Morgunblaðið - 07.01.2004, Blaðsíða 20
SUÐURNES
20 MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Keflavíkurflugvöllur | Farþegum
sem áttu leið um Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar fjölgaði um 12% á síðasta
ári, og eru vísbendingar um frekari
fjölgun farþega á nýju ári, einkum
vegna aukins áætlunarflugs bæði hjá
Icelandair og Iceland Express.
Alls fjölgaði farþegum um flug-
stöðina um tæplega 150 þúsund far-
þega, úr tæplega 1.220 þúsund far-
þegum árið 2002, í tæplega 1.370
farþega árið 2003, og er fjölgunin því
12,3% frá síðasta ári, að því er fram
kemur í tilkynningu frá flugstöðinni.
Árið 2002 varð mikil fækkun far-
þega, sem rakin er til hryðjuverk-
anna í Bandaríkjunum 11. september
2001. Fyrir árið 2001 hafði farþega-
fjöldi aukist jafnt og þétt, en hrapaði
niður 2001 og aftur 2002. Útreikn-
ingar flugstöðvarinnar sýna nú fram
á að fjöldi farþega í lok árs 2004 verði
kominn í sama horf og þegar hann
var sem mestur árið 2000, eða í um
1.460 þúsund farþega.
Í desembermánuði fjölgaði farþeg-
um sem fóru um Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar um 25% miðað við sama
mánuð í fyrra, úr tæplega 62 þúsund
farþegum árið 2002 í rúmlega 77 þús-
und farþega í desember 2003.
Mest vegur fjölgun farþega til og
frá Íslandi sem er tæplega 26% milli
ára, en farþegum sem millilenda hér
á landi á leið yfir Atlantshafið fjölg-
aði engu að síður um 19% frá sama
tíma á árinu 2002. Þetta er annar
mánuðurinn í röð sem skiptif-
arþegum, fólki sem millilendir hér á
landi á leið sinni, fjölgar eftir fækkun
mánuðina á undan.
Erlendum ferðamönnum fjölgar
Hagstofa Íslands reiknar með að á
árinu 2003 hafi komið um 325 þúsund
erlendir ferðamenn til landsins, og
eru þær tölur byggðar á fjölda far-
þega sem fara um Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar. Áður hélt Útlendingaeft-
irlitið saman tölum um fjölda erlendra
ferðamanna, en talningum var hætt í
árslok 2000.
Samkvæmt tölum frá flugstöðinni
fjölgaði ferðamönnum sem komu til
Íslands um Keflavíkurflugvöll árlega
um 10 til 12% á árunum 1998 til 2000.
Þetta var álíka mikil fjölgun og sú
sem talning Útlendingaeftirlitsins
sýndi yfir komur erlendra ferða-
manna til landsins. Á árinu 2000
komu rúmlega 302 þúsund erlendir
ferðamenn til Íslands. Á árunum
2001 og 2002 fækkaði ferðamönnum,
sem komu til landsins, um 4–5%
hvort ár og fækkun erlendra ferða-
manna virðist hafa verið svipuð.
Þannig er fjöldi erlendra ferðamanna
reiknaður sem nokkurs konar hlut-
fall af ferðamönnum almennt, af
fenginni reynslu frá þeim tíma sem
Útlendingaeftirlitið taldi erlenda
ferðamenn sem komu til landsins.
Farþegum um Leifsstöð fjölgar um 12%
/# /# /# /## / /
!
"
!
%0 (
1 (
#
( 68)
@@'A%&&'B)"C
Samtals komu um 325 þúsund erlendir ferðamenn til landsins árið 2003
Reykjanesbær | Bæjarráð
Reykjanesbæjar hefur samþykkt
að fela bæjarstjóra að ganga frá
og undirrita stofnsamning og sam-
þykktir fyrir Þróunarsjóð Reykja-
nesbæjar hf. og leggja vinnureglur
um starfsemi sjóðsins síðan fyrir
bæjarráð. Var þetta samþykkt
með atkvæðum Sjálfstæðisflokks-
ins en fulltrúar Samfylkingarinnar
sátu hjá.
Þróunarsjóðurinn er nokkurs
konar skipulagssjóður. Hann er
stofnaður í þeim tilgangi að standa
að og stýra eignarkaupum og end-
ursölu á fasteignum sem hamla
skipulagi og eðlilegri framvindu
byggðar í Reykjanesbæ, að því er
fram kemur í drögum að sam-
þykktum fyrir hlutafélagið.
Hlutafé verður í upphafi fjórar
milljónir kr., í eigu Reykjanes-
bæjar.
