Morgunblaðið - 07.01.2004, Qupperneq 42
ÍÞRÓTTIR
42 MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SÆNSKA knattspyrnufélagið Örgryte,
með fyrrum KA-manninn Atla Svein Þór-
arinsson innanborðs, tekur þátt í fjögurra
liða móti í Reykjaneshöllinni um næstu
mánaðamót. Örgryte leikur þar gegn KR
og Keflavík mætir Skagamönnum hinn
30. janúar en daginn eftir spila sigurliðin
til úrslita í mótinu og tapliðin um annað
sætið.
Atli Sveinn hefur leikið með Örgryte í
fjögur ár og spilað með því 43 leiki í úr-
valsdeildinni, þar af 14 á síðasta tímabili,
og hann hefur leikið tvo A-landsleiki fyrir
Ísland. Örgryte hefur oft verið með ís-
lenska leikmenn í sínum röðum, svo sem
Brynjar Björn Gunnarsson, Rúnar Krist-
insson og Örn Óskarsson, og þá er Kefl-
víkingurinn Jóhann B. Guðmundsson
væntanlegur til reynslu hjá félaginu
næsta mánudag.
ÓVÍST er hvort Helgi Jónas Guðfinnsson
leikur miklu meira með Grindvíkingum í
vetur. Hann hefur átt við erfið meiðsl að
stríða sem ekki sér fyrir endann á.
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grind-
víkinga, sagði í gær að ekki væri vitað
hvað væri að, en Helgi Jónas hefði farið til
lækna og héldi því áfram til að reyna að fá
botn í þetta.
„Hann hefur verið kvalinn vegna þessa
og við vitum ekkert hvort og þá hvenær
hann getur leikið með okkur,“ sagði Frið-
rik Ingi um meiðsl eða veikindi Helga Jón-
asar.
Friðrik sagði að Helgi Jónas hefði lítið
leikið með Grindvíkingum í vetur, en alltaf
hefðu menn vonast til að hann færi að
koma inn af fullum krafti. „Eftir að hann
hætti í fótboltanum um mitt sumar gat
hann ekkert tekið þátt í undirbúningi okk-
ar. Hann lék einn leik á Valsmótinu og svo
seint í september hélt hann að nú væri allt
orðið eðlilegt og byrjaði að æfa en þetta
hefur angrað hann allan tímann,“ sagði
Friðrik Ingi og bætti við að meðal annars
vegna fjarveru Helga Jónasar hefðu
Grindvíkingar ákveðið að fá sér nýjan er-
lendan leikmann, leikmann sem gæti skor-
að og tekið fráköst.
Helgi Jónas er með verk í kviðnum sem
leiðir bæði upp og niður eins og Friðrik
Ingi orðaði það. „Við erum að hugsa fram
í tímann með því að skipta um erlendan
leikmann. Helgi Jónas er búinn að vera í
fríi frá því 14. desember en virðist því
miður ekki á batavegi,“ sagði þjálfarinn
sem benti einnig á að aðrir leimenn liðsins
væru ekki alveg heilir og nendi sem dæmi
að Steinar Arason væri rétt að skríða inn
eftir liðþófameiðsl.
GERRY Taggart mun leika áfram
með Stoke City í ensku 1. deildinni í
knattspyrnu, næsta mánuðinn í það
minnsta. Taggart hefur leikið undan-
farna fimm leiki með Stoke sem láns-
maður frá Leicester og með hann í
vörninni hefur leikur liðsins tekið
stakkaskiptum og það hefur styrkt
verulega stöðu sína í deildinni.
TVÍSÝNT er hvort Dennis Berg-
kamp getur leikið með Arsenal gegn
Everton í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í kvöld. Bergkamp er
meiddur á kálfa og fer í meiðslapróf
fyrir leikinn. Ljóst er að Sylvain Wilt-
ord verður ekki með Arsenal þar sem
hann meiddist á ökkla á æfingu en
Jeremie Aliadiere kemur væntan-
lega inn í hópinn á ný. Hann missti af
bikarleiknum gegn Leeds á sunnudag
vegna veikinda.
SOUTHAMPTON hefur boðið
norska varnarmanninum Öyvind
Svenning til sín öðru sinni en hann
þótti standa sig mjög vel þegar hann
var til reynslu hjá félaginu fyrir ára-
mót. Svenning er 23 ára og leikur
með Sundsvall í Svíþjóð en norsku
meistararnir Rosenborg eru einnig
sagðir vilja fá hann í sínar raðir.
