Morgunblaðið - 03.10.2003, Qupperneq 38
MINNINGAR
38 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Sigríður Þórar-insdóttir fæddist
í Reykjavík 5. mars
1932. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut laugar-
daginn 27. septem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Þórarinn
Kjartansson kaup-
maður og iðnrek-
andi, f. í Núpskoti í
Bessastaðahreppi
25. nóvember 1893,
d. í Reykjavík 26.
des. 1952, og Guð-
rún Daníelsdóttir húsmóðir f. í
Reykjavík 26. apríl 1895, d. í
Reykjavík 1. feb. 1967. Systkini
Sígríðar eru: Gerður, f. 22. sept.
1919; Daníel, f. 24. apríl 1921, d.
25. október 1992; Guðfinna, f. 22.
júlí 1922; Kjartan, f. 17. júlí 1923,
d. 18. sept. 1969; Lárus, f. 10. okt.
1924; Níels, f. 29. júní 1927, d. 19.
jan. 1959, Þóra, f. 31. okt. 1929,
Gunnar, f. 15. jan. 1931, d. 8. nóv.
1992; Ólöf, f. 20. mars 1933; Krist-
Kjartan Jónas læknir, f. 26. okt.
1957. Maki Lilja Einarsdóttir
sjúkraliði: Þau eiga þrjú börn.
Þau eru: Sigríður Birta nemi í
Fjölbrautaskóla Garðabæjar, f.
12. okt. 1986, Kjartan Birgir, f.
26. janúar 1992, og Einar Karl, f.
14. jan. 1994.
Sigríður ólst upp á heimili for-
eldra sinna á Laugavegi 76 í
Reykjavík. Hún lauk landsprófi
frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar
1948. Verslunarprófi frá Austur-
bæjarskóla 1949. Sjúkraliði frá
Sjúkraliðaskóla Íslands 1979.
Sígríður var ritari hjá O. Johnson
og Kaaber 1948–1949, í Stjórn-
arráði Íslands sumarið 1947 og í
fullu starfi 1949–1950. Dansari í
Listdansskóla Sigríðar Ámann
1946–1951. Vann í Útvegsbanka
Íslands 1951–1958 og 1967–1977.
Starfaði í Rammagerðinni 1977–
1978. Sjúkraliði á Borgarspítala,
1979–1989. Hjúkrunarritari á
Borgarspítala 1989–1998. Sigríð-
ur tók þátt í ýmsu félagsstarfi,
var formaður Læknakvenna-
félagsins Eikar 1978–1980 og
meðstjórnandi 1980–1982 og
meðstjórnandi í Félagi hjúkrun-
arritara á Borgarspítala.
Útför Sigríðar fer fram frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
veig, f. 24. feb. 1936,
d. 4. okt.1954, og Þór-
ir, f. 23. sept. 1939.
Sigríður giftist 4.
desember 1954,
Kjartani Birgi Kjart-
anssyni lækni, f. í
Reykjavík 5. jan.
1932, d. í Danmörku
3. maí 1966. Foreldr-
ar hans voru Kjartan
Jónas Jóhannsson,
læknir og alþingis-
maður, f. í Reykjavík
19. apríl 1907, d. í
Reykjavík 7. jan.
1987, og Jóna Breið-
fjörð Ingvarsdóttir húsmóðir, f. í
Hafnarfirði 28. des. 1907, d. í
Reykjavík 29. júlí 1994. Börn Sig-
ríðar og Kjartans eru: 1) Þórar-
inn Birgir iðnrekstarfræðingur
og kennari, f. 15. desember 1952,
2) Þorbjörg Kristveig landfræð-
ingur, f. 17. ágúst 1955. Maki Jón-
as Gunnar Einarsson viðskipta-
fræðingur. Þau eiga tvö börn:
Guðrúnu Sóleyju, f. 26. nóv. 1989
og Jón Kjartan, f. 8. apríl 1993. 3)
Mikið er erfitt að hugsa um það að
amma Sigga sé farin frá okkur fyrir
fullt og allt. Hún sem alltaf var jafn
full af fjöri, það var einhvern veginn
alveg óhugsandi að hún myndi ein-
hvern tíma deyja. Þó að hún lægi
veik á spítalanum þá fannst mér al-
veg sjálfsagt að hún yrði útskrifuð
von bráðar og færi aftur upp í
Hvassaleiti. Í síðasta skiptið sem ég
sá ömmu á lífi datt mér ekki í hug
það yrði það síðasta, ég kvaddi hana
bara eins og ég var vön. Núna sé ég
svo eftir því að hafa ekki heimsótt
ömmu mína á hverjum einasta degi
sem hún var á sjúkrahúsinu, því að
núna fer ég að hugsa um allan tím-
ann sem við hefðum getað eytt sam-
an en gerðum ekki.
