Morgunblaðið - 20.08.2003, Qupperneq 44
FÓLK Í FRÉTTUM
44 MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
21. SÝNING MIÐVIKUDAGUR 20/8 - KL. 20 UPPSELT
22. SÝNING FIMMTUDAGINN 21/8 - KL. 20 UPPSELT
23. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 16 UPPSELT
24. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 20 UPPSELT
25. SÝNING FÖSTUDAGINN 29/8 - KL. 20 ÖRFÆA SÆTI LAUS
26. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 16 ÖRFÁ SÆTI LAUS
27. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
28. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 16 LAUS SÆTI
29. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 20 LAUS SÆTI
ATHUGIÐ ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA!
Sumarkvöld við orgelið
21. ágúst kl. 12.00:
Veronica Osterhammer sópran og
Friðrik Vignir Stefánsson orgel.
23. ágúst kl. 12.00:
Mark Anderson orgel.
24. ágúst kl. 20.00:
Mark Anderson leikur m.a.
verk eftir Buxtehude, Vierne,
Franck og Messiaen.
TÓNLISTAR- og myndlistarmenn-
irnir Egill Sæbjörnsson og Ragnar
Kjartansson flytja tón- og mynd-
gjörninginn „Fjögur tilbrigði við
sorg“ í fjölnotasal Listasafns
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu annað
kvöld.
Verkið var fyrst flutt á Menning-
arnótt í Kling og Bang en galleríið
fór þess á leit við Egil að hann gerði
verk fyrir það. „Ég spurði Ragga
hvort hann væri ekki til í að við
gerðum eitthvað saman,“ segir Eg-
ill, sem hefur m.a. gefið út plötuna
Tonk of the Lawn. Ragnar, sem er
hluti af raftónlistargleðisveitinni
Trabant, var til í slaginn og gekk
samstarfið vel.
„Við hittumst og eftir fimm mín-
útur vorum við komnir með hug-
mynd og gerðum þetta á tveimur
dögum. Mér datt hann í hug því við
erum búnir að vera að gera svipaða
hluti og okkur langaði að prófa að
vinna saman. Þetta var rosalega
gaman og gekk alveg eins og í
sögu,“ segir Egill og bætir við: „Það
er gaman að vera í svona samstarfi,
sérstaklega við fólk sem er að gera
svipaða hluti.“ Myndin er 15
mínútna löng og er fjórskipt.
„Sorgarferlið er tekið fyrir.
Við skiptum því niður í sjokk, tóm-
leika, reiði og fyrirgefningu,“ segir
Egill en hann og Ragnar flytja lif-
andi tónlist á meðan myndin er sýnd.
„Við notum tvo nælonstrengjagít-
ara,“ segir hann og bætir við að
stemningin sé í framúrstefnulegum
anda.
Eins og áður segir eru Egill og
Ragnar báðir tónlistar- og myndlist-
armenn og segir Egill þetta tvennt
fara ágætlega saman. „Það er
áhugavert hvernig hægt er að nota
tónlistina sem hluta af myndlist eða
öfugt. Gera heildræn verk sem taka
hvort tveggja til greina, að vera með
hljóð í myndlist og myndir við tón-
list,“ segir Egill og eru myndböndin
sem hann hefur gert við eigin tónlist
gott dæmi um þetta.
„Þegar Smekkleysa spurði hvort
ég vildi vera með tónleika í Hafn-
arhúsinu skelltum við okkur í að
gera þetta aftur. Það lá alveg beint
við.“ Egill er sem stendur að vinna
að nýrri breiðskífu. „Ég er að vinna í
henni núna með Valgeiri í Gróð-
urhúsinu og Áka Ásgeirssyni og
fleira fólki,“ segir hann en stefnt er
að útgáfu um næstu jól eða jafnvel í
vor.
Kimono með ný lög
Hljómsveitin Kimono stígur einn-
ig á svið í Hafnarhúsinu á fimmtu-
dagskvöldið og flytur ný lög. Athygli
er vakin á því að meðan á dagskrá
stendur gefst gestum kostur á að
skoða sýningu Smekkleysu, Humar
eða frægð, sem nú stendur yfir. Að-
gangur er ókeypis og stendur dag-
skráin frá 20 til 22.
Egill Sæbjörnsson og Ragnar Kjartansson með gjörning í Hafnarhúsinu
Samruni
tónlistar og
myndlistar
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Egill Sæbjörnsson hefur tekið á sig ýmis rokkgervi í tónlistarflutningi sín-
um í gegnum tíðina en hér er hann að kynna plötu sína Tonk of the Lawn.
Morgunblaðið/Björg
Hrist upp í hlutunum í Central Park: Ragnar Kjartansson er þekktur fyrir
afar líflega sviðsframkomu er hann leikur með hljómsveit sinni, Trabant.
Hljómsveitin Kimono mun spila ný lög eftir
að gjörningi þeirra Egils og Ragnars lýkur.
Ljósmynd/Sigrún Guðmundsdóttir
Egill Sæbjörnsson og Ragnar
Kjartansson flytja tón- og mynd-
gjörninginn Fjögur tilbrigði við
sorg í Hafnarhúsinu fimmtu-
dagskvöldið 21. ágúst klukkan
20. Hljómsveitin Kimono flytur
einnig ný lög.
ingarun@mbl.is
NÝ ÚTVARPSSTÖÐ hefur útsend-
ingar í dag, útvarpsstöðin Skonrokk
sem senda mun út á tíðninni 90,9.
