Morgunblaðið - 03.10.2003, Page 50
DAGBÓK
50 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
dag fara úr höfn Atl-
antic Peace, Mánafoss
og Frár VE.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag eru væntanleg
Green Frost, Levant
Gracht og Lómur.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og
jóga, kl. 14 bingó.
Hársnyrting, fótaað-
gerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 13–
16,30 smíðar. Bingó
spilað 2. og 4. föstudag
í mánuði.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–
12 vefnaður, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
vefnaður og spilað í
sal.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað
og hárgreiðslustofan
opin, kl. 14 söngstund.
kl. 9–16.30 púttvöllur-
inn opinn.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16
handavinnustofan op-
in, kl. 10–13 verslunin
opin.
Félagsstarfið Hæðar-
garði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, myndlist
o.fl., kl. 9.30 göngu-
hópur, kl. 14 spilað.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 „opið
hús“ spilað á spil.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kl. 10 gler.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Opnað kl. 9. Leikfimi í
Bjarkarhúsi kl. 11.30,
tréútskurður og brids
kl. 13. Pútt á Hrafn-
istuvelli kl. 14–16.
Félag eldri borgara í
Garðabæ. Félagsvist
föstudag 3. október kl.
13 í Garðabergi.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Útvarp Saga
94,3 í dag kl. 12.20.
Þáttur um málefni
eldri borgara.
Gerðuberg, félags-
starf. Sími 575 7720.
Kl. 9–16.30 vinnustof-
ur opnar, m.a. búta-
saumur og fjölbreytt
föndur. Kl. 13 bók-
band, kl. 14 kóræfing,
kl. 20 dansleikur. Veit-
ingar í Kaffi Bergi. Í
dag kl. 11 „Gleðin ger-
ir limina létta“. Stofn-
fundur. Umsjón Júlíus
Arnarson íþróttakenn-
ari.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 myndvefn-
aður, kl. 9.30 málm- og
silfursmíði, kl. 13 bók-
band.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin frá kl. 9–17 virka
daga. Kl. 14–15 bingó.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurð-
ur, baðþjónusta, fóta-
aðgerð og hárgreiðsla.
Bingó.
Kaffiveitingar. Allir
velkomnir.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
14.30 föstudagskaffi.
Hársnyrting. Fótaað-
gerðir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
17 hárgreiðsla, kl. 10–
11 boccia, kl. 14 leik-
fimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl.10–11
kántrí-dans, kl.13.30
sungið við flygilinn við
undirleik Sigurgeirs,
kl. 14.30 dansað við
lagaval Sigvalda,
rjómaterta með
kaffinu. Allir velkomn-
ir.
Vitatorg. Kl. 8. 45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla
og myndlist, kl. 9. 30
bókband og morgun-
stund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl.
12. 30 leir, kl. 13. 30
bingó.
FEBK. Brids spilað kl.
13.15 í Gjábakka.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laugar-
dögum.
Félag einhleypra.
Fundur á morgun kl.
21 í Konnakoti,
Hverfisgötu 105, nýir
félagar velkomnir.
Heitt á könnunni.
Munið gönguna á
mánu- og fimmtudag.
Framsóknarfélag
Mosfellsbæjar. Fé-
lagsvist í kvöld, kl.
20.30 verður spiluð fé-
lagsvist í Framsóknar-
salnum í Háholti 14, 2.
hæð. Veglegir vinn-
ingar og allir velkomn-
ir.
Borgfirðingafélagið í
Reykjavík. Spilum fé-
lagsvist á morgun,
laugardag 4. okt., kl.
14 í Síðumúla 37.
Minningarkort
Minningarkort Grafar-
vogskirkju eru til sölu
í kirkjunni í síma
587 9070 eða 587 9080.
Einnig er hægt að
nálgast kortin í
Kirkjuhúsinu, Lauga-
vegi 31, Rvík.
