Morgunblaðið - 08.01.2004, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 08.01.2004, Qupperneq 18
ERLENT 18 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Auglýsing um skila- skyldu og skilafresti Á ÁRINU 2004 FYRIR LAUNASKÝRSLUR O.FL. skv. 92. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt og eignarskatt Ríkisskattstjóri hefur skv. 93. gr. laga nr. 90/2003 ákveðið að eftirtöldum gögnum vegna ársins 2003 skuli skilað til skattstjóra eigi síðar en 26. janúar 2004. Sé gögn- unum skilað á rafrænu formi framlengist fresturinn til 6. febrúar 2004. 1. Launamiðar og greiðslumiðar (RSK 2.01) vegna launa, lífeyris, tryggingabóta og at- vinnuleysisbóta o.fl. Á launamiðum komi m.a. fram sundurliðaðar upplýsingar um hvers konar greiðslur í formi launa og hlunninda, styrkja, bóta eða annarra tekna. Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi endurgjald fyrir vinnu, bætur, styrki eða aðrar greiðslur sem skattskyldar eru skv. 7. gr. laga nr. 90/2003. 2. Verktakamiðar (á eyðublaði RSK 2.01). Skilaskyldir eru félög, fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar, sem innt hafa af hendi greiðslur til verktaka fyrir þjónustu (efni og vinnu). 3. Bifreiðahlunnindamiðar (RSK 2.035). Skilaskyldir eru allir þeir sem í rekstri sínum eða annarri starfsemi hafa haft kostnað af kaupum, leigu eða rekstri fólksbifreiðar og ekki fylla út RSK 4.03 vegna hennar. 4. Hlutafjármiðar (RSK 2.045) ásamt samtalningsblaði (RSK 2.04). Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög, samvinnuhlutafélög og sparisjóðir. 5. Stofnsjóðsmiðar (RSK 2.065) ásamt samtalningsblaði (RSK 2.06). Skilaskyld eru öll samvinnufélög þ.m.t. kaupfélög. 6. Launaframtal (RSK 1.05) einstaklinga, sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, og lögaðila, sem undanþegnir eru skattskyldu skv. I. kafla laga nr. 90/2003, hafi þeir greitt laun eða viðbótarframlag í lífeyrissjóð á árinu 2003. 7. Upplýsingar um viðskipti með hlutabréf (RSK 2.08). Skilaskyldir eru bankar, verð- bréfafyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem annast kaup og sölu, umboðsviðskipti og aðra umsýslu með hlutabréf. 8. Greiðsluyfirlit (RSK 2.025) yfir hvers konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem bera takmarkaða skattskyldu hér á landi, og skattskyldar eru skv. 3. tölul. (þjónusta eða starfsemi innt af hendi hér á landi) og 6. tölul. (leiga og greiðslur fyrir afnot eða hagnýtingu einkaleyfa og hvers konar annarra leyfa, réttinda, sérþekkingar, o.fl.) 3. gr. laga nr. 90/2003. Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa greiðslur sem þessar af hendi. 9. Greiðslumiðar (RSK 2.02) yfir hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tölulið C-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003 og ekki er gerð grein fyrir á skilagreinum RSK, sem taldar eru upp hér að framan. Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa greiðslur sem þessar af hendi. Upplýsingum þessum skal ef unnt er, skilað á tölvutæku formi samkvæmt færslu- lýsingu ríkisskattstjóra, sem finna má á vefsíðu ríkisskattstjóra www.rsk.is. Annars skal þeim skilað á tilsvarandi eyðublöðum RSK. Reykjavík 6. janúar 2004 Indriði H. Þorláksson ríkisskattstjóri KARLI Bretaprins var vel fagnað í gær þegar hann sást opinberlega í fyrsta sinn frá því að The Daily Mirror birti orðsendingu sem Díana prinsessa er sögð hafa ritað bryta sínum, Paul Burrell, þar sem hún lýsir því yfir að hún ótt- ist að Karl reyni að ryðja sér úr vegi. Um 100 manns voru við- staddir þegar Karl, sem er 55 ára, opnaði formlega nýja miðstöð fyr- ir brjóstkrabbameinssjúklinga í borginni Hereford. „Vel gert, Karl, þjóðin stendur með þér,“ hrópaði einn viðstaddra. Karl hef- ur enn ekkert látið hafa eftir sér um orðsendinguna sem eignuð er Díönu. Reuters Karli vel fagnað samsæriskenningar byr undir báða vængi í fyrradag þegar dag- blaðið The Daily Mirror hélt því fram að Díana hefði ritað bryta sínum, Paul Burrell, orðsendingu tíu mánuðum áður en hún dó þar sem hún sagðist óttast að Karl Bretaprins vildi ryðja henni úr vegi – en skilnaður þeirra Karls og Díönu var þá nýlega endan- lega frágenginn. Fáránlegar getgátur um þungun Burton segir allar getgátur um þungun Díönu „fáránlegar“. „Hún hafði aðeins hitt Dodi [Fayed, elskhuga Díönu] sex vikum áður,“ segir Burton sem var annar af aðeins tveimur mönnum sem sáu um krufninguna. „Jafnvel ef hún hefði orðið ólétt á þeirra fyrsta fundi [...] ef hann hefði tekið í hönd hennar og barnað hana um leið, þá hefði fóstrið aðeins verið sex vikna gamalt í mesta lagi.