Morgunblaðið - 20.08.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.08.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ HREPPSNEFND Skeiða- og Gnúp- verjahrepps hafnaði á fundi sínum í gær, með fjórum atkvæðum gegn þremur, þeirri útfærslu Landsvirkj- unar að reisa stíflu við Norðlinga- ölduveitu í 566 metra hæð yfir sjó og hækka hana um tvo metra með sér- stökum gúmmíbelgjum. Telur meiri- hlutinn að þar sé um allt aðra fram- kvæmd að ræða en þá sem kynnt var með úrskurði setts umhverfisráð- herra, Jóns Kristjánssonar, með tilliti til umfangs og aurskolunar. Féllst meirihluti hreppsnefndar hins vegar á þá útfærslu Verkfræði- stofu Sigurðar Thoroddsen, VST, sem kynnt var með úrskurði Jóns í janúar sl. um lónhæð eingöngu í 566 m.y.s. Tillaga minnihluta hrepps- nefndar um að samþykkja útfærslu Landsvirkjunar eða fresta málinu var felld. Fyrir hreppsnefndarfundi lágu ýmis erindi og bréf Landsvirkjunar, m.a. afrit af umsókn til umhverfisráð- herra um virkjanaleyfi og erindi Landsvirkjunar til forsætisráðherra og samvinnunefndar miðhálendisins um sama mál. Að öðru leyti féllst hreppsnefndin á að Norðlingaölduveita verði hönnuð og byggð samkvæmt áætlunum Landsvirkjunar en endanlegt vatns- magn sem hleypa á framhjá, til að uppfylla skilyrði í úrskurði setts um- hverfisráðherra, verði ákveðið á grundvelli mælinga og vöktunar á næstu árum. Þá féllst meirihlutinn á að Litlu-Arnarfellskvísl verði veitt í Þjórsárlón ef tryggt verði að nægi- legt framhjárennsli verði í farvegi hennar til að tryggja grunnvatns- stöðu innan friðlands Þjórsárvera. Greinargerð meirihlutans Afstaða meirihlutans til lónhæðar í 566 m.y.s. byggðist m.a. á eftirtöldum atriðum í greinargerð: „1. Óhætt er að fullyrða að sú sátt sem úrskurður setts umhverfisráð- herra skapaði í þessu heita og við- kvæma deilumáli byggist á þeirri til- lögu og stuðlar þannig að því að allir aðilar geti sætt sig við framkvæmd- ina og að verndun og nýting til orku- vinnslu fari saman. Í úrskurði um- hverfisráðherra og forathugun VST er leitast við að uppfylla 3 skilyrði: Að framkvæmdin hafi engin langtíma- áhrif inn í friðlandið, að hagkvæmni veitunnar sé viðunandi, o.þ.m.t. rekstraröryggi. 2. Lónhæð í 566 m y.s. er forsenda þess að aurskolun sé raunhæfur kost- ur til að leysa vanda vegna aurburðar og setmyndunar. 3. Rekstur lónsins við lægra vatns- borð að sumri en vetri skapar veru- lega hættu á þornun sets og jarðvegs og þar með auknar líkur á foki úr lón- stæði. 4. Mat á rekstraröryggi og arðsemi veitunnar virðist mismunandi en í til- högun setts umhverfisráðherra er brugðist við þeim þáttum, annars vegar með færslu stíflu neðar í farveg Þjórsár og hins vegar með stækkuðu setlóni með veitu til Þjórsárlóns. Vegna nálægðar lóns í 568 m y.s við friðlandsmörk má ætla að fram- kvæmdin hafi áhrif inn í friðlandið áð- ur en langt um líður, t.d. vegna flóða og myndunar aurkeilu við inn- rennsli.