FORSVARSMENN Knattspyrnu-
sambands Nígeríu eru ekki sáttir við
ákvörðun framherjans Obafemi
Martins þess efnis að gefa ekki kost á
sér í úrslitakeppni Afríkukeppninnar
sem fram fer í Túnis síðar í þessum
mánuði. Hinn 19 ára gamli leikmaður
sem er á mála hjá Inter frá Mílanó á
Ítalíu var einn af fjörutíu leikmönnum
sem valdir voru í landsliðshóp á dög-
unum en Martins ákvað að verða frek-
ar eftir á Ítalíu og berjast fyrir sæti
sínu hjá Inter.
FYRIRLIÐI pólska landsliðsins í
knattspyrnu, Tomasz Hajto, er þessa
dagana hjá enska liðinu Everton en
hann hefur verið á mála hjá Schalke
04 í Þýskalandi undanfarin ár. Hajto
segir við Sky-fréttastofuna að hann
hafi fengið tilboð frá þremur félagslið-
um en leikmaðurinn er 31 árs gamall.
„Það hefur ekki gengið vel hjá Ever-
ton undanfarnar vikur og ég ætla að
sjá hvernig liðinu vegnar gegn Arsen-
al á miðvikudaginn áður en ég tek
ákvörðun um framhaldið,“ segir
Hajto.
ISIAH Thomas, framkvæmdastjóri
bandaríska körfuknattleiksliðsins
New York Knicks, er þegar byrjaður
að taka til í herbúðum liðsins eftir að
hafa tekið við starfinu á dögunum. Í
gær sendi Thomas fjóra leikmenn frá
liðinu til Phoenix Suns í skiptum fyrir
Stephon Marbury, Penny Hardaway
og Cezary Trybanski. Frá Knicks
fara þeir Antonio McDyess, Howard
Eisley, Charlie Ward og Maciej
Lampe. Að auki fá Suns rétt til þess
að taka Milos Vujanic í sínar raðir og
liðið fær tvo valrétti frá Knicks.
FÓLK
Guðmundur Þórður Guðmundssonlandsliðsþjálfari velur eftir
næstu helgi endanlega hóp manna
sem hann hyggst
tefla fram á EM og
ljóst er að af þeim 22
handknattleiksmönn-
um sem æfa undir
hans stjórn núna eiga sex þeirra eftir
að sitja heima.
Gylfi, sem er 26 ára, hefur ekki ver-
ið í hópi þekktari handknattleiks-
manna Íslendinga en hann hefur látið
verkin tala undanfarin ár og smátt og
smátt unnið sig áfram með samvisku-
semi og dugnaði.
Gylfi leikur stöðu hægri horna-
manns og hefur spilað með Wilhelms-
havener frá Wilhelmshaven, hafn-
arbæ í Neðra-Saxlandi, skammt
norðan Brimar. Um 80.000 manns
búa í bænum, sem er e.t.v. þekktastur
fyrir að vera kafbátahöfn Þjóðverja
við Norðursjóinn. Gylfi segist kunna
vel við sig í Wilhelmshaven þar sem
hann býr ásamt kærustu sinni, Hlín
Drúsín Halldórsdóttur nema. Það
hafi eigi að síður verið gríðarlega
breyting að flytja frá Düsseldorf, en
þar bjuggu þau í tvö ár áður en Gylfi
tók tilboði Wilhelmshavener HV.
Gylfi hélt til Þýskalands sumarið
2000 eftir að hafa leikið eitt keppn-
istímabil með Haukum og orðið Ís-
landsmeistari þá um vorið. Hann er
hins vegar uppalinn í vesturbæ
Reykjavíkur, er KR-ingur og hóf ung-
ur handknattleiksæfingar hjá félag-
inu og lék undir merkjum þess þar til
handknattleiksdeildin var sameinuð
Gróttu á Seltjarnarnesi um miðjan
síðasta áratug. Gylfi lék um skeið með
Gróttu/KR áður en hann hélt í Hafn-
arfjörð hvar hann átti þátt í fyrsta
sigri Hauka á Íslandsmótinu í hand-
knattleik í rúma hálfa öld.
Eftir það hleypti hann heimdrag-
anum og fór til Þýskalands.