Það var alltaf jafn notalegt að
koma upp í Hvassaleiti eftir skóla
eða um helgar og fá ristað brauð
með köldu smjöri og heitt kakó, eða
djöflaköku með þeyttum rjóma. Út-
varpið var alltaf í gangi og oft sjón-
varpið um leið, síminn hringdi á hálf-
tíma fresti, og amma sjálf alltaf á
þönum. Samt hafði hún alltaf tíma til
að setjast niður og spjalla við okkur
barnabörnin, það var ekkert sem
ekki var hægt að ræða um við hana.
En núna eru bara minningarnar
eftir, og ég veit að ég á aldrei eftir að
gleyma þeim. Það eina sem fær mig
til að líða betur er að hún sé núna
komin á betri stað og búin að hitta
hann afa aftur, og muni taka á móti
okkur hinum þegar rétti tíminn
kemur.
Sigríður Birta.
Elsku Sigga.
Það er erfitt að sætta sig við að þú
sért farin, við vissum að þú varst
veik en grunaði ekki að hverju
stefndi og að þú færir svona snögg-
lega. Í huganum birtast mörg minn-
ingabrot liðins tíma, þegar þú varst
ung með börnin lítil og Kjartan var á
lífi og við bjuggum í sama húsi ásamt
ömmu, afa og fleiri ættingjum. Við
elstu frænkurnar vorum viljugar að
passa þegar þið skruppuð frá, það
var svo spennandi að komast í eld-
hússkápinn, þar sem þú geymdir há-
hæluðu skóna, fá að máta þá, þeir
voru svo flottir og pössuðu á okkur,
því þú varst með svo netta fætur.
Minningin um ferðina vestur á Ísa-
fjörð, þegar Kjartan var þar læknir
um tíma og við bjuggum hjá ykkur í
stóra húsinu úti í Skógi. Þar fengum
við að njóta bjartra sumarnátta og
veiða inni á fjörðum, meðan þið kon-
urnar voruð í kaffiboðum. Um tíma-
bil bjugguð þið í Bandaríkjunum,
þar sem Kjartan var í framhalds-
námi í geðlækningum og þar áttuð
þið fjölskyldan góðan tíma. Seinna
voruð þið Kjartan í London, þar sem
hann starfaði tímabundið, en fljót-
lega upp úr því byrjuðu erfiðir tímar
þegar hann veiktist af krabbameini.
Þegar Kjartan lést á sjúkrahúsi í
Kaupmannahöfn, vorið 1966, voru
Þórarinn og Þorbjörg heima hjá
okkur og er erfitt að gleyma þeim
harmi, sem þau systkinin gengu í
gegnum við að missa ung föður sinn,
Þórarinn þá nýfermdur. Þá fékkstu
að takast á við hlutverk einstæðrar
móður að vinna og koma börnunum
upp, sinna menntun þeirra og að
halda húsinu, sem þið voruð nýbúin
að festa kaup á þegar Kjartan lést.
Því hlutverki gegndir þú með mikl-
um sóma eins og öðru, sem þú tókst
þér fyrir hendur. Við fengum að
njóta nærverunnar við þig og frænd-
systkinin, þar sem þið mamma voruð
í svo nánu sambandi, og litum við á
þau meira sem systkini okkar á
þessum tíma. Með þínu jákvæða
skapi, glaðværð og hlátri, sem smit-
aði alla í kringum þig, tókst þér að
vinna marga sigra og þá stærstu að
sjá börnin þín vaxa úr grasi, mennt-
ast og síðan eignast sínar eigin fjöl-
skyldur.
Við minnumst góðra stunda með
þér og okkar börnum, þú hafðir ein-
stakt lag á börnum, sýndir þeim
áhuga, ræddir við þau eins og þau
væru fullorðnar manneskjur og
fylgdist með lífi þeirra. Þau elskuðu
„Sys-kökuna“ þína, sem enginn gat
gert nema þú. Góðar minningar eru
frá Svíþjóð, þar sem stutt heimsókn
breyttist í sumarlanga dvöl, þú
fékkst vinnu, sem átti eftir að hafa
áhrif á þinn starfsferil, en þú varst
nýhætt í bankanum, eftir nærri 25
ára starf, og ákvaðst að fara í sjúkra-
liðanám. Eftir það vannstu við
umönnun, þar sem margir fengu
notið hlýju þinnar og elsku og var
eftir því tekið hvað þú mættir alltaf
glæsileg og brosandi til starfa. Þú
hafðir unun af að klæða þig vel og
varst einstaklega smekkleg og fáguð
í klæðaburði og framkomu. Litlu
börnin spurðu hvort þú værir
drottning. Margar glaðar stundir
var setið yfir kaffibolla, sem oft end-
uðu með skemmtilegum spálestri,
sem þú sem aðrir höfðu gaman af.
