Morgunblaðið - 19.12.2003, Blaðsíða 26
AKUREYRI
26 FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505,
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
GLÆSILEGAR YFIRHAFNIR
samkvæmisfatnaður
leður hanskar -
skinnkragar
Opið öll kvöld til kl. 22:00 fram að jólum
Jóladjass Ragnheiðar | Ragn-
heiður Gröndal kemur fram á jóla-
djasstónleikum í Deiglunni, Kaup-
vangsstræti á
Akureyri, á
sunnudagskvöld,
21. desember, kl.
21. Með henni
leika Jón Páll,
gítarleikari,
Haukur Gröndal,
saxófónleikari og
Daninn Morten
Lundsby á
kontrabassa. Flutt verða lög af nýj-
um diski og brugðið upp ljúfri jóla-
stemmningu, segir í frétt um tón-
leikana. Einnig kemur fram að
Ragnheiður hafi að undanförnu
vakið athygli og verið tilnefnd til
verðlauna í þremur flokkum hinna
íslensku tónlistarverðlauna, sem
besta söngkonan, bjartasta vonin
og fyrir flutning ársins á laginu
Ást.
FLUGAKADEMÍA Akureyrar
sendi öllum kennurum í Mennta-
skólanum á Akureyri kveðju í
fyrradag, á 100 ára afmælisdegi
flugsins. Með kveðjunni fylgdu
eyrnatappar, til að nota þegar
herflugvélar fljúga yfir Akureyri,
og verkjatafla, við höfuðverkjum
af völdum æfingaflugsins. Kenn-
arar og annað starfsfólk MA hafa
sem kunnugt kvartað yfir hávaða
og ónæði á vinnustaðnum þegar
herþotur af Keflavíkurflugvelli
hafa athafnað sig í Eyjafirði við
æfingar.
Kveðjunni góðu frá flug-
akademíunni fylgdi einnig mynd
og nákvæmar upplýsingar um
McDonnel Douglas F-15 flugvélar.
Á ljósmyndinni sést hvar Jón Már
Héðinsson skólameistari mátar
hina vönduðu eyrnatappa, sem
fastir eru saman með snúru svo
þeir týnist síður.
Ljósmynd/Sverrir Páll
Eyrnatappar á aðventu
SKÍÐAFÉLAG Akureyrar, SKA,
fékk í gær afhent viðurkenningar-
skjal fyrir barna- og unglingastarf
og hefur félagið jafnframt rétt til
þess að kalla sig Fyrirmyndarfélag
ÍSÍ til næstu fjögurra ára. SKA er
fyrsta félagið á landsbyggðinni sem
hlýtur þessa viðurkenningu en alls
hafa 8 íþróttafélög í landinu náð
þeim áfanga. Ellert B. Schram, for-
seti Íþrótta- og Ólympíusambands
Íslands, afhenti Tómasi Inga Jóns-
syni, formanni SKA, skjalið við há-
tíðlega athöfn í Íþróttahöllinni.
Ellert sagði við það tækifæri að
SKA uppfyllti þau skilyrði sem þarf
til að geta kallað sig Fyrirmynd-
arfélag ÍSÍ, m.a. varðandi fjármál,
aðbúnað, unglingastarf og fé-
lagsstarf almennt. Hann sagði fé-
lagið vel í stakk búið til að taka við
æskufólki og að mikilvægt væri að
foreldrar gætu gengið að því vísu.
Ellert sagði að félag sem skaraði
fram úr og væri til fyrirmyndar
ætti að geta fengið frekari fyrir-
greiðslu í sveitarfélaginu fyrir vikið.
Hann sagði að oft hafi það verið
„skussar“ í rekstri félaga sem feng-
ið hafi mest af peningum, þar sem
verið væri að skera menn niður úr
snörunni.
„Íþróttastarf hefur mikið gildi,
það eru gerðar miklar kröfur til
okkar og það er því mjög mikilvægt
að það sé öflugt starf í hverju sveit-
arfélagi,“ sagði Ellert.
Tómas Ingi sagði að ekki væri
bara um fína nafnbót að ræða –
heldur upplagt tækifæri til þess að
efla starf félagsins enn frekar.
Hann sagði að skíðavertíðin væri að
komast í gang og horfir með bjart-
sýni til vetrarins. Guðný Jóhann-
esdóttir, formaður íþrótta- og tóm-
stundaráðs Akureyrarbæjar, var að
vonum ánægð með þessa nafnbót
Skíðafélagsins. Hún sagði að pen-
ingavandræði íþróttafélaga færu oft
hærra en það sem vel sé gert. Unn-
ið er að því að ganga frá rekstr-
arsamningum við félögin í bænum
og sagðist Guðný vera bjartsýn fyr-
ir þeirra hönd.
Sigfús Helgason, varaformaður
Íþróttabandalags Akureyrar, sagði
að þessi dagur væri mesti íþrótta-
viðburður ársins í bænum. Hann
sagði ekki hlaupið að því að ná þess-
um árangri sem væri stórkostlegur
og mikið gleðiefni. Sigfús sagðist
jafnframt vona að fleiri félög í bæn-
um fylgdu í kjölfarið.
Fyrir utan það að SKA fær rétt
til að kalla sig Fyrirmyndarfélag
ÍSÍ, fær félagið m.a. að nota merki
fyrirmyndarfélaga á bréfsefni, aug-
lýsingar, búninga, kynningarefni og
fleira.
