Morgunblaðið - 10.10.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 274. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Daglegt
líf
Óþarfi að henda gömlu
tölvunni 26
Svört föt
Sylvíu
Leituðu til Stjörnuleitar
eftir aðstoð Fólk 59
Fallegustu
hundarnir
350 hundar af tæplega 50 tegundum
á haustsýningu Hundar 46
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti snerist í gær til varnar stefnu
sinni í bæði utanríkis- og efnahags-
málum en mikið hefur borið á
harkalegri gagnrýni á Bush und-
anfarið og hafa vinsældir forsetans
dalað, m.a. vegna stöðu mála í Írak.
„Ég lét til skarar skríða vegna
þess að ég ætlaði ekki að horfa upp
á að öryggi bandarísku þjóðarinnar
væri í höndum brjálæðings. Ég var
ekki á þeim buxunum að standa
álengdar og treysta einfaldlega á
andlegt heilbrigði og stillingu
Saddams Husseins,“ sagði Bush
um herförina í Írak og gerði um
leið lítið úr þeirri staðreynd, að
engin gereyðingarvopn hefðu fund-
ist í Írak.
Bush hefur áður látið svipuð orð
falla en athygli vekur að alls flutti
Bush þrjár ræður í gær. Um var að
ræða fyrstu lotu eins konar al-
mannatengslaátaks Bush-stjórnar-
innar, sem ráðist hefur verið í til að
bregðast við hinni hörðu gagnrýni
sem fram hefur komið.
Reuters
George W. Bush hefur átt undir
högg að sækja undanfarið.
Bush snýst
til varnar
Portsmouth í New Hampshire. AFP.
Bregst við gagnrýni
og dalandi fylgi
Níu manns/16
MIKIÐ uppnám ríkti í palestínskum
stjórnmálum í gær eftir að fulltrúar
á heimastjórnarþingi Palestínu-
manna gáfu til kynna að þeir myndu
ekki samþykkja orðalaust skipan
neyðarráðuneytis Yassers Arafats,
leiðtoga Palestínumanna. Voru þing-
fulltrúar sagðir reiðir yfir því að ekki
var haft samráð við þá við myndun
stjórnarinnar. Jafnframt hermdu
fregnir að Ahmed Qurei, forsætis-
ráðherra nýju stjórnarinnar, hefði
sagt af sér eftir deilur við Arafat.
Arafat og Qurei eru sagðir hafa átt
stormasaman fund í Ramallah og
lauk honum, eftir því sem næst verð-
ur komist, með því að Qurei baðst
lausnar. Sagði á fréttasíðu BBC að
Qurei hefði verið ósáttur við afskipti
Arafats af öryggismálum.
Aðeins nokkrir dagar eru síðan
Qurei sór embættiseið. Forveri hans,
Mahmoud Abbas, sagði af sér emb-
ætti fyrir mánuði eftir að hafa orðið
undir í valdabaráttu við Arafat.
Qurei deildi
við Arafat
Ramallah. AFP.
BÚIST er við miklu verðstríði á norska smá-
sölumarkaðnum á næstunni og eru fyrstu
merkin þegar komin fram í lægra ölverði.
Ástæðan er yfirvofandi innrás lágvöruverðs-
verslana frá meginlandinu.
Tvö stærstu brugghúsin í Noregi hafa
lækkað verð á öli og í matvöruversluninni
og raunar í mörgum öðrum greinum er mik-
ill titringur vegna væntanlegrar komu þýsku
lágvöruverðskeðjunnar Lidl. Hefur hún þeg-
ar opnað verslanir og ýtt undir aukna sam-
keppni í Finnlandi og Svíþjóð.
Þeir, sem þekkja vel til norska markaðar-
ins, einkum matvörumarkaðarins, segja, að
þessi þróun hafi aðeins verið tímaspursmál.
Lækkunin á ölverðinu sé aðeins reykurinn af
réttunum, lækkun á ýmissi matvöru muni
fylgja í kjölfarið. Hér eftir verði erfiðara en
áður að halda sig við gamla, háa verðið.
Sérfræðingarnir segja, að lágvöruverðs-
keðjur á borð við Lidl, Aldi, Netto og Fakta
muni hafa mótandi áhrif á umhverfi smá-
söluverslunarinnar á næstunni og því er
spáð, að væntanlegt verðstríð muni leiða til
verulegrar uppstokkunar og ekki sé víst, að
norsku verslanakeðjurnar muni allar lifa
átökin af. Á þessum markaði sé um að ræða
sömu þróun og í fluginu þar sem lágfar-
gjaldafélög eru að kippa fótunum undan
gömlum og grónum félögum. Á því hafi
SAS-flugfélagið fengið að kenna að und-
anförnu.
