Morgunblaðið - 20.08.2003, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 20.08.2003, Qupperneq 48
48 MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Kl. 8 og 10. B i. 16. Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 5.50. ísl tal.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12.  SG. DVÓ.H.T Rás2  GH KVIKMYNDIR.COM  SG. DV KVIKMYNDIR.IS GULL MOLAR NÓI ALBINÓI RESPIRO Sýnd kl. 6 og 8. Með íslensku tali Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 10 ára. KVIKMYNDIR.IS  KVIKMYNDIR.COM  ÓHT RÁS 2  SG DV  MBL Kl. 6. MEÐ ÍSLENSKU TALI FRÁ FRAMLEIÐENDUM SHREK ATH! Munið eftir Sinbað litasamkeppninni á ok.is THE MATRIX RELOADED ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 6. Ísl tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 8. Enskt tal. AKUREYRI Sýnd kl. 6. Ísl tal KEFLAVÍK Sýnd kl. 6. Ísl tal WHAT A GIRL WANTS KRINGLAN Sýnd kl. 5.50 og 8. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10. B.i. 12. MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SMÁM saman spyrst út hvaða er- lendu hljómsveitir munu leika hér á landi á Airwaves-tónlist- arhátíðinni í haust. Nýverið var greint frá því að væntanlegar væru meðal annars hljómsveit- irnar Calla, Prosaics og Captain Comatose, en þónokkrar eiga eft- ir að bætast við, þar á meðal bresk-bandaríska rokkdúóið The Kills sem vakið hefur mikla at- hygli undanfarið. Bretland + Bandaríkin The Kills, sem sendi frá sér fyrstu plötuna fyrir skemmstu, er skipuð þeim Jamie Hince og Al- ison Mosshart. Hince var í rokk- sveitinni Scarfo sem var við það að slá í gegn í Bretlandi fyrir nokkrum árum. Þegar það fór út um þúfur stofnaði hann hljóm- sveitina Fiji sem ekkert varð úr og svo kom að hann var einn að basla við músík. Þau Hince og Mosshart hittust í Lundúnum og lynti þegar svo vel að þau ákváðu að semja saman tónlist. Mosshart var á ferð um Bretland með hljómsveit sinni, Discount, en Hince býr í húsnæði sem leigt er undir tónleikahald og alsiða að hljómsveitir gisti á heimili hans. Hann segir að Moss- hart hafi verið uppburðarlítil þegar hann sá hana fyrst en á sviðinu hafi geislað af henni því- líkur kraftur að honum fannst hann verða að ná tali af henni. Mosshart hélt síðan til Bandaríkj- anna að nýju og tók upp hugmyndir sem hún sendi Hince í pósti. Hann sendi hugmyndir á móti og næsta hálfa árið gekk þetta svo. Þótt vinnan gengi ágætlega í sjálfu sér fannst þeim ómögulegt til lengdar að skiptast ekki á hugmyndum augliti til auglitis og 1. janúar 2000 fluttist Mosshart til Lundúna. Það voru ekki miklir peningar í spilinu og því voru verkfærin það ódýrasta sem völ var á, oft biluð eða léleg upptökutæki og/ eða hljóðfæri, sem varð smám saman snar þáttur í hljómnum sem átti eftir að heilla fólk, hrár og bjagaður. Fyrstu tónleikarnir voru svo haldnir í febrúar 2002 undir nafninu The Kills, en ekki var bara að samstarfið fengi þannig formlegt nafn heldur tóku þau sér listamannsnöfn, Hince kallast Hotel og Mosshart VV. Svarti haninn Eftir tvenna til þrenna tónleika til að slípa lög héldu þau í hljóð- ver að taka upp nokkur lög sem rötuðu á EP-plötuna Black Roost- er. Eins og fram hefur komið eru þau bara tvö í sveitinni og að sögn Hince er það aðallega vegna þess að enginn var til í að leika með þeim þegar sveitin varð til; það hafi enginn treyst sér til að vinna við tónlist allan sólarhring- inn. Black Rooster var vel tekið en áður en lengra varð haldið þurfti Mosshart að fara úr landi þar sem vegabréfsáritunin hennar rann út sumarið 2002. Þau voru ekki af baki dottin, brugðu sér til Bandaríkjanna í þriggja mánaða tónleikaferð og þegar Mosshart var komin með nýja áritun sneru þau aftur til Lundúna til að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið. Næstu mánuðir fóru svo í tónleikahald víða um heim þar til þau héldu í