Morgunblaðið - 17.09.2003, Side 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2003 15
„Við borðum mikilvægustu
máltíð dagsins oft á dag“
„Ég borða mikilvægustu máltíð
dagsins strax eftir útsendingu“
Mikilvægasta máltíð dagsins
FRAMBJÓÐENDUR sem gefið
hafa kost á sér til að taka við af sitj-
andi ríkisstjóra Kaliforníu í kosning-
um sem fara áttu fram hinn 7. októ-
ber sóru í gær að halda ótrauðir
kosningabaráttu sinni áfram, þrátt
fyrir að dómstólar hefðu úrskurðað
að kosningunum skyldi frestað, en
það gæti þýtt að þær yrðu ekki
haldnar fyrr en eftir fimm mánuði.
„Ég hélt ég væri að keppa í sprett-
hlaupi en svo virðist sem ég þurfi
núna að þreyta maraþonhlaup,“
sagði Steve Smith, ráðgjafi ríkis-
stjórans Grays Davis. „Og mér líkar
ekki einu sinni við hlaup yfirleitt.“
Níundi umdæmisáfrýjunardóm-
stóll Bandaríkjanna, skipaður þrem-
ur dómurum, úrskurðaði á mánudag
að kosningunum skyldi frestað
vegna þess að kosningavélar, sem til
stóð að nota í sumum kjördeildum,
væru úreltar. Vélarnar eru af sömu
gerð og komust í kastljós heims-
pressunnar haustið 2000, er atkvæði
í forsetakosningunum voru endurtal-
in á Flórída.
Dómstóllinn ákvað ekki nýja dag-
setningu fyrir kosningarnar en lýsti
stuðningi við tillögu borgararéttind-
astamtakanna American Civil Liber-
ties Union um að þær yrðu látnar
fara fram 2. marz 2004, um leið og
forkosningar demókrata fyrir for-
setakosningarnar sem þegar hefur
verið ákveðið að fari fram þennan
dag.
Verður áfrýjað til Hæstaréttar
Einn þeirra hópa sem áttu frum-
kvæði að því að kosningarnar voru
boðaðar – þ.e. söfnuðu nægilega
mörgum undirskriftum meðal kali-
fornískra kjósenda til að lög byðu að
boðað skyldi til kosninga þar sem
spurt yrði hvort afturkalla skyldi
embættisumboð Davis ríkisstjóra og
kjósa nýjan í hans stað – sagði strax
að hann myndi áfrýja úrskurðinum
til Hæstaréttar Bandaríkjanna. Gef-
inn var sjö daga kærufrestur áður en
úrskurðurinn tæki gildi.
Vararíkisstjórinn Cruz Bustam-
ante, eini þungavigtardemókratinn í
hópi þeirra sem kjósendur fá að velja
úr, ákveði þeir að svipta Davis emb-
ætti, og leikarinn Arnold Scwarzen-
egger, fylgismesti repúblikaninn
meðal frambjóðenda, hétu því að
halda kosningabaráttunni ótrauðir
áfram á meðan dómstólarnir kæm-
ust að niðurstöðu um það hvenær
kosningarnar skyldu haldnar.
Schwarzenegger sendi frá sér yf-
irlýsingu, þar sem sagði meðal ann-
ars: „Ég skora á innanríkisráðherr-
ann að áfrýja þessum úrskurði
tafarlaust, í nafni borgaranna sem
hafa nýtt sér sinn stjórnarskrár-
bundna rétt til að afturkalla embætt-
isumboð Grays Davis. Ég mun halda
áfram kröftugri baráttu fyrir því að
ná kjöri til ríkisstjóra. Fólkið hefur
talað og orð þess skulu virt og það
mun sigra.“
Fyrr um daginn kom Schwarzen-
egger fram í spjallþætti Opruh Win-
frey til að reyna að bæta ímynd sína í
augum kvenna; mætti hann í þáttinn
í fylgd eiginkonu sinnar, hinnar
Kennedy-ættuðu Mariu Shriver, og
sór að það frjálslega líferni sem hann
var þekktur fyrir fyrr á ævinni væri
liðin tíð. Sagði hann m.a. í þættinum,
að hann hefði aðeins verið að spauga
þegar hann sagði á áttunda áratugn-
um að hann hefði tekið þátt í hópreið;
þetta hefði hann aðeins sagt til að
vekja athygli á líkamsrækt.