Verðstríð á norsk-
um smásölumarkaði
Ljósmynd/Scanpix
Matvara mun líklega lækka í verði í Noregi á
næstunni. Myndin er tekin í matvörubúð í Ósló. Mikið/16
HLUTHAFAFUNDUR Eimskipa-
félagsins samþykkti í gær samning
um hluthafaviðskipti frá 19. síðasta
mánaðar. Rúmlega 88% greiddu at-
kvæði með samningnum en tæplega
6% voru á móti. Á fundinum var
kjörin ný stjórn í félaginu en skipt
var um alla stjórnarmennina.
Þau viðskipti sem um ræðir koma
fram í rammasamningi og fylgi-
samningum hans um kaup og sölu á
hlutabréfum í eigu Eimskipafélags-
ins. Samningurinn var gerður milli
sjö aðila og auk dótturfélags Eim-
skipafélagsins voru þeirra á meðal
Samson Global Holding, Fjárfest-
ingarfélagið Straumur, Íslandsbanki
og Landsbanki Íslands.
Á fundinum kom fram hörð gagn-
rýni á nýja ráðandi hluthafa í félag-
inu, sem eru að stórum hluta Lands-
banki Íslands og stærstu hluthafar
hans. Fráfarandi stjórnarformaður
gagnrýndi í ræðu sinni þau viðskipti
sem greidd voru atkvæði um á fund-
inum og leiddu til þess að hann var
haldinn. Þá lýsti hann þeirri skoðun
sinni að viðskiptin, sem leiddu til
lækkunar eiginfjárhlutfalls félags-
ins, kynnu að verða til að veikja fé-
lagið. Hann gagnrýndi einnig hug-
myndir um að skipta upp félaginu og
sagði þær vinna gegn þeirri hagræð-
ingu sem náðst hefði með tilkomu
Brims, sjávarútvegsstoðar Eim-
skipafélagsins.
Vilhjálmur Bjarnason, hluthafi í
félaginu, gagnrýndi einnig fyrr-
greind viðskipti og taldi vegið að fé-
laginu. Sagði hann viðskiptin fara
gegn hagsmunum flestra hluthafa
en hygla tveimur þeirra, Íslands-
banka og Fjárfestingarfélaginu
Straumi.
Jón Steinar Gunnlaugsson lög-
maður, sem fór með atkvæði Lands-
bankans, andmælti þeirri gagnrýni
sem fram hafði komið og sagði rangt
að um óeðlileg viðskipti hefði verið
að ræða. Þau hefðu öll farið fram á
markaðsgengi og líta yrði á samn-
inginn í heild en ekki taka út einstök
viðskipti eins og gagnrýnendur
hefðu gert. Sagði hann nýja hluthafa
blása til sóknar í rekstri félagsins.
Halldór J. Kristjánsson sagði að
fundi loknum um gagnrýnina sem
fram kom að hluthafarnir hefðu tal-
að og að 88% þeirra væru sammála
því mati að samningarnir yrðu að
dæmast sem ein heild.
Magnús Gunnarsson, nýr stjórn-
arformaður félagsins, sagði eftir
fundinn að það væri mikil áskorun
að takast á við að gegna stjórnarfor-
mennsku í Eimskip og sagði stjórn-
ina vilja styrkja hag félagsins og
hluthafanna.
Viljum styrkja hag
félagsins og hluthafa
Hluthafafundur
samþykkir til-
lögur nýrra ráð-
andi hluthafa
♦ ♦ ♦
JÓN Steinar Gunnlaugsson lögmaður greiðir atkvæði
á hluthafafundi Eimskipafélagsins, en hann fór með
atkvæðisrétt Landsbankans og þeirra bréfa sem hann
hafði umboð fyrir. Á myndinni má auk Jóns Steinars
sjá Kjartan Gunnarsson, varaformann bankaráðs
Landsbankans, Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóra
Landsbankans, Björgólf Guðmundsson, stjórnarfor-
mann og einn helsta eiganda Landsbankans, og Magn-
ús Gunnarsson, nýkjörinn stjórnarformann Eimskipa-
félagsins.
Morgunblaðið/Sverrir
Atkvæði greidd á hluthafafundi
Magnús Gunnarsson, nýkjörinn stjórnarformaður Eimskips, eftir hluthafafund
88% hluthafa/14