Morgunblaðið - 10.10.2003, Blaðsíða 54
ÍÞRÓTTIR
54 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KÖRFUKNATTLEIKUR
KFÍ – Haukar 81:89
Íþróttahúsið Torfnesi, Ísafirði, úrvalsdeild
karla, Intersport-deildin, fimmtudaginn 9.
október 2003.
Gangur leiksins: 13:22, 19:28, 19:35, 26:35,
30:43, 39:36, 45:46, 53:54, 60:64, 70:75,
75:83, 81:89.
Stigahæstir hjá KFÍ: Adam Spanich 35,
Jeb Ivey 24.
Stigahæstir hjá Haukum: Mike Manshel
28, Halldór Kristmannsson 22.
Áhorfendur: 230.
Því miður var ekki nánari upplýsingar að
fá frá Ísafirði í gærkvöldi.
Þór Þ. – ÍR 112:106
Þorlákshöfn:
Gangur leiksins: 12:10, 19:15, 29:24, 33:31,
38:39, 45:48, 53:57, 64:65, 69:67, 86:75,
89:89, 93:93, 106:106, 112:106.
Stig Þórs: Ray Robins 43, Leon Brisport
27, Billy Dreher13, Gunnlaugur Erlends-
son 10, Rúnar Sævarsson 10, Ágúst Grét-
arsson 4, Grétar Erlendsson 3, Finnur
Andrésson 2.
Fráköst: 31 í vörn – 8 í sókn.
Stig ÍR: Reggie Jessie 47, Keven Grand-
berg 18, Ólafur Sigurðsson 15, Eiríkur Ön-
undarson 13, Ómar Sævarsson 8, Ólafur
Þórisson 2, Benedikt Pálsson 2.
Fráköst: 29 í vörn – 10 í sókn.
Villur: Þór 23 – ÍR 24.
Dómarar: Einar Þór Skarphéðinsson og
Kristinn Óskarsson.
Áhorfendur: Tæplega 400.
KR – Breiðablik 116:95
DHL-höllin, Reykjavík: Gangur leiksins:
0:2, 4:8, 11:9, 18:13, 28:18, 34:20, 44.30,
46:41, 55:46, 60:51, 62:57, 73:63, 80:65,
89:67, 93:67, 101:73, 107:85, 116:95.
Stig KR: Chris Woods 40, Baldur Ólafsson
17, Skarphéðinn Ingason 17, Steinar Kal-
dal 14, Helgi R. Guðmundsson 11, Hjalti
Kristinsson 8, Jóhannes Árnason 3, Magn-
ús Helgason 2, Magni Hafsteinsson 2, Ólaf-
ur Már Ægisson 2.
Fráköst: 23 í vörn – 12 í sókn.
Stig Breiðabliks: Kyrem Massey 26, Pálmi
Sigurgeirsson 22, Mirko Mirijevic 18, Jón-
as Ólafsson 11, Friðrik Hreinsson 9, Loftur
Einarsson 5, Þórarinn Andrésson 4, Jó-
hannes Hauksson 1.
Fráköst: 20 í vörn – 16 í sókn.
Villur: KR 21 – Breiðablik 22.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Guð-
mundur Stefán Maríasson sem mættur er í
slaginn eftir 12 ára hlé. Stóðu sig vel.
Áhorfendur: Um 300.
Tindastóll – Snæfell 85:92
Sauðárkrókur:
Gangur leiksins: 10:0, 10:10, 15:15, 20:17,
22:19,26:21, 30:25, 35:26, 39:30, 44:37,
48:40, 50:46, 57:58, 61:61, 68:63, 70:70,
72:75, 79:84, 83:87, 85:92.
Stig Tindastóls: Charlton Brown 24, Clif-
ton Cook 18, Adrian Parks 17, Kristinn
Friðriksson 12, Axel Kárason 12, Helgi
Rafn Viggósson 2.
Fráköst: 23 í vörn – 14 í sókn.
