Morgunblaðið - 20.08.2003, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 11
ATHYGLI vakti í síðasta holli í Norð-
urá í Borgarfirði, að þrír mjög vænir
urriðar veiddust, sá stærsti 9 punda,
staðbundinn urriði að sögn Bergs
Steingrímssonar hjá SVFR og einnig
tveir 5 punda og var annar birtingur
og hinn staðbundinn. Urriði er ann-
ars fágætur í Norðurá og því vöktu
þessir fiskar mikla athygli.
Þegar áin var opnuð í júníbyrjun
veiddust einnig nokkrar stórar bleikj-
ur, sem einnig eru fáséðar uppi í ánni
á hefðbundnum veiðitíma, óhætt er
því að segja að merkilegur kokteill
hafi verið í Norðurá í sumar.
Rífandi gangur í Langá
Langá var í byrjun viku komin í
tæplega 1.100 laxa og dagveiðin 35 til
45 laxar á dag. Enn er aðeins flugu-
veiði. Mikill lax er í ánni og ódæma
göngur á Fjallinu, efsta svæðinu.
Veiði hefur glæðst verulega eftir að
væta kom í veðurkortin og telur Ingvi
Hrafn Jónsson, leigutaki árinnar, að
hún hafi alla burði til að skila allt að
2.000 laxa veiði í sumar.
Yfir hundrað laxar gengu í Krossá
á Fellsströnd á tveimur sólarhringum
í lok síðustu viku og þrefaldaðist laxa-
fjöldinn þá í ánni samkvæmt teljara
neðst í ánni. Veiði tók og kipp og er
nú kominn á sjötta tug laxa á land.
Dembur hafa komið að undanförnu
og þær, ásamt nýju tungli og stór-
streymi á dögunum hefur hvatt lax-
inn til göngu.
Sogið mun betra …
Sogið skilar nú mun meiri veiði en
á sama tíma í fyrra. Ef skoðaðar eru
t.d. tölur frá 14. ágúst, voru komnir
58 laxar úr Alviðru, 70 úr Ásgarði, 57
úr Bíldsfelli og 18 úr Syðri Brú. Viku
fyrr 2002 voru komnir 35, 55, 29 og 9
laxar á land af sömu svæðum í sömu
röð. Þá hafa og verið góð skot í Þrast-
arlundi og á Tannastaðatanga.
Stórsilungar í Norðurá
Hressir kappar með 17 punda lax úr Skógá, sem er stærsti lax sem veiðst
hefur í ánni frá því að skráningar hófust.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?VLADIMIR Miklučák,
sem um áratuga skeið
hafði mikil viðskiptasam-
bönd við Ísland, lést í
Zlín í Tékklandi, mánu-
daginn 18. ágúst.
Vladimir fæddist 25.
maí 1925 í Zlín á Mæri í
Tékkóslóvakíu og var
sonur hjónanna Önnu og
Josef Mikulčák. Kynni
Mikulčák-fjölskyldunnar
af Íslandi hófust á þriðja
áratugnum, þegar Josef,
sem rak skóverksmiðju í
Zlín, sérsaumaði peysu-
fataskó fyrir Ísland.
Einkabróðir Vladimirs, Miroslav,
flúði heimaland sitt og settist að á Ís-
landi árið 1947, þá aðeins 19 ára að
aldri. Miroslav hlaut íslenskan ríkis-
borgararétt árið 1956 og fékk þá
nafnið Magnús R. Magnússon. Hann
lést árið 1998 og á sex börn hér á
landi.
Vladimir starfaði allan sinn starfs-
feril hjá tékknesku samvinnuhreyf-
ingunni og skipti um áratuga skeið
við Ísland.
Vladimir var mikill Íslandsvinur og
var það honum mikil
ánægja er honum var
falið að afhenda söfn-
unarfé Íslendinga úr
söfnuninni „Neyðar-
hjálp úr norðri“ árið
1997, en fyrir það fé
var reist elliheimili í
Tlumacov í Moravíu.
Vladimir var mörgum
Íslendingum að góðu
kunnur, enda kepptu
íslensk handknatt-
leikslið oft í heimaborg
hans, sem þá kallaðist
„Gottwaldov“ eftir
fyrsta forseta komm-
únistastjórnarinnar. Þá aðstoðaði
hann marga Íslendinga við að koma á
viðskiptum milli Tékkóslóvakíu og Ís-
lands.
Vegna stjórnmálaástandsins í
heimalandi hans, Tékkóslóvakíu,
auðnaðist Vladimir einungis að heim-
sækja bróður sinn og bróðurbörn tví-
vegis á ævinni.
Eftirlifandi eiginkona Vladimirs er
Jarmila Miklučáková, Kvítková 60,
766 00 Zlín. Dætur þeirra eru Jana f.
1951 og Eva, f. 1952.