hljóðver að taka upp nýja skífu, Keep On Your Mean Side, sem kom út í mars síðast- liðnum. The Kills á Airwaves ÞAÐ er hægt að hlæja hátt og mik- ið að nafngift aðalsveitar síðasta föstudagskvölds á Grand Rokk. En minna að tónlistinni. Hér var á ferð- inni mulningsrokk (e. grind-core) eins og það gerist best, enda leiðtoginn fyrrverandi meðlimur í Brutal Truth, helstu fánaberum stefnunnar á síð- asta áratug. Fyrsta upphitunarsveit var Every- thing Starts Here frá rokkbænum ei- lífa Húsavík (áður AngerMeans). Hér var á ferðinni þétt og vel spilað þung- kjarnarokk (e. metal-core) þar sem á skiptust hraðir kaflar og svo melód- ískir kaflar með fínu „grúvi“. Söngv- arinn fínn og samleikur hinn besti. Af- ar efnilegt band. Næstir voru Snafu, sem hafa verið að um langa hríð. Ferðalag þeirra hefur á stundum verið stopult og stundum hefur maður óttast um af- drif þessarar sveitar, sem hefur verið efnileg um langt skeið. Ég hef séð þá frábæra á tónleikum en líka úti að aka. Þetta kvöld var þó um margt dá- lítið sérstakt. Snafu-menn hafa ekki leikið lengi og var Ingi gítarleikari t.d. fjarri góðu gamni þetta kvöldið enda á túr núna í Evrópu með I Adapt. Þá er genginn til liðs við sveitina Binni nokkur, sem áður lamdi húðir með Lunchbox. Skemmst er frá því að segja að Snafu voru frábærir. Þeir hafa fært sig enn frekar frá myljandi „metal-core“-inu og eru að færa sig nær tilfinningarokki að hætti … tja … At the Drive In. Þessu skeyta þeir haglega saman við gamla Snafu- stílinn og er útkoman afar áhugaverð. Siggi söngvari er farinn að „syngja“ mun meira en áður og Eiður gítar- leikari leggur til flotta bakrödd. Mikl- ar pælingar í gangi, lög flókin en um leið grípandi og skemmtileg. Mjög spennandi verður að segjast. Von er á plötu með Snafu í haust, og verður hún gefin út af Smekkleysu. Það gekk á með skini og skúrum þetta kvöld. Því næst tróð eins manns sveitin The Motherf***ing Clash upp, það atriði sem ég beið hvað mest eftir. Hér var komin ung stúlka, ein með kassagítarinn, kærasta Ricks Hoaks, trymbils TFD. Á ferðinni var ein- hvers konar blanda af uppistandi, tón- leikum og pólitík; áhugaverð hug- mynd sem fór fyrir ofan garð og neðan, því er nú verr og miður. Stemningin var engin í garð aumingja telpunnar og atriðið hitti engan veg- inn í mark. Kannski spilaði umhverfið þarna inn í en alltént fór þetta aldrei á flug. Ég veit ekki hvort einhverjar neikvæðar jónir voru eftir í loftinu en það var eitthvað sem vantaði upp á tónleika hins ógurlega Forgarðs hel- vítis. Sveitin var á fullu, forsöngvar- inn á fullu, allt á fullu. En eitthvað vantaði – engir straumar í gangi. Svona getur það bara verið stundum. Gengur betur næst. Síðust á svið var svo áðurnefnd Total F***ing Dest- ruction. Og hún olli engum vonbrigð- um. Það var frábært að sjá hvernig þetta tríó lék sér með mulningsrokk- ið, svo úr varð hreinasta list. Nei, ég grínast ekki. Mulningsrokkið er enda sú stefna innan þungarokksins sem kvíslast hvað ötullegast yfir í t.a.m. nútíma- djass og ýmislega „avant-garde“-tón- list. Þannig var ótrúlegt að horfa á Rick Hoak á trommusettinu og magn- aðan stíl hans, sem hvaða djass- trommari sem er hefði öfundast út í. Skiptingarnar ótrúlegar og samspil hans við gítar og bassa óaðfinnanlegt. Geysiþétt band, lögin frumleg og úr- vinnsla hugmyndarík. Líkt og Napalm Death og Frank Zappa hefðu slegið saman. Kvöldið semsagt upp og ofan en þó nægilega sveitt til að valda fínustu rokksköddun. Tónlist Morgunblaðið/Sigríður Total F***ing Destruction í stuði. Listrænn mulningur Tónleikar Grand Rokk Total F***ing Destruction o.fl. Total F***ing Destruction, The Mother- f***ing Clash, Forgarður helvítis, Snafu og Everything Starts Here léku á Grand Rokk föstudaginn 15. ágúst. Arnar Eggert Thoroddsen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.