Morgunblaðið - 10.10.2003, Blaðsíða 58
58 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 10.
B.i. 12.
Sýnd kl. 4 og 6.
með ísl. tali.
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
Ný vídd í
skemmtun fyrir
alla fjölskylduna.
Settu upp
3víddar
gleraugun og
taktu þátt í
ævintýrinu!
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
l
l j j
i
kl. 6, 8.30 og 11. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 5, 8 og 11.
B.i. 16 ára.Sýnd kl. 8 og 10.15.
Besta sérsveit sem sett hefur verið saman er að
lenda í sínu erfiðasta máli. Mögnuð spennumynd!
Frá framleiðanda
Fast & the Furious og xXx
Beint á
toppinn
í USA
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 5.30, 8,10.30 og 12.15 powersýning B.i. 12 ára
Powe
rsýni
ng
kl. 1
2.15
.
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
l
l j j
i
Ný vídd í
skemmtun fyrir
alla fjölskylduna.
Settu upp
3víddar
gleraugun og
taktu þátt í
ævintýrinu!
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 5.45, 8, 10.20 og 12.40 kraftsýning. B.i. 12 ára
Besta sérsveit sem sett hefur verið saman er að lenda í sínu erfiðasta máli.
Mögnuð spennumynd!
Frá framleiðanda
Fast & the Furious og xXx
Löggur þurfa líka hjálp!
Beint á
toppinn
í USA
KRAFT
SÝNIN
G
KL. 12
.40.. .
.
Sýnd kl. 12.40. B.i. 16 ára.
Geirmundur Valtýsson
í kvöld
Leikhúsgestir, munið spennandi matseðil
Grensásvegi 7
Tilboð á bjór til miðnættis
Frítt inn föstudag og laugardag til kl. 24.00
Opið 21.00-01.00 virka daga og 21.00-05.30 um helgar
EITT umtalaðasta fyrirbrigði í bíó-
heiminum síðustu árin eða áratugi
eru Matrix-myndirnar. Ekki hvað síst
vegna þeirrar heimsmyndar sem höf-
undar myndarinnar Wachowski-
bræður hafa skapað, eins og
sniðna fyrir bíógrúskara og aðra
sem dálæti hafa af vísindaskáld-
skap hvers konar.
Betri botn í
framvindunni
Það eru ekki síst
slíkar kvikmyndir
sem best virka á
mynddiskum en
önnur myndin í
The Matrix-
þríleiknum,
Matrix end-
urhlaðið, kemur einmitt
út á mynddiski í dag.
Þeir verða vafalítið margir sem
rjúka út í búð og tryggja sér eintak
hið fyrsta því flestir unn-
endur myndanna, sem
og aðrir bíóunnendur,
höfðu það á orði eftir
að hafa orðið vitni að
sjónarspilinu sem
þessi mynd var að
það þyrfti eiginlega
að sjá hana tvisvar, ef
ekki oftar, til þess að geta ráðið í allt
það sem Wachowski-bræður voru að
reyna að koma áleiðis. Ekki síst eru
þeir hinir sömu æstir að fá einhvern
botn, sinn eigin botn, í framvinduna,
áður en þriðja myndin verður op-
inberuð 5. nóvember næstkomandi
samtímis um heim allan, þ.á m.
hérlendis.
Mynddiskurinn nýi kemur í
kjölfar tveggja útgáfa sem fyrir
eru á myndiski af The Matrix og
svo teiknimyndanna Animatrix,
sem hafa að geyma forsögu átak-
anna. Útgáfan nýja er á tveimur
diskum. Sá fyrri tveggja laga og gæð-
in því mun betri en gengur og gerist,
hreint ótrúlega skörp mynd, bæði
hárfín og stöðug. Myndin er í Dolby
Digital 5.1 og mun hljóðið í henni
vafalítið vera notað af græju-
kaupmönnum allra landa til að reyna
að selja vænlegum viðskiptavinum
nýjasta heimabíókerfið.
Elst við eltingaleikinn
Seinni diskurinn er eins lags og
inniheldur meira en tvo tíma af frem-
ur hefðbundnu aukaefni. Fyrst ber að
nefna það neikvæða, sem er að engar
lýsingar á myndinni er að finna. Skýr-
ingin er vitanlega sú að þeir Wach-
owski-bræður hafa margsinnis lýst
því yfir að þeir kæri sig ekkert
um að mata myndirnar ofan í fólk
– þeir um það.