Stefndi ekki á atvinnumennsku
„Mig langaði að breyta til. Ég hafði
lokið því námi sem ég var í og kær-
astan mín setti stefnuna á nám í
Þýskalandi, mig langaði með og hafði
í huga að fá mér vinnu úti. Um leið
stóð hugur minn til þess að leika
handknattleik eins og ég var vanur
hér heima. Ég fór aldrei út til Þýska-
lands með það í huga að verða at-
vinnumaður í handknattleik, örlögin
hafa hagað því þannig,“ sagði Gylfi
um ástæðu þess að hann fór til Þýska-
lands sumarið 2000. Viggó Sigurðs-
son, þjálfari Hauka, átti stóran þátt í
að Gylfi fór að vinna við það sem hann
langaði helst. „Viggó tók við Haukum
sumarið 2000 þegar ég var á leiðinni
út. Hann spurði hvað ég ætlaði að
gera og ég sagði honum það. Viggó
leist ekkert á að ég færi að vinna á
skyndibitastað og lét mig hafa upp-
lýsingar um umboðsmann handknatt-
leiksmanna sem hann þekkir, það
væri aldrei að vita nema hann gæti
hjálpað mér að komast að hjá hand-
boltaliði. Ef ekki þá gæti ég alltaf
komið heim og leikið með Haukum,“
segir Gylfi að Viggó hafi sagt léttur í
bragði. Vinargreiði Viggós leiddi til
þess að Gylfi komst á hálfatvinnu-
mannssamning hjá þýska 2. deildar-
liðinu Düsseldorf. „Vegna samnings-
ins við Düsseldorf varð ekkert úr því
að ég færi að vinna annað enda var
þetta fullt starf þar sem stundum var
æft tvisvar á dag. Launin voru hins
vegar lág og það varð til þess að við
lifðum afar spart, það voru sérstakar
hrísgrjóna- og pastavikur hjá okkur
fyrsta veturinn,“ segir Gylfi og hefur
gaman af því að rifja upp þessa fyrstu
mánuði sína í Þýskalandi.
Vakti fljótlega athygli
Gylfi vakti hins vegar fljótlega at-
hygli fyrir framgöngu sína með Düss-
eldorf. „Ég lærði mikið á árunum hjá
Düsseldorf, var með góðan þjálfara
og æfði meira og betur og það skilaði
sér auk þess sem við lékum marga
leiki í deildinni,“ segir Gylfi sem segir
það hafa verið talsverða breytingu
fyrir sig að fara til Þýskalands. „Það
er meira æft auk þess sem hraðinn er
meiri í handknattleiknum. Menn eru
á launum við að leika handknattleik
og þar af leiðandi er hægt að gera
meiri kröfur til þeirra. Það var ágætt
að byrja á botninum og vinna sig
hægt og bítandi upp á við. Fyrst og
fremst leit ég á utanför mína og kær-
ustunnar á sínum tíma sem tækifæri
fyrir okkur til þess að breyta til og
búa í öðru landi, kynnast nýjum sið-
um og venjum.“
Þegar ljóst var fyrir tæpum tveim-
ur árum að Wilhelmshavener myndi
vinna sér sæti í efstu deild var Gylfi
einn þeirra leikmanna sem forráða-
menn félagsins sóttust eftir að fá til
liðs við sig. Þeir gerðu Gylfa tilboð um
tveggja ára samning sem hann skrif-
aði undir. Wilhelmshavener tókst að
halda sæti sínu í harðri keppni 1.
deildarinnar á síðustu leiktíð og á
þeirri sem nú stendur yfir hefur
gengið á ýmsu, liðið er í 14. sæti af 18 í
deildinni, hefur 10 stig að loknum 19
umferðum. Framundan er harður
slagur fram á vor um að halda sætinu
í deild þeirra bestu.
„Við höfum sótt í okkur veðrið eftir
því sem á hefur liðið veturinn. Við
byrjuðum illa en eftir að við fengum
annan þjálfara, Jürgen Carstens, í
nóvember hefur okkur vegnað betur,
enda er þar á ferð maður sem veit svo
sannarlega hvað hann syngur. Carst-
ens hefur náð að laða það besta fram
hjá mönnum og um leið höfum við far-
ið að vinna stig.
Fyrstu árin í 1. deildinni eru erfið,
það tekur sinn tíma fyrir ný félög að
festa sig í sessi og öðlast ákveðna
virðingu, nýliðum er ekki sýnd nein
miskunn. Við ætlum að halda sæti
okkar í deildinni og byggja ofan á það
sem gert hefur verið undanfarin ár,“
segir Gylfi, en samningur hans við
Wilhelmshaverner rennur út í sumar.
