Morgunblaðið - 20.08.2003, Page 45
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 45
RAPPARINN Puff Daddy hefur
verið valinn mesti mömmustrák-
urinn í Hollywood. Bandaríska tíma-
ritið Touch sá um valið á þeirri
stjörnu, sem þætti vænst um
mömmu sína. Puffy, sem sést oft á
ferðinni með Janice móður sinni,
náði meira að segja að vera fyrir ofan
Justin Timberlake, sem er í öðru
sæti. Timberlake hefur oft sagt að
mamma hans, Lynn Harless, sé besti
vinur sinn og hann er með upphafs-
stafi hennar húðflúraða á líkamann.
„Mamma mín á eftir að vera til
staðar eftir að allir aðrir eru farnir. Í
raun er hún ekki bara eins og móðir
heldur líka eins og systir. Hún leit
ekki bara á mig eins og krakka en
hlúði samt að mér þegar ég þurfti á
því að halda,“ sagði Puffy nýlega.
Næstir í röðinni voru leikararnir
Matthew McConaughey og Mark
Walberg og grínistinn Jerry Sein-
feld er í fimmta sæti. Á eftir þeim
koma Leonardo DiCaprio, Ben Affl-
eck, Tom Cruise, Colin Farrell og
Adrien Brody, sem er í tíunda sæti.
Puff Daddy efstur á lista
Mesti mömmu-
strákurinn valinn
Justin Timberlake lenti í öðru sæti
en hann hefur sagt að mamma sín,
Lynn Harless, sé besti vinur sinn.
Reuters
Puff Daddy var valinn mesti
mömmustrákurinn af bandarísku
tímariti en hann segir mömmu sína
líka vera eins og systur.
Reuters
SÖNGKONAN og sjónvarpskonan
Cilla Black missti reiðufé og skart-
gripi að andvirði ríflega einnar millj-
ónar punda, eða 127 milljóna króna,
þegar brotist var inn á heimili henn-
ar í Buckingham-skíri á Bretlandi, að
því er segir í frétt Reuters. Vopnaðir
menn brutust inn á heimili Black,
sem var fjarverandi, um helgina og
héldu hnífi að hálsi sonar hennar
Jack, sem er 22 ára. Black, sem nú
er sextug, segir að þrír menn með
lambhúshettur hafi brotist inn á
heimili hennar sem er skammt frá
Lundúnum. Þeir hafi verið vopnaðir
veiðihnífi og stálröri.
„Ég er miður mín yfir því sem hef-
ur gerst,“ segir í yfirlýsingu sem
Black hefur gefið út. „Jack sýndi
mikið hugrekki og ég er afar stolt af
því hvernig hann hegðaði sér í þess-
um erfiðu aðstæðum,“ segir ennfrem-
ur.
Mennirnir stálu skartgripum sem
eiginmaður Cillu, Bobby Willis, hafði
gefið henni en hann er látinn. Þá
stálu þeir gift-
ingarhring móð-
ur hennar og
trúlofunarhring-
um, reiðufé og
smávegis af
gulli.
Ferill Cillu
spannar fjörutíu
ár en hún komst
til frægðar á
sjöunda áratugnum með aðstoð Brian
Epstein, sem einnig var umboðsmað-
ur Bítlanna, þegar hún söng lög á
borð við lag Burts Bacharah
„Anyone Who Had a Heart.“
Cilla Black í vondum málum
Syni hótað með hnífi
alltaf á föstudögum
GENGI
GJALDMIÐLA mbl.is