Morgunblaðið - 20.08.2003, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SUÐURNES
„NEI, ég hef enga bakþanka fengið
og veit að ég mun ekki sjá eftir
þessu. Ef ég hefði ekki látið reyna á
þetta hefði ég hrunið niður,“ segir
Gréta Jónsdóttir sem ásamt fjöl-
skyldu sinni hefur tekið við rekstri
veitingastofunnar Varar í Grinda-
vík.
Gréta hefur unnið í Vör í mörg ár
og lagði inn tilboð þegar Sjómanna-
og vélstjórafélag Grindavíkur aug-
lýsti reksturinn. Gréta er 64 ára
gömul ekkja. Hún segist alltaf hafa
þurft að vinna mikið. Vissulega sé
mikið púl að að vinna á eigin veit-
ingastað og vinnudagurinn oft lang-
ur en það sé ánægjulegt púl að
vinna að svona verkefni með fjöl-
skyldu sinni.
Undirbúið um nóttina
Gréta og hennar fólk hafði stutt-
an tíma til að undirbúa reksturinn,
aðeins nokkra daga. Þeir fóru í inn-
kaup, að ganga frá leyfum og í ann-
an nauðsynlegan undirbúning. Þau
tóku síðan við 1. ágúst, föstudaginn
fyrir verslunarmannahelgi. Gréta
segir að tafsamt hafi verið að
standa í þessu dagana fyrir versl-
unarmannahelgi, margir hafi verið
í fríi, en það hafi tekist.
„Við komum hingað inn fimm
mínútur yfir tólf aðfaranótt föstu-
dagsins og unnum fram eftir nóttu
við að koma vörunum hingað inn og
undirbúa fyrsta daginn. Öll fjöl-
skyldan var við þetta og vinafólk og
síðan mætti ég klukkan átta til að
elda,“ segir Gréta.
Hún og sonur hennar, Jóhann
Hallgrímsson sem er lærður fram-
reiðslumaður, skiptast á um að elda
matinn. Jóhann hefur verið á sjó á
veturna en hætti við það nú til að
vera við reksturinn í vetur. Auk
þess vinnur tengdadóttir hennar við
fyrirtækið og fleiri úr fjölskyldunni
aðstoða eftir þörfum. Gréta segir
mikilvægt að sníða sér stakk eftir
vexti, vera ekki með fleira starfs-
fólk en nauðsyn beri til en hafa að-
gang að góðu fólki til að létta undir
á álagstímum. „Við erum samheldin
fjölskylda og höfum alltaf verið og
það vilja allir hjálpa til. Ég held líka
að þeim finnist það gott að ég skyldi
fara út í þetta,“ segir Gréta.
Viðskiptin hafa gengið vonum
framar það sem af er mánuðinum.
Gréta segist hafa orðið vör við
marga ferðamenn, fólk sem ferðað-
ist á eigin vegum. Í samtölum henn-
ar við fólkið hefur komið fram að
margir eru að flýja hitabylgjuna í
Evrópu.
Nýr matseðill
Veitingastofan Vör er alhliða
veitingahús en áhersla hefur verið
lögð á fiskrétti. Svo er enn en Gréta
og Jóhann hafa útbúið alveg nýjan
matseðil. Fiskurinn er kominn í nýj-
an búning. Saltfisksetur Íslands er
á móti Vör í Hafnargötunni og er
samvinna milli staðanna. Þannig
annast Veitingastofan Vör veit-
ingar þegar hópar koma í Salt-
fisksetrið. Jóhann segir að þau hafi
einnig útbúið nýjan matseðil fyrir
hópana og þar er saltfiskur undir-
staðan, eins og vera ber í salt-
fisksafni.
Þau taka einnig að sér veitingar í
veislum, bæði á Veitingastofunni
sjálfri og úti í bæ, og önnur verkefni
sem bjóðast á þessu sviði. Gréta
segir ekki veita af því minna sé að
gera yfir veturinn og gott að hafa
fleiri stoðir undir rekstrinum á
þeim tíma.
Gréta Jónsdóttir hefur tekið við rekstri Veitingastofunnar Varar
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Gréta Jónsdóttir stendur alla daga í eldhúsinu. Hér bakar hún pönnukökur fyrir gesti sína.
Ánægju-
legt púl
með fjöl-
skyldunni
Grindavík
EFNT verður til umhverfisátaks í
Reykjanesbæ næstu daga. Mark-
miðið er að hreinsa jaðra bæjarins af
öllum málmum og öðru rusli.