Schwarzenegger styður rétt kvenna
til fóstureyðinga og hefur frjálslynd-
ar skoðanir á mörgum félagslegum
málefnum, sem höfða þykir til
kvenna, en skoðanakannanir hafa
sýnt að keppinauturinn Bustamante
nýtur stuðnings mun fleiri kvenkjós-
enda en hann.
Schwarzenegger og helzti keppi-
nautur hans úr röðum Repúblikana-
flokksins, öldungadeildarþingmað-
urinn Tom McClintock, freista þess
nú báðir að fá flokksbróður sinn Pet-
er Ueberroth til að lýsa yfir stuðn-
ingi við sig, en hann dró framboð sitt
til baka í síðustu viku.
Davis ríkisstjóri hugðist halda
sínu striki í baráttunni gegn emb-
ættissviptingarkosningunum í gær,
með fundahöldum með öðrum þekkt-
um demókrötum eins og Bob Grah-
am, öldungadeildarþingmanni frá
Flórída, og mannréttindafrömuðin-
um séra Jesse Jackson. Síðastliðinn
sunnudag sótti Davis kirkju í
blökkumannasókn í fylgd Bills Clint-
ons, fyrrverandi Bandaríkjaforseta.
Flestir stjórnmálaskýrendur telja
að frestun kosninganna komi Davis
bezt, en þar sé þó ekki á vísan að róa
frekar en á annað í kringum þessar
kosningar.
Gagnast Davis
Gangi það eftir að kosningunum
verði frestað fram í marz kunni það
að gagnast Davis þar sem forkosn-
ingabarátta demókrata gæti drifið
fleiri stuðningsmenn demókrata á
kjörstað en ella. Ennfremur sé hugs-
anlegt að efnahagsmálin í ríkinu
skáni eitthvað á næstu mánuðum og
þar með renni kjósendum reiðin í
garð ríkisstjórans; aðalhvatinn að
baki embættissviptingarhreyfing-
unni er megn óánægja með fjármála-
stjórnun ríkisins, sem nú hefur safn-
að upp metfjárlagahalla upp á 38
milljarða Bandaríkjadala, andvirði
um 3.000 milljarða króna. Davis var
endurkjörinn í fyrra en samt tókst
andstæðingum hans að safna á þessu
ári nær milljón undirskriftum á yf-
irlýsingu þar sem krafist var að kos-
ið yrði á ný. Davis missir embættið ef
hann nær ekki 50% fylgi í endur-
tekningarkosningunum.
„Þessar kosningar hafa verið eins
og rússibani. Óvæntu uppákomurnar
eru fleiri en maður fær ímyndað
sér,“ sagði Davis í gær. „Ég mun
halda áfram að færa fólkinu þann
boðskap að hagsmunum þess sé ekki
þjónað með endurteknum kosning-
um.“
Óháði frambjóðandinn Arianna
Huffington bar lof á ákvörðun dóm-
aranna. Kallaði hún klúðurslega
meðhöndlun atkvæða, sem hlotizt
hefði af hinum gölluðu kosningavél-
um, „óhreina mjölið í pokahorni
bandarískra stjórnmála“.
Hægrimenn æfir
McClintock kallaði úrskurð dóms-
ins hneykslanlegan, ekki sízt með til-
liti til þess að dómstóllinn sem kvað
hann upp hefði ítrekað gert sig að at-
hlægi í bandaríska réttarkerfinu, en
níundi umdæmisáfrýjunardómstóll-
inn er sá áfrýjunardómstóll Banda-
ríkjanna hvers ákvörðunum er oftast
áfrýjað áfram til Hæstaréttar og
hæst hlutfall úrskurða sem Hæsti-
réttur hnekkir. Hægrimenn hafa
lengi haft horn í síðu dómstólsins,
enda eru allir dómararnir þrír skip-
aðir af forsetum úr Demókrata-
flokknum, einn í tíð Jimmys Carters
en hinir tveir í tíð Clintons.