Stig Snæfells: Corey Dicerson 32, Lýður
Vignisson 23, Sigurður Ágúst Þorvaldsson
19 Hlynur Bæringsson 10, Dondrel Whit-
more 6, Hafþór Ingi Gunnarsson 2.
Fráköst: 26 í vörn – 3 í sókn.
Villur: Tindastóll 18 – Snæfell 16.
Dómarar: Sigmundur Herbertsson og
Eggert Aðalsteinsson, dæmdu vel.
Áhorfendur: 410
1. deild kvenna
Keflavík – Grindavík .........................104:73
Stig Keflavíkur: Erla Þorsteinsdóttir 19,
Birna Valgarðsdóttir 17, María Erlings-
dóttir 16, Erla Reynisdóttir 12, Kristín
Blöndal 10, Svava Stefánsdóttir 8, Rann-
veig Randversdóttir 8, Halldór Andrés-
dóttir 6, Bryndís Guðmundsdóttir 4, Marín
Karlsdóttir 2.
Fráköst: 15 í sókn - 23 í vörn.
Stig Grindavíkur: Sólveig Gunnlaugsdóttir
24, Petrunella Skúladóttir 12, Guðrún Guð-
mundsdóttir 10, Ólöf Pálsdóttir 10, María
Guðmundsdóttir 6, Sandra Guðlaugsdóttir
5, Harpa Hallgrímsdóttir 2, Rut Ragnars-
dóttir 2, Jovana Stefánsdóttir 2.
Fráköst: 8 í sókn - 22 í vörn.
Villur: Keflavík 17 - Grindavík 27.
1. deild karla
ÍG – Ármann/Þróttur............................89:87
KNATTSPYRNA
Spænski bikarinn, 64 liða úrslit: Cerro
Reyes – Sevilla...........................................1:7
Cultural Leonesa – Albacete....................1:0
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Intersportdeildin:
Grindavík: Grindavík - Njarðvík......... 19.15
Keflavík: Keflavík - Hamar ................. 19.15
HANDKNATTLEIKUR
Efsta deild karla, RE/MAX-deildin, norð-
urriðill:
Varmá: Afturelding - Grótta/KR ........ 19.15
KA-heimilið: KA - Víkingur...................... 20
Hlíðarendi. Valur - Fram.......................... 20
Í KVÖLD
DREGIÐ var í 16 liða bik-
arúrslitum karla og 8 liða
kvenna í húsakynnum ÍSÍ
í gær. Bikarmeistarar HK
halda í Hafnarfjörðinn til
móts við FH 2 og Íslands-
meistara Hauka fá KA í
heimsókn á Ásvelli í
Hafnarfirði.
Hjá kvenfólkinu leika
bikarmeistarar Hauka
gegn Fram í Safamýrinni
og hlutskipti Stjörnunnar
verður að sækja ÍBV
heim en þau lið mættust í
undanúrslitum í fyrra þar
sem Eyjastúlkur unnu
25:17.
Konurnar leika 29. og
30. október en karlarnir
nokkru síðar, fimmtudag-
inn 6. nóvember.
Leikir í karlaflokki:
ÍBV 2 – Fylkir
Valur 2 – ÍBV
FH – Afturelding
FH 2 – HK
Haukar – KA
Víkingur 2 – Valur
Víkingur – Breiðablik
ÍR – Fram
Leikir í kvennaflokki:
Fylkir/ÍR – FH
ÍBV – Stjarnan
Fram – Haukar
FH 2 – Grótta/KR
Stjarnan fer til
Vestmannaeyja
SAMSTARFI Þróttar og Hauka um rekstur kvennaliðs
í meistaraflokki er lokið. Því var slitið að frumkvæði
Þróttar á fundi sem félagði hélt í gær en Þróttarar telja
sig hafa burði til þess að standa á eigin fótum og eiga
lið í fremstu röð í kvennaknattspyrnunni á næstu árum,
en mikil uppbygging er í kvennaknattspyrnu félagsins.