Þróunarsjóður
skipulags stofnaður
Safna jólatrjám | Bæjarstarfs-
menn í Reykjanesbæ hefja hirðingu
jólatrjáa í dag og safna fram eftir
vikunni eftir þörfum. Mikilvægt er
að setja trén út fyrir lóðamörkin, á
stað þar sem þau fjúka ekki. Í Garð-
inum, Grindavík og Sandgerði sjá
íbúar sjálfir um að koma trjánum í
eyðingu, og í Vogunum enda trén
ævi sína á þrettándabrennu lions-
manna.
Suðurnes | Framkvæmdastjóra
Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
hefur verið falið að semja við lægst-
bjóðanda um sorphirðu á Suður-
nesjum, en það er Gáma- og tækja-
leigan í Fjarðabyggð sem átti
lægsta tilboðið þegar verkið var
boðið út í árslok 2003.
Tilboð hennar hljóðaði upp á 84%
af kostnaðaráætlun, 794.040 kr. fyr-
ir hverja sorphreinsun, en kostn-
aðaráætlun Sorpeyðingarstöðvar
Suðurnesja hljóðaði upp á 950.000
kr. fyrir hverja hreinsun. Sorp-
hreinsun mun fara fram á tíu daga
fresti hjá íbúum á Suðurnesjum, um
36 til 37 sinnum á ári, og því kostn-
aður miðað við tilboð Gáma- og
tækjaleigunnar um 29,4 milljónir á
ári.
Reiknað er með að Gáma- og
tækjaleigan taki við verkinu í byrj-
un febrúar, ef samningar takast.
Nýr aðili tekur við sorphirðu
Sorp hirt: Nýr aðili mun taka við sorphirðingu í byrjun febrúar.
Morgunblaðið/Þorkell
Grindavík | Guðbjörg Hlíf Páls-
dóttir mun opna sýningu á verkum
sínum, unnum úr krossvið og
járni, í Listsýningasal Saltfiskset-
urs Íslands í Grindavík næstkom-
andi laugardag kl. 15. Verkin
minna á tákn hafsins með straum-
laga línur og form. Sýningin
stendur til 12. febrúar nk. og er
opin alla daga vikunnar frá kl. 11–
18. Þetta er fjórða einkasýning
Guðbjargar en hún hefur einnig
tekið þátt í nokkrum samsýn-
ingum.
Sýnir í
Saltfisksetrinu
Minna á hafið: Verk Guðbjargar
Hlífar minna á tákn tengd hafinu.
Njarðvík | Litlu munaði að illa færi þegar stór
vörubíll, svokölluð búkolla, rann út í sjó þar sem
verið er að gera nýjan varnargarð á Fitjum í
Njarðvík á ellefta tímanum í gærmorgun.
Atvikið varð með þeim hætti að bílstjórinn
bakkaði að brúninni með fulllestaðan pall og
hugðist sturta farminum. Hann fór of utarlega og
bakkinn gaf sig undan bílnum með þeim afleið-
ingum að hann rann út í sjó, segir Ágúst Ólafsson,
verkstjóri Íslenskra aðalverktaka á staðnum.
„Það er alltaf hætta á ferðum þegar menn fara
svona tæpt út á kant, en á meðan enginn meiðir
sig er þetta í lagi. En það hefði geta farið verr,“
segir Ágúst.
Stýrishúsið fór ekki út í sjóinn, en pallurinn
snerist á hliðina í hálfu kafi. Ekki er djúpt á þess-
um slóðum, og lágfjara þegar óhappið varð, en
Ágúst segir að bíllinn hefði eflaust farið á kaf ef
þetta hefði gerst á flóði. Pallurinn var réttur við
með gröfu og að því loknu keyrði búkollan upp
aftur, með aðstoð annarrar búkollu uppi á bakk-
anum.
„Það eina sem skemmdist var stoltið hjá bíl-
stjóranum,“ segir Ágúst. „Þegar hann kemur nið-
ur í sjóinn er liður á þessum búkollum svo það er
bara pallurinn sem veltur og bíllinn skemmist
ekkert.“
Ágúst segir þetta alltaf koma fyrir af og til í
ófærð og öðru, og ekkert annað að gera en að
rétta bílinn við. Einu skemmdirnar voru á púst-
kerfinu og einnig þarf að athuga hvort sjór hafi
komist í drifin á bílnum áður en hann verður tek-
inn í notkun á ný.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Rann í sjóinn: Búkollan komst upp fyrir eigin vélarafli, með smáaðstoð frá annarri búkollu á bakkanum og stæðilegri beltagröfu sem rétti pallinn af.
„Eina sem skemmdist var stoltið hjá bílstjóranum“
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.