Söknuðurinn er mikill fyrir okkur
öll, sem kveðjum okkar yndislegu
frænku allt of snemma, og enn meiri
hjá mömmu, sem kveður ástkæra
yngri systur.
Við biðjum Guð að styrkja Þór-
arin, Þorbjörgu og Kjartan, börn
þeirra og maka, í sorg þeirra. Elsku
Sys, takk fyrir allt.
Þín
Þóra systir, Hrefna, Björg,
Kristveig, Guðrún, Soffía og
fjölskyldur.
Við hittum Siggu mágkonu okkar
fyrir stuttu, á hjartadeild Landspít-
alans. Hún hafði fengið hjartaáfall,
en var svo hress og kát að ekki
hvarflaði annað að okkur en að hún
mundi fara heim á ný eftir örfáa
daga. Okkur var því illa brugðið þeg-
ar við heyrðum að hún væri öll.
Siggu kynntumst við fyrst sem
kærustu Kjartans bróður okkar,
þegar við vorum enn börn að aldri.
Við hrifumst strax af því hve glæsi-
lega hún var klædd og bar sig vel,
enda hafði hún verið í ballett. Þau
voru rétt um tvítugt þegar þau eign-
uðust fyrsta barnið og okkur þótti
þetta allt ótrúlega spennandi.
Eins og þá var gjarnan siður fór
hann í nám, en hún vann fyrir fjöl-
skyldunni. Áður en Kjartan lauk
námi og útskrifaðist sem læknir
voru börnin orðin þrjú. Á þessum ár-
um bjuggu þau á Laugavegi 76, stór-
hýsi sem faðir hennar hafði komið
upp, þar sem móðir hennar og nokk-
ur systkina hennar bjuggu einnig.
Þar var gott að koma og gestrisnin
mikil.
Sigga hafði ekki einungis auga
fyrir því að klæða sig vel, hún gat
einnig borið einfaldan mat þannig á
borð að úr varð glæsilegt veisluborð.
Þá hafði hún einstakt lag á að gera
hýbýli vistleg, hún var stílisti áður
en það orð varð til. Minnisstætt er til
dæmis er þau bjuggu um skeið vest-
ur á Ísafirði þar sem við áttum þá
heima, en Kjartan var þá héraðs-
læknir í Súðavík. Um sumarið voru
þau í Birkihlíð, sem var skólasel
gagnfræðaskólans. Húsið var stórt
og mjög lítið um innbú. Siggu tókst
samt að gera það líkast ævintýra-
höll. Er skyggja tók voru allir
gluggar þar uppljómaðir með kerta-
ljósum í glerkrukkum sem hún hafði
málað í fallegum litum, löngu áður
en slíkt tíðkaðist.
Að Vestfjarðadvölinn lokinni hélt
fjölskyldan til Bandaríkjanna þar
sem Kjartan fór í framhaldsnám.
Nokkru eftir að þaðan kom keyptu
þau raðhús í Hvassaleiti og lífið virt-
ist brosa við þeim. Þá veiktist Kjart-
an skyndilega af illkynja sjúkdómi,
sem ekki varð við ráðið þótt leitað
væri bæði til Bandaríkjanna og Dan-
merkur, og lést hann örfáum mán-
uðum eftir að hann veiktist. Þá stóð
Sigga ein uppi með þrjú börn, það
elsta um fermingu. Hún stóð sig eins
og hetja og fór aftur að vinna utan
heimilis. Fyrstu árin í Útvegsbank-
anum, þar sem hún hafði unnið áður,
síðan dreif hún sig í sjúkraliðanám
og vann við það í nokkur ár, en
seinna vann hún sem deildarritari á
Borgarspítalanum. Nú síðustu árin
var hún hætt að vinna úti og naut
þess að geta átt góðar stundir með
börnum sínum og barnabörnum.
Hún kom börnum sínum vel til
manns og þau endurguldu það ríku-
lega. Þegar við ræddum síðast við
hana talaði hún sérstaklega um hve
hún hefði notið þess þegar elsti son-
urinn Þórarinn, sem annars býr í
Barcelona, bjó hjá henni í sumar.
