Morgunblaðið - 12.09.2003, Síða 21
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2003 21
BÆJARSTJÓRN Sandgerðis hefur
samþykkt samninga við húsnæðis-
samvinnufélagið Búmenn og eignar-
haldsfélagið Miðnestorg ehf. um
uppbyggingu húsa fyrir íbúðir og
þjónustu við Miðnestorg í miðbæ
Sandgerðis. Fulltrúar minnihlutans
lýstu sig andvíga samningnum og
telja glannalega farið í fjármálum.
Samningur Sandgerðisbæjar og
Búmanna kveður á um byggingu
tveggja húsa í miðbæ Sandgerðis og
eru þau tengd saman með þjónustu-
húsi, alls um 3.000 fermetrar að
stærð. Í húsunum verða níu íbúðir á
vegum Búmanna, fjórar þjónustu-
íbúðir, skrifstofur Sandgerðisbæjar,
bókasafn bæjarins, eldhús og salir
og óráðstafað þjónusturými sem
ætlunin er að leigja út til fyrirtækja.
Húsnæðissamvinnufélagið Bú-
menn byggir húsið og leigir Sand-
gerðisbæ það pláss sem fer undir
bæjarskrifstofur, bókasafn og fleira.
Búmenn buðu byggingu hússins út á
dögunum og munu vera í viðræðum
við lægstbjóðanda, Húsagerðina
sem bauðst til að taka verkið að sér
fyrir tæpar 370 milljónir. Áformað
er að hefjast handa við framkvæmd-
ir síðar í mánuðinum.
Sandgerðisbær mun auk þess
verja nokkrum fjármunum til fegr-
unar svæðisins á byggingartímanum
og þátttöku í stofnkostnaði, að því er
fram kom í bæjarstjórn, 4,2 millj-
ónum á þessu ári, 11,5 milljónum á
því næsta og 13 milljónum á árinu
2005.
Óttast að í of mikið sé ráðist
Samningurinn var samþykktur á
fundi bæjarstjórnar í fyrradag með
fjórum atkvæðum fulltrúa meiri-
hlutans, K-lista Samfylkingar og
óháðra og D-lista Sjálfstæðisflokks.
Fulltrúar B-lista Framsóknarflokks
og Þ-lista Sandgerðislistans greiddu
atkvæði á móti.
Höskuldur Heiðar Ásgeirsson,
oddviti framsóknarmanna, segist
hafa áhyggjur af því að með samn-
ingnum sé bæjarfélagið að takast á
hendur meiri skuldbindingar en það
geti staðið undir. Sandgerðisbær
leigi 2.000 fermetra húspláss og
greiði fyrir rúmar 27 milljónir á ári,
auk virðisaukaskatts, með samningi
sem gildi til 25 ára og sé óuppsegj-
anlegur. Síðan eigi bæjarsjóður að
reyna að endurleigja öðrum ein-
hvern hluta af þessu plássi. Vísar
Heiðar til þess að inni í því húsnæði
sem bærinn leigir sé þjónusturými
sem ætlunin sé að leigja fyrirtækj-
um.
Heiðar segir að ekki hafi legið fyr-
ir mat á áhrifum þessa samnings á
fjárhag bæjarsjóðs þegar málið var
tekið til afgreiðslu. Því liggi ekki
fyrir hvort bæjarsjóður geti staðið
undir þessum skuldbindingum.
Sjálfur telur Heiðar glannalega far-
ið. Hann segist jafnframt hafa hug á
að kanna betur hvort bæjarstjórn
hafi verið heimilt að samþykkja
samninginn án þess að slíkt mat á
áhrifum hans hafi legið fyrir.
Við afgreiðslu málsins rifjaði
meirihluti bæjarstjórnar og bæjar-
stjóri upp aðdraganda málsins og
lagði fram í bókun, í tilefni gagnrýni
Heiðars. Þar kemur fram það álit að
bæjarfulltrúar hafi fengið allar for-
sendur til að taka ákvörðun um upp-
byggingu á miðbæjarsvæðinu og
lýst undrun á afstöðu Heiðars Ás-
geirssonar.
„Það er skoðun meirihluta bæj-
arstjórnar og bæjarstjóra að fram-
kvæmdin verði til hagsældar fyrir
bæjarkjarnann enda er með fram-
kvæmdinni lagður metnaður í betri
þjónustu og vöxt í bæjarfélaginu.
Við undirrituð eigum okkur framtíð-
arsýn í uppbyggingu svæðisins og
vísum til föðurhúsanna þeirri böl-
sýni og svartsýni sem kemur fram í
bókun B-listans,“ segir í bókun full-
trúa meirihlutans og bæjarstjórans.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Uppbygging miðbæjar Sandgerðis fer fram á auða svæðinu fyrir miðju myndarinnar en það hefur verið nefnt
Miðnestorg. Verslunarhús Samkaupa sést til vinstri á myndinni. Framkvæmdir hefjast síðar í mánuðinum.
Sandgerðisbær leigir
húsnæðið af Búmönnum
Sandgerði
Framkvæmdir að hefjast við uppbyggingu á Miðnestorgi
Minnihlutinn telur glannalega farið
UNDIRBÚNINGUR er hafinn að
gerð heimildarmyndar um Reykja-
nesbrautina, væntanlega hraðbraut
Íslands.
Aðstandendur myndarinnar hafa
verið leita eftir styrkjum hjá
sveitarfélögunum á Suðurnesjum
til að gera myndina. Í bréfi þeirra
kemur fram að sýnd verður
breytingin á þessari leið frá því Óli
póstur lagði vörður eftir
Reykjanesinu til þess að Reykjanes-
brautin breytist í stystu hraðbraut í
heimi, eða hraðbraut Íslands.
