Morgunblaðið - 17.09.2003, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 17.09.2003, Blaðsíða 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2003 39 En því miður ertu farin en þú ert farin á betri stað og ég mun aldrei gleyma þér eða því sem þú hefur gert fyrir mig með því að vera til. Ég elska þig og vona að þú takir á móti mér þegar ég kem. Þinn frændi Hlynur. Stefanía var hjartagóð og falleg ung stúlka sem var rétt að byrja lífið. Brosið hennar bjarta, lýsti og gladdi þá sem nærri voru. En það er svo ótrúlega stutt á milli lífsins og dauðans. Orð eru fátækleg á þessari miklu sorgarstund. Einn strengur í hörpu fjölskyldunnar er slitinn. Hljómurinn verður aldrei sá sami. Það þarf að stilla þá strengi sem eftir eru og fá þá til að hljóma aftur skært og fallega. Nú er það okkar vinanna að rétta hjálparhönd og fjölskyldunnar allrar að styrkja hvert annað. Sá tími sem okkur er úthlutað hér er mislangur. En fullvissan um það að lífið haldi áfram í ljósi Guðs og þeir sem dánir eru fylgi okkur í andanum, gerir missinn og sorgina bærilegri. Minningarnar um hið góða hjartalag Stefaníu og brosið sem lýsti allt upp, hjálpar þeim sem eftir standa til að finna á ný lífinu jákvæðan farveg. Það hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með þeirri samstöðu sem hefur myndast í fjölskyldunni og vinahópnum á þessum sorgardögum. Nú hafa foreldrarnir, okkar kæru vinir Pétur og Edda, ákveðið að stofna kærleikssjóð í minningu Stef- aníu. Þannig geta þau haldið minn- ingu dóttur sinnar á lofti um ókomin ár. Kærleikurinn er mikilvægasta aflið í samfélagi manna og þjóða. Við biðjum þess og trúum að kærleiks- sjóðurinn verði til blessunar og geti veitt þeim styrk sem eiga um sárt að binda. Þannig verður minningu Stef- aníu best haldið á lofti og hennar kærleiksbros mun lifa. Guð styrki og verndi alla fjölskyld- una. Þorvaldur, Dís og fjölskylda. Elsku Stefanía mín, mig langar svo að skrifa til þín nokkur orð þó svo að ég viti að þú heyrir bænir mínar. Ég vill þakka þér fyrir að hafa leyft mér að kynnast þér í lifanda lífi. Ég veit að ég þekkti þig í mjög stuttan tíma en þrátt fyrir það áttu mjög sérstak- an stað í mínu hjarta. Falleg ásjóna þín og persónuleiki munu aldrei hverfa mér úr minni. Þegar ég horfði fyrst djúpt í augun á þér og þú heill- aðir mig algjörlega upp úr skónum með fallega brosi þínu. Ég vildi óska þess að geta farið aft- ur í tímann og upplifað aftur góðu stundirnar sem við áttum saman. Til dæmis þegar við sátum undir stóra trénu, borðuðum tapas og hlógum saman. Þér fannst maturinn svo góð- ur að þú ætlaðir sko beint upp á hótel og segja stelpunum að það væri hægt að borða eitthvað annað en pizzur og hamborgara á Spáni. Ég gleymi því heldur ekki hvað þú fórst hjá þér þegar ég sagði þér hvað mér þætti þú sæt. Ég á ekkert nema góðar minn- ingar en hefði viljað eiga fleiri og kynnast þér betur. Ég gæfi allt til að fá að breyta at- burðarásinni á kveðjustundinni en vilja Guðs verður ekki breytt. Aldrei hefði mig grunað að þetta væri þín hinsta kveðjustund. Þú sveifst burt frá mér með englum Guðs og kvaddir okkur öll. Ég get vel hugsað mér að Guð hafi viljað þig í faðm sinn