Morgunblaðið - 20.08.2003, Page 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FÆRRI SVEITARFÉLÖG
Stefnt er að því að fækka sveit-
arfélögum um allt að helming á
næstu tveimur árum að því er fé-
lagsmálaráðuneytið og Samband ís-
lenskra sveitarfélaga lýstu yfir á
kynningarfundi um nýtt átak í sam-
einingarmálum sveitarfélaga í gær.
Verða tvær nefndir skipaðar af fé-
lagsmálaráðherra í þessum tilgangi.
Tilræði gegn SÞ í Bagdad
Aðalfulltrúi Sameinuðu þjóðanna í
Írak, Sergio Vieira de Mello, og um
20 aðrir menn fórust í gær í
sprengjutilræði í Bagdad. Bíl með
sprengiefni var ekið að hóteli þar
sem aðalstöðvar SÞ voru og hann
sprengdur. Er talið líklegt að um
sjálfsmorðingja hafi verið að ræða.
Sérfræðingar telja margt benda til
þess að hryðjuverkamenn úr al-
Qaeda-samtökunum hafi staðið á
bak við tilræðið sem var fordæmt
um allan heim. Öryggisráð SÞ sagði
að eftir sem áður yrði haldið áfram
að vinna að uppbyggingu í Írak.
Flugleiðir ætla að spara
Stefnt er að 1,5 milljarða króna
sparnaði í rekstri Flugleiða á árinu.
Samkvæmt uppgjöri félagsins fyrir
fyrri helming ársins var 903 mkr.
tap á rekstrinum eftir skatta sam-
anborið við 50 mkr. hagnað á sama
tímabili í fyrra. Þá verður áfanga-
stöðum Icelandair til Evrópu og
Bandaríkjanna fjölgað um sex næsta
sumar.
Tilræði í Jerúsalem
Vitað var að minnst 20 fórust og á
annað hundrað slasaðist er stræt-
isvagn var sprengdur í Jerúsalem í
gær. Forsætisráðherra Palest-
ínumanna, Mahmud Abbas, for-
dæmdi þegar tilræðið. Tvenn sam-
tök, Íslamska Jihad og Hamas,
sögðu að maður úr röðum þeirra
hefði verið að verki. En talsmaður
Hamas tók skýrt fram að samtökin
sem slík vildu ekki rjúfa vopnahlé
sem staðið hefur í nær tvo mánuði.
Engin hrefna veidd í gær
Engin hrefna var skotin í gær
enda skilyrði til veiðanna léleg.
Njörður lagði upp frá Ólafsvík síðla
dags og fylgdi Elding II honum úr
höfn.
Þjónustuaðili fyrir öryggis- og
þjófavarnarbúnað frá DIRECTED.
VIPER á Íslandi
FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI
SÍMI 555 6025 • www.kia.is
K IA ÍSLAND
Bílar sem borga sig!
S u ð u r l a n d s b r a u t 2 2
S í m i 5 4 0 1 5 0 0
w w w. l y s i n g . i s
LÝSING
Alhliða
lausn í
bílafjármögnun
METANBÍLL Í PRUFU
DÝRLINGSBÍLLINN
BÍLALÁN Í ERLENDU
SAGA PORSCHE 911
MAZDA KUSABI
KVARTMÍLUKEPPNI
MITSUBISHI PAJERO – LÚXUSJEPPI
MEÐ DÍSILROKK
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 23
Viðskipti 12 Minningar 30/34
Erlent 14/16 Staksteinar 38
Höfuðborgin 16 Bréf 36
Akureyri 17 Kirkjustarf 35
Suðurnes 18 Dagbók 38/39
Landið 19 Fólk 44/49
Listir 20/22 Bíó 46/49
Forystugrein 26 Ljósvakamiðlar 50
Viðhorf 30 Veður 51
* * *
FÉLAG íslenskra atvinnuflug-
manna (FÍA) ætlar að óska eftir við-
ræðum við stjórnvöld vegna fjölda
erlendra flugmanna sem er heimilað
að fljúga fyrir íslensk flugfélög ár
hvert.
