Morgunblaðið - 17.09.2003, Síða 18
AKUREYRI
18 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Stjórntækniskóli Íslands
Bíldshöfða 18
Sími 567 1466
MARKAÐSFRÆÐI
Hnitmiðað 250 stunda nám í sölu og markaðsfræðum. Náminu er
ætlað að koma til móts við sívaxandi kröfur atvinnulífsins um
hæfari starfskrafta. Námið er ætlað fólki sem vill bæta við
þekkingu sína og fá innsýn í heim markaðsfræðinnar, og að
nemendur tileinki sér markaðshugsun í íslensku viðskipta og
athafnalífi, og nái þannig betri árangri. Kennslan fer fram í formi
fyrirlestra og verkefnavinnu.
Helsu námsgreinar:
Markaðsfræði Sölustjórnun og sölutækni
Vöruþróun Vörustjórnun
Auglýsingar Áætlanagerðir
Viðskiptasiðferði Lokaverkefni
Starfsmenntun. Fjárfesting til framtíðar.
WWW.menntun.is Sími 567 1466. Opið til kl. 22.00.
„Ég mæli með náminu
fyrir alla þá, er starfa við
markaðs- og sölustörf.
Ég hef verið í sölu-
mennsku í 6 ár og nám-
skeiðið hefur nýst mér vel
í starfi. Fjölbreytt og
áhugavert námskeið.“
Elísabet Ólafsdóttir
Eggert Kristjánsson hf.
„Ég mæli tvímælalaust
með þessu námi fyrir
alla þá sem eitthvað eru
tengdir markaðs-, sölu-,
upplýsinga-, skipulags-
og/eða framleiðslumál-
um sinna fyrirtækja.“
Hendricus Bjarnason
Tæknilegur ráðgjafi og umsjónarmaður
markaðstengdra verðbréfa kerfa
ING-bankans í Amsterdam
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Með kveðju.
Hákon, sími 898 9396.
NORÐURMÝRI -
HÁALEITI - MIÐBÆR
Mér hefur verið falið að leita eftir 4ra-5
herbergja íbúð, sem má þarfnast
endurnýjunar að innan. Æskilegt að
eignin sé með þremur svefnherbergjum.
Kaupandi getur veitt ríflegan afhend-
ingartíma sé þess óskað.
Verðhugmynd 13-15 millj. Áhugasamir
vinsamlega hafið samband og ég mun
fúslega veita nánari upplýsingar.
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
- www.valholl.is -
Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Valhöll fasteignasala kynnir:
Nánari upplýsingar veitir Bogi Molby Pétursson, sölumaður.
Síðumúla 27 • Sími 588 4477 • Fax 588 4479
Suðurgata
Vönduð nýleg 3ja herbergja, 90 fm, íbúð á 3.
hæð í nýlegu lyftuhúsi í miðbænum. Íbúðinni
fylgir stæði í bílskýli og mikil sameign. Gengið
er inn um sérinngang af svölum. Stutt í alla
verslun og þjónustu. Laus við kaupsamning.
V. 17,9 m. Áhv. 2,4 m.
Grænahlíð
Falleg, vönduð og rúmgóð, 5 herbergja, 125
fm sérhæð á 2. hæð í fjórbýlishúsi sunnan
megin í götunni. Sameignlegur skjólgóður
garður. 3 svefnherbergi og tvær stofur,
tvennar svalir. V. 17,9 m. Áhv. 5,6 m.
TÍU Akureyringar, þar af sex
félagar í björgunarsveitinni Súl-
um, brugðu undir sig betri fæt-
inum á dögunum og gengu
fylktu liði á Hraundranga. Allir
náðu þeir toppnum en átta
þeirra náðu á standa á toppi
Hraundranga í einu og sagði
Friðjón Snorrason, einn göngu-
manna, að um heimsmet væri að
ræða, þar sem aldrei áður hefðu
jafn margir menn staðið á
toppnum í einu. Óskar Ingólfs-
son, sem einnig var með í för,
sagði að plássið uppi væri ekki
mikið. „Við gátum raðað okkur
á stall þarna uppi en þurftum
svo að faðma tindinn til að
halda okkur þar.“
Hraundrangar eru í 1.075
metra hæð yfir sjó, þar af er
drangurinn sjálfur um 120
metra hár. Þann hluta leið-
arinnar þarf að klífa með klif-
urbúnaði. Friðjón sagði að ferð-
in hefði gengið nokkuð vel en
tekið 9 klst. í það heila. Göngu-
garparnir fengu alls kyns veður
á leiðinni, rigningu, slyddu og
þoku en þegar á toppinn kom
var komið hið besta veður og út-
sýni þaðan eins og best verður á
kosið.
Gengið er á Hraundranga frá
Staðarbakka í Hörgárdal og
sagði Friðjón, sem var að fara
þarna upp í sjötta skipti, að
hann ætti örugglega eftir að
fara fleiri ferðir í framtíðinni.
Hann sagði að það gæti jafn-
framt verið spennandi að reyna
að klífa dranginn úr Öxnadaln-
um en það væri hins vegar mun
erfiðari leið.