Í dag er föstudagur 3. október,
276. dagur ársins 2003. Orð
dagsins: Tak eftir því, sem ég
segi. Drottinn mun gefa þér
skilning á öllu.
(2. Tm. 2, 7.)
Kolbrún Halldórsdóttiralþingismaður, sem
mun á komandi þingi
verða fyrsti flutnings-
maður frumvarps til laga
um bann við kaupum á
kynlífsþjónustu, fjallar á
vefsíðu sinni um frétt
DV um umfangsmikla
rannsókn lögreglu-
yfirvalda á vændismáli.
„Það sem gerir umfjöll-
un DV þess virði að
henni sé veitt sérstök at-
hygli er frásagnarmát-
inn og þau sjónarmið
sem lesa má út úr orða-
vali blaðamanns.
Þannig er sagt frá þvíhvernig stúlkurnar
falbjóði þjónustu sína …
talað er um mennina sem
eiga viðskipti við þær …
rætt um tekjur kvenn-
anna og sagt frá því að
umboðsmenn þeirra hafi
tekið 40–50% af innkomu
þeirra eftir að hafa séð
um ferðakostnað fyrir
þær auk uppihalds. Síð-
an er fjallað um það að
konurnar hafi starfað
hér á landi í ákveðinn
tíma … þær hafi starfað
fyrir Íslendingana sem
þær unnu með. Allt
bendir þetta til að blaða-
maður telji vændi vera
starfsgrein, sem beri að
fjalla um sem slíka.
Um þessar mundir og áseinustu árum hefur
farið fram öflug barátta
vítt um heiminn, sem
miðar að því að draga
sannleikann um vændi
fram í dagsljósið. Angi
af þessari baráttu hefur
borist hingað til lands og
er skemmst að minnast
heimsóknar aðstoðar-
forsætisráðherra Sví-
þjóðar, Margaretu Win-
berg.
Í umfjöllun fjölmiðla umheimsóknina var vitn-
að í mál Margaretu og
sagt frá því hvernig hún
hrakti goðsögnina um
hina „hamingjusömu
hóru“. Margareta Win-
berg heldur því fram,
með alla sænsku ríkis-
stjórnina á bak við sig,
að vændi sé ofbeldi
gagnvart konum framið
af körlum. Hún leggur á
það ríka áherslu í mál-
flutningi sínum að kaup-
andi vændis og sú sem
selur það standi afar
ójafnt að vígi, hvort
heldur sé félagslega eða
efnahagslega. Vændi
snúist ævinlega um að
annar aðilinn – sá sterk-
ari, nýti sér veika stöðu
hins.
Kaupendurnir hafa valum að kaupa ekki,
en staða vændiskvenn-
anna er það veik að þær
eiga ekki val. Þannig sé
beinlínis rangt að halda
því fram að konur, sem
eiga alvöru val, geti tek-
ið um það ákvörðun einn
góðan veðurdag að ger-
ast vændiskonur. Við
verðum alltaf að spyrja
okkur hvað sé í boði.
Gæti það t.d. gerst að
kona standi frammi fyrir
vali um að gerast lög-
fræðingur eða vændis-
kona …?“ spyr Kolbrún í
pistli á www. althingi.is/
kolbrunh/.
STAKSTEINAR
Vændi ekki starfsgrein
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur, eins og svomargir aðrir Íslendingar, verið
dálítið á flakki með börnin sín í út-
löndum. Ekki bara í sumarleyfis-
ferðum, heldur drógu nám og störf
fjölskylduna á milli landa oftar en
einu sinni. Af þessu leiddi að börn
Víkverja þurftu að ganga í ýmsa
skóla erlendis um nokkurra ára
skeið. Það er í sjálfu sér ekki í frá-
sögur færandi að öðru leyti en því að
samhliða þessu brölti uppgötvaði
Víkverji hvað að honum sneri varð-
andi val á skólum fyrir börnin, sem
er nokkuð sem fæstir foreldrar gera
sér mikla rellu yfir á Íslandi þar sem
flest börn fara nánast sjálfkrafa í
sína hverfisskóla.