Jóhannes Bjarni Guðmundsson,
ritari stjórnar FÍA, segir að árin
2001 og 2002 hafi nærri 200 flug-
menn fengið fullgildingu frá Flug-
málastjórn til að starfa hjá íslensk-
um flugfélögum. Þar séu flugmenn
hjá Atlanta í miklum meirihluta sem
komi frá Bandaríkjunum, Kanada og
Suður-Ameríku. Hann veit ekki hve
margir erlendir flugmenn hafa feng-
ið atvinnuleyfi hér á landi í ár.
Jóhannes segir það miklum erfið-
leikum bundið fyrir íslenska flug-
menn að fá atvinnuleyfi í þessum
sömu löndum. Það sé krafa íslenskra
flugmanna að þeir standi jafnfætis
öðrum í þessum efnum. Hann segir
þessar leyfisveitingar hér á landi
jafnframt viðgangast á sama tíma og
hundruð íslenskra flugmanna bíði
eftir vinnu. Þessir flugmenn þurfi
heldur ekki dvalarleyfi frá Útlend-
ingastofnun og atvinnuleyfi frá
Vinnumálastofnun eins og aðrir rík-
isborgarar utan Evrópska efnahags-
svæðisins sem kjósi að vinna á Ís-
landi.
Þiggja lakari kjör
Með þessu fyrirkomulagi er að
sögn Jóhannesar líka gengið
framhjá stéttarfélögum flugmanna á
Íslandi. Atlanta, svo dæmi sé tekið,
ráði til sín starfsfólk hjá áhafnaleigu
félagsins, sem hefur aðsetur erlend-
is. Kjörin sem þetta fólk þiggi séu
alls ekki í samræmi við kjarasamn-
inga FÍA eða Frjálsa flugmanna-
félagsins (FFF), stéttarfélags flug-
manna Atlanta. Í þessum tilvikum
ráði flugrekandinn hreinlega hvort
viðkomandi starfskraftur sé í stétt-
arfélagi og njóti réttinda sem því
fylgi.
Jóhannes segist óttast að með
framferði sínu leggi stór flugfélög
eins og Atlanta línurnar fyrir önnur
flugfélög sem vilji fara rétt að. Með
því að spara sér talsverðan kostnað,
þar sem ekki er ráðið samkvæmt ís-
lenskum kjarasamningum, fái slík
félög rekstrarforskot sem setji
pressu á önnur flugfélög. Það gæti í
framtíðinni leitt til þess að þrýst
verði á flugmenn að standa utan
stéttarfélaga vilji þeir halda
vinnunni eða verða ráðnir.
FÍA óskar eftir viðræðum við stjórnvöld
Áhyggjur af fjölda
erlendra flugmanna
BORGARLÖGMAÐUR segir í
minnisblaði til borgarráðs að
við framsetningu hugsanlegrar
skaðabótakröfu borgarinnar á
hendur olíufélögunum verði
borgin að sýna fram á tjón sitt
eða líklegt tjón. Hugsanleg
kröfugerð hafi ekki verið unnin
en hún verði sett fram og kynnt
komi í ljós að olíufélögin hafi
viðhaft samráð við gerð tilboða
til Reykjavíkurborgar árið
1996. Þetta kom fram í svari
hans við fyrirspurn Vilhjálms
Þ. Vilhjálmssonar, oddvita
sjálfstæðismanna, en hann vildi
fá svör við því hjá borgarlög-
manni með hvaða hætti borgin
myndi leggja fram kröfugerð ef
olíufélögin reynast hafa haft
með sér samráð um tilboðsgerð
í útboði borgarinnar.
Reykjavíkurborg
og olíufélögin
Brot þarf
að liggja
fyrir
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra
bauð nýkrýndum Evrópumeisturum í hand-
knattleik til hádegisverðar í utanríkisráðu-
neytinu í gær en íslenski landsliðshópurinn
kom heim frá frægðarför í Slóvakíu í fyrri-
nótt og var vel fagnað við komuna. Halldór
hreifst, líkt og allir Íslendingar, mjög af
frammistöðu íslensku strákanna á Evr-
ópumótinu og vildi hann með boði sínu í gær
þakka liðinu, þjálfurum og öllum þeim sem að
liðinu koma fyrir frábæra frammistöðu og
góða landkynningu.
