Morgunblaðið - 10.10.2003, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 10.10.2003, Blaðsíða 21
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2003 21 Árbæ | Krakkarnir í Selásskóla tóku vel á móti Þórólfi Árnasyni borgarstjóra og fleiri gestum þegar borgarstjóri opnaði nýja viðbyggingu við Selásskóla. Krakkarnir í 3. bekk léku upp úr ritgerðum sínum um Ísland, en fjórðubekk- ingarnir röppuðu þulu. „Krökkunum fannst alveg afskaplega gam- an að fá borgarstjóra í heimsókn,“ segir Örn Halldórsson, skólastjóri Selásskóla. „Þórólfur er búinn að vera hérna að spjalla við krakkana, þau eru mjög hrifin af því að fá svona heim- sókn.“ Nýja viðbyggingin er á tveimur hæðum við norðurhlið 1. áfanga núverandi skólahúss. Fyr- irkomulagið innanhúss tekur mið af meiri opn- un rýma en algengt er, í viðbyggingunni eru fimm stórar heimastofur opnar fram á gang og þrjár hefðbundnar heimastofur. Þar er einnig tölvuver, bókasafn og vinnuaðstaða kennara. Viðbyggingin er um 1.500 fermetrar, og er áætlaður kostnaður samtals um 300 milljónir króna. Hún hefur verið um tvö og hálft ár í byggingu. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Þórólfur Árnason borgarstjóri var hinn hressasti og brá á leik með börnunum í tilefni dagsins. Röppuðu þulu fyrir borgarstjóra Áminnt vegna ólyktar | Tvö fisk- verkunarfyrirtæki á Hvaleyrarholt- inu í Hafnarfirði voru áminnt af Heilbrigðiseftirlitinu vegna ólyktar, en fólk sem býr í nágrenninu hafði kvartað nokkuð undan lykt und- anfarið. Málið snýst um lykt sem kemur af heitloftsþurrkun á fiskhausum, en hvorugt fyrirtækið hefur leyfi til slíkrar starfsemi. Samkvæmt upp- lýsingum frá Heilbrigðiseftirlitinu fá nú fyrirtækin frest til 14. október til að koma að skriflegum andmælum, annars megi búast við kæru komi til- vik sem þessi upp aftur. Morgunblaðið/Þorkell Allir með netfang | Grunnskólar Garðabæjar leggja mikið upp úr rafrænum samskiptum við for- eldra, og í Hofsstaðaskóla eru allir foreldrar barna með skráð net- fang. Í öðrum skólum er hlutfallið næstum jafn hátt, frá 90 til 96%. Rafræn samskipti spara pappír en geta líka sparað bæði kenn- urum og foreldrum tíma og fyr- irhöfn þegar þeir þurfa að ná sam- bandi hver við annan. Þeir sem ekki hafa netfang fá eftir sem áður tilkynningar á pappír, að því er kemur fram á heimasíðu Garða- bæjar.    Hafnarfirði | Allt bendir nú til að Leikfélag Hafnarfjarðar fái aðstöðu á neðstu hæð gamla Lækjarskóla. Getur leikfélagið þá haldið sýningar og æft í húsinu, auk þess að hafa fundar- og geymsluaðstöðu þar. Gunnar Björn Guðmundsson, for- maður leikfélagsins, segist vonast til að geta flutt inn í húsnæðið í síðasta lagi um áramót. „Þetta breytir öllu fyrir okkur, Leikfélag Hafnarfjarðar var eitt stærsta áhugamannaleik- félagið á landinu hér áður fyrr.“ Gunnar segir að leikfélagið hafi lengi verið á hrakhólum, alveg síðan félagið missti aðstöðuna í Bæjarbíói. „Við höfum lengi verið að biðja um aðstöðu til að geta sýnt almennileg stykki, boðið upp á námskeið og ann- að, og þá kom þessi hugmynd upp, hvort leikfélagið hefði áhuga á að vera þarna. Við fórum og skoðuðum húsnæðið og það voru allir í félaginu þrælánægðir með þetta.“ Leikfélag- ið sótti í framhaldinu um að fá að- stöðu í gamla skólahúsnæðinu, og hefur nú fengið jákvætt svar frá bænum. Ellý Erlingsdóttir, formaður þjón- ustu- og þróunarráðs Hafnafjarðar, segir að lítið þurfi að gera við hús- næðið, einungis rífa niður einn milli- vegg, svo leikfélagið ætti að geta flutt fljótlega ef samningar takast milli félagsins og bæjarins. Fundað var í ráðinu á miðvikudag þar sem ráðið mælti með því að leikfélagið fengi aðstöðu í skólanum fyrrver- andi. Á efti hæðum hússins verða Námsflokkarnir með aðstöðu áfram. Leikfélagið í gamla Lækjar- skólahúsið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.