Morgunblaðið - 20.08.2003, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 39
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
LJÓN
Afmælisbörn dagsins:
Þú nærir umhverfi þitt og
verndar þína nánustu. Þó
þú sért einræn manneskja
ertu kjölfestan í fjölskyld-
unni. Lund þín í einkalífi er
oft önnur en á almannafæri.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Góðir straumar gærdagsins
fljóta áfram inn í daginn í dag.
En þér er hætt við að gera of
miklar kröfur til vissrar per-
sónu. Ekki gera það.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gjafmildi þín í garð fjölskyldu-
meðlima gæti blásið upp í ár-
áttu í dag um tíð. Slappaðu
bara af og slakaðu á.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hefurðu einhverntíma veitt
því athygli að sumir fyllast öf-
und ef þú ert of hamingjusöm/
samur? Ekki lenda í rifrildi við
félaga eða náinn vin.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Löngun þín til að auka tekjur
þínar gæti gert það að verkum
að þú svífst nánast einskis til
að vinna að bótum í vinnunni.
Reyndu að verjast þessu mis-
kunnarleysi.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ekki láta bjartsýni þína og vel-
vilja flækjast inn í rifrildi við
börn eða elskhuga. Hvað svo
sem það er sem amar að þá
mun það hverfa af sjálfu sér ef
þú skiptir þér ekki af.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Í tvo tíma í dag, síðdegis, getur
það gerst að þú lendir í mikilli
togstreitu við foreldri eða yf-
irmann. Ekki láta þetta trufla
þig.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Gættu sérstaklega að þér við
akstur í dag. Um miðjan dag-
inn gæti blossað upp hjá þér
einhver asi sem gæti valdið því
að þú flýttir þér of hratt.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Forðastu að kaupa eins og þig
lystir í dag. Þú gætir átt það til
að fá eitthvað á heilann og talið
þér trú um að þú verðir að
eignast eitthvað.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það eru óveðurský við sjón-
deildarhring, tengd ósætti við
vinnufélaga eða vin. Eyddu
ekki orku í rifrildi, illindin líða
hjá. Njóttu bara þess góða.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ekki þrýsta um of á að breyt-
ingar og bætur verði gerðar á
vinnustað þínum. Ef þú hinkr-
ar í einn eða tvo daga fara hlut-
irnir eins og þú vilt að þeir fari.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þér gengur vel í samskiptum
við almenning í dag, sem og
vinnufélaga og þína nánustu.
En þetta gæti minnkað þol-
inmæði þína gagnvart börnum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Rauðglóandi Mars er í merki
þínu í dag sem getur gert þig
árásargjarnari en áður. Af
þessum sökum skaltu forðast
rifrildi við yfirmenn þína eða
foreldra.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
KONUNGS TIGN JESÚ
Víst ertu, Jesú, kóngur klár,
kóngur dýrðar um eilíf ár,
kóngur englanna, kóngur vor,
kóngur almættis tignarstór.
Kóng minn, Jesú, ég kalla þig,
kalla þú þræl þinn aftur mig.
Herratign enga að heimsins sið
held ég þar mega jafnast við.
Jesú, þín kristni kýs þig nú,
kóngur hennar einn heitir þú.
Stjórn þín henni svo haldi við,
að himneskum nái dýrðar frið.
Hallgrímur Pétursson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 20.
ágúst, er fimmtug Rós Inga-
dóttir, Hverafold 37,
Reykjavík. Hún dvelur á
Kúbu á afmælisdaginn
ásamt eiginmanni sínum,
Kjartani B. Guðmundssyni,
og yngri dóttur þeirra, Rak-
el. Þeir sem vilja gleðja
hana á afmælisdaginn geta
send henni kveðju á net-
fangið bakkast@yahoo.com.
70 ára afmæli. Sjötuger í dag Sigríður
Jónsdóttir, fv. kennari og
námsstjóri, Einarsnesi 30,
Reykjavík. Hún og eig-
inmaður hennar, Ásgeir
Guðmundsson, fv. forstjóri,
eru erlendis og biðja fyrir
góðar kveðjur til fjölskyldu
og vina.
ÞAÐ þótti mikil bylting
þegar lykilspilaspurningin
leysti af hólmi hefðbundna
ásaspurningu með því að taka
tromphjónin inn í svörin.