Þegar heim var komið þróuðust
skólamál barna Víkverja því þannig
að þau gengu ekki í sína heimaskóla,
heldur skóla sem valdir voru af því
þeir hentuðu þörfum þeirra af ýms-
um ástæðum. Nú er sonur Víkverja í
tíunda bekk – utan heimahverfis –
og kom heim með þær fréttir um
daginn að þeir skólafélagar hans
sem ættu heima lengra en einn og
hálfan kílómetra frá skólanum
fengju fría strætómiða, en hann
fengi enga. Þetta fannst honum
hróplegt óréttlæti þar sem hann
þarf að fara lengri veg en flestir.
x x x
VÍKVERJI lofaði syni sínum aðkanna hvort þetta væri nú ekki á
einhverjum misskilningi byggt, sér-
staklega í ljósi þess að nýlega var
fjallað um það í blöðum að foreldrar
hefðu í raun sannri frjálst val um
það í hvaða skóla börn þeirra gengju
svo lengi sem pláss væri fyrir þau í
viðkomandi skóla. Eftir töluverða
eftirgrennslan, hjá skrifstofu við-
komandi skóla og síðan Fræðslu-
miðstöð í Reykjavík, kom í ljós að
foreldrar sem einhverra hluta vegna
nota ekki heimaskóla fyrir börnin
sín fyrirgera þessum rétti á strætó-
miðum, burt séð frá því hversu langt
barnið þarf að fara.
Víkverja þótti athyglisvert að þótt
sonur hans hefði reyndar átt fullan
rétt á strætómiðum í sinn heima-
skóla, samkvæmt eins og hálfs kíló-
metrareglunni, er ekki hægt að færa
þau réttindi með honum þótt um enn
lengri veg sé að fara. Reyndar er í
gildi sú furðulega regla að ef barn
flyst af svæði heimaskóla á meðan
skólaárið stendur yfir, fær það
stætómiða „aðra leið“, út árið, en
síðan ekki söguna meir! Reglan virð-
ist því vera sú að ef börnin flytja ein-
hverja vegalengd í burtu eru þau
„vanin“ af miðunum, fyrst með
helmingi færri miðum og svo engum.
Þetta minnti Víkverja á bóndann
sem ætlaði að venja hestinn sinn af
heyi. Það gekk ljómandi vel, hest-
urinn fékk alltaf minna og minna
hey, þar til bóndinn var svo óhepp-
inn að hesturinn drapst fyrirvara-
laust, einmitt þegar tilraunin var
komin svo langt á veg að hann hefði
verið farinn að lifa á lofti.
Morgunblaðið/Kristinn
Þeir sem eiga heima lengst frá skól-
unum fá ekki fría strætómiða.
ÉG tel mig heppna mann-
eskju því ég hef aldrei
reykt. Ekki einu sinni próf-
aði ég það á unglingsárum
mínum. Seinna kom í ljós
að ég er með ofnæmi fyrir
tóbaki eftir að hafa leitað til
læknis vegna mikillar van-
líðunar. Þá hafði ég komið á
veitingahús þar sem flestir
reyktu og loftið var mengað
af reyk. Ég gladdist því
mjög yfir áhuga heilbrigð-
isráðherra á að banna al-
gjörlega reykingar á veit-
ingastöðum. Reykingar eru
andstyggð. Þetta situr í föt-
um fólks og reykingafólk
fær oft gular og ljótar tenn-
ur. Sumir verða andfúlir,
hárið þurrt og rytjulegt og
húðin ömurleg. Reykinga-
fólk eldist oft fljótar. Það
blæs líka peningum sínum
út í loftið, sem er sorglegt.
Reykingafólk kvartar yf-
ir að geta hvergi verið við
iðju sína – en hvað með
okkur hin sem ekki viljum
eða megum vera nálægt
þessu? Eigum við sífellt að
þola reykingar frá eigin-
gjörnu reykingafólki?