Lið Þróttar/Haukar kom upp í úrvalsdeild kvenna á
síðasta hausti þegar Þróttur vann 1. deildina og Hauk-
ar höfnuðu í öðru sæti. Í framhaldinu var ákveðið að slá
liðunum saman og freista þess að mynda sterkt lið í
efstu deild. Samstarfið kom ekki í veg fyrir að liðið féll
úr deild kvenna á dögunum eftir eins árs veru og því
var ákveðið að slíta samstarfinu. Sameiginlegt lið fé-
laganna, Þróttur/Haukar2 lék í næst efstu deild í sum-
ar.
Íris Björk Eysteinsdóttir, sem þjálfaði Þrótt/Hauka í
sumar og Þrótt í fyrra, sagði starfi sínu lausu í síðustu
viku. Ekki er ljóst hver tekur við starfi hennar.
Samstarfi Þróttar
og Hauka slitið
Það ríkti mikil spenna í Þorláks-höfn fyrir fyrsta leik Þórs í úr-
valsdeild. Hátt í 400 manns voru
mættir til að fylgjast
með viðureign Þórs
og ÍR. Formaður
körfuknattleikssam-
bands Íslands setti
Íslandsmótið formlega fyrir leik og
bauð nýliðana velkomna. Þórsarar
hófu leikinn af miklum krafti og
komust 5 stig yfir en ÍR-ingar
hleyptu þeim þó aldrei langt frá sér.
Staðan í hálfleik var 48:45, ÍR-ingum
í vil.
Í þriðja leikhluta ríkti jafnræði
með liðunum en hann endaði 69:67.
Þórsarar hófu síðasta leikhlutann af
miklum krafti og komust í 12 stiga
forystu en ÍR-ingar sýndu mikla
þrautseigju og náðu að jafna leikinn
fyrir leikslok. Í framlengingu var
jafnræði með liðunum til að byrja
með en Þórsarar voru sterkari á
endasprettinum og skoruðu 6 síð-
ustu stigin og tryggðu sér sætan sig-
ur.
Vandræðalaust hjá KR
Ég get ekki verið annað enánægður með 21 stigs sigur í
fyrsta leik en mér fannst við fá
óþarflega mikið af
stigum á okkur. Við
vorum ekki nógu öfl-
ugir í fráköstunum
og á því þurfum við
að ráða bót,“ sagði Ingi Þór Stein-
dórsson, þjálfari KR-inga, við Morg-
unblaðið eftir sigur á Breiðabliki,
116:95, í DHL-höllinni, heimavelli
KR-inga.
KR-ingar höfðu leikinn í öruggum
höndum allan tímann. Það var rétt
undir lok annars leikhluta sem þeir
slökuðu en á skömmum tíma misstu
þeir 15 stiga forskot niður í fimm
stig, 46:41. En nær komust Blikarnir
ekki. KR-ingar juku muninn jafnt og
þétt í síðari hálfleik og voru búnir að
gera út um leikinn löngu áður en
leiktíminn rann út.
„Það er alltaf gott að byrja mót á
sigri en munurinn hefði einfaldlega
átt að vera meiri en raun bar vitni,“
sagði Ingi Þór sem er nokkuð bjart-
sýnn fyrir hönd sinna manna. „Ég
ætla að fara með liðið eins langt og
ég get og vonandi næ ég að skila lið-
inu einhverjum titlum. Ég er með
góðan hóp og fína breidd og tel liðið
geta veitt Suðurnesjaliðunum
keppni í toppbaráttunni jafnvel þó
svo að við séum aðeins með einn
Bandaríkjamann.“
Chris Woods var fremstur á meðal
jafningja hjá KR en hittni hans var
prýðileg, vel spilandi leikmaður þar
á ferð. Baldur Ólafsson var öflugur í
fyrri hálfleik en í þeim síðari tók
Skarphéðinn Ingason af skarið og lét
mikið að sér kveða. Steinar Kaldal
átti sömuleiðis fína spretti sem og
Helgi R. Guðmundsson en báðir voru
þeir ákaflega lunknir að „stela“ bolt-
um úr höndum Blikanna.
