Morgunblaðið - 10.10.2003, Side 16
ERLENT
16 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NÍU manns létu lífið í sjálfsmorðs-
árás nálægt lögreglustöð í hverfi
sjía-múslíma í Bagdad í gær þegar
hálft ár var liðið frá því að banda-
rískar hersveitir réðust inn í borgina
og steyptu stjórn Saddams Husseins
af stóli. Spænskur sendiráðs- og
leyniþjónustumaður var einnig
myrtur í Bagdad og bandarískur
hermaður beið bana í sprengjuárás
norðaustan við höfuðborgina.
Óþekktur karlmaður ók bíl, fullum
af sprengiefni, í átt að lögreglustöð-
inni í Sadr-borg, sem áður var kennd
við Saddam, í Bagdad. Þegar varð-
maður stöðvaði bílinn og réðst inn í
hann sprengdi tilræðismaðurinn bif-
reiðina í loft upp. Þeir létust sam-
stundis auk tveggja lögregluþjóna
og fimm vegfarenda. Árásin var gerð
þegar lögreglumenn söfnuðust sam-
an við lögreglustöðina til að taka við
launum sínum.
Að sögn lækna særðust um 38
manns, þar af átta alvarlega. Tilræð-
ið vakti mikla reiði í írösku höfuð-
borginni og reiðir Írakar réðust á
fréttamenn og ljósmyndara á nálæg-
um útimarkaði.
Þriggja metra breiður og eins
metra djúpur gígur myndaðist í
sprengingunni sem var svo öflug að
nokkur líkanna feyktust upp á lög-
reglustöðina.
Bandaríska hernámsliðið kvaðst í
gær hafa handtekið „einn af helstu
foringjum andspyrnuhreyfingarinn-
ar“ í Írak. Hann er grunaður um að
hafa rekið sprengjuverksmiðju í
grennd við borgina Tikrit og er sagð-
ur tengjast fjölskyldu Saddams.
Ekki var greint frá nafni hans.
Sendiráðinu
ekki lokað
Um sama leyti og sprengingin
varð í Bagdad var 34 ára spænskur
sendiráðsmaður, Jose Antonio Bern-
al Gomez, myrtur á heimili sínu í
borginni þegar hann opnaði dyrnar
fyrir þremur mönnum sem voru
vopnaðir byssum. Bernal var her-
málafulltrúi spænska sendiráðsins
og starfaði jafnframt fyrir leyniþjón-
ustuna.
Ramon Gil-Casares, aðstoðarut-
anríkisráðherra Spánar, sagði í gær,
að Bernal hefði verið sérfræðingur í
öryggismálum og því vekti það
nokkra furðu, að hann skyldi hafa
opnað dyrnar án þess að gá betur að
sér. Bernal var kvæntur og átti eina
dóttur. Spánverjar taka þátt í her-
námi Íraks og hafa sent þangað um
1.250 hermenn.
Að sögn sjónarvotta voru árásar-
mennirnir á bíl með erlendu númeri
og töluðu með suður-íröskum hreim.
Ríkisstjórn Spánar og stærsti
stjórnarandstöðuflokkur landsins,
Sósíalistaflokkurinn, fordæmdu
morðið og lýstu því sem hryðjuverki.
„Sendiráði okkar verður ekki lok-
að og við köllum ekki embættismenn
okkar heim, sem er einmitt það sem
hryðjuverkamennirnir vilja,“ sagði
Ramon Gil-Casares.
Bernal er annar spænski sendi-
ráðsmaðurinn sem lætur lífið í árás í
Írak frá 1. maí þegar George W.
Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir
að öllum meiri háttar átökum í land-
inu væri lokið.
Sprengjuárásir
á hermenn
Bandarískur hermaður beið bana
fyrr um morguninn í sprengjuárás í
bænum Baquba, 66 km norðaustan
við Bagdad, að sögn Bandaríkjahers.
Bandarískir herbílar urðu einnig
fyrir tveimur sprengjuárásum í Fall-
uja, um 50 km vestan við höfuðborg-
ina, og að minnsta kosti einn her-
maður særðist.
