Morgunblaðið - 12.09.2003, Page 45

Morgunblaðið - 12.09.2003, Page 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2003 45 sem Katla Rún óx varð hún hændari að afa sínum og hann að henni. Þið voruð ótrúleg saman. Hún gat spilað soldið með hann afa sinn. Það þurfti ekki mikið suð þá varstu rokinn af stað og búinn að segja já við öllum hennar óskum. En svona vildir þú hafa þetta. Ég sagði oft við þig að þetta kæmi nú í bakið á þér að láta svona eftir stelpunni, en þú hafðir bara lúmskt gaman af þessu öllu. Á þessu ári bættust svo þrjú barnabörn í hópinn, tvær stelpur og einn strákur, þannig að barnabörnin voru allt í einu orðin sjö. En þér tókst að gefa öllum tíma. Það var enginn útundan. Meira að segja Katla Rún sem átti í afa sínum hvert bein skildi alveg að nú væri hún stóra frænka og yrði að hjálpa til með litlu frænkur og frænda. Sorg- legast er að þau litlu fá aldrei að kynnast afa sínum, en við sem eftir erum verðum að vera dugleg að segja þeim frá þér. Að lokum vil ég segja þér, Villi minn, að mér finnst svo gott til þess að hugsa að síðustu nóttina sem þú lifðir fengu Katla Rún og Brynjar Freyr að sofa hjá afa og ömmu. Þú hafðir eins og svo oft áður hringt í mig á föstudaginn og spurt hvort þú mættir ekki sækja Kötlu í leikskól- ann og fara með hana á Duus þar sem verið var að opna listasýningu hjá gömlum vini þínum. Þú fórst með prinsessuna með þér og þú varst svo montinn með hana því hún var svo stillt og prúð. Síðan bauðstu Brynj- ari líka að gista sem hann auðvitað þáði því það var svo gott að dvelja í Háholtinu í góðu yfirlæti. Elsku Villi minn, takk fyrir allt, með sorg og trega í hjarta kveð ég þig og ég bið Guð að styrkja okkur öll. Þín tengdadóttir Kristín Jóna. Það var sunnudagur, það var sept- ember og árið var 2000. Við Margeir fórum í bíltúr og var ferðinni heitið suður með sjó. Fyrsta stopp var Bláa lónið, þaðan keyrðum við í Hafnirnar og sýndi Margeir mér m.a. Braut- arhól þar sem langamma hans hafði búið. Því næst var keyrt til Sand- gerðis og Leiruleiðina til Keflavíkur. Áður en ég vissi af vorum við stopp fyrir utan Háholt 19. Margeir drap á bílnum og steig út. Ég hins vegar haggaðist ekki. Komdu inn, sagði hann við mig, það er kominn tími til og svo gekk hann inn. Ég sat enn í bílnum og hugsaði með mér að ég gæti nú ekki hitt foreldra hans í fyrsta skipti eins og ég var til fara, íþróttagalli og ómáluð. Hann minnt- ist ekkert á að við færum hingað hugsaði ég, annars hefði ég sett upp andlit og farið í betri föt. Við Margeir höfðum þekkst í fimm ár og verið mjög góðir vinir síðustu tvö. Ég vissi hver Garðar og Svanur voru, hafði séð þá öðru hverju á golf- vellinum, Villa yngri hafði ég hins vegar þekkt mun betur. Hann vann með okkur við golfþing sem GR hélt árið 1999 og einnig var ég svo lánsöm að kynnast honum enn betur á Landsmótinu í golfi sem haldið var á Akureyri í ágúst árið 2000. Í dag er sá tími ómetanlegur, ekki bara fyrir mig heldur Margeir líka. Völu systur hafði ég ekki hitt. Ekki gat ég setið úti í bíl svo inn fór ég á eftir Mar- geiri. Frá þessum degi hef ég ekki þurft að hika við að fara út úr bílnum þegar við höfum rennt suður. Mér var strax vel tekið og Vilhjálmur og Sigrún létu mig finna það alveg frá upphafi að á Háholtið væri ég alltaf velkomin. Betri tengdaforeldra er ekki hægt að hugsa sér. Villi, eins og hann var alltaf kall- aður, hafði alla tíð stundað íþróttir og ég hugsaði það oft þegar ég hitti hann hvað það væri mikill munur að sjá fimmtugan mann svona vel á sig kominn. Þegar við Margeir fluttum í Hamravíkina tók Villi ekki annað í mál en að fá að leggja parketið og flísarnar og mætti hann eftir