Morgunblaðið - 08.01.2004, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VONLÍTILL UM BJÖRGUN
Sævar Brynjólfsson sem bjarg-
aðist af Húna KE í fyrrakvöld segir
með ólíkindum hversu snöggt bát-
urinn fór niður. Hann segist hafa ver-
ið orðinn vonlítill um að sér yrði
bjargað. Sævar náði að þrauka í um
eina og hálfa klukkustund efst á
stefni Húna þar til honum var bjarg-
að.
Dollarinn lækkar
Gengi Bandaríkjadollara hefur fall-
ið mjög að undanförnu og segja sér-
fræðingar í gjaldeyrismálum að búast
megi við að sú þróun haldi áfram.
Ljóst er að lágt gengi dollara ýtir
undir útflutning á bandarískum
vörum en lækkandi gengi veldur á
hinn bóginn útflutningsfyrirtækjum í
Evrópu og Japan miklum vanda
vegna verri samkeppnisaðstöðu á al-
þjóðamörkuðum. Einnig er bent á að
erlendir fjárfestar geti misst áhuga á
Bandaríkjunum vegna þess hve vext-
ir þar eru nú lágir.
Hærra fasteignamat
Fasteignamat hækkaði að með-
altali um 10,7% um áramótin frá
árinu áður. Hækkar mat á íbúðar-
húsnæði mun meira en mat á at-
vinnuhúsnæði eða um 12,5% sam-
anborið við 6,9% hækkun á mati á
atvinnuhúsnæði. Við nýja matið
hækkar verð á fasteignum í landinu
um tæpa 200 milljarða króna. Hækk-
un fasteignamatsins stafar fyrst og
fremst af verðhækkun fasteigna á
undanförnum mánuðum.
Breytt innflytjendalög
George W. Bush Bandaríkjaforseti
hyggst leggja fyrir þingið tillögur um
að milljónir ólöglegra innflytjenda,
sem eru aðallega frá Mexíkó, geti
fengið tímabundið dvalarleyfi. Einnig
vill hann fjölga svonefndum grænum
kortum sem eru dvalarleyfi til fram-
búðar. Margir íhaldsmenn eru and-
vígir hugmyndunum en ljóst þykir að
Bush muni með tillögunum auka fylgi
sitt meðal fólks af mexíkóskum ætt-
um í forsetakosningunum nk. haust.
ÍE rannsakar einhverfu
Íslensk erfðagreining ræðst í um-
fangsmiklar rannsóknir á erfðafræði
einhverfu og skyldra þroskaraskana í
samstarfi við Siomons-rann-
sóknasjóðinn í New York, en sam-
komulag hefur náðst um að Siomons-
sjóðurinn fjármagni rannsóknirnar
með 2,8 milljóna Bandaríkjadala
framlagi.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 37
Erlent 16/19 Viðhorf 38
Minn staður 22 Minningar 40/49
Höfuðborgin 23 Kirkjustarf 49
Suðurnes 24/25 Myndasögur 52
Akureyri 24 Bréf 52
Austurland 26 Dagbók 54/55
Landið 26 Íþróttir 56/59
Daglegt líf 28/29 Fólk 60/65
Listir 30/32 Bíó 62/65
Umræðan 33/39 Ljósvakamiðlar 66
Forystugrein 34 Veður 67
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@m-
bl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is
Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is
Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Alltaf ód‡rast á netinu
Breytanlegur farseðill!
Verð á mann frá 19.500 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
22
35
0
10
/2
00
3
Morgunblaðið/Eggert
Jólatrjám safnað saman
STARFSMENN gatnamálastjóra í
Reykjavík hafa í nógu að snúast
þessa dagana við hirðingu jólatrjáa
um alla borgina. Borgarbúar not-
unin hófst. Eftir morgundaginn eru
íbúar sem ekki hafa losað sig við
trén beðnir að koma þeim í eyðingu
á gámastöðvum Sorpu.
færa sér þessa þjónustu og setja
jólatrén út fyrir lóðamörk og marg-
ir tóku það ráð að losa sig við trén
strax á þrettándanum þegar söfn-
VIÐRÆÐUM Samkeppnisstofnun-
ar og lögmanna olíufélaganna
þriggja sem staðið hafa yfir und-
anfarnar vikur hefur verið hætt.
Athugaðir hafa verið möguleikar á
að ljúka máli um meint samráð ol-
íufélaganna með samkomulagi um
sektargreiðslur og án tilstuðlunar
dómstóla, en á fundi í gær kom í
ljós að svo mikið ber í milli hug-
mynda um sektarupphæðir, að
ekki eru taldar líkur á að sættir
geti náðst að svo komnu máli. Er
því ekki talin ástæða til að boða til
annars fundar, samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins.
