Morgunblaðið - 10.10.2003, Síða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Arnold Schwarzenegger er þekktari fyrir kvikmynda-
leik en pólitík, en var kosinn ríkisstjóri Kaliforníu í vik-
unni. Aðalheiður Þorsteinsdóttir kynnti sér málin.
Knútur Hallsson
Hann hafnaði Fálkaorðunni en þáði Edduna, heiðurs-
verðlaun Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakadem-
íunnar. Árni Þórarinsson ræðir við Knút Hallsson.
Á djössuðum nótum
Ragnheiður Gröndal hefur vakið athygli fyrir söng
sinn. Árni Matthíasson ræddi við Ragnheiði sem syng-
ur inn á þrjár plötur fyrir þessi jól.
Ríkisstjórinn
á sunnudaginn
NÝ STJÓRN HJÁ EIMSKIP
Skipt var um alla stjórnarmenn í
stjórn Eimskipafélags Íslands á
hluthafafundi í gær. Allar tillögur
nýrra ráðandi hluthafa, sem lágu
fyrir fundinum, voru samþykktar
með miklum meirihluta en tillaga
sem beindist gegn þeim var felld.
Magnús Gunnarsson, fv. stjórn-
arformaður Búnaðarbankans og
framkvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambandsins, verður stjórn-
arformaður nýju stjórnarinnar.
Geðræktarþing
Úrræði fyrir börn með geðrask-
anir eru alltof fá hér á landi að sögn
Kristjáns Más Magnússonar sál-
fræðings en hann er einn fyrirlesara
á geðræktarþingi í Iðnó í dag. Þingið
er haldið í tilefni af alþjóðageðheil-
brigðisdeginum sem í ár er tileink-
aður börnum og unglingum.
Uppnám í Palestínu
Ahmed Qurei, nýr forsætisráð-
herra Palestínumanna, var í gær
sagður hafa sagt af sér embætti eftir
deilur við Yasser Arafat, leiðtoga
palestínsku þjóðarinnar.
Launahækkanir ræddar
Nokkurt svigrúm verður til launa-
hækkana á næstu árum. Þetta kom
fram á ársfundi Starfsgreina-
sambands Íslands í gær. Félagar
sambandsins voru jafnframt hvattir
til að sýna samstöðu í samningum
þar sem barist yrði fyrir frekari
hækkun lægstu launa og auknum
kaupmætti.
Starfsmenn mótmæla
Um 100 portúgalskir starfsmenn
Impregilo við Kárahnjúkavirkjun
lögðu niður störf í gær til að mót-
mæla skorti á vinnufatnaði. Tals-
menn Impregilo segja fatnað vera á
leið með flugi og að vinnustöðvunin
hafi verið með þeirra samþykki.
VIÐBURÐIR SEM
GERA VIKUNA
SKEMMTILEGRI
FÓLKIÐ dansar með maganum, djammar á Prikinu,
fer í veiðigallann og er pönkskotið| |10|10|2003
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 40/45
Viðskipti 12/14 Kirkjustarf 45
Erlent 16/18 Brids 45
Heima 20 Hundar 46
Höfuðborgin 21 Bréf 48
Akureyri 22 Dagbók 50/51
Suðurnes 23 Staksteinar 54
Austurland 24 Sport 52/55
Daglegt líf 26/27 Leikhús 56
Listir 28/31 Fólk 56/61
Forystugrein 32 Bíó 58/61
Viðhorf 36 Ljósvakamiðlar 62
Umræðan 36/39 Veður 63
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir Dagskrá vikunnar. Blaðinu er
dreift á landsbyggðinni.
„ÖRORKU-EDGE“ er yfirskriftin á
hópi einstaklinga, sem eiga það
sameiginlegt að vera fatlaðir, og
fjölmenna saman á tónleika með
harðkjarnarokki. Þeir hafa ekki
mætt neinum fordómum, þvert á
móti fengið mjög jákvæð viðbrögð,
segir Fannar Örn Karlsson, einn af
stofnendunum, í viðtali í Fólkinu.
Á meðal annars efnis er Kven-
félagið Garpur sem samanstendur
af ungum leikkonum og frumsýnir
leikritið Riddarar hringborðsins –
með veskið að vopni annað kvöld
undir leikstjórn Þórhildar Þorleifs-
dóttur. Rætt er við Björn Thors
sem verður ein af senditíkum Rík-
harðs þriðja á frumsýningu í Þjóð-
leikhúsinu að viku liðinni, og bras-
ilísku magadansmærina Josy
Zareen, sem sýnir í Tjarnarbíói
annað kvöld.
FÓLKIÐ
Ríkharður
þriðji og
magadans
Morgunblaðið/Sverrir
Rokkarinn Fannar Örn Karlsson.
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra ræddi meðal annars mál-
efni Impregilo á Íslandi við ítalska
utanríkisráðherrann Franko Fratt-
ini, á fundi þeirra í gær, en Ítalir fara
nú með formennsku í Evrópusam-
bandinu. Fram kom að forsvars-
menn Impregilo hafa fullvissað
ítölsk stjórnvöld um að staðið verði
við allar samningsskuldbindingar á
Íslandi.