Þrír leikmenn báru uppi leik
Breiðabliks, Kyrem Massey, Pálmi
Sigurgeirsson og Mirko Virijevic, en
Blikarnir fóru oft illa að ráði sínu í
sóknarleiknum þar sem þeir glopr-
uðu boltanum hvað eftir annað í
hendurnar á KR-ingum sem refsuðu
þeim miskunnarlaust.
„Ég reikna fastlega með því að
Blikarnir verði að berjast í neðri
helmingi deildarinnar en ég hef ekki
trú á að þeir lendi í vandræðum.
Bandaríkjamaðurinn á eftir að kom-
ast betur inn í leik þeirra og þetta er
baráttuglatt lið,“ sagði Ingi Þór,
þjálfari KR.
Snæfell byrjar af krafti
Ég er svo sannarlega í skýjunumyfir þessum sigri,“ sagði Bárð-
ur Eyþórsson, þjálfari Snæfells, eftir
að liðsmenn hans
skelltu Tindastóli,
92:85, á Sauðárkróki
í gærkvöldi.
„Við spiluðum illa í
fyrri hálfleik, það er óviðunandi að fá
á sig 48 stig í fyrri hálfleik, en við fór-
um yfir málinn í leikhléinu og unnum
okkur inn í leikinn sem var vissulega
köflóttur hjá báðum liðum en okkur
tókst að innbyrða sigurinn og þetta
eru dýrmæt stig sem við náðum
hérna. Það er ekki nema rúm vika
síðan ég náði saman tíu manna hóp
og mér finnst byrjunin lofa góðu,
Corey Dicerson er mjög góður, en
Lýður kom líka mjög sterkur inn í
síðasta fjórðungi leiksins. Bæði þessi
lið, Tindastóll og Snæfell, eru á eftir
sunnanliðunum sem eru búin að spila
marga leiki, en ég spái því nú samt
að þau eigi bæði eftir að taka stig af
þeim líka,“ sagði Bárður Eyþórsson,
þjálfari Snæfells.
Leikur beggja liða var fremur
hægur og leikkerfin virtust eiga
nokkuð í land með að ganga létt og
snurðulaust, en bæði lið börðust
ágætlega allan tímann. Tindastóls-
menn byrjuðu betur og höfðu foryst-
una lengst af, en þó skildu aldrei
nema nokkur stig á milli. Í síðasta
leikhluta kom Lýður Vignisson sjóð-
heitur til leiks og hreinlega skaut
heimamenn í kaf þegar hann setti
niður fjórar þriggja stiga körfur í röð
og halaði þannig inn sigur Snæfell-
inga.
Kári Marísson, aðstoðarþjálfari
Tindastóls, var hins vegar ekki kátur
með úrslitin. „Þeir eru einfaldlega
með ágætt lið, og mjög sterka ein-
staklinga eins og Corey Dicerson.
Við spiluðum með köflum ágæta
vörn á þá en þeir líka stíluðu inn á að
opna fyrir þriggja stiga skytturnar,
sem skiluðu sínu. Sigurinn hefði get-
að lent hvorum megin sem var, en
munurinn var sá að þeir nýttu skot
sín en við ekki, sérstaklega í síðasta
leikhlutanum. En þetta er bara byrj-
unin, það eru mörg stig í pottinum
enn,“ sagði Kári Marísson, aðstoð-
arþjálfari Tindastóls.
Haukar sóttu tvö stig
til Ísafjarðar
KFÍ hefur endurheimt sæti sitt íúrvalsdeildinni í körfuknattleik
á nýjan leik eftir tveggja ára fjar-
veru. Ísfirðingar tóku á móti Hauk-
um í fyrsta heimaleik sínum á leiktíð-
inni og urðu að bíta í það súra epli að
tapa með átta stiga mun, 89:81, eftir
að hafa verið ellefu stigum undir í
hálfleik, 46:35. Leikmenn KFÍ náðu
að komst yfir í síðari hálfleik en tókst
ekki að fylgja góðum kafla eftir og
Haukar komust yfir á nýjan leik og
tryggðu sér sigur.
