Morgunblaðið - 03.10.2003, Qupperneq 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdis-
h@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is,
sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími
569-1290.
Mínstund skapti@mbl.is
Kalt í Boganum | Þröstur Guðjónsson
formaður Íþróttabandalags Akureyrar hef-
ur sent erindi til stjórnar Fasteigna Ak-
ureyrarbæjar, þar sem hann spyrst fyrir
um áætlanir varðandi úrbætur til að auka
hitastig í Boganum, fjölnota íþróttahúsi
bæjarins. Á fundi stjórnarinnar var fram-
kvæmdastjóra falið að afla frekari upplýs-
inga um stofn- og rekstrarkostnað á búnaði
til að auka hitastigið en Boginn er óupphit-
aður í dag.
Þröstur sagði að of neikvæð umræða
hefði verið um Bogann – þarna væri um
glæsilegt mannvirki að ræða. Einn liður í
að gera húsið enn betra væri að fá hita í
það. „Fólk getur ekki annað en verið ánægt
með aðstöðuna en þarna eru þrjár íþrótta-
greinar, knattspyrna, frjálsar íþróttir og
golf, með 44 tíma á viku til æfinga.“
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Tíu manns sóttu umstarf eldvarnareft-irlitsmanns og
umráðamanns sjúkra-
flutninga á Sauðárkróki,
sem nýlega var auglýst
laust til umsóknar, en
Björn Sverrisson, sem
gegnt hefur embættinu
um árabil, er að láta af
störfum. Þeir sem sóttu
um starfið eru: Einar
Sigurjónsson, Garðar
Páll Jónsson, Guð-
mundur Magnússon, Jón-
atan Sævarsson, Kári
Gunnarsson, Magnús
Sverrisson, Sigurbjörn
Björnsson, Sveinn Brynj-
ar Pálmason, Trausti
Bergland Traustason og
Þorsteinn Kárason.
Frá þessu er greint á
vefsíðunni skagafjordur.-
com.
Eftirsótt starf
Fagradal | Guðmundur Elíasson hefur tekið við rekstri
á Víkurskála og Hótel Vík í Vík í Mýrdal. Hann er eng-
inn nðýgræðingur í faginu; var Guðmundur var áður
rekstrarstjóri söluskála KÁ á Suðurlandi. Af þessu til-
efni var viðskiptavinum og velunnurum boðið að þiggja
veitingar í Víkurskála og á myndinni tekur Guð-
mundur við körfu fullri af sokkum frá Þóri Kjart-
anssyni framkvæmdastjóra Víkurprjóns í tilefni dags-
ins.
Tekur við Víkurskála
Þing Alþýðusam-bands Norður-lands, hið 28. í röð-
inni, hefst á Illugastöðum
í Fnjóskadal í dag en því
lýkur um hádegi á morg-
un. Helstu mál þingsins
eru kjaramál og atvinnu-
og byggðamál.
Um eitt hundrað fulltrúar
sitja þingið frá stétt-
arfélögum á Norðurlandi
sem hafa innan sinna vé-
banda rúmlega 11.000 fé-
lagsmenn.
Þing á
Illugastöðum
Mistök urðu við birtingu
vísu Baldurs Jónassonar í
gær, þar sem fremsta lína
fór á flakk og endaði aft-
ast. Vísan er því birt hér
rétt og höfundur beðinn
afsökunar á mistökunum:
Á ferðalagi í gegnum fölnuð lauf
fátækt barn á berum iljum tifar
í haustsins mynd það heggur eina
rauf
og hljóðlátt línu ævi sinnar skrifar.
Línuflakk
í vísunni
Stykkishólmi | Þessi grágæs
hefur eitthvað verið orðin aura-
laus fyrst hún sá ástæðu til að
heimsækja útibú Búnaðarbank-
ans í Stykkishólmi. Hún er
óvenju spök af villtum fugli að
vera. Gunnlaugur Valdimars-
son sem býr við Austurgötu
segir hann hafi fyrst orðið var
við gæsina um miðjan ágúst er
hún kom í heimsókn í garðinn
hans. Upp frá því hefur hún
verið þar tíður gestur. Hún
komi á morgnana og er farin
seinnipart dags. Gunnlaugur
segir að hún sé ekki daglegur
gestur hjá honum, stundum líða
dagar á milli. Hún er merkt og
hefur hann gefið Náttúrustofu
Vesturlands upp númerið.
Hann segist ekki gefa henni að
borða, en hún bítur grasið í
garðinum hans. Gæsin er ekki
særð og vel á sig komin. Hún
virðist gera sig heimakomna í
Hólminum fyrst hún er farin að
líta við í bankanum, enda hefur
hún frétt það í bænum að þar
er að finna eitthvað sem allir
menn eru að eltast við.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Vertu velkomin: Áslaug Kristjánsdóttir, starfsmaður Búnaðarbankans í Stykkishólmi, tekur vel á
móti gestinum, en fyrsta verk hans var að gera þarfir sínar á tröppurnar eins sést á myndinni.