Flestir keppnisspilarar nota
þessa sagnvenju nú til dags,
en einstaka sinnum skapast
vandræði tengd því hvaða lit-
ur er samþykktur sem tromp.
Hér er nýlegt dæmi úr bik-
arleik Guðmundar Her-
mannssonar og Strengs:
Austur gefur; allir á hættu.
Norður
♠ ÁKDG9852
♥ D97
♦ 6
♣4
Vestur Austur
♠ – ♠ 1064
♥ G82 ♥ 103
♦ DG103 ♦ K874
♣ÁD9853 ♣KG107
Suður
♠ 73
♥ ÁK654
♦ Á952
♣62
Sex spaðar eru borðleggj-
andi og sex hjörtu vinnast
einnig úr því liturinn fellur
3-2. Slemma náðist þó við
hvorugt borðið. Sagnir fóru
eins af stað: pass í austur, eitt
hjarta í suður og tvö lauf í
vestur. Á öðru borðinu ákvað
norður að stökkva beint í
fjóra spaða og þar við sat, að
sjálfsögðu. Á hinu borðinu
reyndi norður meira:
Vestur Norður Austur Suður
– – Pass 1 hjarta
2 lauf 2 spaðar 3 lauf Pass
Pass 4 grönd Pass 5 hjörtu
Pass 5 spaðar Allir pass
Eftir að norður segir spað-
ann og stekkur síðan í fjögur
grönd er hann að spyrja um
lykilspil með eigin lit sem
tromp. Þannig skildi suður
sögnina og sagði því ekki frá
hjartakóngnum. Norður ótt-
aðist að hola væri í hjartalitn-
um og lét fimm spaða duga.
Hjartakóngurinn er aug-
ljóslega þýðingarmikið spil og
þess vegna hefði norður
kannski átt að stökkva beint í
fjögur grönd við tveimur lauf-
um. Þá hefði suður litið svo á
að hjarta væri samþykktur
tromplitur og svarað sam-
kvæmt því þremur lyk-
ilspilum. Norður hugleiddi
þann möguleika, en leist ekki
á að spila fimm hjörtu ef
makker ætti ekki nægan ása-
fjölda í slemmu.
Þriðji möguleiki norðurs er
að segja fjögur lauf við þrem-
ur, eins og sagnir höfðu
þróast. Það ætti að sýna
slemmuáhuga með spaða sem
tromp og þá á suður fyrir
fjórum tíglum. Norður gæti
þá spurt um ása og tuddast í
sex spaða upp á von og óvon.
Fjórði möguleikinn er að
segja fjögur lauf og stökkva
svo í fimm hjörtu við fjórum
tíglum og gefa þannig til
kynna slemmuáhuga ef
makker er með gott hjarta.
Suður myndi segja sex hjörtu
við því, sem norður myndi svo
breyta í sex spaða. En allt
steytir þetta á sama skerinu –
norður óttast það að spila
fimm hjörtu á veikan tromplit
þegar ása vantar í slemmuna.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
Þessar tvær rösku stúlkur, Bryndís Björk, 9 ára, og Eva, 12
ára, efndu til flóamarkaðar á Rifi nýlega og söfnuðu tæplega
þrjú þúsund krónum. Afraksturinn rennur til Landssamtaka
hjartasjúklinga.
1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4.
Rf3 Bg7 5. h3 O-O 6. Be3 c6
7. a4 Rbd7 8. a5 Dc7 9. Be2
e5 10. dxe5 dxe5 11. O-O
Hd8 12. Db1 Rf8 13. Bc4
Be6 14. Da2 b5 15. axb6 axb6
16. Db3 b5 17. Bxe6 Rxe6 18.
Bg5 Rxg5 19. Rxg5 Hxa1 20.
Hxa1 Bf8 21. He1 Bc5 22.
Rf3 Da7 23. Rd1
Staðan kom upp á lokuðu
móti í Málmey sem
lauk fyrir skömmu.
Sigurvegari mótsins,
Luke McShane,
(2619) hafði svart
gegn Stellan Brynell
(2511). 23...Rxe4! Við
þetta vinnur svartur
peð og stuttu síðar
skákina. 24. Hxe4
Hxd1+ 25. Kh2 Bxf2
26. Hxe5 Da1 27.
He8+ Kg7 28. Dc3+
Kh6 29. He1 Hxe1
30. Dd2+ Kg7 31.
Dxf2 Hh1+ 32. Kg3
Dxb2 33. Rd4 Dc3+ 34. Kh4
De1 og hvítur gafst upp.
