Morgunblaðið - 20.08.2003, Blaðsíða 43
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 43
ÓLAFUR Stefánsson hefur verið valinn í heimsliðið sem mætir
Rússum í lok desember þegar handknattleikssambandið þar í
landi verður 75 ára og síðari leikurinn verður í mars en þá verð-
ur leikið við Þjóðverja. Nokkrir þjálfarar og sérstök nefnd
völdu 25 leikmenn í heimsliðið og er Ólafur einn þeirra.
Markverðir eru: Henning Fritz (Kiel), Arpad Sterbik (Veszpr-
em), Yousef Alfadhli (Salmiya), og David Barrufet (Barcelona).
Skyttur hægra megin: Stefan Lövgren (Kiel), Bruno Sousa
(Göppingen) og Carlos Perez (Veszprem).
Leikstjórnendur: Enric Massip (Barcelona), Hussein Zaki
(Ciudad Real), Markus Baur (Lemgo) og Ivano Balic (Metkovic).
Skyttur hægra megin: Ólafur Stefánsson (Ciudad Real), Pat-
rick Cazal (Essen), Petar Metlicic (Ademar Leon,), Volker
Zerbe (Lemgo) og Yoon (Gummersbach).
Vinstra horn: Lars Christiansen (Flensburg), Eduard
Kockcharov (Celje), Stefan Kretzschmar (Magdeburg).
Línumenn: Christian Schwarzer (Lemgo), Magnus Wislander
(Redbergslids) og Bertrand Gille (Hamburg).
Hægra horn: Mirza Dzomba (Veszprem), Grégory Anquetil
(Montpellier), og Florian Kehrmann (Lemgo).
ÁSGEIR Sigurvinsson og Logi Ólafsson ætla að
tilkynna byrjunarliðið gegn Færeyingum um
hádegisbilið í dag, en eftir því sem lesa mátti út
úr síðustu æfingu liðsins er sennilegt að þrjár
breytingar verði gerðar á byrjunarliðinu frá
leiknum við Litháa í Kaunas í júní. Líklegt má
telja að Ívar Ingimarsson leysi Lárus Orra Sig-
urðsson af hólmi og Ólafur Örn Bjarnason komi
í stað Guðna Bergssonar. Þá kæmi ekki á óvart
að Heiðar Helguson tæki stöðu Helga Sigurðs-
sonar í sókninni. Þar með yrði byrjunarliðið
gegn skipað eftirtöldum leikmönnum: Árni
Gautur Arason verður í markinu, Ívar Ingimars-
son leikur hægra megin í vörninni og Hermann
Hreiðarsson vinstra megin og á milli þeirra
Ólafur Örn. Á miðjunni Þórður Guðjónsson,
Rúnar Kristinsson, Brynjar Björn Gunnarsson,
Jóhannes Karl Guðjónsson og Arnar Þór Við-
arsson. Eiður Smári Guðjohnsen og Heiðar
Helguson hefja leikinn í fremstu víglínu.
HERMANN Hreiðarsson leikur í
kvöld sinn 50. landsleik þegar flaut-
að verður til leiks í Þórshöfn. Árni
Gautur Arason bætir sínum 30.
landsleik í safnið og Eiður Smári
Guðjohnsen spilar í 25. sinn með
landsliðinu og fær þá gullúr KSÍ eins
og hefð er fyrir þegar landsliðsmenn
ná þeim áfanga.
PAUL Michaelsen, fyrrverandi
borgarstjóri í Þórshöfn, er fram-
kvæmdastjóri félagsins sem á og
rekur Tórsvöllinn í Þórshöfn þar
sem viðureign Íslendinga og Færey-
inga fer fram. Michaelsen er allt í
öllu á vellinum og gengur greinilega í
öll störf eftir því sem þurfa þykir.
MICHAELSEN tók vel á móti ís-
lenskum fjölmiðlamönnum sem
heimsóttu völlinn í gær þegar ís-
lenska landsliðið var þar á æfingu.
Sagði hann m.a. að 180 þýskir fjöl-
miðlamenn hefðu mætt þegar Þjóð-
verjar léku við Færeyinga 11. júní sl.
í undankeppni EM. Mikið verk hefði
verið við að útvega þeim öllum
vinnuaðstöðu á vellinum. Michaelsen
þarf ekki að leggja út í eins mikla
vinnu við að koma íslenskum fjöl-
miðlamönnum fyrir nú þegar ís-
lenska landsliðið er í heimsókn því
þeir eru aðeins sex.
GEIR Þorsteinssyni, fram-
kvæmdastjóra KSÍ, hraus hugur við
tilhugsuninni þegar Michaelsen
sagði honum að 180 fjölmiðlamenn
frá Þýskalandi hefðu mætt á viður-
eign Færeyinga og Þjóðverja í vor.
Geir sagðist aðeins hafa rými fyrir
60 fjölmiðlamenn á Laugardals-
velli. AÐALGATAN í miðbæ Þórs-
hafnar hefur verið skreytt vegna
landsleiksins. Allt meðfram götunni
eru færeyskir og íslenskir fánar.
