Morgunblaðið - 20.08.2003, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 20.08.2003, Qupperneq 40
ÍÞRÓTTIR 40 MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK  PAOLO di Canio sýndi snilldar- takta í leik með varaliði Charlton gegn Wimbledon í fyrrakvöld. Ítal- inn skoraði eitt mark og lagði annað upp í 4:1 sigri og nú þykir ljóst að Al- an Curbishley muni tefla honum fram í fyrsta skipti í aðalliðinu þegar Hermann Hreiðarsson og félagar sækja Wolves heim í ensku úrvals- deildinni í knattspyrnu á laugardag.  SOL Campbell, miðvörður Arsen- al, er meiddur í öxl og leikur ekki með enska landsliðinu í knattspyrnu sem mætir Króatíu í vináttulands- leik í Ipswich í kvöld. Sama er að segja um Jonathan Woodgate, mið- vörð frá Newcastle, og þá hafði Owen Hargreaves, leikmaður Bayern München, þegar verið send- ur heim úr enska landsliðshópnum vegna nárameiðsla. Tvísýnt er um David Beckham og Emile Heskey, en þó eru þokkalegar líkur á að þeir geti spilað.  MATTHEW Upson, miðvörður frá Birmingham, hefur verið kallaður inn í hópinn vegna forfalla Camp- bells og Woodgates.  ARGENTÍNSKI knattspyrnu- kappinn Gabriel Batistuta, 34 ára, hefur gert tveggja ára samning við Al Arabi SC í Qatar. Hann fær 600 millj. ísl. kr. í vasann fyrir að leika og þjálfa unga leikmenn hjá liðinu.  ENSKA knattspyrnusambandið mun ekkert gera í fagnaðarmáli Thierry Henry, leikmanns Arsenal. Hann veifaði til fjölskyldu sinnar þegar hann skoraði markið gegn Everton, en var ekki að ögra stuðn- ingsmönnum Evertonliðsins.  DINO Baggio, fyrrum landsliðs- maður Ítala í knattspyrnu og leik- maður Lazio, er væntanlegur til reynslu hjá Blackburn Rovers. Fyrr í sumar hafnaði hann boði um að spila með Wolves.  GRAEME Souness, knattspyrnu- stjóri Blackburn, freistar þess að styrkja hóp sinn en á dögunum hafn- aði Barry Ferguson, skoski lands- liðsmaðurinn hjá Glasgow Rangers, tilboði frá honum.  GAIZKA Mendieta, spænski landsliðsmaðurinn sem einnig leikur með Lazio, verður væntanlega lán- aður til Middlesbrough í ensku úr- valsdeildinni út þetta tímabil. For- seti Lazio og umboðsmaður Spánverjans staðfestu í gær að þetta væri afar líklegt.  KAKA, einn efnilegasti knatt- spyrnumaður Brasilíu, er genginn til liðs við Evrópumeistarana AC Milan frá Ítalíu og hefur samið við þá til fjögurra ára. Kaka er 21 árs, sókn- djarfur miðjumaður, og kemur frá Sao Paulo. Hann var í leikmanna- hópi Brasilíumanna þegar þeir urðu heimsmeistarar í fyrra og kom þá við sögu í einum leik. Fyrir hjá AC Mil- an eru fimm brasilískir leikmenn, Cafu, Rivaldo, Roque Junior, Serg- inho og markvörðurinn Dida. RÚNAR Kristinsson var í eldlín- unni með Lokeren í belgísku 1. deildinni á sunnudagskvöldið þegar liðið tapaði fyrir Standard en hélt síðan árla morguns á mánudaginn til Færeyja og var kominn á hótel íslenska liðsins á hádegi sama dag ásamt sam- herjum sínum Arnari Grétarssyni og Arnari Þór Viðarssyni. Í sam- tali við Morgunblaðið sagðist hann vera þreyttur en taldi ekki annað koma til greina en að vera klár í slaginn í kvöld þegar að leiknum við Færeyinga kemur en það verður 101. landsleikur Rún- ars. „Þá er komið að þessu erfiða verkefni gegn erfiðu landsliði Færeyinga á þungum vellinum hér í Þórshöfn. Færeyska liðið