Lokastaða mótsins varð
þessi: 1. Luke McShane
(2619) 7½ vinning af 9 mögu-
legum. 2. Leif Erlend Jo-
hannesson (2525) 6 v. 3.-5.
Jonathan Speelman (2589),
Johan Hellsten (2511) og
Emanuel Berg (2495) 5½ v.
6.-7. Ole Jakobsen (2381) og
Stellan Brynell (2511) 4 v. 8.
Bjorn Ahlander (2393) 3 v.
9.-10. Marie Sebag (2432) og
Tairi Faruk (2245) 2 v.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
HLUTAVELTA
Hann hefur setið
þarna og beðið síðan
ég klippti eyrað af
hér um árið.
FRÉTTIR
Í SUMAR á alþjóðaári ferskvatns-
ins hefur Ungmennasamband Borg-
arfjarðar gengizt fyrir kvöldgöng-
um í samstarfi við Vesturlandsdeild
Veiðimálastofnunar. Hefur verið
gengið meðfram Andakílsá, Norð-
urá, Hítará, Flóku og Grímsá. Eftir
er að ganga meðfram Langá 28.
ágúst og síðasta kvöldgangan verð-
ur meðfram Reykjadalsá 11. sept-
ember.
Í ferðunum hefur verið minnt á,
hversu mikil auðlegð felst í því að
hafa aðgang að hreinu og heilnæmu
vatni. Er jafnvel rætt um það, að í
framtíðinni geti stríð snúizt um að
komast yfir vatnsauðlindir og þess
vegna sé farið að tala um verðmæti
vatnsins á nýjan hátt, og farið að
kalla það „glæra gullið“.
Í ferðunum hafa starfsmenn
Vesturlandsdeildar Veiðimálastofn-
unar verið með í för, rætt um veiði-
skap frá haga í maga, og sýnt raf-
rænar veiðar, sem notaðar eru til
að fanga seiðin svo gerlegt sé að
merkja þau, og athuga fjölda þeirra
í ánum.
Gengið meðfram
„glæra gullinu“
Ljósmynd/Pétur Þorsteinsson
Björn Theódórsson, starfsmaður Vesturlandsdeildar Veiðimálastofnunar,
sýnir kvöldgönguhópnum við Flóku seiði, sem hann fangaði í háfinn með
rafrænum hætti. Næsta ganga verður meðfram Langá 28. ágúst.
AFKOMENDUR Jón-
asar Márussonar frá
Kársstöðum og eig-
inkvenna hans færðu
gömlu kirkjunni í Stykk-
ishólmi peningagjöf til
minningar um þau og
látna afkomendur. Um
var að ræða tekjuafgang
af ættarmóti sem haldið
var að Heiðarskóla.
Jónas Márusson fædd-
ist árið 1859. Hann bjó í
Álftarfirði öll sín ár, fyrst
að Úlfarsfelli, og síðan á
Kársstöðum þar sem dó
árið 1907. Hann eignaðist
4 börn með tveimur kon-
um. Fyrri kona hans var
Pálína Þorsteinsdóttir
sem dó árið 1896 og með
henni átti hann Ólaf og
Elinbjörgu. Hann giftist
síðari konu sinni Önnu
Illugadóttur árið 1898 og átti með
henni börnin Sigurð og Önnu. Barna-
börn Jónasar voru 25.
Sóknarpresturinn sr. Gunnar Eirík-
ur Hauksson tók við gjöfinni og þakk-
aði. Gamla kirkjan var endurvígð árið
1999 og er þar messað nokkrum sinn-
um á ári. Kirkjan hefur enga tekju-
stofna og því eru frjáls framlög vel
þegin.
Gjöf til gömlu kirkjunnar
Stykkishólmi. Morgunblaðið.
Fulltrúar afkomenda Jónasar Márussonar og eig-
inkvenna hans: Anna Þorvarðardóttir frá Belgs-
holti, Elinbjörg Magnúsdóttir, Magnús Sveinn
Sigursteinsson, sr. Gunnar Eiríkur Hauksson,
Heiða María Elfarsdóttir, Svanhildur Kristjáns-
dóttir og Gréta Sigurðardóttir.