Morgunblaðið/Arnaldur
Bauð Evrópumeisturunum í mat
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar,
TF-LÍF, bjargaði þremur mönnum
í fyrrinótt sem voru hætt komnir í
Efstadalsvatni í Laugardal í Ísa-
fjarðardjúpi eftir að bát sem þeir
voru á hvolfdi. Að sögn lögregl-
unnar á Ísafirði mátti ekki tæpara
standa því einn mannanna var við
það að örmagnast í vatninu. Erfitt
var, að sögn lögreglunnar, að at-
hafna sig á svæðinu vegna myrk-
urs og var vatnið kalt. Mennirnir
voru, skv. upplýsingum lögregl-
unnar, um hundrað metra frá landi
er þeir fundust. Þeir voru fluttir á
sjúkrahúsið á Ísafirði til aðhlynn-
ingar og fengu tveir þeirra fljót-
lega að fara heim. Ástæða þótti
hins vegar til að halda einum
þeirra lengur, en skv. upplýsingum
Morgunblaðsins er sá á batavegi.
Lögreglunni á Ísafirði barst til-
kynning, í gegnum Neyðarlínuna,
um þrjá menn sem væru í vand-
ræðum á vatninu um kl. 23.18 á
mánudagskvöld. Björgunarfélag
Ísafjarðar og björgunarsveitin
Kofri frá Súðavík voru kölluð út,
sömuleiðis þyrla Gæslunnar.
Fyrstu björgunarsveitarmenn,
sem og þyrla Gæslunnar, voru
komin á vettvang um kl. 1.10.
Fann áhöfn þyrlunnar mennina í
vatninu með nætursjónauka en
lögreglan á Ísafirði segir á frétta-
vefnum bb.is að sjónaukinn hafi
skipt sköpum við björgunina.
Mennirnir voru hífðir um borð í
þyrluna og því næst fluttir á
sjúkrahúsið á Ísafirði, eins og áður
sagði. Er talið að mennirnir hafi
verið í vatninu í allt að þrjá tíma.
Þremur bjargað eftir að bát hvolfdi
Einn mannanna
við það að
örmagnast
SAMÞYKKT var á ríkisstjórnarfundi
í gærmorgun að verja 170 milljónum
króna til úreldingar sláturhúsa. Áður
hafði sláturhúsanefnd lagt til að 220
milljónum yrði varið til úreldingar.
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra segir að eftir að hafa farið
vandlega yfir málið hafi niðurstaðan
orðið sú að verja 170 milljónum til
úreldingar húsanna enda hafi mönn-
um þótt þetta heilmikið fé í almenna
aðgerð. „Menn þurfa að svara því fyr-
ir áramót hvort þeir ætli að úrelda
eða ekki og úrelding getur því komið
til framkvæmda á þessu og næsta
ári.“
Hægt að spara
225 milljónir á ári
Síðastliðið haust var slátrað í
sautján sláturhúsum en aðeins sex af
þeim uppfylla kröfur Evrópusam-
bandsins um útflutning. Í niðurstöð-
um skýrslu sláturhúsanefndarinnar
segir að ef aðeins þau sláturhús sem
hafa útflutningsleyfi yrðu starfandi
gæti sauðfjárræktin sparað 225 millj-
ónir með lækkun á föstum og breyti-
legum kostnaði við rekstur sláturhús-
anna og árlegur heildarsparnaður á
hvert kíló kindakjöts gæti því numið
um 26 krónum.
Ari Teitsson, formaður Bænda-
samtakanna, segir að þótt upphæðin
sé lægri en nefndin lagði til séu menn
bærilega sáttir og muni reyna að nota
féð eins og þeir hafi vit til. „Þetta fé
kemur sér mjög vel í erfiðri stöðu.“
Ari segist ekki vilja spá í það
hversu mörg sláturhús verði úrelt.
„Þetta eru fyrst og fremst þau hús
sem hafa ekki útflutningsleyfi og það
er líklegt að allmörg þeirra muni
velja þann kost.“
170 milljónir
til að úrelda
sláturhús