Morgunblaðið - 17.09.2003, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2003 9
LAXAVERTÍÐINNI er senn lokið,
nokkrar ár loka 20. september og
Rangárnar, vegna eðlis laxa-
gangna þeirra, fá að standa opnar
veiðimönnum út september. Í heild
er útlit fyrir gott sumar, en lítið
var þó af eins árs laxi í nokkrum
ám nyrðra. Veiðifréttir hríslast enn
inn á borð, ekki síst sjóbirtings-
fréttir, en vertíð hans er nú að
komast í algleyming.
Mikið líf í Kjósinni
Veiðimenn sem voru í vikubyrj-
un á sjóbirtingsdegi í Laxá í Kjós
sáu mikið líf, bæði laxa og sjóbirt-
inga. Veiddu þó fremur lítið því
logn og sól var allan daginn.
Nokkrir nýgengnir 1 til 2 punda
lutu þó í gras, en þeir stærri og
legnu tóku ekki. Undir myrkur tók
svo 9 punda lax á Pollabreiðu og
var landað.
Ekki alls staðar líf
Víða að hafa borist fregnir af
sjóbirtingsafla síðustu daga, en þó
ekki alls staðar frá. Menn sem voru
t.d. nýverið í Fossálum fengu t.d.
aðeins einn grútleginn 4 punda
birting og misstu tvo aðra. Sáu lítið
þar fyrir utan, en krydduðu þó
veiðidaginn með því að landa
nokkrum smáum bleikjum. Þeir
sem þekkja Fossála vita hins vegar
að þar breytast hlutirnir hratt.
Enn að kroppast úr Rangánum
Á sextánda hundrað laxar hafa
nú veiðst í hvorri Rangá fyrir sig.
Eru þær óvenju samstiga, en lík-
lega væri Eystri Rangá með for-
ystu að venju ef ekki hefðu komið
til óvenjumargir erfiðir dagar
vegna gruggs í ánni. Þetta er
miklu betri veiði heldur en í fyrra,
mörg hundruð löxum meiri afli og
enn kroppast fiskur á land. Ber
meira að segja enn á því að ný-
gengnir fiskar náist á þurrt.
Hvaðan kom hann?
Þröstur Elliðason sagði í samtali
við Morgunblaðið að nýlega hefði
veiðst 2 punda örmerktur hængur í
Efri Beljanda í Breiðdalsá. „Ég
hlakka til að sjá hvaðan þessi
stubbur kom, því ekki er hann úr
Breiðdalnum. Það var ekkert
gönguseiði örmerkt hjá mér í
fyrra. Hins vegar á ég ekki von á
því að þetta sé fiskur úr eldinu
hérna fyrir austan. Ég sé ekki fyrir
mér kynþroska lax af norsku kyni
sem rétt slefar í 2 pund!“ sagði
Þröstur. Örmerktir fiskar um 12
pundin hafa hins vegar veiðst úr
sleppingum Þrastar vorið 2001.
Kræfur hegri
Veiðimenn sem voru að egna fyr-
ir sjóbirting í Tungulæk í Land-
broti fyrir fáum dögum lentu í því
að styggja gráhegra sem var á sil-
ungsveiðum í ánni. Fyrstu viðbrögð
fuglsins voru að ráðast með
vængjaslætti að veiðimönnunum,
en þar sem gráhegrar eru í eðli
sínu styggir, lét hann af áreitinu
fljótlega og flutti sig neðar á ána.
Þar sást til hans hrekja álftir í
burtu og þarf talsvert til.
Haustveiðin víða lífleg
Morgunblaðið/Einar Falur
Kristinn Á. Ingólfsson með níu
punda hæng úr Laxá í Kjós.
Morgunblaðið/Einar Falur
Vera Roth og Steinar Viðarsson
með sjóbleikjur úr Fjarðará.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands
hefur úrskurðað karlmann í
þriggja vikna gæsluvarðhald en
lögreglan í Árnessýslu handtók
manninn á sunnudag vegna
gruns um innbrot í veitingastað-
inn Hafið bláa við Óseyrarbrú í
fyrrinótt. Maðurinn er grunaður
um að hafa framið fjölda annarra
afbrota á undanförnum dögum.
