Morgunblaðið - 19.12.2003, Blaðsíða 61
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2003 61
var meiri meðal ungra barna á Ís-
landi miðað við í nágrannalönd-
unum. Járnskortur í æsku getur
haft mjög alvarlegar afleiðingar
svo sem á andlegan þroska. Í
framhaldi af þessu þróaði rann-
sóknarstofan því í samstarfi við
fleiri aðila og iðnaðinn járnbætta
stoðmjólk, úr íslenskri mjólk, sem
er nú seld um allt land, ætluð
börnum frá ½–2 ára. Rannsókn-
irnar sýndu einnig að mörgu leyti
heilsusamlegri samsetningu ís-
lensku mjólkurinnar, bæði prótein
og ekki síst fitusamsetningu miðað
við þá erlendu og er það mikil-
vægt í ljósi þess að börn drekka
fullfeita mjólk. Þetta er einungis
eitt lítið dæmi um þær rannsóknir
sem hafa verið unnar á rann-
sóknarstofu í næringarfræði og
verið mikilvægar fyrir heilsu
ungra barna en þeim er betur lýst
í bókinni Sérstaða íslensku kúa-
mjólkurinnar sem er nýlega komin
út. Í framhaldinu er mikilvægt að
skoða áhrif þessara breytinga á
járninntöku og járnbúskap ungra
barna með því að gera nýja rann-
sókn á mataræði þeirra.
Aukið nýgengi sykursýki af
gerð 1, eða sykursýki barna, í ná-
grannalöndum okkar öllum í
Skandinavíu og Finnlandi síðast-
liðna áratugi má að hluta tengja
breyttri samsetningu kúamjólkur í
þeim löndum. Samanburður á kúa-
kynjum sem notuð voru við
mjólkurframleiðslu í Finnlandi
fyrir nokkrum áratugum og þeim
kynbættu kúakynjum sem notuð
eru í dag sýnir að fleiri en ein
próteingerð hefur breyst, og að
eldri próteingerðir líkjast því sem
sést í íslenskri mjólk. Nýleg aukn-
ing í nýgengi sykursýki af gerð 1
hérlendis, sem þó er þrisvar sinn-
um lægra en til dæmis í Svíþjóð,
er mögulega af aukinni notkun er-
lendrar þurrmjólkur hérlendis síð-
astliðin ár og af öðrum orsökum.
Niðurbrotsefni mjólkurpróteina
hafa reynst hafa jákvæð áhrif á
vægan háþrýsting, geta eflt
ónæmiskerfið og viðhalda heil-
brigði æða. Í íslensku mjólkinni er
meira af n-3 en í erlendri mjólk en
þær hafa verið tengdar minni
áhættu á hjarta- og æðasjúk-
dómum. Í henni er einnig meira af
svo kölluðum CLA-fitusýrum
(„conjugated linoleic acids“) sem
hafa verið tengdar minna mitt-
ismáli og taldar geta verið vörn
gegn krabbameini. Lengst af höf-
um við haldið að gæði mjólkur
væru stöðug og svipuð víðs vegar í
veröldinni en svo er hins vegar
ekki þar sem kynbætur og fóðrun
valda breytileika og breytileiki í
próteingerðum og fitu hefur víð-
tæk heilsufarsleg áhrif. Þó að
lækkun fjárveitingarinnar frá
fyrra ári sé áfall fyrir rannsóknina
sýna alþingismenn bæði framsýni
og ábyrgð á komandi kynslóðum
með því að styðja áfram við rann-
sóknir á íslenskri kúamjólk, heilsu
og á mataræði ungra barna.
Höfundur er starfsmaður rann-
sóknarstofu í næringarfræði við Há-
skóla Íslands og Landspítala – há-
skólasjúkrahús.
Allt til bútasaums
15%
afslá
ttur a
f tilb
únum
pakk
ning
um
Opið virka daga frá 10-18
og laugardaga frá 10-16
Sími: 482 4241
Gula línan