“ Sama dag og Daily Mirror birti uppljóstranir sínar hófst form- lega réttarrannsókn á dauða Díönu – sú fyrsta í Bretlandi. Var m.a. greint frá því við upphaf hennar að Sir John Stevens, lög- reglustjóri í London, hefði verið beðinn um að rannsaka orðróm um að slysið sem dró Díönu, Dodi og Frakkann Henri Paul til dauða hefði verið af manna völd- um. John Stalker, fyrrverandi yf- irmaður lögreglunnar í Man- chester, sagði í gær að hann teldi að Stevens ætti að ræða við Karl Bretaprins í tengslum við rann- sókn sína. Frá ummælum Stal- kers er sagt á fréttavef BBC. „Fyrir slíku væru engin fordæmi en við erum að tala um að kona hans hafði haldið því fram að hann hygðist láta drepa hana. Það væri öllum fyrir bestu ef Sir John spyrði Karl prins um þessar staðhæfingar þannig að hann geti formlega borið af sér allar sakir,“ sagði Stalker. ÞRÁLÁTUR orðrómur um að Díana prinsessa hafi verið með barni þegar hún dó í bílslysi í París 31. ágúst 1997 er úr lausu lofti gripinn. Þetta fullyrðir rétt- arskurðlæknir sem tók þátt í krufningu hennar. „Ég var við- staddur lík- skoðunina. Hún var ekki ólétt. Ég veit að hún var ekki ólétt,“ segir John Burton, fyrr- verandi réttar- skurðlæknir bresku konungsfjöl- skyldunnar, í viðtali sem birtist í The Times í gær. Þeir sem aðhyllast samsæris- kenningar hafa fært rök fyrir því að meint þungun Díönu kynni að hafa verið ástæða þess að ein- hverjir hefðu viljað koma henni fyrir kattarnef. Fengu slíkar Segir Díönu ekki hafa verið ólétta London. AFP. Díana prinsessa FORSÆTISRÁÐHERRA Kambód- íu, Hun Sen (til hægri), og fleiri leiðtogar landsins á bæn við athöfn í tilefni af því að í gær voru 25 ár liðin frá falli stjórnar Rauðu khmeranna. Talið er að ógn- arstjórnin í valdatíð Pol Pots, sem lést árið 1998, hafi kostað allt að tvær milljónir manna lífið og for- sætisráðherrann hvatti til þess að réttarhöldum yfir þeim leiðtogum Rauðu khmeranna, sem eru enn á lífi, yrði flýtt. Sameinuðu þjóðirnar og stjórn Kambódíu náðu samkomulagi í júní um stofnun alþjóðlegs dómstóls til að sækja leiðtogana fyrrverandi til saka. Kambódískir embættismenn segja að réttarhöldin geti hafist í apríl og staðið í þrjú ár. Reuters 25 ár frá falli stjórnar Rauðu khmeranna LOFTSLAGSBREYTINGAR í heiminum gætu orðið til þess að hundruð dýra- og plöntutegunda yrðu útdauð á næstu 50 árum að því er fram kemur í grein nítján vísindamanna sem tímaritið Nat- ure birtir í dag. Vísindamenn við fjórtán rann- sóknarstofur víða um heim komust að þeirri niðurstöðu að 15–37% þeirra 1.103 plantna og dýra sem þeir rannsökuðu myndu annað- hvort hverfa eða verða nær útdauð fyrir árið 2050 vegna loftslags- breytinga og þar með breytinga á vistkerfinu. Rannsóknin náði til sex svæða, meðal annars í Mexíkó, Ástralíu, Brasilíu, Suður-Afríku og Evrópu. Hún byggist á spám nefndar á veg- um Sameinuðu þjóðanna um sí- hækkandi hitastig í heiminum til næstu aldamóta. Vísindamennirnir viðurkenndu að spárnar um loftslagsbreyting- arnar og reiknilíkönin, sem þeir notuðu, væru undirorpin mörgum óvissuþáttum. Þeir sögðu þó að niðurstaða þeirra um útrýmingar- hættu dýra- og plöntutegundanna gæti hæglega orðið að veruleika ef iðnríkin drægju ekki úr losun loft- tegunda sem valda gróðurhúsa- áhrifunum. „Við höfum þegar séð að vist- kerfin bregðast mjög hratt við loftslagsbreytingunum,“ sagði Chris Thomas, aðalhöfundur grein- arinnar og líffræðingur við Leeds- háskóla. Skógareyðing einn mesti vandinn Alastair Fitter, umhverfisfræð- ingur við háskólann í Jórvík á Eng- landi, sagði, að mesta hættan, sem nú steðjaði að lífríkinu víða um heim, væri skógareyðing og inn- flutningur og innrás framandi teg- unda. Sagði hann, að loftslags- breytingarnar bættust síðan við og flýttu fyrir afturförinni. Mörg hundruð tegunda í hættu Indianapolis. AP.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.