Morgunblaðið - 20.08.2003, Qupperneq 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SAMSTÆÐA Flugleiða tapaði 903
milljónum króna eftir skatta á fyrstu
sex mánuðum ársins, samanborið við
50 milljóna króna hagnað á sama
tímabili í fyrra. Sigurður Helgason,
forstjóri fyrirtækisins, segist vera
tiltölulega sáttur við afkomuna, mið-
að við önnur flugfélög í heiminum,
sem eiga mörg í erfiðleikum vegna
bágra rekstrarskilyrða. Hann segir
að áætlanir Flugleiða geri ráð fyrir
að reksturinn skili hagnaði á árinu.
Sigurður segir að markmið félags-
ins sé að lækka rekstrarkostnað um
1,5 milljarða króna á árinu. „Þar er-
um við að horfa á allar hliðar rekstr-
arins. Til að mynda höfum við í skoð-
un að hefja miðalaus viðskipti og
fjölga bókunum í gegnum netið. Þá
hyggjumst við spara við afgreiðslu á
flugvélum, bæði hérlendis og erlend-
is. Markmiðið er að lækka allan
kostnað fyrirtækisins,“ segir Sigurð-
ur. Hann segir að vinna við undir-
búning gangi vel, sumt sé að koma til
framkvæmda núna og annað komi til
framkvæmda með haustinu.
Fjölgun áfangastaða
næsta sumar
Þá segir Sigurður að Icelandair
hyggist fjölga flugleiðum næsta sum-
ar og hefja þá áætlunarflug til sex
nýrra áfangastaða; Helsinki, Berlín-
ar, München, Zürich, Madríd og Or-
lando í Bandaríkjunum. „Þetta er lið-
ur í áherslu fyrirtækisins í að fjölga
enn frekar ferðamönnum til lands-
ins.“
Tapið á fyrri helmingi ársins er
talsvert meira en verðbréfafyrirtæk-
in höfðu spáð, en spár þeirra hljóð-
uðu upp á 100–462 milljóna króna
taprekstur. Meðalspáin gerði ráð
fyrir 244 milljóna króna tapi.
Hagnaður fyrir fjármagnsliði og
afskriftir (EBITDA) var 150 milljón-
ir króna á tímabilinu, borið saman við
1.251 milljón króna í fyrra. Það er
einnig mun lægri upphæð en spár
höfðu gert ráð fyrir, en meðalspáin
hljóðaði upp á 1.048 m.kr. EBITDA-
hagnað. Spárnar voru á bilinu 916–
1.160 milljónir króna.
Tekjur drógust saman
Heildartekjur Flugleiða á tíma-
bilinu drógust saman um 9,2% og
námu 15,9 milljörðum króna, miðað
við 17,6 milljarða á fyrri hluta ársins
2002. Rekstrargjöld lækkuðu einnig,
en aðeins um 3,6%. Þau voru 16,7
milljarðar á fyrri hluta ársins 2003,
en 17,3 milljarðar króna á fyrri helm-
ingi ársins 2002.
Eiginfjárhlutfall lækkaði frá ára-
mótum, úr 0,23 í 0,19. Alls nam eigið
fé 7.401 milljón króna, en skuldir
voru 31.099 milljónir. Veltufé frá
rekstri var 559 m.kr., borið saman
við 1.761 milljón á fyrri helmingi árs-
ins 2002. Handbært fé frá rekstri var
2.020 milljónir á tímabilinu, saman-
borið við 4.203 milljónir 2002. Veltu-
fjárhlutfall var 1,01, en 1,19 um ára-
mótin. Veltufjárhlutfall án fyrirfram
innheimtra tekna var 1,46, en 1,49
um áramótin.