Auralaus gestur í bankanum
Heimsókn
Keflavíkurflugvelli | Flugfélag Íslands
hefur á næstunni áætlunarflug frá Akur-
eyri og Egilsstöðum til Keflavíkurflug-
vallar. Er það ekki síst ætlað að þjóna er-
lendum starfsmönnum við
stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi.
Flugið til Keflavíkurflugvallar er á
vetraráætlun Flugfélags Íslands og hefst
26. október. Flogið verður með nítján
sæta vél tvisvar í viku til að byrja með, á
fimmtudögum og sunnudögum. „Við ætl-
um að prófa þetta í vetur þar sem vaxandi
eftirspurn hefur verið eftir þessari þjón-
ustu,“ segir Jón Karl Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Íslands.
Stefnumót við millilandavélar
Vélin fer frá Akureyri klukkan 11 að
morgni, kemur við á Egilsstöðum og er
lent klukkan rúmlega eitt á Keflavíkur-
flugvelli. Far-
þegarnir geta
náð síðdegisvél-
um til Banda-
ríkjanna og
Evrópu. Far-
þegar sem eru
að koma frá út-
löndum geta
síðan farið með
vél Flugfélags-
ins sem bíður á
vellinum og heldur aftur af stað austur og
norður klukkan 17 og er áætlað að hringn-
um verði lokað á Akureyri klukkan kortér
yfir sjö um kvöldið.
Flugfélag Íslands í núverandi mynd
hefur ekki áður verið með reglubundið
áætlunarflug til eða frá Keflavík. Jón Karl
segir að aukin eftirspurn sé hjá verktök-
um sem vinna við framkvæmdir á Austur-
landi, þeir þurfi að koma hópum starfs-
manna til og frá landinu á ákveðnum tíma
og stundum sé erfitt að komast alla leið á
sama deginum þegar notað er áætlunar-
flug. Beina flugið geti bætt úr því. Þá seg-
ir hann ákveðna eftirspurn frá ferðaheild-
sölum erlendis sem vilji koma hópum
beint út á land og nú muni reyna á það
hvort þeir geti nýtt þessa nýju þjónustu.
Ef eftirspurn verður mikil verður reynt
að bæta við fleiri ferðum í viku.
Ekki er gert ráð fyrir innanlandsflugi í
skipulagi Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
en Jón Karl segir að gott samstarf hafi
tekist við stjórnendur stöðvarinnar um
lausn á málinu. Farþegarnir fara beint í
gegn um vopnaleit og innrita sig síðan í
millilandaflug á þjónustuborði inni í
sjálfri flugstöðinni. Við innritun á Egils-
stöðum og Akureyri er farangurinn
skráður til flutnings á endanlegum
áfangastað farþegans og fer því beint í
millilandavélina.
Hefja innan-
landsflug til
Keflavíkur
* 5 línur, tilboðið gildir til 31. desember 2003
Smáauglýsing
á aðeins 500 kr.*
Alltaf á laugardögum
Áskrifendum Morgunblaðsins býðst smáauglýsing fyrir aðeins 500 kr.*
Almennt verð er 1.689 kr.
Pantanafrestur er til kl. 12.00 á föstudögum.
Hafðu samband!
Auglýsingadeild Morgunblaðsins
sími 569 1111 eða augl@mbl.is
Aðstaðan bætt | Til stendur að byggja
búningsklefa við sundlaug og íþróttahús
Grunnskólans á Grenivík að því er fram
kemur á heimasíðu Grýtubakkahrepps.
Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri sagði
trúlegt að í leiðinni yrði eitthvað byggt
við grunnskólann.
Hún sagði að fram til þessa hefði verið
notast við bráðabirgðabúningaaðstöðu í
kjallara grunnskólans, „en hún er nú
frekar leiðinleg og brýnt að bæta úr.“
Þá nefndi hún að bæta mætti úr að-
stöðu fyrir mynd- og handmenntakennslu
við grunnskólann sem og einnig fyrir
tónlistarkennslu og fyrst menn væru að
fara að byggja á annað borð yrði vænt-
anlega bætt við einhverjum stofum við
grunnskólann líka. Áætlanir ganga út á
að framkvæmdum verði lokið haustið
2005.
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930
Tímamót á Bíldudal | Nýtt íþróttahús
verður vígt á Bíldudal á morgun, laug-
ardag, en þá verða liðnir rétt rúmir átta
mánuðir frá því samningar um byggingu
þess voru undirritaðir.
Fram kemur á fréttavefnum Tíði, að
með húsinu rætist langþráður draumur
Bílddælinga um að eignast íþróttahús en
til þessa hefur verið notast við samkomu-
hús staðarins.
Bæjarstjórn Vesturbyggðar mun bjóða
öllum íbúum Vesturbyggðar að vera við-
staddir vígsluna og þiggja kaffiveitingar.
Samningur um byggingu hússins var
undirritaður 26. janúar sl. við fyrirtækið
Lás á Bíldudal og verður það fullklárt á
vígsludegi, 4. október. Gólfflötur íþrótta-
salarins er 14x25 metrar.