Alls hafa 93 bandarískir hermenn
fallið í Írak frá 1. maí en þá sagði
George W. Bush Bandaríkjaforseti
að mestu átökunum væri lokið.
! !"#$"%%$
!"""
#
$$
%&'
."*
()*
%+,,
."*
%+,,
-!
! . ".12.!3#-
!.11.1.*
"
./
)+#.,4.5
*.
. "#.3
0!
6.*.,!-.,
..%2.!
7# .!.*
"
1
"
23
.*.3
..%2.!
7' 11
$$4 1
5!3
.12.!3#-.
&3#.5 -
%2.!
7' 2#%-#
)
'/.3.!.11.1
8#-./
1&'
.9,&22#.,
.,#-
, . ".:#'./
*.
.2#%-#*#
Níu láta
lífið í árás
í Bagdad
Spænskur sendiráðsmaður og her-
málafulltrúi myrtur á heimili sínu
Bagdad. AFP.
Bandarískur hermaður á varðbergi við lögreglustöð í Bagdad þar sem bíll var sprengdur í loft upp í gær.
MIKLAR hræringar eru á norskum
matvörumarkaði og fyrstu merkin
um yfirvofandi verðstríð eru veru-
leg lækkun á öli. Hún er þó aðeins
forsmekkurinn af því, sem koma
skal, segja þeir sem til þekkja.
Ástæðan er sú að ýmsar lágvöru-
verðskeðjur á meginlandinu eru að
hasla sér völl á Norðurlöndum og
þar með í Noregi.
Hjá stóru, norsku brugghús-
unum, Hansa Borg og Ringnes,
kostar nú ódýrasta ölið um eða inn-
an við 100 ísl. kr. flaskan og er það
meðal annars svar þeirra við vænt-
anlegri komu þýsku lágvöruverðs-
keðjunnar Lidl inn á norska mark-
aðinn. Hóf hún starfsemi í Svíþjóð
fyrir rúmri viku en það er ekki síst
með ódýru öli, sem hún reynir að
laða til sín viðskiptavini. Þegar hún
var opnuð í Finnlandi kostaði öl-
flaskan hjá henni 21% minna en
ódýrasta ölið þar í landi, eða sem
svarar til um 75 kr. ísl.
Raunar var það koma Kiwi-
keðjunnar til Noregs í sumar, sem
fyrst neyddi Hansa Borg til að
lækka ölverðið, og síðan hafa Remi,
Rimi og fleiri fylgt í kjölfarið. Kom
þetta fram í Aftenposten í gær.
Hallar á innlendu fyrirtækin
Þeir, sem þekkja vel til á norska
markaðnum, segja, að þetta sé að-
eins forsmekkurinn. Lágvöruverðs-
verslanir eins og Lidl, Aldi, Netto
og Fakta eigi eftir að setja allan
smásölumarkaðinn á annan end-
ann. Þær séu ekki aðeins í matvör-
unni, heldur í alls konar annarri
vöru og hlaupi á hverja smugu, sem
opnist.
„Noregur og Norðurlönd eru á
leið inn í verðstríð, sem mun enda
með ósigri hjá stórum hluta inn-
lendu smásölufyrirtækjanna. Lág-
vöruverðskeðjurnar munu gefa
neytendum nýjan skilning á því
hvað varan eigi að kosta,“ segir
Bruno Christensen, fram-
kvæmdastjóri Retail Institute
Scandinavia, fyrirtækis, sem fæst
við rannsóknir og ráðgjöf fyrir
smásölumarkaðinn.
Á ráðstefnu í Ósló í síðasta mán-
uði lýsti Christensen baráttuaðferð-
um lágvöruverðskeðjanna og sagði,
að sóknin væri í sex þrepum og end-
aði yfirleitt alltaf með sigri þeirra.
Þá væri það líka að verða almenn
skoðun, að fólk ætti að skipta við
þá, sem byðu lægsta verðið.