Einnig hvað börn hennar tvö sem
hér búa, Kjartan og Þorbjörg, og
þeirra fjölskyldur væru góð og um-
hyggjusöm. Sigga hafði einstakt lag
á að umgangast börn og laða þau að
sér. Okkar börnum þótti mjög gam-
an að koma til Siggu frænku, sem
alltaf átti eitthvert spennandi dót.
Ekki var því að undra þótt samband
hennar við barnabörnin væri mjög
gott og þau veittu henni mikla gleði.
Eins og oft vill verða voru sam-
fundir of sjaldan og aðallega þegar
eitthvað var um að vera í fjölskyld-
unni svo sem afmæli, fermingar, út-
skriftarveislur o.fl. Þar vakti Sigga
enn sem fyrr athygli fyrir glæsilega
framkomu og klæðaburð, bar sig
sem ung stúlka og var að sjálfsögðu
á pinnahælum.
Við kveðjum Sigríði mágkonu
okkar með söknuði og þökkum góða
samfylgd.
Kristjana og Þorbjörg.
Hún Sigga er dáin. Mágkona mín í
tæp 50 ár. Við kynntumst fyrir rúm-
um fimmtíu árum, þegar hún og
Kjartan, eldri bróðir minn fóru að
vera saman. Við tveir bjuggum sam-
an í herbergi á Njálsgötu, en hún í
húsi móður sinnar og systkina á
Laugavegi.
Kom hún því oft við þegar þau
ætluðu að fara eitthvað. Eins og títt
var, vorum við frekar fálát í byrjun,
en það óx síðan í fulla vináttu. Þegar
þau giftu sig var okkur boðið, og
skömmu síðar komu við Elín í fyrstu
heimsóknina til þeirra á Laugavegi
76. Voru þau bæði kát og við sam-
glöddumst þeim. Bauð hún okkur
staup af víni í kristallsstaupum.
Voru þau úr búi móðurafa hennar,
Daníels, sem þá hafði búið stórbúi í
Brautarholti, á Kjalarnesi, en seinna
varð kunnur sem dyravörður í
Stjórnarráðinu. Voru staupin þá 12
en nú voru aðeins 4 eftir og því til-
valið að nota þau við svona hátíðlegt
tækifæri. Kom þá Þórarinn sonur
þeirra, lítill ,röltandi og fórum við að
leika við hann.
Rakst ég í glas mitt og brotnaði af
því fóturinn. Vorum við hvekkt yfir
þessu, en Sigga sagði: Blessaður
vertu þetta er bara glas. Þegar ég
bar mig enn illa sagði hún: þú varst
líka að leika og vera góður barninu
mínu og það er mér miklu meira
virði. Minntumst við aldrei aftur á
þetta. Svona var Sigga snögg upp á
lagið og ákveðin. Hún var ekki há-
vaxin en bar sig afskaplega vel. Hún
dansaði ballet þegar við kynntumst
og bauð hún okkur Kjartani á sýn-
ingu í Þjóðleikhúsinu, þar sem hún
dansaði í flokki stúlkna, 17 - 18 ára.
Átti dansinn hug hennar allan.
Hætti hún því alveg, eignaðist son,
gifti sig, stofnaði heimili og vann í
banka. Aldrei heyrði ég hana minn-
ast á ballett, eftir það. Fannst mér
hún sóma sér vel í bankanum, hún
naut þess að vera vel tilhöfð og gekk,
að því er virðist áreynslulaust á
mjög háum hælum.
Sáumst við alloft á þessum árum,
við bræður í námi og sumarvinnu, en
þær unnu úti. Voru helstu tilefnin
barnaafmælin. Var það alloft því að
þau áttu tvö börn til, Þorbjörgu og
Kjartan, en við áttum fjögur. Þegar
hann lauk námi fóru þau eitt ár til
Ísafjarðar og skömmu síðar eitt ár í
Buffalo, N.Y. Þegar heim kom fór-
hann í sérnám í geðlækningum en dó
úr krabbameini 34 ára. Vorum við í
Svíþjóð og náði ég að finna hann og
pabba í Kaumannahöfn í eina viku.
Einni viku seinna hitti ég Siggu og
mömmu þar, við dánarbeð hans.
