Morgunblaðið - 08.01.2004, Síða 54
DAGBÓK
54 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
dag fara Svanur RE,
Helgafell og Detti-
foss.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og
jóga, kl. 10 boccia, kl.
13 myndlist. Hár-
snyrting, fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 9–
12.30 bókband, kl.
9.30 boccia, kl. 10.30–
10.55 helgistund, kl.
11 leikfimi, kl. 13–
16.30 smíðar og
handavinna, kl. 13.30
myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgr., kl. 8.30–
14.30 bað, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðg., kl. 13–16
bókband, kl. 14–15
dans.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16
handavinnustofan op-
in, almenn handa-
vinna.
Félagsstarfið Dal-
braut 18–20. Kl. 9
bað, hárgrstofan,
postulín, kl. 13 handa-
vinna.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
bað og glerskurður,
kl. 10–11 leikfimi, kl.
9–12 hárgreiðsla, kl.
13.30 sönghópurinn,
kl. 15.15 dans.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10 hár-
greiðsla, kl. 13 föndur
og handavinna.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kynning-
ardagur félagsstarfs-
ins í Garðabergi kl.
15. Opið frá 13–17 og
skráning í námskeið.
Leikfimi karla kl.
13.15 í Kirkjuhvoli.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Opið hús
laug. 10. jan. kl. 14 í
Félagsmiðstöðinni
Gullsmára, Sigurður
Grétar Guðmundsson
verður með létt spjall,
kaffi, félagar úr
Harmonikufélagi
Reykjavíkur spila. Fé-
lagar eru hvattir til að
mæta og taka með sér
gesti.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Opnað kl. 9. Vid-
eókrókurinn og kaffi.
Pútt í Hraunseli kl.
10–11.30, leikfimi í
Bjarkarhúsi kl. 11.20.
Kóræfingar Gafl-
arakórs kl. 17.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsib. Leikfélagið
Snúður og Snælda,
æfing kl. 10. Brids kl.
13. Félagsvist kl. 20.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Sími 575-
7720. Kl. 10.30 helgi-
stund. Frá hádegi
vinnustofur og spila-
salur opinn. Á morgun
kl. 10 "Gleðin gerir
limina létta". Létt
ganga o.fl.
Gjábakki, Fannborg
8. Kl. 9–15 handa-
vinna, kl. 9.05 og 9.55
leikfimi, kl. 9.30 gler-
list og keramik, kl.
10.50 róleg leikfimi,
kl. 13 gler-og postulín,
kl. 20 gömlu dans-
arnir, kl. 21 línudans.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan
er opin v.d. frá 9–17.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, perlu-
saumur, kortagerð og
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 boccia,
kl. 11 leikfimi, kl. 14
félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–13 bútasaumur, kl.
10–11 boccia, kl. 13–16
hannyrðir, kl.13.30–16
félagsvist. Fótaað-
gerðir v.d., hársnyrt-
ing þriðju- og föstu-
daga.
Korpúlfar Grafarvogi.
Á morgun sund-
leikfimi í Grafarvogs-
laug kl. 9.30.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 10–11 sam-
verustund og leir.
Vesturgata. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
bað, kl. 9.15–15.30,
handavinna, kl. 9–10
boccia, kl. 10.15–11.45
enska, kl. 13–14 leik-
fimi, kl.13–16 kóræf-
ing. Kl.10.30 helgi-
stund í umsjón séra
Jakobs Ágústs Hjálm-
arssonar. Píanóleikari
Sigurbjörg Petra
Hólmgrímsdóttir.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30 gler-
skurður, perlusaumur
og morgunstund, kl.
10 fótaaðgerðir og
boccia, kl. 13 hand-
mennt og bridge.
Þjónustumiðstöðin
Sléttuvegi 11. Opið kl.
9–14. Kl. 9.15 leikfimi,
kl. 10–12 verslunin.
Gullsmárabrids.
Bridsdeild FEBK
Gullsmára hefur starf
á nýju ári fim. 8. jan.
kl. 12.45. Spilaður
verður tvímenningur.
Spilað eftirleiðis alla
mán. og fim. kl. 12.45.
Allir velkomnir.
Félag áhugamanna
um íþróttir aldraðra.
Leikfimi í Bláa saln-
um kl. 11.
Í dag er fimmtudagur 8. janúar,
8. dagur ársins 2004. Orð dagsins:
En ég segi yður: Elskið óvini yð-
ar, og biðjið fyrir þeim, sem of-
sækja yður.
(Mt. 5, 44.)
Jakob F. Ásgeirsson rit-höfundur skrifar í Við-
skiptablaðið um gagnrýni
á bók Hannesar Hólm-
steins Gissurarsonar um
Halldór Laxness. Árás-
irnar komi ekki á óvart,
það geri tilefni þeirra
hins vegar. „Virðist sem
fjandmenn Hannesar hafi
hvorki fundið ástæðu til
árása á bókina vegna
staðreyndavillna eða
skorts á nærgætni við
skáldið. Í örvæntingu
sinni hengja þeir hatt
sinn á heimildanotkun
Hannesar. Úr skúma-
skotum Háskóla Íslands
spretta fram í dagsljósið
fótnótufræðingar tveir,
Helga Kress og Gauti
Kristmannsson, og herja
á Hannes í nafni fræða
sinna. Þeim finnst ekki
vera nógu margar fótnót-
ur í bók hans!