Þrátt fyrir ósigur þá var Guðjón
Þorsteinsson, formaður KFÍ, sáttur
við margt í leik sinna manna að leiks-
lokum, þótt hann væri óánægður
með tapið. „Ég er ánægður með
spilamennsku okkar í þessum leik og
ég lít björtum augum fram á veginn,
við eigum eftir að verða ennþá betri
þegar á líður um leið og liðið á eftir
að styrkjast ennfrekar, þannig að ég
er að mörgu leyti sáttur við spila-
mennskuna þótt við séum ekki
ánægðir með tapið,“ sagði Guðjón
Þorsteinsson.
Þór byrjar af
miklum krafti
LEIKMENN Þórs í Þorlákshöfn láta ekki hrakspár slá sig út af lag-
inu, en þeim er spáð falli úr úrvalsdeild karla í körfuknattleik. Í gær-
kvöldi bitu þeir í skjaldarrendur og unnu ÍR-inga, 112:106, í fram-
lengdum leik á heimavelli í fyrstu umferð Íslandsmótsins, en þetta
er jafnframt í fyrsta sinn sem Þór leikur í úrvalsdeildinni. Eftir hefð-
bundinn leiktíma var staðan jöfn, 93:93.
Jón
Sigurmundsson
skrifar
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Björn
Björnsson
skrifar
PATREKUR Jóhannesson,
landsliðsmaður í handknattleik,
sem leikur með Bidasoa á Spáni,
þarf að gangast undir liðþófaað-
gerð á hné og fer hann undir
hnífinn í dag eða á morgun. Til
stóð að Patrekur færi í sprautu-
meðferð en eftir að hafa ráðfært
sig við Brynjólf Jónsson lækni
landsliðsins var ákveðið að Pat-
rekur færi í aðgerðina sem fram-
væmd verður á Spáni. Reikna má
með að hann verði frá æfingum
og keppni næstu vikurnar en
Patrekur var vongóður um að
aðeins smáhluti liðþófans væri
skaddaður þegar Morgunblaðið
spjallaði við hann í gær.
Patrekur fer í aðgerð
ÞAÐ er skammt stórra högga á
milli hjá Íslandsmeisturum
Hauka í handknattleik. Á morg-
un mæta þeir Barcelona í
Meistaradeild Evrópu og um
aðra helgi sækja þeir Magde-
burg heim til Þýskalands.
Viggó Sigurðsson, þjálfari
Hauka, og Alfreð Gíslason, koll-
egi hans hjá Magdeburg, hafa
verið í mjög góðu sambandi
vegna leiksins og hafa þeir
skipst á að senda myndbands-
spólur af leikjum sinna liða.
„Það þýðir ekkert að vera í
neinum feluleik og við teljum
betra að vinna saman. Við fáum
spólu frá leik þeirra við Vardar
eftir helgina og þeir fá á móti
leikinn okkar við Barcelona,“
segir Viggó.
Viggó varð meistari
með Barcelona
Viggó Sigurðsson, þjálfari Ís-
landsmeistari Hauka, lék í tvö
ár með liði Barcelona, frá 1979–
1981. Hann varð Spánarmeist-
ari með Barcelona árið 1980 en
forráðamenn félagsins ákváðu
að fá Viggó í sínar raðir eftir
frábæra frammistöðu hans með
Víkingum í leik á móti Barce-
lona í undanúrslitum Evrópu-
keppninnar árið 1978. Viggó lék
með Valero Rivera Lopéz hjá
Barcelona en hann hefur þjálf-
að spænska liðið með frábærum
árangri síðastliðin 20 ár.
Viggó og
Alfreð
skiptast
á spólum