Morgunblaðið - 08.01.2004, Page 42
MINNINGAR
42 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Loftur GrétarBergmann fædd-
ist í Hafnarfirði 4.
febrúar 1934. Hann
lést 26. desember
(annan jóladag) síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Guðríður
Guðlaugsdóttir, f. í
Götu í Landsveit í
Rang. 16.4. 1912, d. í
Reykjavík 14.2. 1991,
og Daníel Magnús
Bergmann Ásgeirs-
son bakarameistari,
f. á Stafnesi í Miðnes-
hreppi í Gull. 14.10.
1908, d. í Reykjavík 11.8. 1976.
Grétar var einn fjögurra sam-
feðra bræðra. Gunnlaugur Birgir
Daníelsson var þeirra elstur, f.
18.5. 1931, d. 28.4. 89. Albróðir
Grétars, Guðlaugur Bergmann
býr á Hellnum á Snæfellsnesi og
yngsti bróðirinn Ásgeir Theodór
Bergmann býr á Bahamaeyjum.
Hinn 16. apríl 1960 kvæntist
Grétar Guðlaugu Kristinsdóttur,
f. 19.9. 1930, d. 16.1. 1999. Dóttir
Guðlaugar og stjúpdóttir Grétars
er Aðalheiður Óladóttir Helleday,
f. 10.4. 1952. Hennar maður er
Nils Helleday, f. 16.1. 1952. Börn
þeirra eru Liz Helleday, f. 15.4.
1976, og Peter Helleday, f. 9.7.
1980.
Grétar átti tvö börn áður en
hann kvæntist Guð-
laugu. Þau eru Har-
aldur Sigþór Grétar-
son Bergmann, f.
28.9. 1950, d. 14.2.
2003, móðir hans er
Guðrún Valgerður
Haraldsdóttir, f. í
Súðavík 28.2. 1932,
og Áslaug Grétars-
dóttir, f. 11.5. 1956,
móðir hennar er
Sigrún Guðmunds-
dóttir, f. í Reykjavík
22.9. 1933.
Grétar ólst fyrstu
sex árin upp í Hafn-
arfirði en flutti síðan til Selfoss
með foreldrum sínum. Hann nam
rakaraiðn í Reykjavík og vann við
hana um tíma. Hann stofnaði um-
boðs- og heildsölu með bróður
sínum Guðlaugi og unnu þeir
saman í nokkur ár. Mestan sinn
starfsferil vann Grétar við ýmis
verslunarstörf, rak heildverslun,
sjoppu, var sölumaður og versl-
unarstjóri í Bonaparte, einni af
verslunum Karnabæjar í mörg ár.
Grétar var einn af fyrstu Free-
porturunum og starfaði mikið
með þeim við SÁÁ og AA sam-
tökin. Síðustu árin átti Grétar við
vanheilsu að stríða.
Útför Grétars fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.30.
Bróðir minn hét í höfuðið á göml-
um hjónum sem fylgdu búi sem afi
okkar keypti. Þetta var jörðin
Vatnsnes í Grímsnesi en þar ólst
móðir okkar upp. Þessi gömlu hjón
voru óskaplega góð við móður okkar
svo hún ákvað að láta fyrsta son sinn
heita í höfuðið á þeim. Þau hétu
Loftur og Margrét. Þótt Grétars-
nafnið hafi orðið að aðalnafni hans
er ég þess fullviss að þau hafa bæði
vakað yfir bróður mínum alla tíð.
Grétar var frá upphafi öðruvísi en
fólk er flest. Þegar hann var fimm
ára reiddist hann foreldrum okkar
og rauk á dyr. Við áttum þá heima í
Hafnarfirði. Eftir nokkra stund var
farið að leita Grétars án árangurs.
Leitað var til lögreglunnar og fann
hún hann fótgangandi með saman-
bitnar tennur kominn hálfa leið til
Reykjavíkur. Þessi ákveðni átti oft
eftir að koma Grétari vel en auðvitað
líka illa. Það er nefnilega þannig að í
heimi andstæðna, ljóss og myrkurs,
getum við ekki haft til ráðstöfunar
orku sem er bara góð. Ef hún er góð
er hún líka vond. Sól býr til skugga;
sterk sól, dimma skugga. Ef við vilj-
um vera í sól einhvers verðum við að
taka skuggum hans. Grétari fylgdi
mikil sól og sterkir skuggar.