Reiknað er með að uppselt verði á
leikinn, en Tórsvöllur tekur um 6.000
áhorfendur í sæti.
EYJÓLFUR Sverrisson, fyrrver-
andi fyrirliði Íslands í knattspyrnu,
er mættur til Færeyja til að sýna
strákunum stuðning fyrir leikinn í
kvöld en hann gistir á sama hóteli og
íslenska landsliðið.
FIMM leikmenn úr efstu deild
karla í knattspyrnu, Landsbanka-
deildinni, voru úrskurðaðir í leik-
bann á fundi aganefndar í gær. Eyja-
mennirnir Bjarnólfur Lárusson og
Ian Jeffs taka út leikbann í leiknum
við FH á mánudaginn, það gerir
einnig Sverrir Garðarsson, FH.
Kristinn Ingi Lárusson, Val, verður
fjarri góðu gamni þegar Valsmenn
sækja Skagamenn heim og Þróttar-
inn Ingvi Sveinsson tekur út leik-
bann í leiknum við Grindavík.
FH-ingar urðu í gær Íslandsmeist-
arar í 2. flokki karla í knattspyrnu
þegar þeir burstuðu Keflvíkinga,
8:1, á heimavelli sínum í Kaplakrika.
FH hefur unnið alla 11 leiki sína og
hefur 14 stiga forskot á KR þegar
þrjár umferðir eru eftir.
FÓLKHENRIK Larsen, landsliðsþjálfari
Færeyinga, skrifaði í hádeginu í
gær undir nýjan tveggja ára
samning við Knattspyrnu-
samband Færeyja um að þjálfa
landsliðið fram yfir riðlakeppni
heimsmeistaramótsins, en henni
lýkur haustið 2005. Astoð-
armaður Larsens, Jógvan Martin
Olsen, skrifaði einnig undir sams
konar samning við sama tækifæri.
Larsen er danskur og býr mest
megnis í Danmörku. Hann tók við
færeyska landsliðinu fyrir tveim-
ur árum af landa sínum Allan
Simonsen. Almenn ánægja er með
störf Larsens með landsliðið og
voru forráðamenn Knattspyrnu-
sambands Færeyjar afar ánægðir
með að hafa framlengt samning-
inn við þjálfarann. Larsen var
leikmaður danska landsliðsins í
knattspyrnu sem varð Evr-
ópumeistari í fyrir ellefu árum.
Larsen áfram með
landslið Færeyja
Ásgeir segist ætla að gefa þáskipun til sinna manna að þeir
gangi til leiks með það að markmiði
að taka frumkvæðið
strax frá fyrstu mín-
útu. „Við munum
leika eins örugglega
í vörninni eins og við
getum og síðan ætlum við að pressa
á færeyska liðið á ákveðnum stöðum
á vellinum. Þetta verður í raun það
sama og hefur verið upp á teningn-
um í síðustu tveimur leikjum undir
stjórn okkar Loga [Ólafssonar]. Ég
vona bara að hugarfar leikmanna
verði rétt, menn geri sér grein fyrir
hversu mikilvægur er, sigur gefur
okkur tækifæri til að vera í toppbar-
áttu riðilsins annars minnka mögu-
leikarnir verulega. Það er til mikils
að vinna.“
Hvernig skynjar þú andrúmsloftið
í hópnum?
„Við vitum alveg hvað Færeying-
ar geta á knattspyrnuvellinum, við
lentum í erfiðleikum með þá á
heimavelli í vor. Ég finn og veit að
strákarnir gera sér alveg grein fyrir
því að það þarf að hafa fyrir því að
vinna og þeir eru að mínu mati klárir
í slaginn. Ég finn það á samtölum við
hvern og einn leikmann að þeir eru
alveg með á hreinu hvað þarf að
gera.“
Menn átta sig á því færi sem þeir
eru í?
„Ég held að það geti orðið bið og
svona færi sem við erum í núna fyrir
undankeppni stórmóts og þetta færi
verður að nýta með því að vinna
Færeyinga. Það er enginn vafi í mín-
um huga að við erum með betri leik-
menn í öllum stöðum en Færeying-
ar, en lið þeirra er að mestu leyti
skipað áhugamönnum á sama tíma
og við erum með atvinnumenn. En
til þess að munurinn sjáist á leikvell-
inum og á úrslitunum í leikslok
verða menn að leggja sig fullkom-
lega fram í leikinn frá fyrstu mínútu
til hinnar síðustu. Um leið verðum
við að vera heppnir og nýta þau
marktækifæri sem við fáum.“
Færyeingar eru bjartsýnir og
segja að nú sé lag hjá þeim að vinna.
Hvaða áhrif heldur þú að þessi
bjartsýni hafi á ykkur?
„Ég reikna með því að þeir ætli
sér að vinna, hef skynjað það á
mönnum hér. Þetta er svona svipað
mál í augum Færeyinga að leggja
okkur að velli og fyrir okkur að
vinna Dani. Við verðum því að gera
allt sem við getum til að koma í veg
fyrir að þeim takist ætlunarverk sitt,
við megum ekki tapa stigi eða stig-
um, það kemur ekki til greina.“
Áttu von á að Færeyingar komi
framar á völlinn en þeir gerðu á
Laugardalsvelli í vor úr því að þeir
ætla sér að vinna?