Útvarpsspjallarar hliðhollir
Repúblikanaflokknum spöruðu ekki
hneykslunarorðin. „Clinton kemur í
bæinn og einum, tveimur dögum síð-
ar ákveða embættisþegar hans í
áfrýjunardómstólnum að ógilda
kosningarnar,“ sagði Roger Hedge-
cock, áhrifamikill útvarpsmaður í
San Diego í Suður-Kaliforníu, eftir
því sem haft er eftir honum í New
York Times. Sagði hann það áber-
andi hve hliðstæð atburðarás ætti
sér nú stað í Venesúela og í Kali-
forníu. „Í síðustu viku var gerð til-
raun til að knýja fram embættis-
sviptingarkosningar gegn [Hugo]
Chavez [forseta] þar suður frá. Und-
irskriftalistunum var skilað inn en
nefndin hans [landskjörstjórnin] lýs-
ir þær ógildar. Það er staðan sem við
höfum hér núna. Þetta er eins og í
bananalýðveldi,“ sagði Hedgecock.
Spretthlaup eða mara-
þonhlaup í Kaliforníu
Úrskurður áfrýjunardómstóls um að fresta
skuli endurteknum ríkisstjórakosningum í
Kaliforníu hefur sett kosningabaráttuna í
uppnám, að sögn Auðuns Arnórssonar. Sá
sem talinn er hagnast mest á uppnáminu er
demókratinn Gray Davis ríkisstjóri.
Reuters
Frambjóðandinn Arnold Schwarzenegger ásamt eiginkonu sinni Mariu
Shriver í sófanum hjá Opruh Winfrey í beinni útsendingu í fyrrakvöld.
Reuters
Gray Davis ríkisstjóri á blaða-
mannafundi í Los Angeles í gær.
auar@mbl.is
’ Þetta er eins og íbananalýðveldi. ‘
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, mun á laugardag halda til Berl-
ínar til fundar við Gerhard Schröder,
kanslara Þýskalands, og Jacques
Chirac Frakklandsforseta. Umræðu-
efnið verður Írak.
Breskir embættismenn greindu frá
þessu í gær og létu þess getið að leið-
togarnir myndu einnig ræða önnur
mál evrópsk sem alþjóðleg. Fundur-
inn yrði „óformlegur“ en leiðtogarnir
hafa ekki átt formlegar viðræður frá
því að Bandaríkjamenn og Bretar
réðust á Írak. Talsmaður þýsku rík-
isstjórnarinnar sagði að þess yrði
freistað á fundinum að fá fram sam-
eiginlega afstöðu varðandi framtíð
Íraks. Blair hefur verið dyggasti
stuðningsmaður George W. Bush á
undanliðnum mánuðum, hefur stutt
hann dyggilega í „hryðjuverkastríð-
inu“ svonefnda og tók þátt í innrás-
inni í Írak. Þeir Schröder og Chirac
voru andvígir herförinni gegn stjórn
Saddams Husseins Íraksforseta.
Frakkar og Þjóðverjar vilja að
hlutur Sameinuðu þjóðanna verði
aukinn í Írak og að bráðabirgðastjórn
Íraka taki sem fyrst við völdunum
þar. Frakkar hafa sagt að þeir telji
slík valdaskipti möguleg á næstu fjór-
um vikum. Það hafa Bandaríkjamenn
sagt með öllu óraunhæft.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði er hann var í
Írak fyrr í vikunni að Bandaríkja-
menn hygðust ekki halda frá Írak
fyrr en þjóðinni hefði verið fengin ný
stjórnarskrá og traust stjórn heima-
manna tekið við.
Leiðtog-
ar funda
um Írak
Lundúnum. AFP.
ÞINGIÐ í Grænlandi lagði í gær
blessun sína yfir nýja stjórn, þá
þriðju í landinu á 10 mánuðum.
Siumut og Inuit Ataqatigiit stóðu
að fyrstu stjórninni og entist hún í
tvo mánuði. Þá tók við samstarf
Siumut og Atassut en því lauk á dög-
unum er á daginn kom, að fjármála-
ráðherranum, sem var úr Atassut,
höfðu orðið á þau alvarlegu mistök
að semja um tvöfalt meiri launa-
hækkun til opinberra starfsmanna
en til stóð.
Ný stjórn í
Grænlandi
Nuuk. AFP.
♦ ♦ ♦