“ Aðalsteinn Guðmundsson, formað- ur hreppsráðs og talsmaður meiri- hlutans, sagði við Morgunblaðið að meirihlutinn hefði verið einhuga í af- stöðu sinni. Ekki hefði verið hægt að fallast á helmingi stærra lón með til- heyrandi hættu á aurmyndun og -foki. Nálægðin við friðlandsmörkin með 568 metra lónhæð væri sömu- leiðis mikil. Vilji væri fyrir því að stækka friðland Þjórsárvera og taka Eyfafen þar undir. Vonaðist Aðal- steinn til þess að Landsvirkjun myndi ákveða lónhæð í 566 metrum og fara alfarið eftir úrskurði setts umhverf- isráðherra. Minnihlutinn ekki sáttur Þrándur Ingvarsson, oddviti minnihluta hreppsnefndar, var ekki sáttur við niðurstöðuna er Morgun- blaðið ræddi við hann í gær. Sagði hann afgreiðslu meirihlutans vera af- ar misráðna. Öll þau rök sem meiri- hlutinn hefði haft uppi hefðu verið hrakin af sérfræðingum Umhverfis- stofnunar, sem hefði fallist á útfærslu Landsvirkjunar. Taldi Þrándur að meirihluti hreppsnefndar endur- speglaði ekki vilja meirihluta íbúa hreppsins. Þó að ekki væru miklir peningalegir hagsmunir í húfi fyrir hreppinn með Norðlingaölduveitu væri mikilvægt að halda góðum sam- skiptum við Landsvirkjun sem væri með tvær virkjanir innan sveitarfé- lagsins. Tillaga minnihlutans, sem var felld, var eftirfarandi: „Hreppsnefnd Skeiða- og Gnúp- verjahrepps fellst á lón í 568 m.y.s. með þeim skilyrðum að fylgst verði með hugsanlegu foki úr lónstæði. Varðandi framhjárennsli úr setlóni til að halda við grunnvatnsstöðu innan friðlands samþykkir hreppsnefnd niðurstöðu nefndar sem skipuð var fulltrúum umhverfisstofnunar, Landsvirkjunar, oddvita Skeiða- og Gnúpverjahrepps og oddvita Ása- hrepps. Hreppsnefnd áskilur sér rétt til frekari viðræðna við fram- kvæmdar- og umsagnaraðila um út- færslu á veituframkvæmdum og vísar til úrskurðar ráðherra í því sambandi. Hreppsnefnd mun fyrir sitt leyti stuðla að því að framkvæmdir geti gengið sem greiðast fyrir sig.“ Hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir 566 metra lónhæð í Norðlingaölduveitu Útfærslu Landsvirkj- unar var hafnað       KJARTAN Gunnars- son, fyrrverandi apó- tekari, lést síðastlið- inn sunnudag, 17. ágúst. Kjartan fædd- ist á Ísafirði 19. apríl 1924 og var sonur hjónanna Gunnars Andrew Jóhannes- sonar og Guðlaugar Jósefsdóttur Kvaran. Kjartan lauk stúd- entsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík árið 1945 og útskrif- aðist frá Lyfjafræð- ingaskóla Íslands 1952. Kjartan stofnaði heildsöluna Her- mes hf. árið 1961 og var jafnframt stofnandi og fyrsti lyfsali Borgar- ness Apóteks. Þá var hann lyfsali í Lyfjabúðinni Iðunni við Laugaveg í Reykjavík frá 1. október 1976 en hún var síðar flutt í Domus Medica. Hann sat í stjórn Lyfjafræðingafélags Íslands árin 1953– 1958 og var um tíma formaður þess. Kjartan kom einnig að stjórnmálum og sat í fjögur ár í hreppsnefnd Borgar- neshrepps. Kjartan kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni Dórótheu Jóns- dóttur árið 1950 og eignuðust þau fjögur börn: Guðlaugu (1954), Gunnar (1959), Sigurð Árna (1960) og Guðrúnu Þórhildi (1964). Kjartan var mikill áhugamaður um landakort og safnaði þeim í fjölda ára. Hann var virkur í alþjóðlegum félagsskap kortaáhugamanna og er safn hans nú í eigu Þjóðarbókhlöð- unnar. Andlát KJARTAN GUNNARSSON AÐALFUNDUR Sambands sveitarfélaga á Austurlandi verður haldinn á Breiðdalsvík 21. og 22. ágúst nk. Auk hefðbundinna aðalfund- arstarfa verða fluttar framsögur um fyrirhugaða rannsókn á áhrifum virkjana- og stóriðju- framkvæmda á Austurlandi og einnig um áhrif stórfram- kvæmda á Mið-Austurlandi á norður- og suðursvæði fjórð- ungsins. Þá verða fluttar fram- sögur um Fræðslunet Austur- lands og Háskólanámssetur á Egilsstöðum, um sameiningu sveitarfélaga og stefnu Sam- bands íslenskra sveitarfélaga í þeim efnum. Loks verða fram- sögur um forvarnamál, Jöfnun- arsjóð sveitarfélaga og fé- lagslegar íbúðir sveitarfélaga. Dagskrá aðalfundarins má sjá á vefnum ssa.is. Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi í vikunni „FLEIRI konuforseta, takk!“ var meðal þess sem unglingar á aldr- inum 13 til 16 ára, úr vinnuskól- unum á Seltjarnarnesi og Akra- nesi, rituðu er þeir voru spurðir um viðhorf sín til jafnréttis kynjanna. Þrjár ungar konur stóðu að viðhorfskönnuninni, þær Auður Alfífa Ketilsdóttir, bók- mennta- og kynjafræðinemi, Aðal- björg Þóra Árnadóttir leiklist- arnemi og Salka Guðmundsdóttir, nemi í leikhúsfræðum. Verkefnið var styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna. „Við höfum sett á laggirnar rannsóknarleikhús sem ber heitið Júlía & Júlía – rannsóknarleik- húsið og er tilgangur verkefnisins að nota leikhús til að vekja at- hygli unglinga á jafnrétti.“ Fyrr- greind könnun var gerð í sumar og tóku um hundrað unglingar þátt í henni. Þeir svöruðu ýmsum spurningum um jafnrétti og voru textar byggðir á svörunum síðan notaðir í verkefninu öraðgerð á Menningarnótt í miðbæ Reykja- víkur. Fólst öraðgerðin í því að gefa gestum í miðbænum kost á því að draga miða með texta byggðum á svörum unglinganna við spurningunni: Hvað þarf að gera til að jafnrétti náist? Sá sem dró miðann átti síðan að standa uppi á stól og lesa það sem á mið- anum stóð. Sem dæmi um svar sem lesið var á Menningarnótt var: „Mér finnst að konur ættu að hætta að væla.“ Þá má nefna svarið: „Vig- dís Finnboga Rocks my World.“ Alfífa segir að öraðgerðin hafi fengið mjög góðar viðtökur á Menningarnótt. „Ótrúlega margir tóku þátt í henni,“ segir hún, „og kom það okkur á óvart hve marg- ir unglingar drógu miða og stóðu uppi á stól.“ Hún segir ennfremur að unglingarnir hafi spurt mikið og verið forvitnir um verkefnið. Alfífa segir að enn eigi eftir að þróa verkefnið áfram en tekur þó fram að ýmislegt athyglisvert hafi komið í ljós í niðurstöðum könn- unarinnar. T.d. kom fram að einn af hverjum þremur unglingum, sem svöruðu, taldi neikvætt að vera femínisti. En tveir af hverj- um þremur fannst jákvætt að vera jafnréttissinni. „Þetta sýnir að femínisti er greinilega neikvætt orð,“ útskýrir Alfífa og bætir því við að í hugum unglinga sé ekki endilega samasemmerki milli þess að vera femínisti og jafnrétt- issinni. „Þá kom fram að minna en helmingur þekkti orðið „rauð- sokka“. Mamma sagði reyndar þegar hún heyrði þetta: hvað hef- ur orðið um allt mitt starf?“ Alfífa segir þó að það sé greinilegt að „þessir krakkar séu ekki aldir upp af rauðsokkum eins og við.“ Alfífa segir einnig athyglisvert að svo virðist sem lítið sé rætt við krakkana um jafnrétti kynjanna en tekur þó fram að þeir hafi þó margir hverjir tekið eftir um- ræðunni um launamun kynjanna. „Margir krakkanna sögðu að kon- ur ættu að fá jafnhá laun og karl- ar.“ Alfífa vill að lokum koma þökk- um á framfæri til allra þeirra sem þátt tóku í könnuninni, en það var eins og áður sagði unglingar í vinnuskóla Seltjarnarness og í vinnuskóla Akraness. „Fleiri konu- forseta, takk!“ Stúlka uppi á stól að lesa texta um jafnrétti kynjanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.