Viðkvæmur alþjóðarekstur
Í tilkynningu frá Flugleiðum
vegna uppgjörsins segir að megin-
ástæður versnandi afkomu fyrstu
sex mánaða ársins hafi verið sam-
dráttur á alþjóðaflugmarkaði í vetur
og vor, vegna óvissu í tengslum við
Íraksstríðið og í framhaldi af því sá
ótti við ferðalög í alþjóðaflugi sem
tengdist bráðalungnabólgufaraldrin-
um. Haft er eftir Sigurði Helgasyni
að þetta sýni glöggt hve viðkvæmur
alþjóðaflugrekstur Icelandair, dótt-
urfélags Flugleiða, sé fyrir utanað-
komandi áhrifum og sveiflum í al-
þjóðlegu hagkerfi.
„Líkt og önnur fyrirtæki í alþjóða-
flugrekstri finnum við líka fyrir því
að flugmarkaðurinn er að breytast.
Samkeppni eykst, bæði hér á heima-
markaði og á alþjóðamarkaði. Þetta
knýr á um breytingar og við ætlum
sannarlega ekki að láta okkar hlut,“
segir hann í tilkynningunni. Saman-
lögð áhrif ytri þátta á borð við gengi,
eldsneytisverð og vexti eru lítil á af-
komuna milli ára, segir í tilkynning-
unni.
Sigurður segir að afkomuþróun á
fyrri helmingi ársins valdi vissulega
vonbrigðum, en félagið hafi þegar
hafist handa um að styrkja þær
greinar starfseminnar sem áttu erfitt
uppdráttar á fyrri helmingi ársins.
„Þessir erfiðleikar á mörkuðum
komu þegar í ljós á fyrsta ársfjórð-
ungi þegar mikill samdráttur varð í
Norður-Atlantshafsflugi. Þá áttum
við kost á að mæta því með lækkun
kostnaðar frá fyrra ári. Það viðbót-
arsvigrúm var ekki fyrir hendi á öðr-
um ársfjórðungi, á helsta bókunar-
tíma sumarferðalaga til Íslands, og
sama markaðsþróun leiddi því til
versnandi afkomu.“
Engin aðgangshindrun
Spurður um horfur í rekstri félags-
ins fram að áramótum sagði Sigurð-
ur á kynningarfundi félagsins í gær
að þær væru góðar. Helsti óvissu-
þáttur væri eftirspurn. „Að vísu eru
samskipti við samkeppnisyfirvöld
einnig óvissuþáttur, en við höfum
áfrýjað úrskurði Samkeppnisstofn-
unar til áfrýjunarnefndar samkeppn-
ismála og gerum ráð fyrir að málið
verði tekið þar fyrir í september. Við
teljum okkur hafa sýnt fram á að að-
gangshindranir inn á markaðinn eru
engar og að ekkert eigið fé þarf til að
stofna til flugrekstrar,“ sagði Sigurð-
ur. Hann segist vonast til að hægt
verði að hnekkja úrskurði Sam-
keppnisstofnunar vegna erindis Ice-
land Express.
Í Hálffimm fréttum greiningar-
deildar Kaupþings Búnaðarbanka
segir: „Ef undan er skilin lækkun
kostnaðar vegna flugvéla- og áhafna-
leigu úr 1,6 ma.kr. niður í 1,1 ma.kr.
og lækkun afskrifta úr 970 m.kr. í 870
m.kr. voru rekstrargjöld samstæð-
unnar svo til óbreytt frá sama tíma-
bili í fyrra. Þannig hefur launakostn-
aður aukist úr 5,6 mö.kr. í 5,8 ma.kr.,
sem er nokkuð fyrir ofan væntingar
greiningardeildar. Á móti hefur ann-
ar rekstrarkostnaður lækkað á milli
ára úr 5,9 mö.kr. í 5,6. ma.kr en þar
munar mest um lækkun viðhalds-
kostnaðar og bókunargjalda. Að mati
greiningardeildar þarf félagið að ná
fram mun meiri lækkun rekstrar-
gjalda á næstu misserum til að
standa við áætlanir sínar.“
Gengið lækkaði
Gengi hlutabréfa í Flugleiðum í
Kauphöll Íslands lækkaði töluvert í
gær, eða um 4,6%. Upphafsgengi var
4,35, en lokagengi 4,15. Lægst fór
gengið í 3,75, en í lok dags var kaup-
tilboð upp á 4,05, en sölutilboð 4,20.