Óskar sagði að tilgangurinn
með ferðinni hefði m.a. verið að
bæta áðurnefnt heimsmet, eins
og þeir kjósa að kalla það. Á
toppi Hraundranga er gestabók
og viskípeli og var þess sér-
staklega getið í gestabókinni að
þeir félagar hefðu sett heims-
met. Óskar tók undir með Frið-
jóni og sagði að gangan hefði
gengið vel en verið nokkuð erf-
ið. Þarna hefði því verið um
góða æfingu að ræða, sem einn-
ig styrkti menn í lofthræðslunni.
Tíu Akureyringar lögðu á sig erfiða göngu upp á Hraundranga
Morgunblaðið/Óskar Ingólfsson
Hópurinn sem gekk á Hraundranga var ánægður að lokinni göngunni.
Átta þeirra stóðu
á toppnum í einu
GISTINÆTUR á tjaldsvæðunum á
Akureyri voru um 31.000 talsins í
sumar eða fleiri en nokkru sinni, að
sögn Ásgeirs Hreiðarssonar, for-
stöðumanns tjaldsvæðanna. Gisti-
nætur á tjaldsvæðinu að Hömrum
voru um 14.000 og fjölgaði um ríf-
lega helming á milli ára. Á tjald-
svæðinu við Þórunnarstræti voru
um 17.000 gistinætur sem er svip-
aður fjöldi og undanfarin ár.
Tjaldsvæðið að Hömrum var tek-
ið í notkun sumarið 2000 og hefur
gistináttum þar fjölgað jafnt og
þétt frá þeim tíma. Fyrsta árið
voru gistinætur þar um 3.000, árið
2001 um 4.500 og um 6.000 í fyrra-
sumar. Gistinætur á tjaldsvæðinu
við Þórunnarstræti hafa verið á
bilinu 16–18 þúsund undanfarin ár
og því er um hreina fjölgun gisti-
nátta í bænum að ræða með til-
komu tjaldsvæðisins að Hömrum,
að sögn Ásgeirs. Það er félag í eigu
Skátafélagsins Klakks sem hefur
með rekstur tjaldsvæðanna á Ak-
ureyri að gera.
Ásgeir sagðist mjög sáttur með
sumarið en að vertíðinni væri nú
nánast lokið. Þessa dagana er verið
að loka tjaldsvæðinu við Þórunn-
arstræti en gestir eiga þess enn
kost að gista að Hömrum, enda er
aðstaða til að taka á móti fólki þar
mun betri en við Þórunnarstræti.
Ásgeir sagði mögulegt að taka á
móti fólki að Hömrum nánast árið
um kring, ef veðrið væri skaplegt
og að áhugi væri á því að kanna
hvort hægt væri að lengja ferða-
mannatímabilið eitthvað.
Töluverður erill var á taldsvæð-
inu við Þórunnarstræti í kringum
17. júní og um verslunarmanna-
helgina, enda mikið af ungu fólki þá
í heimsókn í bænum, í tengslum við
ýmsar uppákomur. Ásgeir sagði að
áðurnefndar helgar hefði komið
heldur meira af ungu fólki en á
sama tíma undanfarin ár. Eins og
fram hefur komið var mjög líflegt á
tjaldsvæðinu þessar helgar og kom
þar ýmislegt upp á. Ásgeir sagði að
rekstrarfélagið hygðist ekki gera
sérstakar breytingar á rekstri
tjaldsvæðanna en hins vegar væri
verið að ræða þessi mál almennt í
vinnuhópi á vegum bæjarfélagsins.
Aldrei fleiri gistinæt-
ur á tjaldsvæðunum
Morgunblaðið/Kristján
Tjaldsvæðin á Akureyri voru þétt setin um verslunarmannahelgina og á
tjaldsvæðinu við Þórunnarstræti var mjög líflegt alla helgina.
ÞINGFLOKKUR Samfylkingarinn-
ar heldur vinnufund á Akureyri í dag
og á morgun, 17. og 18. september.
Í dag, miðvikudag, munu þing-
menn heimsækja fyrirtæki og stofn-
anir í bænum og funda með sveit-
arstjórnarmönnum flokksins á
Norðurlandi. Um kvöldið kl. 20 er
boðaður opinn stjórnmálafundur
með þingflokknum á Hótel KEA.
Frummælendur eru Össur Skarp-
héðinsson, Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir og Kristján L. Möller. Fund-
arstjóri er Bryndís Hlöðversdóttir
þingflokksformaður.
Þingflokkur
Samfylkingarinnar
Stjórnmála-
fundur í kvöld
Jón Böðvarsson, sem þekktastur
hefur orðið á síðari árum
fyrir fjörug og uppbyggileg erindi
og námskeið um Njálu, verður í
Dalvíkurbyggð um aðra
helgi, eða dagana 27. og 28. sept-
ember og heldur námskeið um
Svarfdælasögu.
Námskeiðið verður í tveimur fjög-
urra stunda hlutum, eftir hádegi
á laugardegi og sunnudegi. Gert er
ráð fyrir að góður tími verði
fyrir fyrirspurnir og ábendingar
segir í frétt frá Framfarafélagi Dal-
víkurbyggðar sem efnir til nám-
skeiðsins.
Á NÆSTUNNI
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111