Morgunblaðið - 16.10.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.10.2003, Blaðsíða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 18 FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Ítölsk undirföt Opið virka daga frá kl. 11-18, laugardaga frá kl. 11-15. undirfataverslun Síðumúla 3 Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505, Hafnarstræti 97, 600 Akureyri. Stuttkápur Jakkar Samkvæmis- klæðnaður Reykjavík | Þórólfur Árnason borgarstjóri prófaði hvernig það er að vera blindur í miðbæ Reykjavíkur þegar hann setti upp ógagnsæ gleraugu og fékk sér gönguferð með hvíta stafinn í hendi í tilefni af degi hvíta stafs- ins í gær. Með hjálp frá fagfólki frá Blindrafélaginu lagði borgarstjóri af stað frá Ráðhúsinu að Tjörn- inni, þar sem hann gaf öndunum brauð. Þaðan lá leiðin upp Banka- stræti þar sem hann prófaði að kaupa pylsu. Hann kom við í fata- verslun og keypti skyrtu og bindi með aðstoð starfsmanns án þess að sjá flíkina. Að lokum hélt hann aftur niður í Ráðhús, með við- komu í hraðbanka, þar sem hann kynntist af eigin raun erfiðleikum blindra við að taka út úr hrað- bönkum. „Mikil lífsreynsla“ „Þetta var mjög mikil lífs- reynsla,“ sagði Þórólfur eftir að hann fékk sjónina á ný. „Mér fannst þetta erfitt, þetta er rosa- lega duglegt fólk og ég dáist að því. Það sem skelfdi mig mest var að fara yfir götu, ég held að það sé mikið skref að fara í fyrsta sinn einn yfir götu. Ég var með leið- sögumann yfir götuna.“ Hann segist hafa séð að það séu vissar umgengnisreglur sem hann þurfti að temja sér með hvíta staf- inn, t.d. að halda sig í ákveðinni fjarlægð, snúa sér rétt og annað þess háttar. Þórólfur lenti í nokkrum erf- iðleikum með að greiða fyrir vöru, og segir að vel mætti gera pen- ingaseðla þannig úr garði að þeir væru auðþekktir fyrir blinda og sjónskerta. Morgunblaðið/Þorkell Þórólfur Árnason: Reynir mun meira á mann að ganga blindandi. Sjónleysi: Bindishnúturinn vafðist ekki fyrir borgarstjóra þrátt fyrir sjón- leysið, enda segist hann alltaf hnýta bindið sitt blindandi hvort eð er. Erfitt: Það var ekki hlaupið að því að fá sér í svanginn og reyndist borgarstjóra nauðsynlegt að treysta kaupmanninum þar sem hann þekkti ekki seðlana sem hann greiddi með í sundur. Skelfdist við að fara yfir götuna Borgarstjóri gekk blindaður um miðbæ Reykjavíkur Árbæ | Sand- og malarsalan Björg- un hefur sent borgaryfirvöldum bréf þar sem farið er fram á viðræður um framtíðarstaðsetningu fyrirtækisins, en á aðalskipulagi sem nær til ársins 2024, er miðað við að hverfið sem Björgun er í verði blönduð byggð. Missagt var í blaðinu í gær að til stæði að flytja Ísaga og BM Vallá. Borgarstjóri sagði á hverfafundi að Björgun hefði óskað eftir viðræðum um framtíðarstaðsetningu, en minntist ekki á BM Vallá eða Ísaga í því samhengi og því ekki verið að vinna að því að flytja þau fyrirtæki. Dagur B. Eggertsson, formaður hverfisráðs Árbæjar, segir að þó að aðalskipulag geri ekki ráð fyrir þess- um fyrirtækjum þarna sé ekki verið að ýta þeim í burtu. „Borgaryfirvöld eru að sjálfsögðu reiðubúin til við- ræðna til þess að greiða götu fyr- irtækja í samræmi við skipulag og hafa metnað til að greiða götu þeirra. Ef farsæl lausn finnst geta allir verið sammála um að fallegt bryggjuhverfi á þessum stað gæti orðið til mikils sóma í borginni.“ Björgun vill viðræður um staðsetningu Kópavogi | Bæjaryfirvöld í Kópa- vogi ætla að hækka leiguna á fé- lagslegum íbúðum um að meðaltali um 15,2% samhliða því sem húsa- leiga verður reiknuð út frá fasteigna- mati íbúða. Tillaga þar að lútandi var samþykkt í bæjarstjórn á þriðjudag. Ásdís Ólafsdóttir, formaður hús- næðisnefndar Kópavogs, segir að eins og leigan sé í dag standi hún ekki undir fjárþörf við rekstur íbúð- anna, og bendir á að leigan hafi ekki hækkað lengi. Samfylkingarmenn í bæjarstjórn mótmæla hækkuninni. „Þetta hefur ekki verið hækkað í langan tíma og bærinn er farinn að borga mjög mikið með þessu og það gengur ekki. Fólk fær þessar