Morgunblaðið - 08.01.2004, Blaðsíða 23
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2004 23
opi› virka daga, kl. 08:00-18:00
laugardaga kl. 10:00-15:00
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
04
ÚTSALAFLÍSA
Útsalan heldur áfram til 15. janúar,
fjöldi flísager›a me› allt a› 60% afslætti
• inniflísar • útiflísar • ba›flísar • gólfflísar • eldhúsflísar • bílskúrsflísar • veggflísar
• glermosaik • listmosaik • marmaramosaik • keramikmosaik • stálmosaik • náttúrusteinn
• granítflísar • marmaraflísar • flögusteinn • hle›slugler • og margt fleira
Bæjarlind 4 – Kópavogi
og Njar›arnesi 9 – Akureyri
B Y G G I N G A V Ö R U R
N†TT KORTATÍMABIL í dag
Reykjavík | Í drögum að verklags-
reglum um úthlutun og notkun á
farsímum á vegum Reykjavíkur-
borgar kemur fram að settar verði
hámarksupphæðir fyrir farsíma-
notkunn starfsmanna, og umfram-
kostnaður verði greiddur af starfs-
mönnum geti þeir ekki gefið
eðlilegar skýringar á kostnaðinum.
Í drögunum kemur fram að há-
marksupphæð á mánuði fyrir far-
símanotkun verði 3.000 kr. hjá
starfsmönnum sem gert er ráð fyr-
ir að taki aðallega við símtölum,
4.500 kr. hjá starfsmönnum sem
þurfa daglega að eiga stutt samtöl,
og 7.500 kr. hjá stjórnendum. Hafi
starfsmenn ekki fasta starfsstöð og
stýri þeir verkefnum á mörgum
stöðum verður samið sérstaklega
við þá.
Reglurnar eru unnar hjá kjara-
þróunardeild borgarinnar, og hafa
drögin þegar verið rædd á fundum
starfsmannastjóra, sviðsfundum
stjórnsýslu- og fjármálasviðs og
fundum sviðsstjóra borgarinnar.
Reglurnar eru nú til lokaskoðunar
og umsagnar áður en þær verða
gefnar út.
Þetta var meðal þess sem fram
kom í svörum Þórólfs Árnasonar
borgarstjóra við fyrirspurn sjálf-
stæðismanna í borgarráði um sím-
kostnað borgarinnar. Í svörum
borgarstjóra kom einnig fram að
heildarsímkostnaður Reykjavíkur-
borgar á síðasta ári nam um 180
milljónum króna.
Áætla 88 milljónir 2004
Einnig kom fram að í útboði á
hefðbundinni símaþjónustu var
símkostnaður fyrir árið 2004 áætl-
aður 88 milljónir króna, en þar hef-
ur verið tekið tillit til fyrirætlana
borgarinnar um að lækka sím-
kostnað með endurskoðun á fyrir-
komulagi símamála. Miðað við
kostnað árið 2003 og áætlun ársins
2004 er því gert ráð fyrir að spara
92 milljónir króna.
Meðal sparnaðarleiða, auk að-
halds í farsímanotkun, er uppsögn
símalína sem hægt er að komast af
án, að frítt verði að hringja innan
Reykjavíkurborgar og símgjöld,
stofnkostnaður, mánaðargjöld og
mínútugjöld lækki frá því sem ver-
ið hefur, segir í svari borgarstjóra.
Setja hámark á
farsímareikn-
inga borgar-
starfsmanna
Vilja spara 92 milljónir króna á ári
Hafnarfjörður | Lúðvík Geirsson bæjarstjóri tók í gær
fyrstu skóflustunguna að fyrstu bensínstöð Atlantsolíu,
á svæði fyrirtækisins við Óseyrarbraut. Skóflustungan
var tekin með 45 tonna gröfu, og fórst bæjarstjóranum
verkið vel úr hendi. Áætlað er að stöðin verði tilbúin
um mánaðamótin mars-apríl.
Morgunblaðið/Þorkell
Bæjarstjóri tók fyrstu skóflustung-
una að bensínstöð Atlantsolíu
Seltjarnarnes | Leikskólinn Mána-
brekka hefur fengið aðild að græn-
fánaverkefninu svokallaða, en græn-
fáninn er umhverfismerki sem nýtur
virðingar víða um Evrópu sem tákn
um góða fræðslu og umhverfisstefnu
í skólum.
Leikskólar hér á landi hafa ekki
haft möguleika á þátttöku fyrr en í
september sl. og þurfa að líða sex
mánuðir frá því að skóli fær sam-
þykki fyrir þátttöku og þar til heim-
ilt er að flagga grænfánanum. Því er
útlit fyrir að hægt verði að flagga
fánanum á umhverfisdeginum 25.
apríl nk.
Á vef Seltjarnarnesbæjar kemur
fram að strax við stofnun leikskólans
hafi verið mörkuð ákveðin umhverf-
isstefna og markvisst unnið að um-
hverfisfræðslu og umhverfisvernd
með börnum og starfsfólki skólans.
Fánann fá skólar í kjölfar verkefna
sem ætlað er að efla vitund nem-
enda, kennara og annarra starfs-
manna skólans um umhverfismál.
Mánabrekka hefur unnið samkvæmt
ákveðinni umhverfisstefnu lengi, og
þar með uppfyllt öll þau skilyrði sem
sett eru um rétt til grænfánans.
Mánabrekka fær grænfána