Maðurinn er grunaður um inn-
brot í grunnskólann á Eyrar-
bakka í síðustu viku. Tölvuprent-
ari sem þaðan var stolið fannst
við leit á heimili mannsins og lög-
reglan á Selfossi segist hafa í fór-
um sínum sönnunargögn sem
styðji gruninn. Þá fundust í bíl
mannsins hlutir sem tengjast
innbrotum í bíla í Reykjavík um
helgina.
Auk þessara mála eru til rann-
sóknar önnur þjófnaðarmál sem
maðurinn er grunaður um að
tengjast, þar á meðal innbrot og
þjófnaður úr bílum í Þorlákshöfn
í liðinni viku. Þessu til viðbótar
eru til rannsóknar meint umferð-
arlagabrot mannsins sem er
grunaður um að hafa oftar en
einu sinni ekið ölvaður og sviptur
ökurétti.
Síbrotamaður úrskurð-
aður í gæsluvarðhald
Frumsýning 18. október
H
ljó
m
sv
ei
tin
Ja
gú
ar
og
Pá
ll
Ó
sk
ar
...Frumsýning18.október
MOTOWN: Í leikstjórn Harold Burr fyrrum söngvara The Platters og Mark Anthony.
Sýningin færir áhorfendur aftur til þess tíma sem kallaður hefur verið
The MOTOWN sound sem hófst uppúr 1960. Þetta er saga full af "soul".
Saga sem nefnd er eftir upptökuveri sem þeldökkir störfuðu við
og sköpuðu tónlist sem gleymist aldrei.
MOTOWN
Sister Sledge
24. og 25. október Sími 533 1100
broadway@broadway.is
19. sept. Rat Pack
27. sept. Hljómar
2. okt. Smokie
3. okt. Smokie
4. okt. Lokahóf KSÍ - Stuðmenn, opið ball
17. okt. Bíódagar Húsvíkinga
18. okt. MOTOWN og ball
24. okt. Sister Sledge Tónleikar
25. okt. MOTOWN og Sister Sledge
7. nóv. MOTOWN og Papar/Skítamórall
15. nóv. Uppskeruhátíð hestamanna -
Brimkló, opið ball
RatPack
Smokie 20. nóv. Herra Ísland21. nóv. Jólahlaðborð og dansleikur22. nóv. Jólahlaðborð, MOTOWN, Milljónamæringarnir
28. nóv. Jólahlaðborð og dansleikur
29. nóv. Jólahlaðborð, MOTOWN, Milljónamæringarnir
5. des. Jólahlaðborð og dansleikur
6. des. Jólahlaðborð, MOTOWN, Milljónamæringarnir
12. des. Jólahlaðborð og dansleikur
13. des. Jólahlaðborð, MOTOWN
26. des. Papar og Brimkló
31. des. Sálin hans Jóns míns
1. jan. Nýársfagnaður
...kölluðu þeir sig þrír af þekktustu
söngvurum heims um miðbik síðustu
aldar, Frank Sinatra, Dean Martin
og Sammy Davis jr. Páll Rósinkranz,
Harold Burr og Geir Ólafs eru RatPack
á Broadway. 20 manna stórsveit undir
stjórn Ólafs Gauks spilar undir.
Gestasöngkona Bryndís Ásmundsdóttir.
...hin heimsfræga
hljómsveit með
smell eins og Living
Next Door to Alice
19. september
2. og 3.
október
Þær eru að koma aftur! Dagskráin framundan er þessi:
Öll laugardagskvöld í vetur.
Leikhúspakki þar sem skemmtilegir þjónar þjóna til borðs.
Nýt
t
efni
Missir einhver af þessu?
St
afr
æn
a h
ug
m
yn
da
sm
ðj
an
/3
59
4
Ný sending
Flauels- og gallafatnaður frá
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Stakir jakkar
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16