Vonandi stefnum við öll í
þá átt að lifa heilbrigðu og
reglusömu lífi í framtíðinni,
laus við þá fíkn sem reyk-
ingar eru. Þá mun okkur
ganga betur að lifa í sátt og
samlyndi.
Sigrún Á. Reynisdóttir.
Nauðsynlegur
uppgröftur?
Í KELDUDAL í Skagafirði
er verið að grafa upp gaml-
an kirkjugarð (fornminja-
gröftur). Þessi kirkjugarð-
ur er frá miðöldum, frá
kristnu tímabili og búið er
að grafa upp u.þ.b. 50
beinagrindur.
Hvers vegna var ekki
nóg að vita að þarna hefði
verið kirkjugarður, þurfti
að grafa upp allar þessar
beinagrindur og hvað verð-
ur gert við beinagrind-
urnar?
Okkur finnst þetta svo
fjarstætt, það á bara að
blessa yfir garðinn og láta
svo í friði.
Hvaða kirkjugarður er
næstur?
Kona að norðan.
Ekki fjölskylduefni
ÉG vil lýsa yfir undrun
minni á vali kvikmynda
sem sýndar eru í Ríkis-
sjóvnarpinu á laugardags-
kvöldum. Þar eru sýndar
kvikmyndir sem höfða ekki
alltaf til allrar fjölskyld-
unnar. Það er slæmt ef fjöl-
skyldan getur ekki sest nið-
ur saman á laugardags-
kvöldum og horft á góða
bíómynd. Það vill manni til
happs að maður getur horft
á Skjá 1.
Eins er þetta með út-
varpið rás 1. Þar virðist
eingöngu vera efni fyrir
yngra fólkið, stöðin er kom-
in með þessa sömu síbylju
eins og aðrir sem höfða
frekar til unglinga en ekki
efni sem fullorðið fólk
hlustar á. Fólk er orðið
þreytt á þessari síbylju og
það er sama hvern maður
hittir það virðast allir vera
farnir að hlusta á útvarp
Sögu þar sem verið er að
fylgjast með töluðu máli og
því sem er að gerast í þjóð-
félaginu.
Vil ég þakka Guðna Má á
Rás 2 fyrir þættina á föstu-
dagskvöldum, þeir eru frá-
bærir.
Eins finnst mér Skjár 1
og Útvarp Saga frábær og
veit að það eru margir sam-
mála mér.
Hlustandi.
Tapað/fundið
Drengjareiðhjól
týndist
BLÁTT drengjareiðhjól af
gerðinni Mongoose tapað-
ist í Lyngbrekku í Kópa-
vogi eða næsta nágrenni
nýverið.
Finnandi er vinsamleg-
ast beðinn að hringja í síma
820 6377.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Tóbaks-
reykingar
Morgunblaðið/Jim Smart
LÁRÉTT
1 metnaðargjarn, 8 í
vondu skapi, 9 þakin
ryki, 10 ætt, 11 fugl, 13
búa til, 15 æki, 18 vatns-
ból, 21 guð, 22 bogna, 23
heldur, 24 þekkta.
LÓÐRÉTT
2 munntóbak, 3 setja tak-
mörk, 4 málms, 5 regn, 6
styrkt, 7 óttast, 12 tangi,
14 elskur, 15 hæð, 16
hindra, 17 stefni, 18
reykjarsvælu, 19 hárið,
20 ill kona.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 húkka, 4 tíkin, 7 mjúkt, 8 gulli, 9 ill, 11 rétt, 13
maga, 14 óarga, 15 barm, 17 trúa, 20 orm, 22 tímar, 23
örðug, 24 renna, 25 kæran.
Lóðrétt: 1 humar, 2 klúrt, 3 atti, 4 tagl, 5 kelda, 6 neita,
10 lærir, 12 tóm, 13 mat, 15 bætur, 16 ríman, 18 ræður,
19 angan, 20 orka, 21 mörk.
Krossgáta
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16