Morgunblaðið - 16.10.2003, Síða 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2003 35
✝ Óli Valdimars-son fæddist á
Meðalfelli í Nesjum
í Hornafirði 2. nóv-
ember 1916. Hann
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Eir 8.
október síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Valdimar
Benediktsson mál-
arameistari, f. 27.2.
1887, d. 15.3. 1968,
og Sigríður Einars-
dóttir húsmóðir, f.
26.6. 1890, d. 26.2.
1970. Sigríður giftist 21.12. 1930
Óskari Sigurðssyni skipstjóra, f.
30.11. 1892, d. 7.7. 1962. Dætur
Sigríðar og Óskars eru Sólveig
hjúkrunarfræðingur, f. 20.1.
1930, gift Magnúsi Marteinssyni
útgerðarmanni, f. 21.7. 1921, d.
23.12. 1997, og Jóhanna húsmóð-
ir, f. 26.7. 1931, d. 12.7. 1991,
gift Víði Sveinssyni skipstjóra, f.
6.8. 1930, d. 19.9. 1968.
Óli kvæntist 25.3. 1946 Rut
Þórðardóttur húsmóður, f. 25.3.
1917, d. 10.6. 1995. Foreldrar
hennar voru Þórður Stefánsson
skipstjóri, f. 15.6. 1892, d. 9.11.
1980, og Katrín Guðmundsdóttir
húsmóðir, f. 24.10. 1892, d.
28.11. 1974. Börn Óla og Rutar
eru: 1) Alda Sigríður hár-
greiðslumeistari, f. 7.6. 1943, býr
í Flórída í Bandaríkjunum, gift
Manfred Bredehorst fv. her-
manni, f. 25.8. 1948. Dóttir
þeirra er Lisa-Marie f. 20.6.
1978. Áður gift Jan Jóni Ólafs-
syni kerfisforritara, f. 15.3.
mannfræðingur, f. 25.12. 1979,
og Andri læknanemi, f. 29.9.
1982. 5) Eygló Rut húsfreyja, f.
31.1. 1960.
Óli ólst upp á Meðalfelli í Nesj-
um í Hornafirði. Hann fluttist
árið 1930 til Neskaupstaðar með
móður sinni og stjúpföður en fór
árið 1937 til Reykjavíkur þar
sem hann bjó síðan. Hann naut
farandkennslu í heimasveit, var í
gagnfræðaskóla í Neskaupstað
og í Samvinnuskólanum í
Reykjavík. Með námi vann hann
í Síldarvinnslunni í Neskaupstað
og sem háseti á sjó. Í Reykjavík
starfaði Óli sem blaðamaður á
Alþýðublaðinu en síðar sem bók-
haldari hjá heildsölum og Eft-
irliti bæjar- og sveitarfélaga.
Hann var í ellefu ár aðalbókari
hjá Jóni Loftssyni. Í yfir fjörutíu
ár var hann deildarstjóri Reikni-
skrifstofu sjávarútvegsins hjá
Fiskifélagi Íslands og jafnframt
erindreki félagsins um allt land
og því í nánum tengslum við
sjávarútveginn. Samhliða var
hann framkvæmdastjóri vélbáta
ábyrgðartryggingafélagsins
Gróttu.
Óli var þekktur skákmaður,
tefldi í meistaraflokki og í lands-
liðsflokki. Hann keppti fyrir Ís-
lands hönd á Skákþingum Norð-
urlanda. Hann tók virkan þátt í
að útbreiða skáklistina um land-
ið með því að taka þátt í fjöl-
mörgum helgarskákmótum á
vegum tímaritsins Skákar og
kenna við Skákskólann víða um
land. Óli var ritstjóri og útgef-
andi Nýja Skákblaðsins 1940–41
og sat í stjórnum Taflfélags
Reykjavíkur 1943–45 og Skák-
sambands Íslands 1945–48.
Útför Óla verður gerð frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.30.
1943, börn þeirra búa
í Bandaríkjunum og
eru: a) Valtýr Óli
auglýsingastjóri, f.
20.5. 1962, hann á tvö
börn, b) Lovísa Rut
lögmaður, f. 22.6.
1966, hún á tvö börn,
c) Anetta Björk hús-
móðir, f. 2.9. 1968,
hún á þrjú börn, og d)
Birgitta Björk fé-
lagsráðgjafi, f. 2.9.
1968, hún á tvö börn.
2) Erna Katrín hús-
móðir, f. 28.8. 1944,
d. 23.6. 2003. Dætur hennar og
Gunnbjörns Fjölnis Björnssonar
stýrimanns, f. 26.12. 1940, eru
þrjár. Þær eru: a) Linda Kristín
húsmóðir, f. 26.9. 1961, hún á
fjögur börn, b) Rut húsmóðir, f.
19.8. 1964, hún á fjögur börn og
eitt barnabarn, og c) Bergþóra
húsmóðir, f. 27.10. 1965, hún á
fimm börn. Börn Ernu með Sig-
urjóni Magnúsi Halldórssyni
bólstrara, f. 4.12. 1948, d. 3.6.