„Sem dæmi má nefna, að í Þýska-
landi er mikið um auglýsingar þar
sem leikarar, stjórnmálamenn og
kunnir íþróttamenn hvetja fólk til
að skipta við lágvöruverðskeðj-
urnar. Tilhneigingin er, að það sé
beinlínis svalt að kaupa ódýrt,“
sagði Christensen.
Samstarf um innkaup
Norsku smásölukeðjurnar reyna
að bregðast við vaxandi samkeppni
með ýmsum ráðum og til dæmis
með því að taka upp samstarf við
erlendar keðjur um innkaup. Ein sú
stærsta, NorgesGruppen, hefur nú
samið um það við franska matvöru-
risann Carrefour og mun þá njóta
sömu kjara og hann við innkaup á
alþjóðlegri merkjavöru. Vekur það
enga ánægju hjá framleiðendum og
umboðsmönnum þeirra enda er vit-
að, að verðlagningu á þessari vöru
er oft hagað eftir því hver kaup-
mátturinn er í hverju landi.
Mikið verðstríð í
uppsiglingu í Noregi
Innrás lágvöruverðskeðja frá meginlandinu sögð
munu setja smásölumarkaðinn á annan endann
Úr stórverslun í Noregi. Því er
spáð, að margar innlendar
verslanakeðjur muni ekki lifa af
væntanlegt verðstríð.
’ Munu gefa neyt-endum nýjan skiln-
ing á því hvað varan
eigi að kosta. ‘
IAIN Duncan Smith, leiðtogi breska
Íhaldsflokksins, sendi í gær flokks-
mönnum sínum tóninn og sagði þeim
að hætta að grafa undan forystu
flokksins en hefja í staðinn undir-
búning að því verkefni að velta Tony
Blair forsætisráðherra og Verka-
mannaflokki hans úr sessi í næstu
þingkosningum. „Verið liðshollir eða
hafið ykkur á brott,“ sagði Duncan
Smith í ræðu sinni á flokksþingi
íhaldsmanna en hún hlaut góðar
undirtektir viðstaddra.
„Ég segi við alla sem hér eru í dag:
þú ert annaðhvort á mínu bandi eða
þú ert stuðningsmaður Tonys
Blairs,“ sagði Duncan Smith. „Það er
ekki um neinn milliveg að ræða.“
Duncan Smith hefur átt erfitt upp-
dráttar undanfarin misseri. Í ávarpi
sínu í gær gerði hann hins vegar til-
raun til að þagga niður í þeim innan
Íhaldsflokksins, sem hvað harðast
hafa gagnrýnt hann, um leið og hann
reyndi að stappa stálinu í almenna
flokksmenn í aðdraganda næstu
þingkosninga, sem líklega verða
snemma árs 2005.
Kallaði Blair „raðlygara“
Vinsældir Blairs hafa dalað veru-
lega á þessu ári, einkum vegna
stuðnings hans við hernað Banda-
ríkjamanna í Írak, en Duncan Smith
hefur þó ekki tekist að nýta sér sókn-
arfærin. Skýrir það vangaveltur um
að ýmsir í Íhaldsflokknum vildu
skipta um leiðtoga. Duncan Smith,
sem á flokksþingi íhaldsmanna í
fyrra lýsti sjálfum sér sem „hæglát-
um manni“, var hins vegar í vígahug
í gær og sakaði Blair m.a. um að vera
„raðlygara“.
„Sex árum eftir að Tony Blair tók
við völdum í Downing-stræti trúir
fólk honum ekki lengur,“ sagði hann.
Sagði Duncan Smith m.a. að
íhaldsmenn myndu tryggja að Blair
neyddist til að halda þjóðaratkvæða-
greiðslu um stjórnarskrána sem gert
er ráð fyrir að Evrópusambandið
taki upp. „Ég mun berjast og berj-
ast, berjast eins og ljón til að bjarga
landinu sem ég ann,“ sagði Duncan
Smith í ræðu sinni.
Sendi flokks-
fólkinu tóninn
Duncan Smith vill samstöðu um að
vinna sigur í næstu kosningum
Blackpool. AFP.
Reuters
Iain Duncan Smith var mikið niðri
fyrir þegar hann flutti ræðu sína.