Fáar bækur í seinni tíðgera þó jafn rækilega
grein fyrir heimildum
sínum og bók Hannesar
Hólmsteins. Tilvís-
anaskráin í bókinni er 44
blaðsíður með smáu letri
sett í tvídálk (bls. 563–
607). Alls eru fótnóturnar
1.627, eða tæplega 3 á
hverja lesmálssíðu í bók-
inni. Þetta er með því
mesta sem þekkist um til-
vísanir í bókum af þessu
tagi eftir virta fræði-
menn og rithöfunda,“
skrifar Jakob.
„Til að útbía ekki bók
sína í tilvísunarnúmerum
brá Hannes á það ráð að
vísa ekki alltaf með
skipulegum hætti í þær
heimildir sem hann not-
aði mest, heldur geta
þeirra sérstaklega í eft-
irmála rits síns, svo sem
verið hefur háttur fræði-
manna og rithöfunda
bæði fyrr og síðar. Þarna
er fyrst og fremst um að
ræða minningabækur
Halldórs Laxness, sögu-
hetju Hannesar. Orðrétt
kemst Hannes svo að orði
í eftirmála um notkun
sína á minningabókum
Laxness:
„Allt þetta efni hef ég
reynt að hagnýta mér og
fella saman í eina heild ...
Meginregla mín var að
fara eftir Halldóri sjálf-
um, nema þegar aðrar
heimildir taka af skarið
um annað ...“ (Bls. 619–
620.)
Hverjum sanngjörnum
gagnrýnanda ætti því að
vera ljóst að Hannes not-
ar minningabækurnar
óspart án þess að vísa
alltaf sérstaklega til
þeirra og fylgir frásögn
þeirra nema þegar hann
veit aðrar heimildir rétt-
ari.“
Jakob segir að það séallur gangur á því
hvernig höfundar vísi í
heimildir í bókum á al-
mennum markaði. „Og
það hefur ekkert með
„fræðileg“ vinnubrögð að
gera hvort höfundar
kjósa að vísa jafnóðum í
heimildir eða gera það í
eitt skipti fyrir öll aftan-
máls. Yfirleitt er það þó
svo að þeir sem skrifa
fyrir almennan markað
kappkosta að stilla fót-
nótum í hóf til að fæla
ekki lesendur frá bókum
sínum.“
STAKSTEINAR
Hannes og heimildirnar
Víkverji skrifar...
Víkverja snarbrá þegar hannfrétti af brúðkaupi Britney Spe-
ars á dögunum, ekki síst þar sem
hjónabandið var ógilt af dómara eft-
ir 55 tíma. Víkverji hélt að Britney
þyrfti að skilja með tilheyrandi
eignaskiptingu og vissi ekki að
hægt væri að ógilda giftingu öðru-
vísi. En það er þá greinilega til
millistig þarna. Lögfræðingar henn-
ar settu fram kröfu fyrir dómi og
það tók dómara aðeins tvær stundir
að ákveða sig. Aumingja brúðgum-
inn. Hans verður alltaf minnst sem
stráksins sem kvæntist Britney
Spears. Víkverji var annars farinn
að halda að foreldrar hans eða lög-
fræðingar héðan og þaðan myndu
reyna að ná fram venjulegum
hjónaskilnaði með helmingaskipt-
um, enda eftir miklu að slægjast.
Það er líka umhugsunarefni
hvernig í ósköpunum varð af þessu
brúðkaupi yfirhöfuð. Er ekki her
manns að passa upp á Britney frá
degi til dags, bæði öryggisverðir og
alls konar skipuleggjarar sem eiga
að tryggja að hún geri ekki vitleys-
ur og haldi áfram að mala fjár-
festum sínum gull? Fær hún að
gera það sem henni sýnist og vera
án öryggisgæslu?
x x x
Í jólaboði nokkru kom upp umræðaum flensuna sem kom óvenju
snemma þennan veturinn en hún
hrjáði landann í september og var
farin að mestu nokkrum vikum síð-
ar. Í framhaldi af þessum um-
ræðum fór fólk að tala um veik-
indadaga og hvort brögð væru að
því að fólk notaði sína lögbundnu
veikindadaga sem „frí“ í hverjum
mánuði þótt það væri frískt en
nennti ekki í vinnuna. Einn gest-
anna sem vann í Danmörku fyrir
nokkrum árum sagði að þar hefði
verið mjög frjálslegur andi hvað
þetta snerti. Tryggt væri að allir
fengju að nota sína veikindadaga án
tillits til heilsufarsástands. Þannig
hefði vinnuvikan byrjað á því yf-
irmaður spurði hver ætti inni veik-
indadag. Þegar einhver úr hópnum
rétti upp hönd sagði yfirmaðurinn
að best væri að starfsmaðurinn
fengi að vera „veikur“ á fimmtudag-
inn til dæmis. Þetta hljómar þokka-
lega fyrir þá sem vilja fá frí við og
við, en gæti komið sér illa þegar al-
varlega veikindi steðja að. Þá gæti
verið gott að eiga uppsafnaða veik-
indadaga.
x x x
Víkverji mun fylgjast spennturmeð því hvort veturinn verður
hlýrri en í fyrra þegar meðalhitinn
var 3,3 stig. Meðalhitastig vetrarins
ætti að liggja fyrir í maíbyrj-
un.Víkverja finnst miklu skemmti-
legra að fylgjast með svona löguðu
heldur en úrslitum Idol eða fegurð-
arsamkeppnum.