veitti okkur harða mótspyrnu á Laugardalsvelli í vor og ég á ekki von á öðru en þessi leikur verði í svipuðum dúr, það er erf- itt og krefjandi verkefni,“ sagði Rúnar. „Ásgeir [Sigurvinsson] og Logi [Ólafsson] leggja línuna fyrir okkur leikmenn eins og í síðustu leikjum og það er okkar að vinna eftir henni. Tíminn er skammur fram að leik en við vinnum vel og gerum okkar besta til þess að ljúka þessum leik með sóma,“ sagði Rúnar. Mikið í húfi „Það er spenna í mér fyrir leik- inn enda mikið í húfi, en það er eflaust líka spenna í færeyska lið- inu sem leikur eins og við upp á þjóðarstoltið, við verðum hins vegar að vera vel einbeittir og tilbúnir að nýta alla okkar krafta og vera einbeittir, þá vona ég það besta,“ sagði Rúnar Kristinsson sem sagði við Morgunblaðið fyrir leikinn á móti Litháum að hann hygðist ljúka ferli sínum með landsliðinu í haust. Krefjandi verkefni fram- undan hér í Þórshöfn Líklegt er talið að sóknarmaður-inn efnilegi Hjalgrím Elttör frá KÍ í Klakksvík verði í fremstu víg- línu í kvöld. Þeir John Petersen og Andrew av Flötum, sem hafa spilað frammi í undanförnum leikjum, þykja áþekkir leikmenn og búa ekki yfir sama sprengikrafti og hinn tví- tugi Elttör, sem er markahæstur í færeysku 1. deildinni og hefur átt í viðræðum við erlend félög, m.a. Grindvíkinga og dönsk úrvalsdeild- arlið. Skagamaðurinn Julian Johnsson, sem óvænt var varamaður á Laug- ardalsvelllinum en kom til leiks í síð- ari hálfleik, verður örugglega á miðjunni hjá Færeyingum í kvöld, og við hlið hans þar verður annað- hvort Jann Ingi Petersen, sem lék á Íslandi, eða Atli Danielsen sem hef- ur spilað mjög vel með KÍ að und- anförnu. Rógvi Jacobsen, sem skor- aði gegn Íslandi í sumar, verður vinstra megin, en Christian Högni Jacobsen frá Vejle í Danmörku, sem var hægri bakvörður á Íslandi, verð- ur væntanlega hægra megin á miðj- unni í staðinn fyrir Jákup á Borg. Reyndar eru margir kostir fyrir hendi um stöðuna hægra megin og Henrik Larsen, landsliðsþjálfari, gæti valið þann kost að setja Elttör þar og auka með því enn sóknar- möguleika færeyska liðsins. Jón Rói Jacobsen, hinn tvítugi leikmaður Bröndby í Danmörku sem átti stórleik á Laugardalsvell- inum, verður miðvörður og hinn reyndi Óli Johannessen verður lík- lega við hlið hans. Þó hafa verið uppi raddir í Færeyjum að vafasamt sé að velja Óla í liðið þar sem hann spil- ar nú með TB frá Tvöreyri í fær- eysku 2. deildinni. Súni Ólsen verður áfram vinstri bakvörður og fyrrver- andi Valsmaðurinn Pól Thorsteins- son er líklegastur sem hægri bak- vörður. Jákup Mikkelsen verður örugg- lega í markinu en hann er nýgenginn til liðs við Partick Thistle í skosku úrvalsdeildinni, frá Molde í Noregi. Hinn gamalkunni fyrrverandi Leift- ursmaður, Jens Martin Knudsen, verður síðan til taks á bekknum. Breytt lið hjá Færeyingum FÆREYINGAR tefla í kvöld fram breyttu liði frá því í leiknum gegn Íslendingum á Laugardalsvellinum þann 7. júní. Tveir leikmenn sem þá voru í leikbanni, varnarmennirnir Pól Thorsteinsson og Óli Johannessen, eru gjaldgengir en hinsvegar taka miðjumennirnir Jákup á Borg og Fróði Benjaminsen út leikbann í kvöld. SUNDERLAND er á góðri leið með að jafna 104 ára gamalt met í ensku knatt- spyrnunni. Liðið hefur nú tapað 17 