Sigga gat haldið raðhúsinu og
komið börnum sínum til manns. Þor-
björg og Kjartan eru gift, hún með 3
og hann með fjögur börn sem voru
yndi ömmu sinnar. Þórarinn lifir
e.t.v. drauma móður sinnar, því að
hann býr í Barcelona á vetrum en
vinnur á Íslandi á sumrin og bjó þá
ávallt hjá Siggu. Sigga hafði gaman
af að vera erlendis. Við Sigga hitt-
umst aftur þegar við fluttum til Ís-
lands. Komum við Elín stundum til
hennar á kvöldin og voru það gleði-
stundir. Síðast kom hún til okkar í
afmæli Elínar, í vor og lék á als oddi.
Við Sigga voru nálæg hvort öðru
vegna náins sambýlis við Kjartan
bróður, ég í meirihluta 18-20 ára og
hún frá táningsárum þar til yfir lauk.
Var það oftast ánægjulegt og oft
mjög gaman, en stundum erfitt. Við
þekktum hann og hann gjörþekkti
okkur, a.m.k. sagði hann það sjálfur.
Enn er vík milli vina og sendum
við Elín hlýjar kveðjur, frá Ísafirði,
til barna og barnabarna. Eins og
presturinn sagði við okkur fyrir
mörgum árum: Nú er a.m.k. betra að
trúa því, að hún sé í betri höndum.
Ingvar Kjartansson.
Þegar sumarið rennur inn í haust-
ið kveður Sigga móðursystir mín
þetta líf, óviðbúið og snöggt.
Sigga var fulltrúi þeirrar kynslóð-
ar sem hefur upplifað hvað mestar
breytingar í íslensku samfélagi –
hún var á vissan hátt tengiliður
gamla tímans og hins nýja þar sem
nýir siðir, lífshættir og skoðanir
héldu innreið sína. Hún var nútíma-
kona í orðsins fyllstu merkingu, en
bar jafnframt mikla virðingu fyrir
fortíðinni og gildum hennar.
Í huganum er Sigga ein af kven-
hetjum okkar, baráttukona sem
hafði ríka réttlætiskennd – sem ein-
stæð móðir að koma til manns þrem-
ur mannvænlegum börnum, leiða
þau í gegnum þykkt og þunnt og
jafnframt halda reisn sinni. Reisn
hafði Sigga til að bera – glæsileg
hvort sem var í fjölskylduboðum eða
á gönguferðum um hverfið sitt. Allt-
af var eins og gamla ballerínan frá
unglingsárunum væri á ferð þar sem
hún fór, fas hennar og hreyfingar
voru þannig. Hún lá ekki á skoðun-
um sínum og gat stundum verið
býsna hvöss í skoðanaskiptum en
alltaf var líka stutt í glettnina og
brosið – hún hafði frábæran húmor,
og mikla hlýju.
Hún var órjúfanlegur hluti af stór-
fjölskyldunni, börnum og afkomend-
um ömmu Guðrúnar og afa Þórarins
á Laugavegi 76.
Eins langt og bernskuminning-
arnar ná aftur koma ótal atvik upp í
hugann, saga fjölskyldunnar, marg-
breytilegur og litríkur vefur ná-
kvæmlega eins og lífið er – stundum
erfitt og á brattann að sækja en oft-
ar bjart og skemmtilegt.
Hún tók virkan þátt í lífi þessarar
fjölskyldu – stórir og litlir viðburðir
– sorg og gleði, það vantaði mikið ef
Sigga gat ekki einhverra hluta
vegna mætt.
Þrátt fyrir að náttúrulögmálið sé
þannig að það sem lifir mun deyja er
erfitt að sætta sig við það þegar ást-
vinur kveður – en minninguna um
Siggu frænku berum við áfram.
Auður Sveinsdóttir.
Lát mig starfa, lát mig vaka,
lifa, meðan dagur er.
Létt sem fuglinn lát mig kvaka,
lofsöng, Drottinn, flytja þér,
meðan ævin endist mér.
Lát mig iðja, lát mig biðja,
lífsins faðir, Drottinn hár.
Lát mig þreytta, þjáða styðja,
þerra tár og græða sár,
gleðja og fórna öll mín ár.
(Margrét Jónsdóttir.)
Þessar ljóðlínur koma í hug minn
er ég kveð Siggu, æskuvinkonu og
vinnufélaga. Kallið kom að óvörum,
SIGRÍÐUR
ÞÓRARINSDÓTTIR
Útfararþjónustan ehf.
Stofnuð 1990
Rúnar Geirmundsson
Útfararstjóri
Sími 5679110, 8938638
Heimasíða okkar er
www.utfarir.is
Þar eru upplýsingar um
allt er lýtur að útför:
- Söngfólk og kórar
- Erfidrykkja
- Aðstoð við skrif
minningargreina
- Panta kross og frágang á leiði