Halldór sagði að í fyrsta lagi hefðu
tvíhliða mál verið rædd á fundinum
en samskipti þjóðanna væru í mjög
góðu horfi. „Fyrst fórum við yfir
málefni Impregilo á Íslandi. Þeir
höfðu rætt við hæstráðendur
Impregilo fyrir þennan fund sem
fullvissuðu þá um það að þeir myndu
standa við allar samningsskuldbind-
ingar á Íslandi byggt á virkjana-
samningnum,“ sagði Halldór.
Hann sagði að komið hefði fram á
fundinum að þetta væri mikilvægt
verkefni fyrir Ítalíu þar sem hér
væri um eitt stærsta fyrirtæki lands-
ins að ræða. „Þannig að ég var mjög
ánægður með það hvernig þeir höfðu
undirbúið það mál fyrir þennan
fund,“ sagði Halldór ennfremur.
Hann sagði að á fundinum hefðu
einnig verið rædd vandkvæði Íslend-
inga á að flytja allt það lambakjöt til
Ítalíu sem þeir vildu á grundvelli
tollfrjálsra kvóta, því að í fyrsta
skipti í mörg ár virtist 1.350 tonna
tollfrjáls kvóti í útflutningi í þeim
efnum ekki nægja. Ítalirnir hefðu
lofað að reyna að aðstoða við að auka
þann kvóta.
Rætt um samninginn um EES
„Síðan ræddum við um samning-
inn um Evrópska efnahagssvæðið og
mikilvægi þess að hann yrði staðfest-
ur um leið og stækkunin þannig að
Evrópska efnahagssvæðið stækkaði
um leið og Evrópusambandið. Hann
upplýsti okkur ítarlega um stöðu
stjórnarskrármálsins, en það getur
haft allnokkur áhrif á mál sem varða
okkur. Þar er verið að tala um að
breyta stofnunum Evrópusam-
bandsins. Þar verður önnur upp-
bygging en var þegar við sömdum
um Evrópska efnahagssvæðið og
líka um Schengen,“ sagði Halldór.
Utanríkisráðherra Íslands og Ítalíu um málefni Impregilo
Staðið verður við
skuldbindingar
Brotaþoli var 16 ára þegar ákærði,
sem hún þekkti ekkert, framdi brot-
ið. Það var talið gróft og hafði í för
með sér talsverða líkamlega áverka,
meðal annars mar og þrýstings-
áverka á brjósti og hálsi og áverka á
kynfærum. Miðað við eðli og alvar-
leika brotsins þótti refsing ákærða
hæfilega ákveðin fangelsi í tvö ár.
Ákærði var sakaður um að hafa
aðfaranótt sunnudagsins 5. ágúst
2001, í tjaldi á mótssvæði, þröngvað
stúlkunni með ofbeldi til holdlegs
samræðis. Stúlkan leitaði aðstoðar
neyðarmóttöku á svæðinu kl. 4.00 að
morgni 5. ágúst. Ákærði, sem var
handtekinn kl. 9.50, hefur frá upp-
hafi neitað því að hafa nauðgað stúlk-
unni. Við fyrstu skýrslutöku hjá lög-
reglu sama dag kvaðst hann muna
vel eftir atburðum næturinnar og
hefði hann engin samskipti haft við
stúlkuna. Við síðari skýrslutöku
tæpu ári síðar kvaðst hann hafa farið
í „blackout“ og ekki muna hvað gerð-
ist eða hvort eitthvað hefði gerst.
Niðurstöður DNA-rannsókna
leiddu í ljós, að snerting hafði verið
milli kæranda og ákærða, og veski
ákærða fannst í tjaldi kæranda um
morguninn. Fram kom að magn
alkóhóls í blóði ákærða mældist
0,8‰, er sýni var tekið kl. 11.33 hinn
5. ágúst, og hann hafði einnig neytt
amfetamíns og MDMA-taflna. Tók
Hæstiréttur undir þá niðurstöðu
héraðsdóms, að ekki væri byggjandi
á framburði ákærða um það sem
gerðist.
Málið dæmdu dómararnir Guðrún
Erlendsdóttir, Garðar Gíslason,
Hrafn Bragason, Markús Sigur-
björnsson og Pétur Kr. Hafstein.
Dæmdur í 2
ára fangelsi
HÆSTIRÉTTUR dæmdi karlmann á fertugsaldri í tveggja ára
fangelsi í gær fyrir kynferðisbrot gegn 16 ára stúlku árið 2001.
Hæstiréttur þyngdi dóm héraðsdóms um níu mánuði en auk fangels-
isrefsingar var ákærði dæmdur til að greiða stúlkunni 700 þúsund
krónur í miskabætur.
KULDABOLI er farinn að minna á
sig víðast hvar á landinu en hitinn
var á bilinu 0–5°C í gær. Vindurinn
sá íbúum höfuðborgarsvæðisins
jafnframt fyrir aukakælingu. Það
er því ekki seinna vænna að taka
fram hlýju fötin enda er það eina
sem kuldinn hefur fram yfir hitann
að það er hægt að klæða hann af
sér. Spáð er svölu veðri í dag og á
morgun, en á sunnudag er spáð
rigningu.
Morgunblaðið/Ásdís
Kuldaboli
mættur
til leiks