Grétar átti mjög gott með að læra
en hann var bráðþroska og fannst
fljótlega margt af því sem hann átti
að læra barnalegt. Hann varð
„heimsfrægur“ fyrir það að læra
ensku af bandarísku hermönnunum,
sem dvöldu á Selfossi á stríðsárun-
um, á aðeins sex vikum, eins og
fréttin í The Times sagði frá. Grétar
var mikið í kringum hermennina,
fékk t.d. einn af krökkunum að horfa
á bíó með þeim. Þetta voru miklir
umrótatímar og ég er ekki viss um
að þessi samskipti hafi verið bróður
mínum aðeins til góðs. Þegar hann
var fermdur var hann orðinn eins og
fullorðinn maður. Hann spilaði á
trommur í hljómsveit og var byrj-
aður að drekka áfengi og reykja.
Þegar foreldrar okkar slitu samvist-
um í fyrra skiptið og pabbi fór til
Reykjavíkur fór Grétar með honum.
Eftir á séð var það ekki heppileg
ráðstöfun. Við mamma komum á eft-
ir þeim einu ári síðar og hófu þau
pabbi búskap að nýju. Grétar varð
fimmtán ára mjög ástfanginn af
ungri glæsilegri konu sem var
nokkrum árum eldri en hann. Þau
voru fallegt par og allt virtist ganga
vel. Grétar fór skömmu síðar að
læra rakaraiðn. En stúlkan hans fór
til Bandaríkjanna til að heimsækja
systur sína og kom aldrei aftur.
Næstu ár voru Grétari erfið. Hann
fór frá einni konu til annarrar og
eignaðist Harald með Guðrúnu Val-
gerði Haraldsdóttur og síðar Ás-
laugu með Sigrúnu Guðmundsdótt-
ur og virtist það samband ætla að
ganga upp en Grétar var rótlaus og
það slitnaði upp úr því.
Árið 1960 giftist Grétar Guðlaugu
Kristinsdóttur, yndislegri konu frá
Akureyri. Hún varð konan í lífi
bróður míns. Dóttir Guðlaugar, Að-
alheiður eða Allý eins og hún er allt-
af kölluð af fjölskyldunni, varð auga-
steinninn hans. Síðar þegar hún
eignaðist Liz og Peter bættust þau í
hóp þeirra sem Grétar elskaði. Nils
maður Allýjar var líka með í þeim
hópi sem Grétari var mjög kærkom-
inn. Um tíma bjuggu Grétar og Guð-
laug í Svíþjóð en þangað höfðu Allý
og Nils maður hennar flutt.
Grétar átti til að byrja með ekki
mikil samskipti við Harald son sinn
en hann varð honum mikil hjálpar-
hella eftir að Guðlaug lést. Haraldur
lést svo hinn 14.2. 2003. Grétar var í
góðu sambandi við Áslaugu dóttur
sína um tíma og virtist fara vel á
með þeim, börnum hennar og eig-
inmanni. En eftir að Guðlaug veikt-
ist og það mikla rót sem ástandið olli
honum, ásamt ofneyslu lyfja, fór að
bera á samskiptaörðugleikum milli
þeirra sem enduðu með því að upp
úr slitnaði gjörsamlega. Grétar sleit
líka sambandi við mig um tíma og
var það okkur báðum mjög erfitt.
Það var svo Haraldi syni hans að
þakka að sættir komust á milli okk-
ar og síðustu árin vorum við Grétar
mjög nánir.