en það er samt erfitt að skilja svona grimm örlög. Þetta risti djúpt sár í sálu mína og um stund hélt ég að heimurinn væri að endalokum kominn. Þegar sársaukinn var sem mestur og ring- ulreiðin var að buga mig, fann ég allt í einu fyrir ró og kyrrð innra með mér. Ég fann fyrir návist þinni og geri það enn. Elsku Stefanía mín, þakka þér fyr- ir þann styrk sem þú hefur gefið mér og þínum nánustu. Án hans væri ómögulegt að yfirstíga þennan harm- leik og halda lífinu áfram. Ég veit að þú ert í góðum höndum og þjónar mikilvægu hlutverki í ríki Guðs. Von- andi fæ ég einhvern tíma að hitta þig þar aftur, elsku engillinn minn. Þinn vinur Arnar Fells Gunnarsson. Hve sæl, ó, hve sæl er hver leikandi lund, en lofaðu’ engan dag fyrir sólarlags stund. Um sólskin kvað fuglinn og sá hvergi skúr, þá sólin rann í haf, var hann kominn í búr. Um sumardag blómið í sakleysi hló, en sólin hvarf, og élið til foldar það sló. Og dátt lék sér barnið um dagmálamund, en dáið var og stirðnað um miðaftans stund. Svo örstutt er bil milli blíðu og éls, og brugðizt getur lánið frá morgni til kvelds. En gott átt þú, sál hver, sem Guð veitir frið, þó gæfan þín sé hverful um veraldar svið. Um Guðs frið þú syngur og grætur ei skúr, þó geymi þig um sólarlag fanganna búr. Sem barn Guðs þú unir sem blómstur við sól, þótt brothætt sé sem reyrinn þitt lukkunnar hjól. Þó lukkan sé brothætt, þó ljós þitt sé tál, sá leitar þín, sem finnur og týnir engri sál. Hve sæl, ó, hve sæl er hver leikandi lund, og lukkan hún er eilíf, þótt hverfi um stund. (Þýð. M. Joch.) Elsku Edda, Pétur, Jónbjörn, Edda Marý, Ósk, Bella, amma Mæja, Birna og aðrir ástvinir. Við biðjum góðan guð að umvefja ykkur og milda ykkar sára söknuð. Hvíl þú í friði elsku frænka, megi guð geyma þig og minning þín ylja alla tíð. Ásgeir frændi og fjölskylda. Elsku frænka. Ég hafði einmitt verið að hugsa til þín daginn áður en mamma færði mér sorgarfréttirnar, hvað það væri orðið langt síðan við hefðum sést. Hversu skammarlegt það væri hve lítið samband hefði verið síðustu ár. Fullt af minningum koma upp í hugann en öllu erfiðara er að koma þeim niður á blað. Ein fyrsta æsku- minning mín er þegar þú komst í heimsókn til okkar með mömmu þinni og pabba og mér sem hafði allt- af verið litla barnið fannst ég allt í einu vera rosa stór og mikilvæg í kringum litlu stelpuna sem þó var ekki nema tveimur árum yngri. Eða þegar þú varst nýbyrjuð í Austur- bæjarskólanum og „stóra stelpan“ farin að líta aðeins meira framhjá aldursmuninum. Við vorum saman alla daga og varla tími fyrir skóla eða píanótíma til að missa nú ekkert úr leikdeginum. Við töluðum um allt mögulegt, til dæmis Boggu ömmu sem okkur hafði langað að kynnast. Hvað okkur langaði mikið að skreppa upp til himna þó ekki væri nema í einn dag til að eyða með ömmu og við ætluðum báðar að eignast litlar dæt- ur í framtíðinni og skíra þær Vil- borgu. Ekki hafði neinn grunað þá að þú ættir eftir að leggja svona fljótt upp í ferðina miklu. Ég veit þó að amma hefur tekið vel á móti þér og ég er með ykkur í huganum. Elsku Pétur, Edda, Edda Marý, Ósk, Bella og Jónbjörn, ég sendi ykk- ur mínar innilegu samúðarkveðjur. Steinunn