903 milljóna króna tap
af rekstri Flugleiða
(2- 0,
(&$$.
-+
(94(6( 2:+
!
"
#
$
" %
%
& $
' ()
$
#
*
+ %+%
%,
"
% +
!
"+
++
+ ++
+
+%
%,+
;<=/>;
< ? @>;
0+
(7( Samdráttur vegna Íraksstríðs,
samkeppni og bráðalungnabólgu
PRÓFMÁL um valdsvið prókúruhafa
gæti verið á leiðinni fari svo að Kaup-
félag Árnesinga, KÁ, verði látið
standa við ábyrgðir sem fyrrverandi
framkvæmdastjóri félagsins, Ólafur
Rúnar Ástþórsson, kom því í án vit-
undar stjórnar. Þetta segir Einar
Gautur Steingrímsson hrl. aðstoðar-
maður á greiðslustöðvunartíma í
samtali við Morgunblaðið.
Um er að ræða víxla Brúar ehf. upp
á 52 milljónir króna, en féð var notað í
endurbyggingu Hótels Selfoss.
KÁ er meirihlutaeigandi Brúar ehf.
sem keypti og sá um endurbyggingu
hótelsins. Hótel Selfoss er ein meg-
inástæðan fyrir því að KÁ er nú í
greiðslustöðvun og leitar nauðasamn-
inga við lánardrottna sína.
„Ef KÁ tapar þessu máli og þarf að
borga víxlana þá er hægt að draga þá
ályktun að það sé best fyrir fyrirtæki
að gefa ekki starfsmönnum prókúru.
Ég er klár á að það yrði prófmál fyrir
dómi því það vantar alveg dóm hér á
landi í hliðstæðu máli við þetta. Þetta
snýst um hvert sé efnissvið hugtaks-
ins prókúruumboð,“ segir Einar
Gautur.
Einar Gautur segir að enn sé of
snemmt að segja í smáatriðum til um
hvernig framkvæmdastjórinn fyrr-
verandi hagaði þessum málum, en
ljóst sé að hann fór út fyrir valdsvið
sitt með því að gera KÁ ábyrgt fyrir
greiðslu víxlanna. „Það er ekki
ákvörðun framkvæmdastjóra að gera
svona lagað, það er ekki hans hlut-
verk,“ segir Einar Gautur.
KÁ er sem stendur í greiðslustöðv-
un til 31. október nk. og leitar nauða-
samninga við lánardrottna.
Heildarskuldir KÁ eru 1,4 milljarð-
ar króna en að meðtöldum ábyrgðum
nema skuldirnar 1,8 milljörðum
króna. Þar af eru 79 milljónir sem
ólíklegt er að falli á félagið.
KÁ skuldar 320 milljónir króna
umfram áætlað verðmæti eigna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hótel Selfoss er ríflega 10.000 fermetrar að stærð og 100 herbergja.
Prófmál um prókúru-
umboð á leiðinni?
Fyrrverandi framkvæmdastjóri KÁ
lét félagið ábyrgjast 52 milljónir
HAGNAÐUR Eskju hf. nam 271
milljón króna fyrstu sex mánuði árs-
ins. Á sama tímabili í fyrra nam
hagnaður félagsins 902 milljónum
króna og hefur því dregist saman um
70% á milli ára. Rekstrartekjur fé-
lagsins á tímabilinu námu 1.598 millj-
ónum en rekstrargjöld 1.124 milljón-
um. Nam hagnaður fyrir afskriftir
(EBIDTA) því rúmum 474 milljón-
um eða 29,69% af rekstrartekjum,
miðað við 835 milljónir árið áður. Í
tilkynningu frá Eskju kemur fram að
ástæður tekjusamdráttar í rekstri
Eskju megi helst rekja til samdrátt-
ar í loðnuveiðum og -vinnslu en 52
þúsund tonn veiddust á yfirstaðinni
loðnuvertíð samanborið við 91 þús-
und tonn árið áður. Hins vegar hefur
aukin kolmunnaveiði í kjölfar auk-
inna aflaheimilda dregið úr fyrirsjá-
anlegum tekjusamdrætti félagsins.