Olíufélögin þrjú fengu í byrjun
desember afhentan síðari hluta
frumskýrslu Samkeppnisstofnunar
um meint ólögmætt samráð félag-
anna og hafa frest fram í miðjan
febrúarmánuð til að skila inn at-
hugasemdum sínum við efni henn-
ar. Félögin hafa talið sig þurfa
lengri frest til að koma athuga-
semdum sínum á framfæri við
stofnunina og er gert ráð fyrir að
formleg beiðni um lengri frest
verði lögð fram í næstu viku.
Haldnir hafa verið fjórir eða fimm
fundir með lögmönnum olíufélag-
anna og Samkeppnisstofnunar frá
því félögin fengu síðari skýrsluna
afhenta fyrir um mánuði en við-
ræðurnar hafa verið árangurslaus-
ar.
Viðræðum olíufélaganna og Sam-
keppnisstofnunar hefur verið hætt
Litlar líkur taldar á
að sættir geti náðst
RÍFLEGA 80% landsmanna eru hlynnt kröfu fé-
laga og sambanda í Alþýðusambandi Íslands um
samræmdan lífeyrisrétt launamanna á almennum
markaði og hjá hinu opinbera. Þetta er meðal
þess sem fram kemur í könnun sem Gallup gerði
fyrir ASÍ um ýmis atriði sem tengjast lífeyr-
ismálum.
Rúmlega 14% svarenda kváðust andvíg þessari
kröfu og tæp 5% voru hvorki hlynnt né andvíg.
ASÍ kynnti niðurstöðurnar á miðstjórnarfundi
í gær. Skv. upplýsingum ASÍ lýstu um 76% þátt-
takenda í könnuninni óánægju með ný lög um líf-
eyrisrétt æðstu embættismanna, ráðherra og al-
þingismanna.
Í könnuninni voru svarendur spurðir hvort
þeir teldu lífeyrisrétt opinberra starfsmanna
betri en þeirra sem vinna á almennum markaði,
hvort réttur þeirra sem vinna á almennum mark-
aði væri betri, eða hvort rétturinn væri sá sami
eða sambærilegur. Þrír af hverjum fjórum sögðu
að lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna væru
betri, um 10% sögðu rétt þeirra sem vinna hjá
einkafyrirtækjum vera betri, en um 15% sögðu
réttinn hliðstæðan.
Stuðningurinn mikilvægt vegarnesti
í kjaraviðræðurnar
Könnunin var gerð dagana 19. til 29. desember
sl. Í úrtakinu voru 600 Íslendingar á aldrinum
18-80 ára. Svarhlutfall í könnuninni var 71,6%.
Miðstjórn ASÍ samþykkti ályktun á fundi sín-
um í gær, þar sem segir að ekki verði lengur un-
að við það hróplega ósamræmi sem sé á lífeyr-
isréttindum launafólks á almennum
vinnumarkaði og í opinberri þjónustu. Miðstjórn-
in segist telja að yfirgnæfandi stuðningur al-
mennings við kröfu verkalýðshreyfingarinnar um
samræmdan lífeyrisrétt sé mikilvægt vegarnesti
í viðræður um gerð kjarasamninga sem nú eru að
hefjast aftur.
„Umræðan í þjóðfélaginu undanfarnar vikur
um þessi mál og viðhorf almennings til þeirra,
færa okkur enn betur heim sanninn um nauðsyn
þess að þetta misrétti verði leiðrétt,“ segir í
ályktuninni.
Rúm 80% styðja kröfu um
samræmdan lífeyrisrétt
FLUGVÉL frá bandaríska flug-
félaginu United Airlines flaug
frá New York til Keflavíkur í
gær til að sækja fólkið sem var í
vél félagsins sem var lent þar í
fyrrakvöld vegna bilunar í öðr-
um hreyflinum.
Í Boeing 777 þotu United fé-
lagsins voru 248 manns, þar af
231 farþegi, á leið frá Frankfurt
í Þýskalandi til Washington og
fóru þeir með samskonar þotu
vestur um hálftíuleytið í gær-
kvöldi. Eins og greint var frá í
Morgunblaðinu í gær er talið að
eldsneytisleiðsla í öðrum hreyfl-
inum hafi rofnað í ókyrrð, en
verið var að yfirfara vélina í
gær.
Tveir kettir læddust
inn í landið
Nokkurt umstang varð eftir
að ljóst var að tveir kettir hefðu
slæðst inn í landið með pari sem
var að ferðast frá Róm til New
York. Var þeim hleypt í gegn
fyrir mistök. Eigendur kattanna
gistu með dýrin hjá sér á Nor-
dica-hóteli í nótt og héldu þau af
landi brott ásamt öðrum farþeg-
um vélarinnar í gærkvöld. Að
sögn Kára Gunnlaugssonar, að-
aldeildarstjóra tollgæslunnar á
Keflavíkurflugvelli, gaf yfir-
dýralæknir grænt ljós á brottför
dýranna en hótelherbergið þar
sem kettirnir gistu í nótt mun
verða sótthreinsað.
Önnur vél
sótti far-
þegana