Morgunblaðið - 20.08.2003, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.08.2003, Blaðsíða 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 15 DANSAÐU HANDFRJÁLS ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 21 88 6 0 8/ 20 02 Handfrjáls búnaður Samlituð vindskeið Hágæða hljómtæki Lúxus innrétting COROLLA - MOBILE Vertu í góðu sambandi. Komdu strax. Prófaðu nýjan Corolla Mobile með handfrjálsum búnaði, Sedan, Hatchback eða Wagon. Corolla Mobile er hlaðinn nýjungum, innréttingin er ríkuleg og tónlistin dunar í hágæða hljómtækjum með 6 hátölurum. Corolla Mobile er glæsilegur bíll að utan sem innan. Við bjóðum þér upp.... í reynsluakstur. www.toyota.is ALASTAIR Campbell, upplýsinga- fulltrúi brezka forsætisráðherrans, Tonys Blairs, vísaði í gær á bug full- yrðingum um að hann hefði átt við orðalag skýrslu sem stjórnin birti í september um vopnaeign Íraka, í þeim tilgangi að ýkja ógnina sem af þáverandi valdhöfum í Írak stafaði. Campbell bar vitni í gær fyrir sér- skipaðri nefnd sem falið var að rann- saka tildrög dauða efnavopnasér- fræðingsins dr. Davids Kellys. Spurður hvort hann hefði komið eitthvað nálægt því að setja inn í skýrsluna umdeilda fullyrðingu um að Írakar gætu beitt gereyðingar- vopnum innan 45 mínútna frá því skipun um slíkt væri gefin út svaraði Campbell: „Alls ekki neitt.“ „Ég bætti engu við né tók út né hafði nein áhrif á hana á þessu stigi,“ tjáði Campbell nefndinni, sem dóm- arinn Hutton lávarður fer fyrir. Virt- ist Campbell afslappaður og með allt sitt á hreinu við yfirheyrsluna. Fréttamaður brezka ríkisútvarps- ins BBC, Andrew Gilligan, hélt því fram í frétt sem send var út í byrjun júní – með tilvísun til upplýsisnga frá ónafngreindum heimildarmönnum innan stjórnkerfisins – að Campbell hefði átt frumkvæði að því að „45 mínútna-fullyrðingin“, sem vakti mikla athygli, var sett inn í skýrsluna viku fyrir birtingu hennar 24. sept- ember. Skýrslan varð síðan ráða- mönnum að liði við að telja brezkan almenning á að styðja ákvörðun stjórnarinnar um að grípa til hernaðaríhlutunar í Írak. Írafárið sem fylgdi í kjölfar frétt- arinnar, þar sem Campbell og for- svarsmenn BBC glímdu allheiftar- lega, leiddi til þess að það var gert opinbert að dr. Kelly hefði verið aðal- heimild fréttar Gilligans og hinn hlé- drægi vísindamaður var yfirheyrður af tveimur þingnefndum. Skömmu síðar fannst dr. Kelly látinn skammt frá heimili sínu, að því er virðist eftir að hafa svipt sig lífi. Vísar á yfirmann leyniþjónustunefndar Campbell sagði að hann hefði boð- ið ráðgjöf um það með hvaða hætti bezt væri að kynna skýrsluna en háttsettir leyniþjónustumenn hefðu alfarið stýrt gerð hennar. Campbell útskýrði, að ákveðið hefði verið á fundi í Downingstræti hinn 9. september að John Scarlett, yfirmaður leyniþjónustunefndar rík- isstjórnarinnar (Joint Intelligence Committee), ætti að bera hitann og þungann af skýrslugerðinni og birt- ingu hennar. Umrædd leyniþjón- ustunefnd er eins konar yfirstjórn allra leyniþjónustudeilda brezka stjórnkerfisins, sem yfirmenn hverr- ar deildar eiga sæti í og er ríkis- stjórninni til ráðgjafar um málefni sem snerta leyniþjónustustarfsemi innanlands sem utan. Vitnisburðar Campbells hafði verið beðið með nokkurri eftirvæntingu, enda ljóst að hann væri lykilvitni sem gæti varpað ljósi á atburðarásina sem leiddi til sjálfsvígs dr. Kellys um miðjan júlí. Í vitnisburðinum í gær stóð Camp- bell fast á því leyniþjónustu- mennirnir hefðu stýrt gerð skýrsl- unnar frá upphafi til enda, jafnvel þótt fyrir rannsóknarnefndinni liggi gögn sem sýna að stjórnendur á skrifstofu forsætisráðherrans hefðu átt í tölvupóstsamskiptum þar sem athugasemdir og tillögur voru gerðar um frágang skýrslunnar. „Þeim mun þurrara, því betra“ „Ég lagði áherzlu á að trúverðug- leiki þessa plaggs ylti að mestu á því að það væri ótvírætt verk JIC-nefnd- arinnar,“ bar Campbell. Sagðist hann hafa skráð í minnisbók sína það sem talað var um á fundi sem hann átti með Scarlett þann 11. septem- ber. Tjáði hann rannsóknarnefndinni að hann hefði sagt við Scarlett: „Þeim mun þurrara, því betra; slepp- ið málalengingum.“ „Þar erum við komnir að kjarna málsins. (...) Mér finnst að á köflum sé orðalagið óþarflega litríkt. Ég sagði einnig að bezt væri að textinn væri byggður að eins miklu leyti og mögulegt væri á leyniþjónustuupp- lýsingum,“ bar Campbell. Hann var spurður hvaðan „45-mín- útna-fullyrðingin“ hefði komið, en hún hafði ekki verið nefnd í fyrri skýrslum um gereyðingarvopnaeign Íraka og í frétt Gilligans var því hald- ið fram að stjórnendur á skrifstofu forsætisráðherrans hefðu staðið fyr- ir því að skýrslunni var breytt viku fyrir birtingu hennar. Campbell svaraði: „Ég vissi að hún var komin frá JIC en mér voru þó ekki kunnar þær hráupplýsingar sem hún var byggð á, né heldur hvað- an hún var upprunalega runnin.“ Fyrir utan dómhúsið í Lundúnum þar sem vitnaleiðslurnar fara fram hafði safnazt nokkur hópur fólks með mótmælaspjöld með fordæmingum á stríðinu í Írak. Gerði fólkið hróp að Campbell er hann mætti. Campbell verst öllum ásökunum Lundúnum. AFP. Alastair Campbell (t.v.) mætir til vitnaleiðslunnar í Lundúnum í gær. Almannatengslastjóri Tonys Blairs ber vitni í Kelly-rannsókninni svonefndu Reuters

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.