leigu- íbúðir á eins lágu verði og hægt er,“ segir Ásdís. Hún bendir á að sam- kvæmt Húsnæðisstofnun mætti bærinn hækka meira en hann ætli sér að gera, og að leigan í Kópavogi sé svipuð og í nágrannasveitarfélög- unum. Kópavogsbær leigir út um 250 fé- lagslegar íbúðir og mun hækkunin koma til framkvæmda á næsta ári, eitthvað mismunandi eftir samning- um, segir Sigrún Jónsdóttir, bæjar- fulltrúi Samfylkingarinnar. Samhliða hækkuninni verður leig- an á íbúðum jöfnuð og miðuð við fasteignamat íbúðarinnar, í stað þess að miða við kostnaðarverð íbúða eins og það er í dag. Ásdís segir þessa breytingu mikið réttlætismál, enda sé núna fólk sem býr í mjög svip- uðum íbúðum að greiða mismunandi leigu. Notuðu tækifærið til að ná inn meiri tekjum Sigrún Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir að Sam- fylkingin telji þessa hækkun of mikla, og segir að frekar hefði átt að byrja á því að jafna leiguna og svo skoða hvort þörf sé á að hækka hana. „Við lögðum til á þessum fundi bæjarstjórnar á þriðjudag að komið yrði á jöfnun leiguverðs án heildar- hækkunar á leiguverði, þ.e. að við- miðun við útreikning miðist við fast- eignamatsverð íbúða,“ segir Sigrún. „Af því við erum að tala um fé- lagslegt leiguhúsnæði töldum við að sá hópur þyldi ekki miklar verð- sveiflur og breytingar á leiguverðinu og vildum fara þetta í áföngum.“ Í ályktun samfylkingarinnar sem send var fjölmiðlum segir ennfrem- ur: „Með afgreiðslu meirihlutans þar sem viðmiðunin verður 5,7% af fast- eignamatsverði, er ljóst að leiguverð tveggja herbergja íbúða hækkar að meðaltali um 9%, þriggja herbergja íbúða að meðaltali um 16% og fjög- urra herbergja íbúða um tæp 20%. Þau ákváðu sem sagt að nota tæki- færið og ná inn meiri tekjum í kerfið um leið og gerðar yrðu breytingar sem eiga að miða við jöfnun innan kerfisins. Á það vildum við ekki fall- ast.“ Hækka leigu á félagsleg- um íbúðum um 15,2% Reykjavík | Fróðleiksfúsir borg- arbúar, sem rekast á lítt þekktar fornminjar á göngu sinni um borgina, munu áður en langt um líður geta fundið staðinn á rafrænu korti af borginni og fengið upplýsingar um minjarnar. Verið er að vinna að því að skrá fornminjar inn í svokallaða Borg- arvefsjá, sem er gagnvirkt kort af Reykjavík sem finna má á heimasíðu borgarinnar, www.reykjavik.is. Þeg- ar er búið að skrá nokkrar fornminjar í Laugarnesinu á kortið, og vonast er til að flestar fornminjar verði komnar á kortið eftir um tvö ár. „Með því að setja gögn þarna inn teljum við að við náum vel til almenn- ings, auk þess sem við getum náð til þeirra sem standa í framkvæmdum og koma þannig í veg fyrir að forn- leifar skemmist. Það aukast líka líkur á því að þeir sem vinna að skipulags- málum sjái hvar fornleifarnar eru. Einnig getur þessi skráning nýst við kennslu,“ segir Anna Lísa Guð- mundsdóttir, deildarstjóri forn- leifadeildar á Árbæjarsafni. Fornminjar eru skráðar í Sarp sem er menningarsögulegt upplýs- ingakerfi þróað af Þjóðminjasafni Ís- lands. Það kerfi verður áfram notað en birting gagna í Borgarvefsjánni mun bæta aðgengi almennings að gögnum Minjasafns Reykjavíkur. Birting gagna um fornleifar á Laugarnesi var tilraunaverkefni unn- ið í samvinnu við landupplýsingadeild Reykjavíkurborgar. Í framhaldinu verður vinnuferlið við að flytja gögn á milli Sarps og landupplýsingakerfis Reykjavíkurborgar þróað. Tekur tvö ár ef fjármagn fæst Nú er verið að leita að fjármagni til að takast á við verkefnið af fullum krafti, segir Anna Lísa. Áætlanir gera ráð fyrir að það taki um tvö ár að skrá allar fornminjar í Reykjavík í Borgarvefsjána, en upplýsingarnar munu koma inn hægt og rólega á þeim tíma. Landupplýsingakerfi Reykjavíkur er 15 ára um þessar mundir og verð- ur af því tilefni sett upp sýning í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur dagana 26. til 28. október. Þar geta gestir kynnst kerfinu, séð hvernig það varð til og hvernig það virkar. Upplýsingar um allar fornminjar á vefnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.