Morgunblaðið - 20.08.2003, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.08.2003, Blaðsíða 23
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 23 NÚVERANDI ráðstjórn hefir tvívegis búið sér til bjarghringi úr ósannindum í alþingiskosningum til að fljóta á. Og í báðum reyndist nægilegt flotmagn. Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins 1999 tilkynnti að- alritari að hann og ráðstjórn sín myndu beita sér fyrir sáttum í hinni illvígu deilu í fiskveiði- málum. Þessu var einkar vel tekið á fundinum, og Morgunblaðið og ríkisfjölmiðlar undir stjórn Hólm- steins lofuðu strax Guð og kváðu nú vandamálið úr sögunni. Á það lagði landslýðurinn trúnað og veitti friðarpostulunum umboð til að stjórna áfram. Ekki voru þó allir trúaðir á að hugur fylgdi máli í boðskap herr- anna. Enda kom á daginn að lof- orðin voru orðin ein, sem aldrei var ætlunin að standa við. Og lénsherrarnir vissu allt um það og greiddu áfram styrkina glaðir í kosningasjóð kvótaflokk- anna. Skipuð var svokölluð Auðlinda- nefnd, sem reyndist afgreiðslu- nefnd á pöntun um óbreytt ástand. Fulltrúum kvótagreifanna í nefndinni var boðið upp á leið, sem þeir kusu sér fúslega: Mála- mynda auðlindagjald í framtíðinni, gegn því að jafnháum gjöldum yrði af þeim létt. Vert er að geyma það vel í minni, að undir hið fræga nefnd- arálit skrifuðu þrír þingmenn Samfylkingar – athugasemdalaust. Nú leið að kosningum 2003 og ráðstjórnarmenn óttuðust mjög um sinn hag; óttuðust að þeir myndu kannski drukkna í ólgusjó sjávarútvegsumræðu, en líklegt að Frjálslyndi flokkurinn héldi sinni fleytu á floti. Þá skeði það á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, að vestfirzkur sjóari, Guðmundur Halldórsson frá Bolungarvík, kast- aði til aðalritara nokkru, sem hon- um virtist í fyrstu vera þung sakka, sem myndi líkleg til að draga Sólina Miklu í kaf í augum sægreifanna. Þetta var tillaga Guðmundar um ívilnun til handa smábátum á línuveiðum, dagróðr- arbátum. Það kom ýmsum mjög á óvart, að tillaga Guðmundar var sam- þykkt á fundinum, sér í lagi þeim, sem vita að á slíkum fundi er ekk- ert samþykkt, sem forystan er andstæð. Hvernig í ósköpunum mátti þetta verða? Svarið varð fljótlega lýðum ljóst. Pólitíski töframaðurinn í for- mannssætinu hafði breytt blý- sökkunni í bjarghring með sömu aðferð og hann bjó sér til bjarg- hring í kosningunum 1999 og á var minnzt í upphafi þessa grein- arstúfs. Aðalritari fór um landið, hring- inn í kring, og lofaði línuívilnum. Menn féllu fram og lofuðu foringj- ann, enda hafði hann nýverið full- vissað kjósendur um að hann stæði ævinlega við öll loforð sín. Og sjá! Málsmetandi menn eru nú á einu máli um að loforðið hafi ráðið úrslitum um að ráðstjórnin hélt velli! Enda hringdi aðalritari í Guðmund sjóara í kosningahríð- inni og þakkaði honum fyrir lausn- ina, sem skipt hefði sköpum. Og varla verður aðalritara skotaskuld úr að finna sönnun þess, að hann standi alltaf við öll loforð sín, þótt staðreyndir sýni annað, enda almenningur gleym- inn og auðtrúa að hans mati. Bjarghringir Eftir Sverri Hermannsson Höfundur er fv. þingmaður Frjálslynda flokksins. NÝLEGA er lokið Norrænu geðlæknaþingi sem haldið var hér í Reykjavík þar sem fagfólki í geðheilbrigðisþjónustu gafst kostur á að bera saman bækur sínar