Fjallað verður um atburði sem
tengjast brautinni, meðal annars
Keflavíkurgöngur hernáms-
andstæðinga. Nefnt er að margar
og skemmtilegar þjóðsögur gerist
á leiðinni og einnig gerð grein fyrir
byggðarlögunum og varnarliðinu.
Að verkefninu komu Kristlaug
Sigurðardóttir kvikmyndafram-
leiðandi, Hrafnhildur Hafberg
framkvæmdastjóri og Viðar Odd-
geirsson kvikmyndatökumaður.
Samstarfsaðili þeirra er kvik-
myndafyrirtækið Glansmyndir.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Tekið framúr á Reykjanesbrautinni, álver Íslenska álfélagsins í Straumsvík nálgast óðfluga.
Heimildarmynd um
hraðbraut Íslands
Reykjanesbraut
LÖGREGLAN í Keflavík segir að
allt of algengt sé að börn fari
hjálmlaus í skólann á reiðhjólum.
Undanfarna daga hefur lögreglan
lagt áherslu á að sinna umferðareft-
irliti við skólana í umdæmi sínu. Í
dagbók hennar kemur fram að víða
er ýmsum hlutum ábótavant.
Of mikið er um að börnin hjóli
hjálmlaus í skólann. Þá skapast oft
umferðarteppa við skólana þegar
foreldrar aka börnum sínum þang-
að og víða vantar betra skipulag á
hlutina. Hefur lögreglan unnið að
úrbótum á því sviði í samráði við
kennara, foreldra og skipulagsyfir-
völd.
„Þurfa allir að leggjast á eitt til
þess að tryggja öryggi barnanna á
leið í skólann, sérstaklega þarf að
leggja áherslu á þau yngstu,“ segir
í dagbók lögreglunnar.
Of algengt að börn
hjóli hjálmlaus í skóla
Suðurnes
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur hafnað kröfu Vatnsleysustrand-
arhrepps um að ákvarðanir húsnæðis-
nefnda Garðabæjar og Seltjarnarness
um að mæla með viðbótarlánum til
kaupa skjólstæðinga þeirra á húsnæði
í Vogum. Hins vegar vekur ráðuneyt-
ið athygli á því að ákvörðun húsnæðis-
nefndar Garðabæjar er í andstöðu við
eigin vinnureglur nefndarinnar.
Vatnsleysustrandarhreppur gerði
athugasemdir við að einstök sveitar-
félög eða húsnæðisnefndir þeirra hafi
beint því til Íbúðalánasjóðs að veita
einstaklingum viðbótarlán til kaupa á
fasteignum utan viðkomandi sveitar-
félags. Nefnd voru dæmi um slíkar
ráðstafanir húsnæðisnefnda Garða-
bæjar og Seltjarnarness í Vogum, án
þess að húsnæðisnefndin þar hafi
komið að málum.
Leitaði sveitarstjórn til félagsmála-
ráðuneytisins. Í áliti þess sem nýlega
var gengið frá kemur fram að ráðu-
neytið tekur undir þau sjónarmið
hreppsins að í lögum og reglugerð sé
á því byggt að það séu húsnæðis-
nefndir viðkomandi sveitarfélaga sem
taki ákvarðanir um húsnæðismál á
sínu svæði og það sé verkefni viðkom-
andi sveitarfélags að ráða málum inn-
an sinna umdæma. Ráðuneytið hafn-
aði því hins vegar að fella niður
umræddar ákvarðanir húsnæðis-
nefnda Garðabæjar og Seltjarnarness
um viðbótarlán vegna ríkra hagsmuna
þeirra umsækjenda sem keypt hafa
húsnæði á grundvelli þeirra. Loks
tekur ráðuneytið undir þá ósk Vatns-
leysustrandarhrepps að gerðar verði
ráðstafanir til að slíkt endurtaki sig
ekki.
Álitið var kynnt á fundi hrepps-
nefndar. Þar kom fram að sveitar-
stjóri muni eiga fund með lögfræðingi
hreppsins um framhald málsins.
Tekið er undir
sjónarmið hreppsins
Vogar
HREPPSNEFND Gerðahrepps hefur
ákveðið að óska eftir viðræðum við
varnarmálaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins um að svæði norðan við
Rósaselstorg, í nágrenni Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar, verði fært út fyrir
varnarsvæði þannig að Gerðahrepp-
ur geti ráðstafað því.
Baugur Group hf. er að leita að
hagkvæmum lóðum fyrir bens-
ínstöðvar. Nýlega óskaði félagið eftir
viðræðum við Gerðahrepp um lóð
fyrir bensínstöð norðan hringtorgs á
mótum Reykjanesbrautar, Gerðaveg-
ar og Sandgerðisvegar, svokallað
Rósaselstorg.
Við umfjöllun í skipulags- og bygg-
ingarnefnd Gerðahrepps kom fram
að svæðið er innan varnarsvæða og
vakin athygli á því að ef ekki takist að
fá það tekið undan varnarsvæði þurfi
lóðarfyrirspurnin að fara til umfjöll-
unar skipulags- og byggingarnefndar
varnarsvæða. Hreppsnefndin hefur
nú ákveðið að óska eftir viðræðum
við varnarmálaskrifstofu um málið.
Vilja fá bensínstöð
við Rósaselstorg
Gerðahreppur