vinnu til okkar og parket og flísar var lagt á mettíma. Aðra eins barnagælu hafði ég heldur ekki hitt. Það leið varla sú helgi að Viktor bæði ekki um að fara til Keflavíkur að hitta afa Villa, hann vildi helst búa í Keflavík. Barnabörnin voru stór þáttur í lífi Villa og hann fann alltaf tíma fyrir þau. Síðustu átta mánuði hafa þrjú barnabörn fæðst og það hefur verið unun að fylgjast með þeim í fangi Villa. Hann hafði sérstakt lag á að ná athygli þeirra, nokkuð sem ég hef aldrei fyrr séð og mun aldrei sjá aft- ur. Dagur minn var ekki gamall þeg- ar Villa tókst að fá hann til að brosa og aldrei hef ég heyrt lítið barn hlæja jafndátt í fangi nokkurs manns og hjá afa Villa. Ásgeir, Brynjar, Katla og Viktor hafa misst mikið en sá tími sem afi Villi átti með þeim er þeim ómetanlegur. Dagur, Vilborg og Svava Ósk áttu öll sína fáu en yndislegu mánuði með honum og ég veit að hann mun áfram fylgjast með þeim og leika við þau á sinn einstaka hátt. Í dag er skírnardagur Dags og Svövu Óskar mér efst í huga. Við Margeir vorum ekki á leiðinni að skíra strax en í dag er ég þakklát fyrir að Háholt 19 og laugardagurinn 2. ágúst síðasliðinn hafi orðið fyrir valinu. Minningin um ferðina upp í Skorradal með fjölskyldunni eftir skírnina mun alltaf lifa. Ég er ekki enn búin að ná því að þú sért dáinn, elsku Villi minn, og ég mun aldrei sætta mig við þetta. Þetta er bara rugl. Elsku Sigrún mín, missir þinn og ykkar allra er mikill og það er ekki rétt að leggja svona mikið á eina fjöl- skyldu. Styrkur þinn síðustu daga hefur verið alveg ótrúlegur og held- ur okkur hinum gangandi á þessum erfiðu tímum. Elsku Margeir minn, Viktor og Dagur litli, ég get lítið annað gert en að hugsa vel um ykkur og við vitum að afi Villi var bestur. Garðar, Svan- ur og Vala, þið hafið misst mikið og sendi ég ykkur og fjölskyldum ykkar mínar innilegustu samúðarkveðjur. Ketill minn, það er mikið á þig lagt, elsku vinur, en við vitum að Villi er í góðum höndum ömmu Valgerðar og Vilhjálms yngri. Bræðrum Villa og fjölskyldum þeirra votta ég einnig mína dýpstu samúð. Villi minn, hvíl í friði og við höld- um áfram þar sem frá var horfið þeg- ar við hittumst á ný. Þín Herborg. Elsku afi, þú varst alltaf góður við okkur og alla krakka. Öllum þótti vænt um þig og enginn vildi missa þig. Við gleymum aldrei sögunum sem þú sagðir okkur. Þú varst bara einum of góður til að vera tekinn burt frá okkur. Þú varst hreinlega besti afi í heimi og við söknum þín mikið. Vertu guð faðir, faðir minn í frelsarans Jesú nafni hönd þín leiði mig út og inn svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson.) Þín Ásgeir Elvar, Brynjar Freyr og Katla Rún. Dauðinn birtist í svo mörgum ólík- um myndum, stundum kemur hann hægt og nánast falinn eða svo hratt að augað eigi festir. Þessi orð lét Villi bróðir falla í minningargrein um móður okkar fyrir rétt rúmu ári síð- an. Varla hefðum við getað ímyndað okkur þá, að eitthvað slíkt myndi henda okkur svo fljótt aftur, rétt um það leyti sem birta tók á ný í hjarta okkar allra. Nú sjáum við á eftir okk- ar elsta bróður í faðm hins almátt- uga, bróður sem í senn var fyrir- mynd hreysti, elju og dugnaðar, fyrirmynd skóla- og uppeldismála og síðast en ekki síst, var hann fyrir- myndar faðir, afi og bróðir. Sýndi það og sannaði jafnvel allt í sömu andránni! Vandamál sem öðrum óx í augum, voru jafnvel óyfirstíganleg á stund- um, leystust í meðförum hans af meðfæddri umhyggju og ástúð fyrir mannfólki, hvar sem það var statt í lífinu. Mest þó hjá þeim sem minna máttu sín og höfðu orðið undir í lífs- baráttunni og kapphlaupi tímans. Hugur minn reikar aftur til Tún- götunnar, þar sem við bræður