Félagið hefur heimild til að veiða um
105 þúsund tonn af kolmunna í ár,
miðað við 54 þúsund tonna veiði-
heimild árið áður en félagið hefur yf-
ir 19,2% úthlutaðs kvóta að ráða.
Heildarveiði skipa félagins voru
tæp 90 þúsund tonn, að verðmæti
799 milljónir, samanborið við rúm
114 þúsund tonn, að verðmæti 1.246
milljónir, árið áður. Framleiddar af-
urðir í mjöl og lýsisvinnslu námu
tæpum 25 þúsund tonnum miðað við
tæp 31 þúsund tonn árið áður. Fram-
leiddar bolfiskafurðir jukust lítillega
á milli ára en rækjuvinnslu félagsins
hefur verið lokað. Afurðabirgðir
rækju hafa verið seldar og rekstr-
artapið er að fullu bókfært.
Rekstraráætlun félagsins gerir
ráð fyrir að EBITDA framlegð verði
um 29% á árinu, að því gefnu að af-
urðaverð haldist stöðugt út rekstr-
arárið.
Hagnaður Eskju
dregst saman um 70%
Minni tekjur vegna
samdráttar í loðnu-
veiðum og vinnslu
(2- 0,
(&$$.
<0 (94
-*
* $
+
+
%
+
!"
+ +
%
+"
%
!++
+
+
+ +
"
! "
+, .
%,.
,
"
+,.
%,.
,
0+
52(7(,-
& $
' (
$
#
*
& *
/
0
*
< ? @>;
#
$
;<=/>;
% % FJÁRFESTINGASJÓÐURINN
Scarlett Retail og fasteignafélagið
Minerva hafa samkvæmt Financial
Times átt í óformlegum viðræðum
við Baug út af bresku versl-
anakeðjunni House of Fraser, en
Baugur er stærsti hluthafi keðj-
unnar með 8,2% eignarhlut.
Í blaðinu er sagt að viðræðurnar
hafi farið fram í gegnum ráðgjafa
aðilanna og rætt hafi verið um
mögulegt tilboð en ekkert sérstakt
hafi komið út úr þeim viðræðum.
Talsmaður Baugs í Bretlandi
sagði í samtali við Morgunblaðið
að Baugur væri til í að skoða allar
góðar hugmyndir um hvernig
hægt væri að búa til meiri verð-
mæti úr hlut Baugs. „Ef menn
gera eitthvað í House of Fraser
verða þeir að heyra í Baugi þar
sem félagið er stærsti hluthafinn.
Það góða við stöðu Baugs í þessu
máli er að félaginu liggur ekkert
á. Hluturinn var keyptur til að
eiga til lengri tíma,“ sagði tals-
maðurinn.
Í desember í fyrra bauð skoski
kaupsýslumaðurinn Tom Hunter,
sem á 6,7% hlut í félaginu, 200
milljónir punda, eða 85 pens á
hlut, í House of Fraser, með stuðn-
ingi Baugs. Tilboðinu var hafnað
af stjórn félagsins og Hunter dró
tilboðið til baka.
Í febrúar sl. keyptu Scarlett og
Minerva Allders-verslanakeðjuna
fyrir 162 milljónir punda og sagt
er í frétt Financial Times að
mögulega ætli fyrirtækin sér það
sama og Hunter á sínum tíma, að
sameina keðjurnar tvær.
House of Fraser hækkaði um
3,9% á markaði í gær og fór hlut-
urinn upp í 99 pens á hlut.
Markaðsverðmæti hlutar Baugs
er því tæpir 2,4 milljarðar króna
ef miðað er við upplýsingar úr
frétt Financial Times, einum millj-
arði meira en þegar keypt var í
fyrra á 62 pens á hlut.
Scarlett og
Minerva
ræða
óformlega
við Baug