Grétar var mikill sölumaður og
lagði fljótt rakaraiðnina niður og
helgaði sig að mestu sölumanns-
störfum. Við stofnuðum umboðs- og
heildsölufyrirtæki og unnum saman
um tíma. Hann fór utan með vini
mínum Jóni Baldurssyni til að selja
íslenskar afurðir. Hann rak sjoppu,
heildverslun, var sölumaður, versl-
unarstjóri í Bonaparte og síðar í
Karnabæ. Honum var mjög lagið að
selja hvað sem var. Hugmyndaríkur
var hann með afbrigðum en stund-
um of fljótfær og áræðinn. Grétar
átti við ofneyslu áfengis og lyfja að
stríða. Hann barðist harðri baráttu
við þessa vágesti. Hann var með
fyrstu Freeport-félögunum og var
mikill AA-maður. Einnig átti hann
samneyti við SÁÁ, bæði sem sjúk-
lingur og starfsmaður. Eftir að Guð-
laug lést var um tíma eins og hann
hefði engan lífsvilja. Hann var kom-
inn í hjólastól, með sjúkdóm sem
ekki var hægt að greina. Allt virtist
stefna í sömu átt. En enn einu sinni
ákvað bróðir minn þó að berjast og
virtist hafa betur. Hann tók já-
kvæðni og bjartsýni upp á sína arma
og viti menn, honum fór að líða
miklu betur. Hann keypti sér bíl og
var svo heppinn að hafa öðlinginn
Dengsa sér við hlið. Dengsi hjálpaði
Grétari inn og út úr bílnum og fór
með honum út um allt, þar á meðal
vestur á Snæfellsnes til mín. Síðasta
ár var gott ár fyrir Grétar jafnvel
þótt hann hefði farið tvisvar sinnum
á spítala. Líkaminn var búinn en
hann sjálfur var það ekki og þannig
fór hann heim til Lillu, bugaður á
líkama en ekki sál og það er ég
þakklátastur fyrir.
Grétar Fells, rithöfundur og guð-
spekingur, segir í kafla sem heitir
Hátíð Dauðans í bókinni Ilmur skóg-
ar: „En hvert er þá hlutverk dauð-
ans? – Til þess að geta svarað þeirri
spurningu rétt, verðum vér fyrst að
geta svarað annarri spurningu. Og
sú spurning er á þessa leið: Hvert er
hlutverk lífsins? Með öðrum orðum:
Til þess að skilja dauðann, er nauð-
synlegt að skilja lífið. – Því dauðinn
er ekki fráskilinn lífinu. Hann er við-
burður, – að vísu merkilegur við-
burður, – í endalausu lífi, og er einn
af hinum allra dulbúnustu, en um
leið ef til vill einn af hinum allra
bestu vinum sálarinnar og þjónum
lífsins sjálfs.“
Allý mín, Nils, Liz og Peter. Ég
samhryggist ykkur. Ég veit að þið
elskuðuð Grétar án nokkurra skil-
yrða. Þið tókuð á mót sól hans og
skuggum af óskilyrtri ást. Dengsi
minn, Axel og þið önnur sem sinntuð
Grétari mest núna síðustu misseri.
Við ykkur segi ég: „Takk og aftur
takk.“
Grétar minn. Við töluðum mikið
um dauðann síðustu mánuðina.
Núna veistu það sem ég veit ekki.
Bið að heilsa Lillu, Halla og öllum
hinum.
Þinn elskandi bróðir,
Guðlaugur.
Kynni mín af honum Grétari
frænda mínum voru ekki sérlega
mikil, en ég hef heyrt ansi margar
sögur af honum, bæði góðar og
vondar eins og sögurnar af okkur
öllum. En sögurnar sem ég hef að
segja af Grétari eru bara góðar. Ég
átti aldrei neitt sökótt við hann og sá
aldrei nein leiðindi koma upp á milli
hans og annarra.
Það sem ég man aftur á móti eftir
eru áramótakvöld með honum, Lillu,
Liz og Peter. Ég man eftir því
hvernig hann og Lilla tóku á móti
mér þegar ég kom í heimsókn til
þeirra. Og ég man eftir því að í hvert
sinn sem ég hitti Grétar frænda var
hann alltaf að reyta af sér brandara
og mér leið vel með honum.
Hann var fyrstur til að kenna mér
að láta líta út eins og ég gæti rennt
hluta af þumalfingri meðfram vísi-
fingri, líkt og fingurinn væri í
tvennu lagi. Hann var alltaf að gera
eitthvað slíkt og ólíkt mörgum full-
orðnum tók hann sér tíma til þess að
tala við börnin, allavega mig, og
virkilega segja hæ svo ég skildi það.