og ræða það sem efst er á baugi í geðheil- brigðisþjónustu á Norðurlöndum. Á þinginu voru marg- ir þekktir fyrirlesarar m.a. frá Norðurlöndum, Bret- landi og Kanada. Það sem er minnisstætt frá þessu þingi og ástæðan fyrir þessum pistli var umræðan um vonina sem ekki verður frá okkur tekin, þrátt fyrir að óhöpp og sjúkdómar dynji yfir. Finnar höfðu kannað hverjar væntingar geðfatlaðra einstaklinga væru til lífsins og tilverunnar og hvað vekti með þeim von um betra líf. Það kom í ljós að væntingar geðfatlaðra einstaklinga voru þær helstar að búa við fé- lagslegt öryggi og eiga öruggt heimili, búa við gott viðurværi hvað snertir mat og aðrar nauðsynjar og hafa félagsskap af öðrum og þá sérstaklega þeim sem eiga við sömu vandamál að stríða. Væntingar aðstandenda og starfsfólks sem önnuðust þessa einstaklinga voru í meginatriðum þær sömu, þótt væntingarnar væru stundum aðeins meiri, t.d. um getu til að stunda vinnu, íþróttir og að njóta menning- arlegra atburða í ríkara mæli. Finnar höfðu einnig kannað hvort félagsleg staða og kyn hefði áhrif á lífsgæði og kom í ljós að einhleypir, geðfatlaðir karlmenn voru hvað mest einangraðir og verst settir félagslega og bjuggu við lökust kjör. Margir þeirra bjuggu enn hjá foreldrum þar sem þeir voru ófærir um að búa einir. Það virðist vera að geðfatlaðir einstaklingar búi við verri aðstæður hér á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum þegar kemur að samfélags- legri þjónustu. Þá skortir stuðning til að búa við þær aðstæður sem efla sjálfsvirðingu þeirra og sjálfsvitund og skapar þeim öryggi og vel- líðan. Ákveðin krafa kom fram um að efla þjónustu við geðfatlaða ein- staklinga í samfélaginu og auka búsetumöguleika við þeirra hæfi. Ég vil þakka geðlæknafélaginu og öðrum sem að þessu þingi stóðu fyrir sérstaklega áhugavert og hvetjandi þing fyrir þá sem starfa við geðheilbrigðisþjónustu. Bættur aðbúnaður geðfatlaðra – von um betra líf Eftir Ingibjörgu Hrönn Ingimarsdóttur Höfundur er geðhjúkrunarfræðingur. vinnupallar Sala - leiga Sími 577 2050 · Fax 577 2055 · GSM 824 2050 · www.formaco.is Fyrir flottar konur Bankastræti 11 • sími 551 3930www.nowfoods.com Skráning í síma 511-1575 og á www.hreyfigreining.is Námskeið um lífsstíl Morguntímar • Hádegistímar • Kvöldtímar Innifalið í öllum námskeiðum er: 3 fastir tímar á viku, aðgangur að opnum tímum og tækjasal, mappa full af fróðleik um þjálfun, næringu og lífsstíl, tími með þjálfara í tækjasal, fyrirlestur um næringarfræði og lífsstíl, fitumælingar og þrekpróf, regluleg vigtun, matardagbók og hreyfingardagbók, samanburður á mælingum í lok námskeiðs, stuttermabolur og vatnsbrúsi. Fyrstu námskeiðin hefjast 25. ágúst Karlaátak – 8 vikur, þrisvar sinnum í viku. 14.900 kr. Í kjólinn – 8 vikur, þrisvar sinnum í viku. 14.900 kr. Stórátak – 16 vikur, þrisvar sinnum í viku. 26.900 kr. Unnur Guðrún Pálsdóttir, sjúkraþjálfari Hólmfríður B. Þorsteinsdóttir, sjúkraþjálfari Ása Dagný Gunnarsdóttir, íþróttakennari og nemi í sjúkraþjálfun Emilía Borgþórsdóttir, sjúkraþjálfari Vaka Rögnvaldsdóttir, íþróttakennari Guðrún Höskuldsdóttir, Þolfimileiðbeinandi Augl‡singasími: 595 9046 –www.sparimagazin.is Í bla›inu ver›ur a› finna fjölda tilbo›a sem flú mátt ekki missa af!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.