„Það eru farnar af stað þreifingar um
nýjan samning og ég vænti þess að í
næstu viku fái ég í hendur boð um
nýjan samning sem ég tek væntan-
lega afstöðu til þegar keppni hefst að
nýju í deildinni eftir EM í Slóveníu.
Ég kann vel við mig í Wilhelmshaven
og get vel hugsað mér að vera þar
áfram, að minnsta kosti erum við ekk-
ert á leiðinni heim alveg á næstunni,
okkur langar til að vera áfram úti í
einhver ár til viðbótar,“ segir Gylfi
sem leikið hefur vel með liðinu á leik-
tíðinni. Hann er þriðji markahæsti
leikmaður liðsins, með 68 mörk, og er
ásamt Guðjóni Val Sigurðssyni, leik-
manni Essen, markahæstur íslensku
leikmannanna í þýsku 1. deildinni.
Ljóst er að líf Gylfa hefur tekið
aðra stefnu en hann hugði fyrir tæp-
um fjórum árum. Svo má einnig segja
um kærustuna, Hlín, hún er hætt í
náminu sem hún stefndi að í Þýska-
landi og er núna í fjarnámi frá Kenn-
araháskóla Íslands.
Gylfi segir það ekki hafa verið
mikla breytingu að skipta úr 2. deild-
inni yfir í þá fyrstu. „Helst var að
flestir leikmenn eru talsvert hærri en
ég, ég hélt að ég ætti ekki möguleika
gegn þeim, en það hefur sloppið
vegna þess að ég leik í horninu,“ segir
Gylfi, sem 177 sentímetrar á hæð sem
ekki þykir hátt í þýska handknatt-
leiknum þar sem flestir leikmenn, þar
með taldir hornamenn, eru um eða yf-
ir tveir metrar. „Ég sá fljótlega að
þetta var í lagi og þá hvarf hræðslan.“
Gylfi á að baki sjö landsleiki fyrir
Ísland. Þá fyrstu lék hann á fjögurra
landa móti í Danmörku í mars 2002.
Síðan hefur hann verið viðloðandi
landsliðið en ekki tekist að komast í
endanlegan hóp fyrir stórmót og enn
stendur hann í þeim sporum. „Ég
reyni að nýta þau tækifæri sem ég fæ,
en það verður síðan að koma í ljós
hvort ég verð með á EM eða ekki,“
segir Gylfi sem sér einn æskudraum
sinn rætast með atvinnumennskunni í
handknattleik.
„Þegar ég var barn átti ég mér
nokkra drauma, meðal annars að
verða atvinnumaður í handknattleik.
Sá draumur hefur ræst en svo sann-
arlega er líf atvinnumanns öðruvísi en
ég reiknaði með sem barn. Þetta er
ekki það rólegheitalíf sem ég hélt sem
barn að það væri. Atvinnumennska í
íþróttum er þvert á móti miklu meira
vinna en ég hélt, þetta er hörkuvinna
sem tekur virkilega á mann eins og
önnur vinna ætli maður að standa í
stykkinu, annars er sparkað í rassinn
á manni og annar leikmaður tekinn
inn í staðinn,“ sagði Gylfi Gylfason,
handknattleiksmaður hjá Wilhelms-
havener í Þýskalandi.
Ætlaði bara að fá
einhverja vinnu
„AUÐVITAÐ langar mig til þess að vera í EM-hópnum og leika í Slóv-
eníu, takist það ekki þá verður bara svo að vera, það verður enginn
heimsendir komist ég ekki með,“ segir Gylfi Gylfason, handknatt-
leiksmaður hjá þýska 1. deildarliðinu Wilhelmshavener, sem um
þessar mundir æfir með íslenska landsliðinu sem býr sig undir Evr-
ópumeistaramótið sem hefst í Slóveníu síðar í þessum mánuði.
Ívar
Benediktsson
skrifar
Líf landsliðsmannsins Gylfa Gylfasonar tók óvænta stefnu í Þýskalandi
& 2 #
5 26
7 8
99
844 %&&%5E
: :
;<= >
7?> %&&&5%&&%
/4 / & 2 Óvíst að Helgi Jónas Guðfinnsson
verði meira með Grindvíkingum
Helgi Jónas Guðfinnsson
Örgryte á leið
til Íslands