1994, eru: d) Óli Halldór íþrótta-
kennaranemi, f. 4.4. 1973, hann
á eitt barn, e) Sigrún Lína fjár-
málastjóri, f. 16.9. 1974, og f)
Sigurjóna Soffía ritari, f. 26.9.
1978. 3) Atli Þór læknir, f. 6.1.
1949, kvæntur Guðrúnu Hrefnu
Guðmundsdóttur kennara, f. 8.2.
1957. Börn þeirra eru Óli Þór
stærðfræðingur, f. 23.1. 1978,
Sigurlín Björg, f. 23.8. 1988, og
Þórður, f. 21.8. 1995. 4) Elfar
fasteignasali, f. 26.1. 1955. Börn
hans og Bjarneyjar Bergsdóttur,
f. 9.8. 1958, eru: Ásdís María
Óli Valdimarsson sleit bernsku-
skóm hjá ömmu sinni, Jóhönnu Sig-
ríði Snjólfsdóttur á Meðalfelli í Nesj-
um í Hornafirði. Amma hans kenndi
honum um lífið, t.d. að maður færi
ekki á bæi eða truflaði fólk að óþörfu,
og fékk hann til að dvelja yfir verk-
um með því að segja honum sífellt
nýjar sögur. Hestarnir komu í áttina
til ömmu hans þegar hún gekk út á
túnið og vissu að hún var með góð-
gæti undir svuntunni, brauðbita eða
nýhnoðað deig. Hundurinn fagnaði
endurkomu Óla eftir vetrarvist á
Norðfirði með því að stökkva upp á
herðar honum þegar hann kom hjól-
andi heim tröðina. Hann sat yfir fé
inni í Laxárdal og byggði sér þar
smalakofa. Eitt sinn í þoku sá hann
álfkonu koma ríðandi. Að heyra frá-
sagnir Óla úr æskunni var eins og að
lesa skáldsögur frá fyrri hluta síð-
ustu aldar.
Óli las undir barnaskólapróf og
lauk því fljótt og fór síðar í gagn-
fræðaskóla á Norðfirði. Þar kynntist
hann nýjum einstaklingum sem
höfðu mótandi áhrif á hann, t.d. Lúð-
vík Jósepssyni sem þá kenndi við
gagnfræðaskólann. Hann var hvatt-
ur til frekara náms og fór til Reykja-
víkur í Samvinnuskólann þar sem
hann lauk tveggja vetra námi á einu
ári. Hann vann fyrir námsdvölinni
með því að fara á sjóinn, fékk pláss á
báti frá Grindavík, en á Norðfirði
hafði hann einnig stundað sjósókn. Í
Samvinnuskólanum naut hann
kennslu margra góðra manna og
minntist oft á Ólaf Jóhannesson sem
naut mikillar virðingar meðal nem-
enda. Óli starfaði alla tíð við bókhald
og uppgjör, fór m.a. í kaupfélög úti á
landi og hjálpaði til við fjármála-
stjórnun.
Skák var helsta áhugamál Óla.
Hann var á tímabili meðal fremstu
skákmanna landsins og fór með
landsliði skákmanna í nokkrar
keppnisferðir til útlanda. Hann var
virkur í skákinni allt fram á áttræð-
isaldur. Óli spilaði einnig bridge og
tók í spil við okkur börn og tengda-
börn allt fram á síðasta ár. Á Norð-
firði kynntist hann einnig myndlist-
inni, og nokkrar myndir sem hann
gerði á þeim tíma bera vitni um
næmi hans fyrir mynduppbyggingu.
Hann hafði gaman af að horfa á mál-
verk. Hann var einnig glöggur að sjá
svip með fólki.
Óli var bráðgreindur maður og
hógvær. Hann hafði svo góða nálægð
að maður vildi helst ekki víkja frá
honum. Hann var ráðagóður að leita
til, sýndi áhuga og umburðarlyndi en
reyndi ekki að sannfæra fólk. Í sam-
ræðum var sama á hverju var brydd-
að, hann þekkti flesta hluti og var
hafsjór af fróðleik. Í ferðalögum okk-
ar um Suðurlandið þekkti hann
hvert bæjarnafn og gat sagt til um
fólk sem þar bjó eða hafði búið. Hann
vitnaði oft í spaugileg tilsvör, laus við
háðung. Hann átti fjölda kunningja,
m.a. í skák- og bridgeklúbbum og
sinnti börnum sínum og fjölskyldu af
slíkri alúð að öll eiga þau minningar
um sérstakar bæjarferðir með pabba
eða gæluheiti sem hann gaf þeim
hverju og einu. Í sjóði hans var urm-
ull frásagna af orðalagi og háttum
barnanna er lýstu persónueinkenn-
um af hlýju. Og hann kenndi þeim að
elska dýrin. Hann var einatt á tali við
ketti sem voru á ferðinni í kringum
Vífilsgötuna og hann lýsti oft óræðu
háttalagi þeirra. Nokkur barna hans
eru mestu kattarvinir sem ég hefi
þekkt.
