Morgunblaðið - 10.10.2003, Side 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2003 37
KÆRU landar. Til hamingju
með Alþjóðlega geðheilbrigðisdag-
inn.
Í dag langar mig
að skrifa um eitt af
þeim úrræðum sem
til eru fyrir okkur
sem haldin eru geð-
rænum veikindum.
Þegar ég veiktist
fyrir um tíu árum lá
leið mín fyrst inn á geðdeild árið
1996, þar sem engin lyf virkuðu á
mig. Þá fór ég í mína fyrstu raf-
meðferð, eða eins og Bubbi söng
svo skemmtilega um að „stórir
strákar fá raflost“. Ekki virkaði
það sem skyldi. Til að gera langa
sögu stutta var ég viðloðandi spít-
alann næstu fimm árin. Var í iðju-
þjálfun, hópmeðferð á Hvítaband-
inu og bjó á sambýli, í burtu frá
fjölskyldu minni. Ekkert gekk og
ég var smám saman að verða hluti
af spítalanum.
Þá gerðist það vorið 2001 að
læknirinn minn spurði mig hvort
ég væri ekki til í að skoða Klúbb-
inn Geysi. Ég hafði heyrt á hann
minnst en aldrei þorað að kynna
mér hann nánar. En að frumkvæði
læknisins ákvað ég að fara. Ég var
mjög kvíðinn þegar ég mætti í
klúbbinn, en kvíðinn var fljótur að
hverfa því það var tekið svo vel á
móti mér. Brátt vandi ég komur
mínar þangað og áður en ég vissi
af var ég farinn að mæta á hverj-
um degi, hætti að lokum í hóp-
meðferðinni á Hvítabandinu og
sneri mér alfarið að klúbbnum
Geysi. Hvað gerðist? Einfaldlega
það að ég fann að þetta var staður
fyrir mig. Ég hafði verið einangr-
aður lengi, allir vinir horfnir og
samband mitt við fjölskylduna var
Það er alltaf von!
Eftir Óðin Einisson
Höfundur er félagi í klúbbnum Geysi.
takmarkað, en ég er giftur og á
fjögur börn. Þarna eignaðist ég
vini og fékk að takast á við ný
verkefni. Þegar ég byrjaði í
klúbbnum voru allir á fullu við að
undirbúa fyrstu norrænu ráð-
stefnu Fountain House, sem haldin
var að Geysi í Haukadal.
Hvað er klúbburinn Geysir?
Geysir er hluti af alþjóðlegum
samtökum klúbbhúsa sem kennd
eru við Fountain House. Klúbb-
urinn var formlega stofnaður
haustið 1999.
Þetta byrjaði allt árið 1944 þeg-
ar hópur fólks tók sig saman og
stofnaði félagsskap sem kallaður
var WANA (we are not alone).
Þetta var fólk sem átti eða hafði
átt við geðræn veikindi að stríða.
Fyrsta húsið sem þau fengu undir
starfsemi sína var með brunni í
garðinum og þaðan er Fountain
House nafnið komið. Í dag teygja
þessi samtök anga sína víða um
heim. Við vinnum eftir ákveðnum
viðmiðunarreglum klúbbhúsa. Tak-
markið er að opna leið fyrir félaga
aftur út í lífið. Þetta er stökkpallur
frá spítalaumhverfi og yfir í það að
verða aftur virkur í þjóðfélaginu.
Hér eru allir jafnir, félagar og
starfsfólk og klúbburinn útvegar
félögum vinnu úti í samfélaginu
með stuðningi. Þeir sem ekki eru
tilbúnir í slíkt geta unnið við ýmis
störf í klúbbnum t.d. í eldhúsi, á
skrifstofunni eða í viðhaldsdeild.
Hver og einn ræður hvenær eða
hvort hann mætir og hversu lengi
hann er í klúbbnum á hverjum
degi. Öll störf eru unnin í sjálf-
boðavinnu, sem þýðir að þín er
vænst og þín er þörf. Félagar geta
látið hringja í sig og við heimsækj-
um þá sem þurfa að leggjast inn á
spítala ef þeir vilja.
Ég fór á ráðstefnuna í Hauka-
dal, en var aðallega áhorfandi að
því sem þar fór fram. En þetta var
stórt skref fyrir mig.
Nokkrum mánuðum seinna gerði
ég alvarlega tilraun til sjálfsmorðs.
Eftir þá tilraun var ég sendur inn
á geðdeild og þaðan á sambýli á
vegum Landspítalans. Á meðan ég
lá inni fékk ég heimsókn frá starfs-
manni klúbbsins og það var hringt
í mig reglulega. Þetta, ásamt
stuðningi fjölskyldu minnar, veitti
mér trú á lífið aftur, því þarna úti
var fólk sem þótti vænt um mig og
ég var einhvers virði.
Vorið 2002 var ákveðið að senda
þrjá félaga og tvo starfsmenn á
Evrópuráðstefnu Fountain House
til Edinborgar í Skotlandi. Ég var
nýbyrjaður að mæta í klúbbinn
aftur og ákvað að skrá mig. Ég var
svo einn af þeim sem voru valdir
til fararinnar. Ferðin var frábær
og þar kynntist ég fyrst samheldni
klúbbhúsanna, enda eru allir að
vinna að sömu markmiðum.