Arnardóttir. Elsku Stefanía. Þær eru ógleym- anlegar minningarnar sem komu upp í hugann er við heyrðum um ótíma- bært fráfall þitt. Þú litla sæta ljúfan góða sem ávallt brostir svo blítt. All- ar stundirnar sem við áttum saman í Pétursbúð og á Klapparstígnum eru okkur minnisstæðar. Þitt hlýja bros og viðmót sem bræddi öll hjörtu, sem og glaðværð þín og ferskleikinn sem um þig lék. Minningin um þig verður ávallt geymd í hjörtum okkar. Þessi orð eru skrifuð til þess að bera þakkir og kveðjur fyrir þær stundir sem þú gafst okkur. Þó styttist dagur, daprist ljós og dimmi meir og meir, ég þekki ljós, sem logar skært, það ljós, er aldrei deyr. (M. Joch.) Elsku Edda, Pétur og systkini. Við biðjum þann sem lífið gaf að hugga ykkur og styrkja í þessari miklu sorg. Með vinarkveðju. Ragnheiður Elín og Yngvi Örn. Ég var ekki búinn að þekkja þig lengi en tel mig samt hafa kynnst þér mjög vel. Þegar ég horfi til baka lít ég á þig sem engilinn sem kom í líf mitt í stutta stund og færði mér ótrúlega mikla hamingju. Þú varst eina mann- eskjan sem ég veit um sem hafði jafn yndislega fallegan persónuleika og útlit í senn. Það var eitthvað við þig sem fékk alla sem nálægt þér voru til þess að fyllast hamingju og gleði, þegar þú gekkst inn í herbergi ljóm- aði það og allir sem þar voru. Enginn veit af hverju svona yndislegar per- sónur eru teknar úr lífi okkar en ef það er einhver ástæða þá er hún ef- laust sú að það hefur verið skortur á hamingju þar sem þú ert nú. Minning þín mun ætíð lifa í hjarta mínu. Nánustu fjölskyldu, ættingjum og vinum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Gunnar Kristinsson. Við sem vinnum við grunnskóla landsins kveðjum á hverju vori nem- endur 10. bekkja. Við berum í brjósti ósk um gott gengi ungmennanna og vonum að allt gangi þeim í hag. Í aug- um okkar er þetta alltaf glæsilegur hópur og verðugir fulltrúar íslenskr- ar æsku. Þeir eru að leita á vit hins óþekkta til þess að öðlast meiri þroska og afla sér menntunar. Stef- anía var í þessum hópi okkar í Aust- urbæjarskóla fyrir þremur árum. Hún kom í bekkinn minn í 5. bekk og var ég umsjónarkennari hennar upp í 10. bekk. Hún sýndi fljótlega að hún var góður og vandvirkur nemandi og aflaði sér virðingar kennara og starfsmanna skólans fyrir sakir kurt- eisi og prúðmennsku. Hún var frem- ur hlédræg en eignaðist vinkonur sem bundust vinaböndum sem héldu upp úr grunnskólanum. Þegar ég kvaddi þessa nemendur mína vorið 2000 var ég bjartsýn fyrir þeirra hönd og vonaðist til þess að geta fylgst með þeim í framtíðinni. Það hvarflaði aldrei að mér að ég ætti eft- ir að kveðja einn þeirra hinni hinstu kveðju. Megi minningin um góða dóttur og systur vera foreldrum og systkinum styrkur á þessum erfiðu tímum. Guðrún Halldórsdóttir. Elsku Stefanía. Á tímabili vorum við bestu vinkonur, við vorum næst- um því óaðskiljanlegar. Við áttum margar góðar stundir saman og nú minnist ég þeirra með bros á vör og geymi þær í hjarta mínu, því að þær eru mér svo dýrmætar. Það er sárt að sætta sig við að þú sért farin frá okkur en ég veit í mínu hjarta að þú ert á góðum stað. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynn- ast þér og þínu fallega hjartalagi. Þú varst yndisleg manneskja og ég mun sakna þín sárt. Ég bið Guð að varðveita og blessa fjölskyldu þína á þessum erfiðu sorg- artímum. Hvíl í friði minn fagri vin, ég sé þig á nóttu í draumaheim, þar sem að englarnir vaka og ljósið skín. Ragnheiður. Elsku Stefanía. Að hugsa til þess að þú sért farin er ákaflega sárt og sorgin er mikil. Hvar sem þú varst geislaði af þér og þú varst alltaf svo hlý og góð, algjört æði. Það tók mig marga daga að átta mig á því að það varst þú sem varst farin, hélt að þú mundir koma einn daginn til mín eins og við höfðum talað um og við mund- um tala um ferðirnar okkar og skoða myndir. Ég verð að horfast í augu við sannleikann sem er mjög sárt, engill- inn minn. En ég veit að þú fylgist með mér, ég finn það. Að hafa fengið að kynnast þér og eiga þig sem vin- konu finnst mér vera gjöf frá Guði og verð ég honum ævinlega þakklát fyr- ir það. Þú varst yndisleg, Stefanía mín, og minninguna um þig mun ég ávallt geyma í hjarta mínu. Ég veit að þegar þú fórst þá varstu ánægð og allt var búið að ganga vel hjá þér og með þá vitneskju að leiðarljósi líður mér vel. Guð geymi þig, Stefanía mín. Þín vinkona Anna Linda. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, JÓSAFAT J. LÍNDAL fyrrverandi sparisjóðsstjóri, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð laugardaginn 6. september, verður jarðsung- inn frá Kópavogskirkju í dag, miðvikudaginn 17. september, kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlega bent á að láta hjúkrunar- heimilið Sunnuhlíð njóta þess, sími 560 4100. Erla Líndal, Jóhanna Líndal Zoëga, Tómas Zoëga, Kristín Líndal, Jónas Frímannsson, Jónatan Ásgeir Líndal, Helga Þorbergsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, KRISTINN BÆRINGSSON frá Ísafirði, andaðist á sjúkrahúsi í Vâxjö í Svíþjóð föstu- daginn 12. september síðastliðinn. Bryndís Sigurðardóttir, Svava Kristinsdóttir, Elínborg Ólöf Kristinsdóttir, Greger Karlsson og barnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ELÍSABET MAACK THORSTEINSSON, Smáraflöt 22, Garðabæ, sem andaðist sunnudaginn 7. september, verður jarðsungin frá Garðakirkju fimmtu- daginn 18. september kl. 13.30. Ragnar Thorsteinsson, Geir Thorsteinsson, Helga S. Helgadóttir, Pétur Thorsteinsson, A. Anna Stefánsdóttir, Hallgrímur Thorsteinsson, Ragnheiður Óskarsdóttir, Sigríður Thorsteinsson, Þórhallur Andrésson, Ragnheiður Thorsteinsson, Einar Rafnsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR HERMANN GRÍMSSON, Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstu- daginn 19. september kl. 13.30. Sigurlaug Helgadóttir, Gunnar Gauti Gunnarsson, Steinunn Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, AÐALBJÖRG JÓHANNA BERGMUNDSDÓTTIR frá Borgarhól, Vestmannaeyjum, sem lést mánudaginn 8. september, verður jarðsungin frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 20. september kl. 14.00. Birna Berg Bernódusdóttir, Elínborg Bernódusdóttir, Þóra Birgit Bernódusdóttir, Aðalbjörg Jóh. Bernódusdóttir, Helgi Bernódusson, Jón Bernódusson, Þuríður Bernódusdóttir, Elín Helga Magnúsdóttir, tengdabörn, ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.