Reykjanesbær stendur fyrir
hreinsunarátakinu í samvinnu við
Hringrás hf., Njarðtak hf., Sorpeyð-
ingarstöð Suðurnesja, Bláa herinn,
fyrirtæki og íbúa Reykjanesbæjar.
Hliðstætt átak sem efnt var til á síð-
asta ári þótti skila góðum árangri.
Þegar hafa verið tilgreind hreins-
unarsvæði og sérstök verkefni í
átakinu, en einnig er óskað eftir
ábendingum íbúa. Átakið hefst
formlega á morgun, fimmtudag,
klukkan 18, og er stefnt að því að því
ljúki fyrir 2. september, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá
bæjarstjóra.
Hreinsunarsvæðinu hefur verið
skipt í þrjá hluta, Helguvík að
Njarðvíkurhöfn auk iðnaðarsvæða,
Njarðvíkurhöfn að Stekkjarkoti auk
iðnaðarsvæða og svæðið frá
Stekkjarkoti að Vogastapa og Hafn-
ir auk iðnaðarsvæða. Þjónustumið-
stöð Reykjanesbæjar tekur á móti
ábendingum um hvar málma og ann-
að rusl er að finna og kemur ábend-
ingum til tengiliða verkefnisins. Sér-
stakir gámar verða settir upp vegna
átaksins sem ætlaðir eru undir
járnarusl. Fyrirtæki geta nýtt sér
þá að kostnaðarlausu á þessum tíma.
Í tilkynningunni eru íbúar og fyr-
irtækjaeigendur hvattir til að skrá
sig í átakið hjá Þjónustumiðstöð og
taka þátt ýmist með því að taka til í
sínu nánasta umhverfi eða mæta í
hópátak, á tilgreindum stöðum sem
Þjónustumiðstöð bendir á. Þjón-
ustumiðstöð Reykjanesbæjar veitir
allar nánari upplýsingar um stað-
setningu gáma og fyrirkomulag
átaksins.
Átak í að
hreinsa
járnarusl
Reykjanesbær
HLJÓMSVEITIN Hljómar verða
þess heiðurs aðnjótandi að fá sig
skráða í fyrsta Stjörnuspor Reykja-
nesbæjar. Á Ljósanótt verður platti
með eiginhandaráritunum tónlistar-
mannanna sem komið verður fyrir í
gangstétt við Hafnargötu í Keflavík
afhjúpaður í tilefni af því að fyrsti
hluti Hafnargötunnar verður tekinn
í notkun eftir gagngerar end-
urbætur.
Stjörnuspor Reykjanesbæjar er
hugmynd sem Hilmar Bragi Bárð-
arson, fréttastjóri Víkurfrétta, fékk
að láni frá Los Angeles og hefur
lagað að aðstæðum í Reykjanesbæ í
samvinnu við Steinþór Jónsson for-
mann undirbúningsnefndar Ljós-
anætur. Nesprýði og Léttsteypan,
fyrirtæki sem vinna við endurgerð
Hafnargötunnar, tóku að sér að
kosta framtakið.
Steinþór segir að nefndin hafi
ákveðið að Hljómar yrðu á fyrsta
Stjörnuspori Reykjanesbæjar enda
viðeigandi þar sem fjörutíu ár eru
nú liðin frá því hljómsveitin kom
fyrst fram í Keflavík, heimabæ sín-
um. Áformað sé að halda þessu
áfram með einhverjum hætti en
ekki hafi verið ákveðið hvernig
staðið verður að valinu framvegis.
Allir þeir sem skarað hefðu framúr
og markað spor í bænum með ein-
um eða öðrum hætti kæmu til
greina og útfærslan á plöttunum
gæti orðið mismunandi eftir til-
efnum.
Stjörnuspor Hljóma verður í
gangstétt fyrir framan Verslunina
Hljómval að Hafnargötu 28, við
torg sem þar verður útbúið. Á
plattanum verða fjörutíu stjörnur
til að minna á tilefnið, 40 ára af-
mæli Hljóma, og eiginhandarárit-
anir hljómsveitarmanna. Stjörnu-
sporið verður afhjúpað um klukkan
16 laugardaginn á Ljósanótt. Stein-
þór vonast til að Hljómarnir taki
eins og eitt lag við þetta tækifæri.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Hljómar frá Keflavík, Erlingur, Rúnar, Gunnar og Engilbert .
Hljómar fá fyrsta
Stjörnusporið í stéttina
Keflavík