Ég kveð Óla tengdaföður minn
með söknuði. Hann var einstakur
maður, með honum fer heilt bóka-
safn af fróðleik og hafsjór af reynslu
og lífsgildum liðinna kynslóða. Ég er
þakklát fyrir að hafa kynnst honum
og notið návista hans, velvildar og
visku í hátt á þriðja áratug. Ég votta
afkomendum Óla, börnum hans,
barnabörnum og barnabarnabörn-
um mína dýpstu samúð.
Guð blessi minningu Óla Valdi-
marssonar.
Guðrún Hrefna
Guðmundsdóttir.
Kveðja frá
Skáksambandi Íslands
Óli Valdimarsson er einn þeirra
manna sem settu svip á skáklíf Ís-
lendinga um áratuga skeið. Ásamt
Sturlu Péturssyni gaf hann út Nýja
Skákblaðið en það var málgagn
Skáksambands Íslands. Blaðið kom
fyrst út árið 1940 og prýddi forsíð-
una mynd af hinum fræknu Ólymp-
íuförum Íslands sem tefldu í Buenos
Aires 1939 og unnu B-riðil mótsins
og Copa Argentína, veglegan verð-
launagrip sem nú er í eigu skák-
minjasafns Íslands. Óli sat í stjórn
Skáksambandsins frá 1945 til 1948.
Hann var ágætur skákmaður og
tefldi margsinnis í landsliðsflokki á
Skákþingi Íslands og náði þar best 3.
til 4. sæti í landsliðskeppninni 1944.
Óli setti sterkan svip á helgarmót
tímaritsins Skákar sem Jóhann Þór-
ir Jónsson stóð fyrir upp úr 1980 og
fram til ársins 1997. Þríeykið Óli,
Benóný og Sturla keppti um öld-
ungaverðlaunin á þeim mótum og
vakti mikla athygli sú alúð sem Óli
lagði í taflmennskuna enda var
frammistaða hans oft með miklum
ágætum. Hann var rólyndismaður
en jafnframt glaðlyndur og átti létt
með að gera að gamni sínu.Skáksam-
band Íslands sendir aðstandendum
hans samúðarkveðju vegna fráfalls
hans.
ÓLI
VALDIMARSSON
Sambýliskona mín, móðir, tengdamóðir, dóttir,
systir og mágkona,
ÞORGERÐUR SIGURÐARDÓTTIR
myndlistarmaður,
Auðarstræti 9,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðju-
daginn 14. október.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ólafur H. Torfason,
Jón Gunnar Gylfason, Solveig Edda Vilhjálmsdóttir,
Sigurður Guðmundsson, Aðalbjörg Halldórsdóttir,
Steinunn S. Sigurðardóttir, Ingólfur S. Ingólfsson,
Halldór Sigurðsson, Ester Hjartardóttir,
Guðmundur Sigurðsson, Sigrún Kristjánsdóttir,
Ragnheiður Sigurðardóttir, Bragi Guðmundsson.
Elskulegur faðir okkar,
GUNNLAUGUR ÞORFINNSSON
JÓNSSON
rafvirki,
lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar miðviku-
daginn 15. október.
Útför auglýst síðar.
Börn hins látna.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÚN STEFÁNSDÓTTIR,
Miðhúsum,
Akrahreppi,
andaðist á Dvalarheimili aldraðra á Sauðár-
króki þriðjudaginn 14. október.
Útförin verður gerð frá Miklabæjarkirkju í Akra-
hreppi laugardaginn 18. október kl. 14.00.
Gísli Jónsson,
Jón Gíslason,
Guðbjörg Gísladóttir,
Stefán Gíslason,
Þrúður Gísladóttir,
Gísli Gíslason,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi, bróðir og mágur,
KRISTINN ÓLI KRISTINSSON,
Torrevieja,
Spáni,
lést á sjúkrahúsinu í Alicante á Spáni þriðju-
daginn 14. október.
Eva Skullerud,
Jens Pétur Kristinsson Jenssen, María Steinþórsdóttir,
Kristinn Ragnar Kristinsson,
Svava Margrét Kristinsdóttir,
Anna Inga Kristinsdóttir,
Anna María Garðarsdóttir, Jón Axel Tómasson,
Jón Karlsson, Sigrún Gunnarsdóttir,
Kristinn Þór Kristinsson, Nicole Kristinsson,
Frímann Ægir Frímannsson, Sigríður Sveinbjörnsdóttir,
Jórunn Ósk Frímannsdóttir, Sigurbjörn Jónsson,
Einar Ágúst Kristinsson, Rebekka Ingvarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir mín, systir og mágkona,
INGUNN HALLSDÓTTIR
Boðagranda 7,
Reykjavík,
lést að morgni þriðjudagsins 14. október á
líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Hallur Örn Jónsson,
Erlingur Hallsson, Ásta Tryggvadóttir,
Aðalsteinn Hallsson, Ebba Stefánsdóttir,
Sigríður Björg Eggertsdóttir, Guðmundur Geir Jónsson
og aðrir aðstandendur.
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti eða á disklingi (netfangið er
minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um
leið og grein hefur borist). Ef greinin er á
disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð-
synlegt er að símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi
með. Nánari upplýsingar eru á mbl.is.