Andlát
VLADIMIR
MIKLUČÁK
HJÓNIN Alan og
Maija Lawrence, frá
Guildford á Eng-
landi, hafa verið á
ferðalagi hér á landi í
vikunni, sem er í
sjálfu sér ekki í frá-
sögur færandi nema
hvað faðir Alans,
Clifton Lawrence,
ferðaðist einnig um
landið fyrir meira en
64 árum, eða í maí
1939. Þá tók hann fá-
einar myndir m.a. af
Gullfossi, af Þingvöll-
um og af íslenskum börnum og sýndi Lawrence þær þegar hann var lít-
ill drengur.
„Ferð föður míns er ein af ástæðum þess að við erum hingað komin,“
sagði Lawrence við Morgunblaðið. Hann segir að faðir sinn hafi oft
minnst á ferðina til Íslands og að hann hafi farið fögrum orðum um
landið og náttúrufegurð þess. Og í sumar gafst síðan Lawrence og eig-
inkonu hans tækifæri til þess að sækja sjálf landið heim. Þau héldu
heim á leið í gær og segjast afar ánægð með ferðina. Landið hafi svo
sannarlega staðið undir væntingum. „Þið hafið allt hérna; vatn, sand,
jökla og fjöll,“ segir Maija Lawrence, en þau hafa aldrei séð jökul fyrr
en nú.
Hitti eiginkonu sína mánuði síðar
Aðspurð segjast þau ekki vita um ástæðu þess að faðir Lawrence fór
til Íslands á sínum tíma, en þau segja að hann hafi verið á ferð með fé-
laga sínum, í nokkra daga. Af myndunum að dæma hefur hann verið í
Reykjavík og farið þaðan m.a. til Þingvalla og skoðað Gullfoss.
Einnig fór hann til Vestmannaeyja. Eins og áður kom fram var faðir
Lawrence á ferðalagi í maímánuði „en síðan kom hann heim og kynntist
móður minni í júní,“ segir Lawrence og brosir. Hann lést fyrir um það
bil þrjátíu árum.
Lawrence segir að faðir sinn hafi ferðast mikið um Evrópu á sínum
yngri árum og tekið þar mikið af myndum. Myndirnar sem hann tók á
Íslandi varðveitti hann vel í albúmi ásamt öðrum myndum frá Evrópu.
Talaði oft um ferðina til Íslands
Þingvallakirkja og Þingvallabær árið 1939.
Clifton Lawrence hjálpar litlum dreng með dótið sitt.
Ljósmynd/Clifton Lawrence
Hér hefur ljósmyndarinn gengið fram á tvær stúlkur sem leiðast í maí 1939.
Hjónin Alan og Maija Lawrence skoða myndirnar í albúminu góða.
Morgunblaðið/Þorkell
AUKINN áhugi er á Íslandsferðum
meðal Ungverja í kjölfar markaðs-
starfs ferðaskrifstofunnar Heims-
ferða í Búdapest, að sögn Andra Más
Ingólfssonar, framkvæmdastjóra
fyrirtækisins. Andri Már segir að
hátt í 500 Ungverjar hafi bókað Ís-
landsferð í haust en boðið verður upp
á beint flug tvisvar í viku milli Búda-
pest og Keflavíkur í nokkrar vikur í
haust og aftur í vor.
Andri Már segir að fyrirtækið hafi
síðustu tvö árin unnið að þessari
uppbyggingu og að Búdapest sé
einnig að verða ein vinsælasta borgin
meðal Íslendinga á eftir Prag. Hann
segir Ungverja sækjast nokkuð eftir
ferðum á nýja áfangastaði og sé með-
al annars af þeim sökum áhugi á Ís-
landi. Telur Andri Már einsýnt að
fjölga megi mjög ferðum Ungverja
til landsins. Hann segir flesta koma í
helgarferðir frá fimmtudegi til
mánudags og heimsækja algenga
ferðamannastaði, svo sem Gullfoss
og Geysi, Bláa lónið og skoða sig um í
Reykjavík. Flug milli landanna tekur
um fjóra tíma og annast það tékk-
neska leiguflugfélagið Travelservice
með Boeing 737-800 þotum.
Aukinn
áhugi Ung-
verja á Ís-
landsferðum
FUNDUR samstarfsráðherra
Norðurlanda fer fram í Öster-
sund í Svíþjóð í dag. Fyrir Ís-
lands hönd situr fundinn Siv
Friðleifsdóttir, umhverfis- og
samstarfsráðherra.
Meðal umræðuefna eru nor-
rænu fjárlögin fyrir árið 2004 og
aðkoma Norrænu ráðherra-
nefndarinnar að þátttöku Norð-
urlanda í heimssýningunni í
Japan árið 2005. Þá verður farið
yfir þann árangur sem náðst
hefur við að ryðja úr vegi landa-
mærahindrunum milli norrænu
ríkjanna en því starfi stýrir Poul
Schlüter, fv. forsætisráðherra
Danmerkur. Einnig munu ráð-
herrarnir ræða hvaða stefnu
skuli taka í samskiptum Nor-
rænu ráðherranefndarinnar við
grannþjóðir í austri og vestri
sem og við Evrópusambandið.
Ræða þátttöku
Norðurlanda í
heimssýningu