Af aukaefninu er fyrst á dag-
skránni hin hefðbundna „gerð
myndarinnar“. Þar er áhugaverð-
ast að fylgjast með því hvernig
bardagaatriðin voru útfærð, hvern-
ig þjálfun leikaranna var háttað og
þá hvernig fimi þeirra var síðan
samtvinnuð öllum þessum aragrúa
myndbrellna sem finna má í næstum
því hverjum einasta myndramma.
Stuttmyndin The Matrix Unfolds
segir í stuttu máli frá því hvernig búið
er að þenja Matrixið úr einni kvik-
mynd í heilan heim af margmiðl-
unarverkefnum; þrjár kvikmyndir,
teiknimyndir, sjónvarpsþætti, tölvu-
leiki, netsíður og hvaðeina.
Áhugaverðasti þáttur alls aukaefn-
isins verður þó að teljast nákvæm út-
listun á því hvernig hinn æsilegi elt-
ingaleikur á hraðbrautinni varð til en
fyrir þetta atriði gerðu menn sér lítið
fyrir og lögðu heila hraðbraut til að
skjóta á og sprengja síðan í öreindir.
Annað eigulegt aukaefni er atriði
frá síðustu kvikmyndaverðlauna-
hátíð MTV þar sem þeir Justin
Timberlake, Sean William Scott og
Will Ferrell gerðu roknagrín að
Matrix-fyrirbærinu öllu saman en
hér er á ferð óklippt atriði sem aldr-
ei hefur sést áður.
Þar til viðbótar er meðal aukaefnis
að finna hugmyndir á bakvið mark-
aðssetningu Matrix-myndanna og ít-
arlega mynd um gerð Matrix-
tölvuleikjanna.
Önnur myndin í The Matrix-þríleiknum
Endurhlaðin á mynddiski
Matrix endurhlaðið kemur út á
mynddiski í dag.
Hinn útvaldi Neo og
óvinurinn Smith kljást.
Þau eru ekki enn fundin á nýju út-
gáfunni en á mynddiskunum með
fyrstu The Matrix leynast all-
nokkur „páskaegg“, en svo er það
jafnan kallað aukaefnið sem falið
er og hvergi má finna í efnisyfirliti.
THE MATRIX
Farið í „Special Features“, veljið
„The Dream World“. Þá fást val-
möguleikar en líka lítill rauður
hnappur. Veljið hann. Þá afhjúpast
heimildarmyndin „What is Bullet
Time?“
Farið í „Special Features“. Smell-
ið þar á „Cast & Crew Bios“ og velj-
ið „Warchowsky Brothers“. Kemur
þá upp rauður hnappur sem af-
hjúpar 12 mínútna heimildarmynd
sem heitir „What is Concept?“
THE MATRIX REVISITED
Veljið „Go Further“ í aðalvalmynd
og kemur þá önnur valmynd. Ýtið á
hægri örvatakkann á fjarstýringu.
Birtist þá kona í rauðu. Ýtið þá á
„Enter“ og fáið að launum 40 sek.
um þá persónu í myndinni. Hægt er
að halda svona áfram, þrýsta á
hægri hnappinn með bendil á kon-
unni í rauðu og birtist þá Agent
Smith og hægt er að fá áður óbirtar
upplýsingar um hann. Fylgið sömu
leiðbeiningum til að sjá einnig bak-
sviðsmyndir af Keanu Reeves að
undirbúa sig fyrir áhættuatriði.
Veljið „Language“ í aðal-
valmynd. Ýtið á vinstri örvatakkann
á fjarstýringu sem lýsir upp síma-
klefa. Með því fæst aðgangur að
glymskratta sem hefur að geima 41
lag er tengjast The Matrix og öllum
heimildarmyndum í kringum mynd-
ina.
Einmitt í þessum glymskratta má
líka finna upprunalega sýnishornið
úr The Matrix. Farið á síðu með lög-
um 11–20. Ýtið á hægri örvatakk-
ann á fjarstýringu, sjáið Keanu
Reeves forðast byssuskot og ýtið á
„Enter“. Kemur þá sýnishornið.
Páskaegg