar segist reikna með að
leikurinn við Færeyinga geti ein-
kennst af baráttu fyrstu tuttugu
mínúturunar. „Eftir það verðum
við að finna okkar leik og spila
boltanum. Við eigum að hafa yf-
irburði í flestum stöðum, einkum í
sóknarleiknum og þá er um að
gera að nýta þau færi sem gefast
og sýna þolinmæði. Ef leikurinn
vinnst á síðustu tíu mínútunum þá
er það ekkert verra en hvað ann-
að,“ segir Brynjar Björn Gunn-
arsson.
Jóhannes Karl og Brynjar Björn reikna með svipaðri
mótspyrnu Færeyinga og á Laugardalsvellinum
Veltur á okkur
hvernig leik-
urinn þróast
„MÓTSPYRNA Færeyinga verður svipuð og í síðasta leik en það
veltur mest á okkur hvernig leikurinn þróast,“ segir Jóhannes Karl
Guðjónsson spurður um Evrópuleikinn við Færeyinga í Þórshöfn.
„Við erum með sterkara lið en Færeyingar og eigum að vinna leik-
inn, með því hugarfari förum við í hann. Færeyingar ætla sér örugg-
lega að reyna að stríða okkur eins og þeir geta, þeir eru minni þjóð
en við í knattspyrnunni, en þegar inn á völlinn verður komið standa
ellefu leikmenn gegn ellefu og þá megum við alls ekki vanmeta
Færeyingana. Þeir eru metnaðarfullir og vilja standa sig fyrir fram-
an sína þjóð. Fyrir vikið verður leikurinn vonandi skemmtilegur, en
við verðum að fara með sigur af hólmi.“
Ívar
Benediktsson
skrifar frá
Þórshöfn
„VONANDI getum við gert betur
en síðast þegar þjóðirnar mætt-
ust,“ segir Jens Martin Knudsen,
varamarkvöður Færeyinga og
fyrrverandi leikmaður og þjálfari
Leifturs í Ólafsfirði, spurður um
viðureign Færeyinga og Íslend-
inga á Tórsvelli í kvöld. „Við ætl-
um að leggja allt í sölurnar til að
vinna Íslendinga að þessu sinni,
það er engin spurning um það í
mínum huga. Í undanförnum
leikjum hefur munað á þjóðunum
og sennilega var síðasti leikur
okkar við Íslendinga sá slakasti
sem við höfum leikið síðustu fjög-
ur til fimm árin, samt munaði
ekki meira en raun bar vitni þeg-
ar upp var staðið. Ég tel því að
við eigum jafnmikla möguleika á
að vinna að þessu sinni og Íslend-
ingar.“
Jens Martin segir að vissulega
sakni færeyska liðið Jákups á
Borg og Fróða Benjaminsen en
það komi maður í manns stað og
það eigi ekki að standa og falla
með þeim tveimur. „Við eigum
nokkra góða leikmenn,“ segir
Jens Martin og bætir við. „Íslend-
ingar eru eins og stóri bróðir
okkar á knattspyrnuvellinum og
þar af leiðandi verður það okkur
afar mikilvægt að geta einu sinni
unnið þá á knattspyrnuvellinum.
Eftir nokkra jafna leiki vonast ég
til að okkur takist loksins nú að
brjóta blað, en til þess verður allt
að ganga upp hjá okkur á morg-
un,“ segir Jens Martin Knudsen.
Jens Martin
Knudsen
Eigum
jafnmikla
möguleika
og Íslend-
ingar