ól- umst upp í kotinu litla, umvafðir kærleika og kátínu. Villi var þó fljót- ur að finna sér lífsförunaut og fyrr en varði var hann floginn úr hreiðr- inu með Sigrúnu sinni, rétt um það bil sem ég komst til vits og ára. Ég man þó vel eftir því þegar hann kom heim úr heimshornaflakki frá Ber- múda og færði okkur yngstu bræðr- um boli, merktum landinu fjarlæga, og allir supu hveljur í skólanum af öf- und. Við fylgdumst vel með því þeg- ar hann kleif upp metorðastigann í fótboltanum, söfnuðum og klipptum út umsagnir í blöðunum um baráttu hans og vilja á knattspyrnuvellinum, eitthvað sem hann átti síðar meir eft- ir að tileinka sér í hinu daglega lífi og verða öðrum til eftirbreytni. Ófáar stundir sat ég hjá Villa og Sigrúnu á Ásabrautinni og passaði gormana þeirra yngstu, sem þá voru orðnir tveir, annar gæðablóð en hinn hamhleypa. Gleymi því aldrei hversu gaman var að vera sóttur í grænu Chevy Novunni og síðan ekið heim í hendingskasti, á kolólöglegum hraða, af því litla bróður fannst svo gaman að renna til á sætisbekknum í amerísku drossíunni. Oftast þá með nokkra hundraðkalla í vasanum fyrir viðveruna, sem fór þó að mestu í sjónvarpsgláp í pínulitla Kanasjón- varpstækinu. Þegar ég hins vegar nálgast tán- ingsaldurinn er Villi farinn að kenna í skólanum og einn vetur sat ég í tíma hjá honum þar sem hann kenndi skrift. Hann hafði einstak- lega fallega rithönd og var vel skrif- andi, hvort heldur sem um var að ræða fagurfræði eða heimildarritun. Hrein unun að lesa það sem eftir hann lá og mér og öðrum hvatning til frekari dáða á þeim vettvangi. Stelpunum í bekknum fannst hann ægilega sætur og sögðu að hann væri alveg eins og Paul McCartney í Bítlunum. Ég naut góðs af og fékk meiri athygli en ella hjá stelpunum af Heiðarbrúninni. Seinna meir átti Villi eftir að setjast þar að með fjöl- skylduna áður en þau fluttu í glæsi- heimilið að Háholti 19. Villi var mikill alþýðumaður og naut sín vel í hópi krata á uppgangs- tímabili Alþýðuflokksins í Keflavík, rétt um það leyti sem ég kemst á kosningaaldur. Ég fylgdi honum að verkum, bæði í ræðu og riti, og átti einstaklega góðar stundir í fylgd hans um pólitísk öngstræti bæjar- lífsins. Villi tók nefnilega af skarið þegar mér fannst aðrir sitja hjá, vann verk sín af einlægni og einurð, svo að eftir var tekið. En skólinn átti hug hans allan, jafnvel bæjarstjóra- stóllinn varð að víkja fyrir áhuga hans á menntamálum og lét hann sér í léttu rúmi liggja að segja skilið við æðstu stöðu bæjarfélagins. Hann var fyrst og fremst skólamaður, eng- inn gat tekið það frá honum og þar leið honum best. Þar var hann betri en nokkur annar að flestra mati, for- eldrar tóku honum fegins hendi á ný og umvöfðu hann óskabörnum þjóð- arinnar. Nú sitjum við eftir, hnípin á sorg- arstundu og endurnærumst af minn- ingunum um elskulegan bróður, sem leit eftir okkur hinum á ögur- stundum en naut sín mest og best í faðmi ört stækkandi fjölskyldu. Þeirra missir er mikill og erfiðasta raun. Ég vona að bráðlega birti á ný í þeim lífsins ólgusjó sem fjölskyldan hefur mátt þola og tek undir lokaorð bróður míns í áðurnefndri minning- argrein, að maður skuli hugleiða áfram tilvist sálarinnar og tilvistina í Paradís. Valur Ketilsson. Kæri bróðir, á fallegum og skemmtilegum degi Ljósanætur minnir sorgin, systir gleðinnar sem var jú í aðalhlutverki þennan dag, á sig. Á ýmsu átti ég von, Villi minn, en ekki þessu. Þú þessi hrausti og reglusami maður ert tekinn frá okk- ur fyrirvaralaust. Ég hélt að við hefðum verið búin að fá okkar skammt í bili, fyrst Villi þinn og svo mamma. Þú hittir þau fyrr en ráð var fyrir gert. En svona er lífið, ekki allt- af mjög