„Það er alltaf hægt að ræða um að
menn ætli sér framarlega á völlinn,
en þegar út í raunveruleikann er
komið er það andstæðingurinn sem
stjórnar því hversu framarlega er
farið. Við ætlum ekki að draga okkur
til baka í leikjum í upphafi, sitja og
bíða þótt það væri eflaust að ein-
hverju leyti klók leikaðferð því ef
Færeyingar ætla að sækja á okkur
með mörgum mönnum þá opnast um
leið tækifæri fyrir okkur til sóknar
þegar við vinnum boltann. Við ætl-
um hins vegar ekkert að gefa Fær-
eyingum neitt tækifæri á að taka að
sér stjórnina, hún á að vera og verð-
ur í okkar höndum.
Hins vegar er engum blöðum um
það að fletta að Færeyingarnir eru
hættulegir. Þeir hafa sýnt það til
þessa að þeir eru mjög skipulagðir í
vörninni, en allt byggist þetta á að
við nýtum þaum marktækifæri sem
við fáum, það verður afar mikilvægt
atriði. Takist það þá er ég ekki í
neinum vafa um að við vinnum þau
þrjú stig sem eru í boði í leiknum.“
Hvar liggur styrkleiki Færeyinga
helst?
„Fyrst og fremst í öguðum og
skipulögðum varnarleik. Færeying-
ar hafa ekki á að skipa miklu sókn-
arliði, þeir eru fyrst og síðast skipu-
lagðir baráttumenn og ég reikna
með að þeir fari út í sömu aðgerðir
og gegn Þjóðverjum hér í Þórshöfn í
vor, það er að vera mjög grimmir,
fastir fyrir og brjóta mikið. Fyrir
vikið fá leikmenn liðsins mörg spjöld
og það er eitt þeirra atriða sem þeir
eru að súpa seyðið af núna þar sem
tveir sterkir leikmenn verða í leik-
banni gegn okkur. Til að mæta þessu
verður hugarfarið að vera rétt hjá
okkur og dagsformið í lagi og þrátt
fyrir að undirbúningurinn hafi ekki
verið eins góður og ég hefði óskað þá
tel ég að allir leikmenn verði klárir í
leikinn þegar flautað verður til leiks.
Þegar ég tók við liðinu í vor ásamt
Loga þá settum við okkur það mark-
mið með leikmönnum að vinna níu
stig í þremur næstu leikjum. Nú eru
stigin orðin sex í tveimur leikjum og
við megum ekki leyfa okkur það að
klúðra síðasta leiknum af þessum
þremur, það má ekki gerast. Ég
verð ekki sáttur við jafntefli, aðeins
sigur kemur til greina þótt það sé
engum vafa undirorpið að leikurinn
verður erfiður. Við megum ekki fá á
okkur mark eins og síðast gegn þem,
en ég er viss um að við skorum eitt
til tvö mörk hjá Færeyingum.“
Þú sættir þig ekkert við annað en
sigur?
„Ég get ekki sætt mig við annað
en sigur og þrjú stig gegn Færey-
ingum. Miðað við stöðuna í riðlinum
verðum við að vinna. Lið mitt er bet-
ur undirbúið fyrir þennan leik en
viðureignina við Færeyinga í vor,
þar sem menn eru búnir að fara í
gegnum undirbúningstímabil og
farnir að leika í sínum deildum og
því eiga þeir að vera í betra formi en
í júní. Það væri mikil synd að eyði-
leggja þá vinnu sem unnin var í vor
með tapi að þessu sinni, ég vil ekki
hugsa þá hugsun til enda ef við töp-
um stigi eða stigum hér í Færeyj-
um,“ segir Ásgeir Sigurvinsson,
landsliðsþjálfari í knattspyrnu.
Við erum með betra
lið en Færeyingar
„ÉG ætla að leggja upp með sama leikskipulag og í síðustu
tveimur leikjum, ég sé ekki neina ástæðu til að breyta því þar
sem það hefur gefist vel, en að vísu þurfum við að gera tvær
mannabreytingar í vörninni frá síðasta leik þar sem Guðni
Bergsson leikur ekki með landsliðinu meir og Lárus Orri Sig-
urðsson getur alveg örugglega ekki leikið með frá upphafi leiks,
sagði Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu,
spurður hvernig hann hygðist leggja upp leikinn við Færeyinga
á Tórsvelli í Þórshöfn í kvöld. „Ég ætla ekki að tilkynna byrj-
unarliðið fyrr en í fyrramálið [í dag] og þar af leiðandi hverjir
taka þessi tvö sæti í vörninni, það þarf að fara yfir ýmsa þætti
áður en að valinu kemur.“
Ívar
Benediktsson
skrifar
frá Þórshöfn
Ásgeir segist ekki vilja hugsa þá hugsun til enda að tapa stigi
Ólafur Stefánsson
valinn í heimsliðið
Þrjár breytingar
í Færeyjum