Bandaríska söngkonan Britney
Spears upplifði skammvinna hjóna-
bandssælu með Jason sínum.
Í Morgunblaðinu um jóla-
leytið birtist mynd af
manni sem var að ganga í
ró og friði í kirkjugarði.
Þá datt mér í hug vanda-
mál sem ég tel að sé í Gufu-
neskirkjugarði en þar
keyra bílar mikið á milli
leiðanna og eru jafnvel
spólandi í hálkunni eins og
á torfærubraut. Finnst mér
þetta mikið tillitsleysi
gagnvart aðstandendum
sem vilja eiga þarna hljóða
stund.
Þarna eru stígar þar sem
hægt er að keyra meðfram
leiðum og var þetta orðið
eins og flag á milli leiðanna.
Þá voru settar hindranir
sín hvorum megin til að
hindra umferð en það er
engin virðing borin fyrir
þessum hindrunum og þær
jafnvel færðar til. Er eins
og fólk geti ekki gengið
lengur.
Hvað hægt er að gera í
þessu máli veit ég ekki en
mér finnst þetta háttarlag
einkennandi fyrir landann.
Svona sér maður ekki er-
lendis.
Aðstandandi.
Jólakveðjur
að nóttu til
ÉG vil kvarta yfir hvernig
fór með jólakveðjur sem ég
keypti til lestrar í útvarp-
inu.
Elskuleg stúlka sem tók
við kveðjunni sagði að ég
mætti ráða hvenær kveðjan
yrði lesin og sagði að kveðj-
an kæmi uppúr kl. 20 um-
beðinn dag.
Ég, ásamt fleirum á
Sauðárkróki, hlustaði allt
kvöldið en ég gafst upp og
var mér sagt daginn eftir
að kveðjan hefði komið kl.
1.30 um nóttina.
Finnst mér þetta alveg
dæmalaust. Það er enginn
af mínum vinum að hlusta á
þessum tíma.
Bogga Munda, Bárustíg
3, Sauðárkróki.
Góð grein
MIG langar að þakka hr.
Ólafi Skúlasoni biskupi fyr-
ir frábæra grein í Morgun-
blaðinu 3. janúar sl. Ég tek
undir þau vel sögðu orð.
Bryndís Bjarnadóttir
Kotstrandarkirkja
til prýði
ÉG átti leið fram hjá Kot-
strandakirkju og var ég svo
hrifin af því hvað kirkjan er
í góðri umhirðu og veggur-
inn í kringum kirkjuna vel
hlaðinn. Og nú um jólin er
svo falleg ljósaskreyting á
leiðum með rauðum og
hvítum ljósum. Þetta prýð-
ir og gleður augað þegar
maður ekur um þarna.
Vegfarandi.
Tapað/fundið
Kvenúr týndist
KVENÚR með silfurkeðju
og fölbleikri skífu týndist
23. desember, líklega í mið-
bænum. Skilvís finnandi
hringi í síma 698 2822.
Dýrahald
Kettlingar fást gefins
KETTLINGAR, yndislegir
og kassavanir, fást gefins á
góð heimili. Upplýsingar í
síma 587 0754.
Lelli er týndur
LELLI er stór, persnesk-
ur, brúnn fress sem týndist
frá Tómasarhaga 57 sl.
þriðjudag. Þeir sem vita
um hann hafi samband í
síma 552 2174 eða 898 2174.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Dapurlegt
hvað fólk
er tillitslaust
LÁRÉTT
1 gjörvileg, 8 andar, 9
snaginn, 10 slyng, 11
fiskur, 13 nálægt, 15
káta, 18 vísa, 21 lengd-
areining, 22 fæða handa
skepnum, 23 kyns, 24
skreiðar
LÓÐRÉTT
2 kjökrar, 3 nirfill, 4
ásynja, 5 reiður, 6 spil-
um, 7 vendi, 12 tímabil,
14 í uppnámi, 15 rola, 16
gera auðugan, 17 ákveð,
18 herði, 19 þverneita, 20
siga.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 málug, 4 skjól, 7 neita, 8 úlfur, 9 fár, 11 traf, 13
maur, 14 lokka, 15 skrá, 17 logn, 20 hné, 22 mokar, 23
takið, 24 asann, 25 mænið.
Lóðrétt: 1 mennt, 2 leika, 3 graf, 4 skúr, 5 jafna, 6 lúrir,
10 álkan, 12 flá, 13 mal, 15 summa, 16 rukka, 18 orkan,
19 níðið, 20 hrín, 21 étum.
Krossgáta
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16