Skíðafélag Akur-
eyrar í hóp fyrir-
myndarfélaga ÍSÍ
Morgunblaðið/Kristján
Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, afhenti Tómasi Inga Jónssyni, formanni SKA,
skjal til staðfestingar á því að félagið væri Fyrirmyndarfélag ÍSÍ.
UPPBYGGINGU Búmanna við
Lindasíðu á Akureyri er lokið en
fjórar síðustu raðhúsaíbúðirnar af
17 á svæðinu voru afhentar nýlega.
Alls hafa því 33 íbúðir félagsins
verið teknar í notkun í bænum en
fyrir eiga Búmenn 16 íbúðir við
Holta- og Melateig. Búmenn hófu
uppbyggingu við Lindasíðu á árinu
2002 en íbúðirnar þar eru 3ja her-
bergja um 95 fermetrar og fylgir
bílskúr um helmingi þeirra. Bygg-
ingafélagið Hyrna hefur byggt fyrir
Búmenn á Akureyri.
Að undanförnu hafa Búmenn ver-
ið að skoða möguleg svæði fyrir
áframhaldandi uppbyggingu á Ak-
ureyri og hafa ýmis svæði verið
skoðuð. Nokkur áhugi hefur verið á
því að Búmenn byggi í landi Naus-
tatúns og er stefnt að því að á
næsta ári verði byggt á því svæði.
Viðræður hafa einnig farið fram við
bæjaryfirvöld á Akureyri um mögu-
leika á þéttingu byggðar t.d. í inn-
bænum.
Búmenn
afhenda
íbúðir
SJÖ verkefni hlutu styrk úr Há-
skólasjóði KEA, en til hans var
stofnað fyrir rúmu ári og er þetta í
fyrsta sinn er úthlutað er úr sjóðn-
um. Háskólinn á Akureri og Kaup-
félag Eyfirðinga gerðu með sér sam-
komulag um styrktarverkefni og
greiðir KEA 5 milljónir króna á ári í
fimm ár.
Þeir sem hlutu styrki nú eru Sig-
rún Magnúsdóttir og Bragi Guð-
mundsdóttir, 500 þúsund krónur, en
verkefni þeirra er að gera margmiðl-
unarvef um menningar- og atvinnu-
sögu Eyjafjarðarsvæðisins. Sigrún
hlaut einnig eina milljón króna til að
vinna að uppbyggingu á útgáfu-
starfsemi Háskólans á Akureyri,
Ingi Rúnar Eðvarðsson, 500 þúsund
krónur vegna rannsóknar á stjórn-
unarháttum fyrirtækja á Akureyri,
Kristín Sóley Björnsdóttir fékk
sömu upphæð vegna verkefnis um
menningarferðaþjónustu á Ak-
ureyri, Bjarni Hjarðar er umsjón-
armaður verkefnis sem nefnist:
Rannsóknasetur í opinberri stefnu-
mörkun og alþjóðaþróunarmálum.
Elizabeth Fern hlaut 300 þúsund
króna styrk vegna rannsóknar sem
tengist barnavernd á Íslandi og
Englandi og Adam Bridgen fékk 200
þúsund krónur vegna rannsóknar
sem tengist upplýsingatækni. Alls
var úthlutað nú 3,5 milljónum sem
þýðir að á næsta ári verða 6,5 millj-
ónir króna til úthlutunar.
„Ég vona að þessi styrkir komi að
góðu gagni og nýtist vel,“ sagði
Benedikt Sigurðarson, formaður
stjórnar KEA. Hann sagði starfsemi
háskólans skipta samfélagið nyrðra
miklu máli og félagið vildi með þess-
um hætti sýna vilja sinn í verki til að
styrkja þá starfsemi. Þorsteinn
Gunnarsson, rektor Háskólans á Ak-
ureyri, sagði rannsóknafé af skorn-
um skammti, en KEA hefði með
framsýni og rausnarlegum hætti
bætt þar úr hvað háskólasamfélagið
á Akureyri varðar.
Sjö verkefni fá
styrk úr há-
skólasjóði KEA
Smámyndasýning | Jónas Viðar
bæjarlistamaður Akureyrar opnar
smámyndasýningu í 02 Gallery á
laugardag, 20.
desember, kl. 14.
Það er í Hafn-
arstræti 101, Am-
arohúsinu. Jónas
Viðar stundaði
listnám við
Myndlistaskól-
ann á Akureyri
og Accademia Di
Belle Arti di
Carrara á Ítalíu. Sýningin stendur
yfir til 23. desember og er opin dag-
lega frá kl. 12 til 22.
Syngjum jólin inn | Jólasöngvar
Kórs Akureyrarkirkju verða á
sunnudag, 21. desember, kl. 17 og
20.30. Fyrir síðustu jól var ákveðið
að bjóða upp á tvenna tónleika
vegna frábærrar aðsóknar á und-
anförnum árum og gaf það mjög
góða raun.
Á efnisskránni er aðventu- og
jólatónlist Lesarar eru: Sr. Arna
Ýrr Sigurðardóttir, Heiðdís Norð-
fjörð, Lúðvík Áskelsson, Óskar Þór
Halldórsson og Valgerður Valgarðs-
dóttir, djákni.
Björn Steinar Sólbergsson leikur
á orgel og stjórnandi er Eyþór Ingi
Jónsson.
Auk þess að hlýða á kórinn gefst
kirkjugestum kostur á að æfa jóla-
sálmana fyrir jólin því auk kórsöngs
verður almennur safnaðarsöngur.