sanngjarnt. Óskiljanlegt, satt að segja. Þú varst ekki aðeins elstur okkar bræðra, þú varst höfuð fjölskyldunn- ar, foringinn. Ákveðinn, fylginn þér, nákvæmur og vinnusamur. Kostir sem flestir foringjar hafa. Þeir komu þér til góða í þínum fjölbreyttu störf- um. Þér var treyst til góðra verka. Aðeins 36 ára varðst þú bæjarstjóri í Keflavík. En best kunnir þú við þig innan um börn og unglinga og þess vegna snerir þú aftur í skólann þinn, þar sem þú kunnir best við þig. Þú áttir svo auðvelt með að vinna með unga fólkinu sem sést best á ferli þínum sem skólastjóri og æskulýðs- fulltrúi. Þú hittir þína elskulegu Sigrúnu, eftirlifandi eiginkonu, þegar þið vor- uð fimmtán ára og hafið þið verið saman síðan. Í nær fjörutíu ár. Ykk- ur varð magra barna auðið en þið þurftuð að taka á móti sorginni í tví- gang, fyrst þegar þið misstuð Ásgeir nýfæddan og síðan Vilhjálm sem dó tvítugur fyrir þremur árum. Þá reyndi mikið á þig og ykkur en það var með ólíkindum hvað þið voruð sterk í þessari miklu sorg. Þú fylgdist alltaf vel með þínu fólki. Þú passaðir mig lítinn og í raun alveg þar til ég varð stálpaður. Ég man svo vel eftir að ég byrjaði með Víkurfréttir að ég fór fyrstu árin alltaf heim til þín og lét þig fá eintak, rétt áður en því var dreift. Ég leitaði oft til þín með ráðleggingar, það var svo gott að leita ráða hjá þér. Við unnum saman að mörgum málum og síðastliðið vor gerðum við saman blað, Mylluna, fyrir skólann þinn, Myllubakkaskóla. Þú fórst oft þínar leiðir og vildir fá sérblað fyrir skól- ann. Þú ljósmyndaðir sjálfur nokkur hundruð nemendur og við gerðum þetta fína blað. Þú ætlaðir að hætta að vinna sex- tugur, ekki degi seinna. Þetta fannst mér skemmtilegt markmið og við Ásdís mín ræddum það oft og sáum þig fyrir okkur sem rithöfund. Þú áttir svo ótrúlega auðvelt með að skrifa skemmtilegan og góðan texta. Ósjaldan stóðst þú upp og talaðir til fólks á tímamótum, t.d. á fertugsaf- mæli mínu og einnig Ásdísar afmæli í sumar. Því gleymi ég aldrei, það sem þú sagðir og hvernig þú sagðir það. Ég geymi þetta á myndbandi og á eftir að ylja mér við það síðar. Ég skoðaði myndavélina þína fyrir nokkrum dögum. Nokkur hundruð myndir frá sumrinu, nær allar af barnarbörnunum sem eru þrjú ný á þessu ári. Þú varst svo ótrúlegur afi og það sást svo vel hvernig þú varst við öll börn, úr þinni fjölskyldu og einnig í skólanum. Þú varst barna- maður. Mér finnst ótrúlega erfitt að skrifa um þig, kæri bróðir, því þú varst mér svo mikil fyrirmynd. Svo stór í mín- um huga. Ég sakna þín svo mikið. En lífið heldur áfram. Minningarnar um þig koma í röðum í huganum, allt frá því ég passaði fyrir ykkur í risinu á Ásabrautinni í Keflavík og var sem pjakkur að klippa út fótboltaum- sagnir um þig í blöðunum, fram á þinn lokadag hérna megin sem var síðastliðinn laugardag, á Ljósanótt. Ég beið eftir að þú kæmir til að skoða ljósmyndasýninguna mína. Í stað þín kom lögreglan með mynd af þér. Hvernig á maður að skilja svona lagað. Það mun taka sinn tíma. Sjáumst síðar, elsku Villi. Þinn bróðir, Páll Hilmar. Sárt er vinar að sakna, sorgin er djúp og hljóð. Minningarnar mætar vakna, svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta, lýsir upp myrkrið svarta, vinir þó falli frá. Góðar minningar geyma, gefur syrgjendum ró. Til þín munu þakkir streyma, þér munum við ei gleyma, sofðu í sælli ró. Ég kveð ástkæran mág minn með söknuði og þakklæti fyrir allt sem hann var okkur, fjölskyldunni á Bragavöllunum. Hann var horn- steinn stórfjölskyldunnar og hjarta- hlýrri manni hef ég ekki kynnst. Ég veit að nú hittast þau hinum megin, Villi og Ásgeir synir hans og Gerða móðir hans. Það verða