Eftir þessa ferð hefur sjálfs-
traust mitt aukist til muna og í dag
leigi ég íbúð hjá Öryrkjabandalag-
inu, bý einn, þ.e. í fjarbúð og er
betur í stakk búinn að hugsa um
börnin mín. Til að kóróna þetta allt
var ég að koma frá Massachusetts
í Bandaríkjunum þar sem ég var í
þjálfun á vegum klúbbsins. Í
klúbbnum eru mínir vinir og hann
er mitt annað heimili.
Því segi ég við ykkur sem hafið
verið úrskurðuð með geðræn veik-
indi að lífið er ekki búið. Það er
rétt að byrja og það er alltaf von.
Þess vegna vil ég í tilefni dagsins
benda ykkur á klúbbinn Geysi. Það
kostar ekkert að skoða og kynna
sér aðstæður. Það sem hann hefur
gert fyrir mig, getur hann vonandi
gert fyrir ykkur líka.
Mörkinni 3, sími 588 0640
www.casa.is
Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-15.
Húsgögn
Ljós
Gjafavara
SKEMMUVEGI 36
Sími 557 2000
BLIKKÁS –
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
Stráskreytingar
Laugavegi 63 • sími 551 2040
Í AMSTRI dagsins er mikilvægt að minna sig á þá
hluti sem láta okkur líða vel. Við leiðum hugann of
sjaldan að því sem stuðlar að góðri geðheilsu. Öll
höfum við þörf fyrir að vera í góðum
félagsskap, láta gott af okkur leiða,
fá hvatningu og hafa reglu á lífs-
venjum okkar. Með þessari grein vilj-
um við vekja athygli lesenda á
Klúbbnum Geysi og þeirri uppbyggj-
andi starfsemi sem þar er að finna.
Klúbburinn Geysir er fyrir fólk sem á
eða hefur átt við geðræn veikindi að
stríða og starfar eftir alþjóðlegri
hugmyndafræði Fountainhouse. Í
klúbbnum gefst félögum tækifæri á
að byggja upp þrek sitt og hæfileika.
Hver og einn getur fundið verkefni
við sitt hæfi og félagar og starfsfólk
taka sameiginlega ábyrgð á dag-
legum rekstri. Með því að nýta styrk-
leika félaga er hægt að halda uppi
öflugri starfsemi klúbbsins. Félagar
eru virkir þátttakendur og komast úr
sjúklingshlutverkinu sem mörgum
hættir til að festast í. Klúbburinn veitir félögum
aukið svigrúm til að vera þeir sjálfir þannig að
þeim líður betur og þurfa síður að leggjast inn á
geðdeild.
Að líta á Klúbbinn Geysi sem vinnustað og mæta
reglulega gefur félögum tilgang og þeim reynist
léttara að vera ábyrgir í daglegu lífi. Regla og festa
er góður undirbúningur til virkrar þátttöku í þjóð-
félaginu. Innan klúbbsins er einnig að finna mjög
öflugt og gott félagslíf sem fer fram utan við dag-
lega starfsemi. Má þar nefna opið hús, ýmsar uppá-
komur og göngu- og kaffihúsaferðir.
Klúbburinn Geysir styður við bakið á félögum
þegar þeir eru tilbúnir til að fara að vinna á al-
mennum vinnumarkaði. Það að stunda vinnu sem
veitir ánægju stuðlar að góðri geðheilsu. Þeir fé-
lagar sem hafa fengið vinnu á almennum vinnu-
markaði í gegnum Klúbbinn Geysi hafa náð góðum
árangri og fengið góð meðmæli frá vinnuveitendum.
Mikilvægur liður í þessum góða árangri er að fé-
lagar hafa fengið góðan undirbúning í klúbbnum.
Félagar hafa þá öðlast gott úthald sem þeir búa að
þegar þeir eru komnir út á vinnumarkaðinn. Stuðn-
ingur Klúbbsins Geysis við félaga sem hafa fengið
vinnu er mjög mikilvægur fyrir félagann og vinnu-
veitanda hans. Félagi sem ræður sig í vinnu fyrir
tilstuðlan klúbbsins fær meðmæli hans og gerir
vinnuveitandanum grein fyrir veikindum sínum.
Þannig er komið í veg fyrir streitu sem getur skap-
ast ef félagi veikist og samskipti við vinnuveitanda
byggð á heilindum. Eitt af því sem stuðlar að góðri
geðheilsu er að nýta styrkleika samfélagsins þar
sem finna má ýmis úrræði og er Klúbburinn Geysir
eitt þeirra.
Hvað stuðlar að góðri
geðheilsu?
Eftir Sigrúnu Jóhannsdóttur og Kristínu Björgu Viggósdóttur
Sigrún er háskólanemi og félagi í Klúbbnum Geysi og
Kristín er iðjuþjálfi og starfsmaður í Klúbbnum Geysi.
Sigrún
Jóhannsdóttir
Kristín Björg
Viggósdóttir