Hann reyndi ekki bara að fá mig til
að fá áhuga á sér, heldur sýndi hann
áhuga á því sem ég var að gera.
Þannig man ég eftir honum, hin-
um fullkomna frænda. Ég veit að
Loftur Grétar Bergmann var ekki
fullkominn og að hann var ekki alltaf
svona, en á þessu augnabliki þá
finnst mér ég vera einstaklega hepp-
inn að hafa bara séð þessa hlið. Við
erum öll meingölluð í þessu lífi, það
eina sem er mismunandi með okkur
er hversu áberandi gallar okkar eru.
Munið því öll hvernig hann er núna,
fullur af öllu því góða sem við kynnt-
umst hjá honum. Ég vona að þið sjá-
ið hann eins og hann er núna, eins
og hann hefur alltaf verið fyrir
mér... því núna er hann kominn
heim.
Guðlaugur Bergmann yngri.
Nú er hann elsku frændi minn lát-
inn en ég var bara smá gutti þegar
hann rak verslun á Skólavörðustígn-
um þegar mamma mín sagði mér, að
þetta væri hann bróðir hans pabba
míns, svo ég fór upp í verslun til
hans á hverjum degi, hvort sem hon-
um líkaði ver eða betur.
Við vorum nýlega flutt á Berg-
staðastræti 6 svo það var stutt fyrir
LOFTUR GRÉTAR
BERGMANN
Ástkærir foreldrar okkar, tengdaforeldrar, afi, amma, langafi og langamma,
GUÐGEIR GUÐMUNDSSON
OG
KATRÍN SIGRÚN BRYNJÓLFSDÓTTIR,
létust þriðjudaginn 30. desember og föstudaginn 2. janúar síðastliðinn.
Útför þeirra fer fram frá Víkurkirkju laugardaginn 10. janúar kl. 14.00.
Minningarathöfn verður í Fossvogskirkju fimmtudaginn 8. janúar
kl. 10.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja
minnast þeirra, er bent á dvalarheimilið Hjallatún í Vík.
Bryndís Guðgeirsdóttir, Birgir Jónsson,
Egilína S. Guðgeirsdóttir, Eyjólfur Árni Rafnsson,
Guðmundur Pétur Guðgeirsson, Þorgerður Einarsdóttir,
Ragnar Þórir Guðgeirsson, Hildur Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma
og systir,
SIGRÍÐUR VIGDÍS ÓLAFSDÓTTIR,
Brekkuseli 8,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudag-
inn 2. janúar síðastliðinn.
Jarðarförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn
9. janúar kl. 15:00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hennar, er bent á Kraft, stuðningsfélag ungs fólks með krabbamein.
Reikningur 0327-13-700700, kt. 571199-3009.
Arnar Þór Guttormsson,
Karen Jenný Heiðarsdóttir,
Þórhildur Gyða Arnarsdóttir
og systkini hinnar látnu.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HJÖRLEIFUR GÍSLASON,
Kirkjuhvoli,
Hvolsvelli,
verður jarðsunginn frá Breiðabólstaðarkirkju í
Fljótshlíð laugardaginn 10. janúar kl. 15.
Guðbjörg K. Hjörleifsdóttir, Hörður Björgvinsson,
Júlí H. Hjörleifsson, Auður Helga Jónsdóttir,
Guðbjörg Júlídóttir, Kristinn Jónsson
og fjölskyldur.
Ástkær systir mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
MAGNEA DÓRA MAGNÚSDÓTTIR,
Grandavegi 47,
áður Tjarnargötu 9, Sandgerði,
verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju föstu-
daginn 9. janúar kl. 13.30.
Sigrún Inga Magnúsdóttir,
Ingunn Guðlaug Jónsdóttir,
Kristjana Jónsdóttir,
Elín Sigrún Jónsdóttir, Sigurður Árni Þórðarson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskulegur eiginmaður minn,
ÁSGEIR BJARNASON
í Ásgarði,
verður jarðsunginn frá Hvammskirkju í Dala-
sýslu laugardaginn 10. janúar kl. 14.00.
Sætaferðir verða frá BSÍ kl. 10.00.
Ingibjörg Sigurðardóttir.