fagnaðar- fundir. Ég bið guð að styrkja Sigrúnu, börnin og aðra ástvini. Þín mágkona, Ásdís Björk. Elsku mágur. Hugurinn barðist við afneitun og ég reyndi allt til að fá afslátt af þeirri tilfinningu sem greip mig þegar Sigrún systir mín hringdi og tilkynnti mér þessi hörmulegu tíðindi. Fyrir aðeins þremur árum barði sorgin dyra hjá fjölskyldunni í Háholti 19 og enn reynir á styrk þeirra. Í mínum huga var Vilhjálmur Ketilsson tákn heilbrigðs lífernis. Vilhjálmur var fæddur foringi, fyr- irmyndarfjölskyldufaðir og skóla- maður af Guðs náð. Hann varð þeirr- ar gæfu aðnjótandi að velja sér lífsstarf sem jafnframt var hans áhugamál. Margt leitar á hugann, og fáum við seint þakkað forsjóninni fyrir að eignast Vilhjálm sem fjöl- skyldumeðlim en fyrst og fremst sem vin. Við eignuðumst okkar fyrstu börn um svipað leyti. Fórum saman í okkar fyrstu fjölskylduferð- ir og áttum saman dásamlegar stundir í Skorradalnum. Vilhjálmur var einstaklega laginn við börn og sagði margar furðusögur af tröllum og fyrirbærum. Gamla og nýja tíma þekkti hann vel og minntist oft á veru sína hjá ömmu og afa í Höfn- unum. Það skarð verður vandfyllt sem Vilhjálmur gegndi í stórfjöl- skyldunni, hann var lykilmaður í svo mörgu tilliti, við ýmis tímamót flutti Vilhjálmur minningar um lífshlaup fjölskyldumeðlima af hreinni snilld á gullaldarmáli. Já það var hrein unun að heyra hann flytja ritað mál samið af næmi og vandvirkni sem ein- kenndu öll hans verk. Um leið og ég kveð þig, vinur sæll, vill fjölskylda mín þakka þér fyrir allt. Við munum sakna þín sárt og heiðra minningu þína best með því að halda ótrauð áfram. Nú reynir á tryggð, fjölskyldu- og vináttubönd. Hvíl í friði góði vinur. Elsku Sigrún, fjölskyldu og ástvin- um sendum við samúðarkveðju. Sturlaugur Ólafsson og fjölskylda. Ég má til með að skrifa nokkur orð um heiðursmanninn Vilhjálm Ketilsson, sem Sigrún móðursystir mín kom með inn í fjölskylduna um svipað leyti og ég fæddist. Aftur og aftur þegar að ég var barn stigu þau hjónin inn í líf mitt er á reyndi. Eftir að ég varð fullorðinn var Villi sá sem ég leitaði til þegar að ég var að taka mín stóru skref og þurfti stuðning. Mig skortir orð til að lýsa þakklæti mínu fyrir að hafa notið Villa og fyrir áhugann, örlætið og væntumþykj- una sem hann sýndi mér. Það eru einstök forréttindi að fá að kynnast manni sem var eins trúr sér og stefnufastur og Villi. Stórir menn eins og Villi skilja eftir sig stór spor sem ekki verður fyllt upp í. Það var mikil gæfa fyrir Villa að kynnast Sigrúnu og ganga sína lífs- göngu með henni frá unglingsaldri. Við hlið stórra manna eru stórar konur. Það er engin tilviljun að þau eign- uðust þann myndarlega afkomenda- hóp sem börn þeirra og barnabörn eru. Börn voru Villa yndi og hann var yndi barna. Þeim sem þekktu Villa kom það ekki á óvart að hann gæfi upp starf bæjarstjóra fyrir skólastarfið. Þau eru óteljandi börnin sem notið hafa Villa. Kannski var það í hlut- verki hans sem stóra bróður sem hann tók fyrstu skrefin. Ég á auðvelt með að sjá það í gegnum vináttu mína við Palla bróður hans og fjöl- skyldu. Elsku hjartans frænka, ég finn svo mikið til með þér, missir þinn er svo mikill. Megi góður Guð og allt það sem gott er vera með þér. Elsku Gæi, Maddi, Svanur, Vala Rún, makar og börn, ég samhryggist ykkur innilega. Missir barna- barnanna sem áttu hug og hjarta afa síns er svo mikill. Föður Villa, bræðrum, tengdaföður, honum afa, tengdafjölskyldu, vinum, samstarfs- fólki og nemendum sendi ég samúð- arkveðjur og öllum öðrum sem um sárt eiga að binda. Ólafur.  Fleiri minningargreinar um Vil- hjálm Ketilsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.