deildaleikjum í röð, Sunderland beið lægri hlut í síðustu 15 leikjum sínum í úrvalsdeildinni í fyrra og hefur nú tapað báðum leikj- um sínum í 1. deildinni. Sun- derland lá á heimavelli, 0:1, gegn Millwall á laugardaginn og tapi liðið gegn Preston á útivelli næsta laugardag fer það í sögubækurnar. Það var lið að nafni Darw- en sem tapaði 17 deilda- leikjum í röð árið 1899. Jafnar Sunder- land 104 ára met?Lárus hefur verið í meðferð hjáStefáni Stefánssyni, sjúkra- þjálfara íslenska landsliðsins, síðan á sunnudagskvöld og í gær gat hann skokkað létt. „Þetta eru furðulegustu meiðsli sem ég fengið á ferlinum. Fyrst var talið að ég væri meiddur í baki en við nánari skoðun kom annað í ljós,“ sagði Lárus í samtali við Morg- unblaðið. Um viðureignina á morgun sagði Lárus að það væri enginn vafi í sín- um huga að hún yrði geysilega erf- ið íslenska liðinu. „Ég hef þrisvar sinnum leikið gegn Færeyingum og í öll skiptin höfum við verið í mikl- um erfiðleikum með að knýja fram eins marks sigur. Þetta verður fyrst og fremst erfitt og ljóst að við verðum að einbeita okkur vel og al- veg skýrt að menn mega ekki horfa lengra fram á veginn að sinni, þetta verkefni sem bíður okkar hér í Þórshöfn er það krefjandi að menn mega ekki velta einhverju famhaldi eða stöðu fyrir sér fyrr en að hon- um loknum,“ segir Lárus Orri. Félagarnir óskuðu mér góðs gengis „Það er ekkert grín fyrir landslið að koma hingað til Þórshafnar og ætla sér sigur. Ég var að ræða við félaga mína í West Brom, sem eru í skoska landsliðinu, um að fram- undan væri landsleikur hjá mér með íslenska liðinu gegn því fær- eyska í Þórshöfn, þá einfaldlega signdu þeir sig og óskuðu mér góðs gengis. Færeyingar eru erfiðir heim að sækja,“ segir Lárus og bætir því við að heimamenn ætli að brjóta blað að þessu sinni og leggja íslenska liðið. „Það kemur ekki til greina að tapa, ég ætla ekki að vera í fyrsta íslenska landsliðinu sem tapar fyrir Færeyingum, við munum leggja okkur alla fram um vinna og fá þannig þrjú stig til við- bótar í sarpinn, en það verður ekki auðvelt, við verðum að hafa ræki- lega fyrir stigunum eins og fyrri daginn,“ sagði Lárus Orri Sigurðs- son, sem vonast til að geta tekið þátt í landsleiknum á Tórsvelli í kvöld. Ljósmynd/Álvur Haraldsen Landsliðsmenn á göngu niður við höfnina í miðbæ Þórshafnar í gær. Fremstir á myndinni eru Rúnar Kristinsson, Birkir Krist- insson og Marel Baldvinsson. Það skýrist á síðustu stundu hvort Lárus Orri Sigurðsson getur mætt Færeyingum á Tórsvelli Furðuleg- ustu meiðsli sem ég hef orðið fyrir „ÉG hef skánað með hverjum degi upp á síðkastið en hvort ég verð búinn að jafna mig fyllilega fyrir leikinn get ég ekki sagt um á þess- ari stundu, sagði Lárus Orri Sigurðsson, varnarmaður íslenska landsliðsins og sá eini af landsliðsmönnunum nítján sem vafi leikur á um hvort geti tekið þátt í viðureigninni við Færeyinga í und- ankeppni EM á Tórsvelli í Þórshöfn í dag. Lárus fékk högg á brjóst- kassann á æfingu hjá West Brom fyrir nærri hálfum mánuði og hef- ur ekkert getað æft af krafti síðan. Það tognaði á brjóstvöðvnum með þeim afleiðingum að hann á erfitt með að anda djúpt. Ívar Benediktsson skrifar frá Þórshöfn Lárus Orri Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.