Morgunblaðið - 10.10.2003, Blaðsíða 55
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2003 55
HELGI Jónas Guðfinnsson, sem
var valinn besti leikmaður úrvals-
deildar karla í körfuknattleik síðasta
vetur, verður ekki með Grindavík
gegn Njarðvík í fyrstu umferð deild-
arinnar í kvöld. Að sögn Friðriks
Inga Rúnarssonar, þjálfara Grinda-
víkur, gæti hann verið frá keppni í
nokkrar vikur.
GÍSLI Kristjánsson skorði eitt
mark þegar lið hans Fredericia HK
tapaði 30:25 fyrir Kolding IF í
dönsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik í fyrrakvöld.
HARRY Redknapp, knattspyrnu-
stjóri Portsmouth, hefur verið
dæmdur í tveggja leikja bann af
enska knattspyrnusambandinu auk
þess sem honum er gert að greiða
jafnvirði um 400.000 kr. í sekt.
Ástæðan er sú að Redknapp fór al-
veg yfir strikið í gagnrýni sinni á
Andy D’Urso dómara leiks Ports-
mouth og Wolves í lok ágúst.
LOUIS van Gaal er á ný kominn í
vinnu hjá Ajax í Hollandi eftir að
hafa verið án atvinnu í nokkra mán-
uði. Í gær var hann ráðinn tækni-
legur ráðgjafi liðsins og tekur við af
Leo Beenhakker, sem sagði skilið
við Ajax í vor og tók við starfi lands-
liðsþjálfara Mexíkó. Í nýju starfi
sínu kemur Gaal til með að vinna við
hlið Ronalds Koemans þjálfara Ajax,
Koeman var tæknilegur ráðgjafi
Ajax leiktíðina 1998 til 1999 þegar
Gaal var þjálfari.
FÓLK
Viggó og lærisveinar hans mættuBarcelona í 3. umferð EHF-
keppninnar fyrir tveimur árum.
Haukar töpuðu
leiknum á Spáni með
tíu marka mun,
39:29 og á Ásvöllum,
30:28.
„Ef maður ber saman lið Barce-
lona þá og nú er alveg ljóst að liðið í
dag er miklu sterkara. Börsungar
hafa endurnýjað lið sitt og fengið
frábæra leikmenn eins og Iker Rom-
ero, Frakkann Jarome Fernandez,
júgóslavneska línumanninn Skrbic
og norsku landsliðsmennina Frode
Hagen og Glenn Solberg svo lið
þeirra er stjörnum prýtt og er án efa
eitt af sterkari liðum í heimi. Barce-
lona er búið að vinna Portland og
Ciudad Real, bæði Evrópumeistara-
lið, og það eitt segir manni að þetta
er heimsklassalið. Með tilkomu þess-
ara nýju manna hafa þeir sett sér
skýr markmið en það er að vinna alla
titla sem í boði eru, þar á meðal Evr-
ópumeistaratitilinn,“ sagði Viggó við
Morgunblaðið.
Viggó hefur síðustu daga legið yfir
myndböndum af leikjum Barcelona
og reynt að finna einhver ráð sem
hann getur átt uppi í erminni á
sunnudaginn.
„Það er bara ekki hægt að finna
neinn veikleika á þeirra liði. Styrk-
leikinn felst hins vegar í fantagóðum
varnarleik og hraðaupphlaupum.
Þeir eru ótrúlega fljótir fram og
refsa liðum fyrir minnstu mistök í
sóknarleiknum. Sóknir þeirra standa
stutt yfir og þeir eru endalaust að
skipta mönnum út og inn.“
Viggó segir að Barcelona leiki 5+1
vörn sem er ákaflega hreyfanleg og
það sé því lykilatriði hjá hans mönn-
um að spila agaðan sóknarleik og
hefta það eins vel og mögulegt er að
Spánverjarnir nái hröðum sóknum.
„Það þýðir ekkert að rétta þessum
köllum boltann. Það kostar bara
mark. Það er varla nóg að skora
gegn þeim því þeir eru komnir upp í
bakið á þér um leið. Það er því margt
að varast og menn verða að vera
rosalega vel einbeittir gegn svona
öflugu liði.“
Viggó segir mikla tilhlökkum að fá
að taka þátt í að mæta Barcelona
enda ekki á hverjum degi sem færi
gefst á spila við svona gott lið.
„Það þýðir ekki að fara í leikinn
með því hugarfari að hann sé tap-
aður. Ég mun reyna eftir fremsta
megni að berja kjark í strákana og
sjá til þess að þeir sýni klærnar. Ég
veit að strákarnir eru búnir að bíða
eftir þessum leik lengi og fyrir vikið
hafa þeir kannski ekki alveg verið
nógu einbeittir í deildarleikjunum.
Við förum í leikinn af fullu sjálfs-
trausti. Liðið er komið með mikla og
góða reynslu eftir þátttöku í Evrópu-
keppninni undanfarin ár og ég veit
að strákarnir vilja og ætla að leggja
sig alla fram. Við verðum svo bara að
sjá hverju það skilar.“
Lið Barcelona kemur til landsins á
morgun með allt sitt sterkasta lið og
þjálfarann Valero Rivera Lopéz en
hann hefur þjálfað lið Barcelona
samfleytt í 20 ár. Rivero og Viggó
léku saman með Barcelona 1980 en
tveimur árum síðar tók Rivera við
þjálfun liðsins.
Að sögn Viggós eru allir liðsmenn
Hauka klárir í slaginn en Vignir
Svavarsson, sem hefur átt í
meiðslum í baki, er byrjaður að spila
á nýjan leik sem eru góð tíðindi fyrir
Hauka enda Vignir öflugur línumað-
ur og fastur fyrir í vörninni.
Ætlum að sýna
þeim klærnar
ÍSLANDSMEISTARAR Hauka bíða spenntir eftir því að fá að taka á
móti stórliði Barcelona í fyrsta leik sínum í riðlakeppni Meistara-
deildar Evrópu í handknattleik á Ásvöllum á sunnudaginn. Viggó
Sigurðsson, þjálfari Hauka og liðsmaður Barcelona á árum áður,
gerir sér vel grein fyrir því að hans menn koma til með að eiga við
ramman reip að draga enda Börsungar með heimsklassalið sem
ætlar sér alla leið í keppninni.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Morgunblaðið/Þorkell
Chris Woods var öflugur í liði KR í gær gegn Breiðablik og gerði
meðal annars fjörutíu stig. Hér er hann í baráttu við Blikana
Mirko Virijevic og Þórarin Andrésson undir körfunni.
Viggó Sigurðsson þjálfari Hauka segir mikla tilhlökkun ríkja
vegna leiksins við Barcelona í Meistaradeild á sunnudaginn
Teppi á stigaganga
Ármúla 23, sími 533 5060 • www.stepp.is