Dagskrárstjóri stöðvarinnar er Sig-
urjón Kjartansson sem um nokkurt
skeið hefur stjórnað í samstarfi við
Dr. Gunna (Gunnar Lárus Hjálmars-
son) útvarpsþættinum Zombie á X-
inu. Sá þáttur flyst nú yfir á Skon-
rokk, en annars verður sérstök
áhersla lögð á klassíska rokktónlist á
nýju stöðinni.
„Við ákváðum að setja stöðina af
stað því okkur virðist visst gat fyrir
þann hlustendahóp sem er hvað mest
skipaður karlmönnum á aldrinum 30
til 50 ára,“ sagði Sigurjón þegar
blaðamaður tók hann tali. „Þess
vegna verður lögð áhersla á eldri
rokktónlist, frá ’65 til ’93 hérumbil, –
verðum ekki með neitt yngra rokk en
10 ára. En þannig heldur það áfram
að rásin endurnýjar sig svo að næsta
ár spilum við inn á milli rokklög frá
1994 og þannig koll af kolli. Stöðin
staðnar því ekki tónlistarlega.“
Zombie í fyrirrúmi
Fréttir verða fluttar á heila tím-
anum í samstarfi við fréttastofu
Stöðvar 2 og Bylgjunnar en þó
Zombie færist á milli stöðva verður
þátturinn sem fyrr frá 7 til 10 alla
virka morgna. „Zombie er náttúrlega
hápunkturinn,“ segir Sigurjón af
stakri fyndni. „Síðan taka við ágætis
þáttastjórnendur sem verða með
hefðbundna þætti þar sem áherslan
er á tónlistina.“ Engir kvöldþættir
verða á rásinni heldur fær tónlistin
að lifa óslitið fram á morgun.
Skonrokk kemur þar sem BBC
World Service var áður endurvarpað
og hefur nokkuð borið á
óánægjuröddum frá hlustendum
þeirrar stöðvar. „Jú, það eru einhver
30 manns sem hlustuðu á þá stöð og
þeir eru allir mjög háværir,“ segir
Sigurjón kíminn. „En hitt er annað
mál að mér þykir nokkur eyða koma í
útvarpsflóruna vegna þessa og hlust-
aði ég sjálfur svolítið á BBC World
Service. En ég held að Útvarp Saga
sé að komast langt með að fylla það
gat. Og kannski er skemmtilegra að
á íslenskum útvarpsbylgjum sé talað
íslenskt mál.“ Efnistök Zombie
verða með sama sniði: „Við erum
áfram við sama heygarðshornið,
bara betri og ferskari. Við vorum áð-
ur með framhaldsleikrit en erum að
fara af stað með einþáttunga og ætl-
um að sjá hvað við komumst langt
með það. Svo verða nettar áherslu-
breytingar, eins og í stað Topp-11
listans verður Topp-9 listinn og
Stjáni stuð fylgir okkur því miður
ekki yfir. Svo verða nokkrir góðir ný-
ir dagskrárliðir. Til dæmis mega
ýmsir góðborgarar hér í bæ eiga von
á því að verða vaktir á morgnana og
þeim boðið að velja sér óskalag, sem
er nokkuð sem ekki hefur verið
stundað í íslensku útvarpi í langan
tíma.“
Hringja og bjóða fólki óskalög
Nafn stöðvarinnar ætti að vekja
ýmis viðbrögð þess markhóps sem
stöðin er stíluð á. „Okkur fannst
þetta huggulegt og heimilislegt
nafn,“ segir Sigurjón um nafnið sem
er hið sama og var á fyrsta íslenska
sjónvarpsþættinum sem helgaður
var flutningi tónlistarmyndbanda.
„Þetta er byggt á gömlum grunni og
vekur ýmis viðbrögð þegar menn
heyra.“ Nöfnum á borð við Z-una var
fleygt, en segir Sigurjón þó Skon-
rokk hafa orðið ofan á, og játar því að
nafnið góða hafi komið úr kolli Gunn-
ars, eins og margan hefur eflaust
grunað.
Annars er fram undan annasamur
vetur hjá þeim. Gunnar mun stjórna
Popp-punkti á Skjá einum en Sigur-
jón er að undirbúa verkefni á Popp-
Tíví sem fer í loftið í haust, Grínskóla
Sigurjóns, og vinnur einnig að grín-
þáttunum Svínasúpu á Stöð 2 sem fer
í tökur eftir áramót og væntanlegur
er á skjá landsmanna í vetur eða
næsta haust.
Ný útvarpsstöð, Skonrokk 90,9, hefur göngu sína
Morgunblaðið/Arnaldur
Þeir félagar Gunni og Sigurjón verða í aðalhlutverki á Skonrokki með útvarpsþátt sinn, Zombie.
„Ekkert rokk yngra en 10 ára“
Skonrokk sendir út á FM 90,9.
Zombie er á dagskrá frá 7 til 10
virka morgna.
asgeiri@mbl.is